Tíminn - 16.08.1955, Síða 3
182. blað.
TÍMINN, þriðjudaginn 16. ágúst 1955.
3
Dánarminning: Skúiína H. Stefánsdótíir,
Kirkjubóli
Þann 12. júní síðastl. and
aðíst að Kirkjubólí í Korpu-
tíal í Önundarfirði merkis-
k'öfían Skúlína H. Stefáns-
dóttir, i hárri elli.
Skúlína var fædd í Hrafns
ey á Breiðafirði 17. des. 1868,
og ólst upp hjá foreldrum
sínum Jóhönnu Bjarnadótt-|
úr og Stefáni Guðmundssyni.
:í Arney tU 16 ára aldurs, að
hún réðst til séra Janusar
Jónssonar prests í Holti í Ön-
undarfirði. í Holti dvaldi hún
þar til hún, 1890, gift»st Páli
'Rósinkranssyni í Tröð í Ön-;
undarfirði. Bjuggu þau fyrsta;
árið hjá foreldrum Páls í
Tröð en fluttust síðan að!
KirkjubóU og bjuggu þar alla
tíð síðan. Eignuðust þau 14
börn og náðu 12 þeirra full-
orðinsárum.
Páll Rósinkransson var
mikill athafna- og dugnað-
armaður, framsýnn og áræð
inn. Auk búskaparins stund-
aði hann því sjóinn, var for-
maður á hákarlaskipum og
skipstjóri á skútum um ára-
tugi og var ágætur sjósókn-
ari. Mcðan Páll var fjarver-
andi á sjónum, oft svo mán-
uðum skipti, varð Skúlína að
vera bæði húsbóndinn og hús
móðirin á þessu mannmarga
heimill og búskapurinn varð
að ganga, þótt bóndi væri
ekki heima. Stjórnaði hún þá
búinu af miklum skörungs-
skap. Má því nærri geta að
Skúlína hafi haft ærið að
starfa og oft orðið að leggja
hart að sér, með allan þenn
an barnahóp og forsjá all-
stórs bús. Var viðbrugðið
hreysti hennar, dugnaði og
forsjálni.
Ekki létu þau Páll og Skúl
ina sér nægja að halda í horf
inu með búskapinn heldur
bættu þau jörðina mikið og
reistu stórt og myndarlegt
tveggja hæða steinsteypuhús,
eitt það fyrsta, sem byggt
var á Vestfjörðum, byggðu
peningshús. sléttuðu allmik-
ið af túninu og komu áveitu
á engjarnar. Vegna nýbygg-
inga og umbóta á jörðúini,
var oft margt aðkomumanna
í Kirkjubóli við störf auk
gesta, sem að garði báru, því
gestrisni var mikil.
Sumarið 1930 lézt Páll.
Hætti Skúlína þá búskap en
elzti sonur þeirra, Stefán,
tók vtð búinu og hefir búið
þar af miklum myndarskap
og rausn síðan. Skúlína
dvaldi hjá Stefáni syni sín-
um æ síðan og má heita, að
henni féll’ ekki verk úr hendi
allt fram á síðasta ár, að
hún var ekki vinnufær.
Önnur börn þeirra Pá'.s og
Skúlínu, sem á lífi eru, eru
Skúli, klakstöðvarstjóri; Páll
bryti; Guðlaug; Jóhanna;
Sigríður; Málfríður; Hlíf og
Ingibjörg, giftar og búsettar
í Reykjavík. Þrjú þeirra, er
upp komust, eru látin, Aðal-
heiður, Ágústa og Sveinn.
Skúlína hefir lokið löngu
og ströngu dagsverki. Hún
var hamingjusöm kona, því
hún hafði gleði af starfinu
og naut þeirrar ánægju að
sjá góðan árangur lífsstarfs
síns, sjá 12 mannvænleg oörn
sín '.axa upp tú manndóms
(Framhald á 6. síðu).
Skrifstofuhiísnæði
í Kópavogi
Bapjarfógetaembættið í Kópavogi vantar 70
til 90 fermetra húsnæði í byrjun næsta mán-
aðar. Húsnæðið þarf að vera miðsvæðis í kaup-
staðnum og í götuhæð. Tilboð sendist afgreiðslu
blaðsins fyrir annað kvöld, merkt „Skrifstofu-
húsnæði“.
**S3WS»9W»9S«3SaSSSSSaS38SSS3g53SgSSSS3iasSS3SSSSSSSS33SasaSS3SSS3»
2ÍKSS
Borgfirðingar
Þið, sem eigið matvæli geymd í frystihúsi
voru, utan geymsluhólfa, verðið að hafa tekið
þau fyrir 5. sept. n. k.
Kaupfélag Borgfirðiuga
*^*5jggJSSSStS3CSSCSSCV8SSSSSSSSSSSSSSa6SJSS.SSSS9SmstS.9«ltSlSS8SS»
Þjálfun bændaefna
í Bandaríkjunnm
í Bandarikjunum er félags-
skapur bændafjölskyldna,
sem hefir það meðal annars
á stefnuskrá smni, að auka
vináttu milli þjóða og örva
kynní milý. sveitafólks í
Bandaríkjunum og öðrum
löndum. Eru slík félög í hin-
um ýmsu ríkjum, og mynda
þau samband sín á milli, er
nefnist American Farm Bur-
eau Federation.
Félagsskapur þessi hefir
gengizt fyrir því, að bænda-
efni og ungir bændur frá öðr-
um löndum heimsæktu Banda
ríkin og kynntust þar búnað
arháttum og kjörum sveita-
fólksms. Hefir vedð efnt til
slíkra ferðalaga írá ýmsum
löndum upp á siðkastið. Þátt-
takendurnir, sem verið hafa
á aldrinum 18 til 30 ára, hafa
dvalizt nær árlangt í sveit,
og er leitazt við að útvega
hverjum dvalarstað, þar sem
þær greinar landbúnaöarins
eru helzt stundaðar, sem þátt
takandinn hefir mestan á-
huga á að kynnast. Leitazt
er við að koma bændaefnum
fyrir hjá bændum, sem eru
reiðubúnir tU þess að verja
nokkrum tima til leiðbeininga
við hin daglegu bústörf, sem
gert er ráð fyrir að bænda-
efnin gangi að. Er litið á
bændaefnið sem einn af fjöl-
skyldunni, og gefst þvi tæki-
færi til að taka þátt í félags
lífi sveitafólksins, kynnast
æskulýðsfélögum, starfs-
íþróttafélögum og leiöbein-
ingastarfsemi þeirri í land-
búnaði, sem er á hverjum
stað.
Ætlazt er til þess, að bænda
efnin hafi ekki einungis á-
huga á því að færa sér sem
bezt í nyt þá þekkingu og
reynslu, sem þau verða að-
njótandi, og leitist við að
koma vel fram og vinna störf
sín af trúmennsku. heldur
reyn1 þau eftir heimkomuna
að miðla öðru ungu fólki af
reynslu sinni og verða framá-
menn um bætta búnaðar-
hætti.
íslandi stendur til boða að
senda bændaefni og unga
bændur til Bandaríkjanna á
vegum fyrrnefnds félagsskap-
ar á næsta ári. Verður tala
þeirra mjög takmörkúð. Gert
er ráð fyrir, að þátttakendur
komi til Bandaríkjanna
snemma í janúar og dveljist
þar fram í desember. Sjálfir
verða þátttakendur að greiða
fargjöld milli landa til og
frá lendingarstað í Bandaríkj
unum, en nauðsynleg ferða-
lög innan Bandaríkjanna
verða ókeypis. Auk ókeypis
húsnæðis, fæðis, þjónustu og
trygginga fá þátttakendur
nokkra greiðslu fyrir vinnu
sína, og má gera ráð fyrir,
að hún hrökkvi fyrir nauðsyn
legum, persónulegum út-
gjöldum, meðan á dvölinni
stendur. Enskukunnátta er
nauðsynleg.
Af hálfu íslands mun Bún-
aðarfélag íslands annast milli
göngu í þessu máli, og veitir
það nánari upplýsingar. Um-
sóknareyðublöð liggja þar
frammi. Þeir sem áhuga hafa
á að sækja um þátttöku á
komandi ári, ættu að snúa
sér þangað hið allra fyrsta og
eigi síðar en 10. september.
(Frá Búnaðarfélagi íslands).
tftíftyáiii Twémtm
Blindir
Eftir Snorr
Við Jón kunningi sátum og
ræddum um landsins gagn
og nauðsynjar og bar margt
á góma. M. a. sagði ég hon-
um eftirfarandi sögu og lof-
aði þá jafnframt að rita
hana og koma henni á prent.
En þetta hefir dregist þar til
nú að ég reyni að efna lof-
orðið, enda er ekki í mikið
ráðist. Og ég hefi raunar gam
an af því aö hún geymist, af
því að hún cr táknræn.
Það var fyrir mörgum árum
þegar Iítið var um peninga
manna á milli og mörgum örð
ug lífsbaráttan, að gamall
maður kom til mín og tjáði
mér vandræði sín. Hann var
3ð missa sjónina og þótti það
að sjálfsögðu sárt, því að
heilsan var að öðru leyti góð
og vinnuorka talsverð, er
hann bráði heitt að fá að
nota. En sjóninni hafði hrak
að svo hina síðustu mánuði,
að líklegt þótti að hann
mundi missa hana innan
skamms tima ef ekkert yrði
að gert. Honum hafði því
komið til hugar að reyna að
leita tU sérfræðings í Reykja
vík, sem e. t. v. kynni að geta
bætt úr þessu böli. Og nú
vantaði peninga. Var því er-
indið til mín það, fyrst og
fremst að vita hvort ég sæ1
nokkur ráð til þess að hann
ræti einhvers staðar fengið
lánaða peninga og hvort að
ég mundi vilja ábyrgjast fyr
ir sig greiðslu á þeim, ef til
kæmi.
Við ræddum þetta fram og
aítur og hvatti ég mjög til
þess að þetta yrði reynt og lof
aði þeirri htlu aðstoð, er ég
gæti veitt. Hafði ég þá eink-
um kaupfélagið í huga, og
spyr hann hvort hann hafi
ekki á sínum fyrri árum verzl
að eitthvað við það. Júi, það
hafði hann gert og víst verið
meðlimur bess, en hann væri
nú fyrir löngu hættur þeim
viðskiptum, enda hefði nú
upp á síðkastið verið lítill
slægur í sér. Skildum við þá
í svip og lofaði ég honum að
athuga málið. Og það gerði
ég hinn sama dag. Kom þá í
Ijós að gsmli maðurinn átti
stofnsjóð sinn í kaupfélaginu
óskertan, og var hann með
vöxtum hærri upphæð en sú,
er hann taldi sig þurfa til
lækningaferðar til Reykjavík
ur. Þótti nú heldur vænkast
málið. En því gleymi ég ekki
c * 1 r ^
ta syn
i Sigfússon
hve glaður hann varð og al"
veg steinhissa. Þetta hafð:.
hann ekki grunað, að íi
„kaup fyrir að verzla“, eins'
og hann orðaði þaö. Hanr.
hafði verzlað við kaupfélagið
rétt eins og hvern annan kaup
mann og ekki dotttð í hug a£
það ætlaði honum eitthvac
af hagnaðinum, enda var hor.,
um um annað sýnna en slík£.
útreikninga. „Já, það er þi.
svona. Hefði ég bara alltal
verzlað v^ð kaupfélagið þ£'
ætti ég meira nú“, sagði gaml
maðurinn angurvær.
Og nú var förinni ekk
frestað, því að ekkert var til
fyrirstöðu. — TU Reykjavík
ur fór hann og svo mikla bói
fékk hann á sjóninni, að hani
gat unnið allvel sjáandi nokk;
ur ár, unz heilsan bilaði alveg
Og núi hefir þessi gamli vinui
minn legið mörg ár í grö:
sinni.
En það var honum áhuga
mál eftír þetta, að yngr£
fólkið skúdi betur en hann
að kawpfélagið er til vegna
viðskipíamannanna og æíía)
þel7?z hagnaði?m af viðskipt
iinum.
„Á þetta var ég blindui
lengi,“ sagði gamli maðurinr.
eitt sinn, „en á gamalsaldr
fékk ég sjónina — í tvöfaldr.
merkingu.“
Lengri er saga þessi ekkt
Hún talar sinu máli og þarfr.
ast engra útskýrmga.
(Samvinnan'1
Útsýn til annarra
landa
Næsta sumarleyfisferc
Ferðafélagsins Útsýn hefst L
þriðjudaginn kemur, 16. ág„
Tekur ferðm alls 24 daga, og
verður einkum dvahzt í Lunc.
únum, París og Kaupmanna-
höfn. Fyrri ferðir félagsins 1
sumax hafa heppnazt meí1
ágætum, og róma þátttak-
endur mjög skipulag og að
búnað allan í ferðunum.
Á sunnudagmn kl. 5 e. h
boðar félagið þátttakendur .
næstu ferð til fundar í Sjálf
stæðishúsinu, og verða þá gefr..
ar ýmsar leiðbeiningar varð"
andi ferðalagið. Sökum for-
falla er nú eitt sæti laust 1
bessari ferð. — Sími félags ■
ins er 2990.
F erðabók
Eins og sagt var frá í Timanum nýlega, kemur út í haust
ferðabók, skrifuð í f jarlægum löndum af Vigfúsi Guðmundssyni. Hu,.
er nú h. u. b. fullprentuð og fer í bókbandið nú um næstu mánaða -
mót.
Bókin er tæpar 400 bls. f fremur stóru broti, prentuð á góða:,
pappir, með 60—70 myndum írá mörgum löndum. Aðeins tvær norö •
an Alpafjalla. — Verð til áskrifenda 92 kr. i bandi, en 76 kr. i kapi
Mun þetta einhver ódýrasta bók eftir lestrarmagni, sem út er gefii
nú á dögum.
Stærð upplagsins var ákveðin síðla vetrar og þá miðað við þæ: •
líkur að bókin yrði ekki að flækjast á bókamarkaðnum lengur en næstu
árstíð.
En nú hafa verið reyndar áskriftir að bókinni og fara undh--
langt fram úd öllum vonum. Þess vegna eru þeir, sem kunna að ver:,
ákveðnir að vilja eignast þessa bók, aðvaraðir um að óvist er að húi.
verði til sölu i bókaverzlunum.
Áskriftarlistar liggja frammi i Hreðavatnsskáia og fáeinum fleir.
stöðum. Nú þegar eru áskrifendur komnir að um það bil helming.
upplagsins og fjölgar þeim sífeilt. Hefir þó mjög lítið verið unnið a?:
söfnun þem-a. Ktur því ut fyrir góðar viðtökur.
ÚTGEFANDI.