Tíminn - 02.12.1955, Qupperneq 1
i
SkrUstoíui 1 EddutitlxL
Préttasímar:
•1302 og B130S
AlgrelSslusíml 232S
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
Ritstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Útgeíandl:
Pramsóknarílokkurina
89, árg.
Reykjavík, föstudaginn 2. desember 1955.
275. blað.
Baráttan gegn mænuveikinni
Kiassísk kínver
Hluti af kínversku óperunni fór af landi brott í gær-
morgun með flugvél Loftleiða. Allur farangur óperunnar
fór meö sömu vél.
Tuttugu og sjö manns eru
eftú' og fer sá hópur á laug-
ardaginn. Síðasta sýning Pek-
ingóperunnar var í fyrrakvöld
og við það tækífæri þakkaði
Guðlaugur Rósinkranz þjóð-
Einn bátnr byrjað-
ur línuveiðar frá
Akranesi
leikhússtjóri, listafólkinu fyr-
ir komuna.
Klassísk leikrit gefin.
Ennfrernur gaí þjóoleikhús-
stjóri Su Tu-nan, fararstjóra
óperuflokksins, fagran blóm-
vönd, en Su Tu-nan afhenti
þjóðleikhúsinu sextán bindi
af kínverskum klassískum leik
ritum og nokkrar eftirlíking-
ar af hinum táknrænu grím-
um, sem notaðar eru við leik-
sýningar í Kína. Gjafir þess-
ar eru frá ópsruflokknum
sjálfum.
Grímur til Þjóðminja-
AkranesPátar voru engir á
sjó í gær, enda slæmt sjóveð
ur. Einn bátur, Sigrún er byrj
aður róðra með línu frá Akra
nesi og aflar sæmilega. Fær
báturirin 4—5 lestú’ í róðri
og þykir það ágætur afli á
þessum tíma árs.
Mikið er um skipakomur til
Akraness þessa dagana. —
Straumey kom að norðan með
um 2000 tómar síldartunnur.
Vélskipið Sigríður með kol frá
Englandi og Drangjökull tók
frosinn fisk og síld til Pól-
lands.
Tvíraenningskeppni
kvenna lokið
safnsins.
Su Tu-nan, prófessor, gaf
Þjóðminjasafninu sams kon-
ar grímur og þjóðleikhúsið
fékk. Prófesorinn heimsótti
helztu forustumenn hjóðarinn
ar meðan hann dvaldi hér,
þar á meðal forseta landsins
að Bessastöðum.
Hálka á götom en
fáir árekstrar
Mikil hálka varð á götum
bœjarins skyndUega í gær,
þegar krapahríðin fraus á
akbrautunum. Árekstrar urðu
þó færri en Púast hefði mótt
við og voru ekki nema 5—6.
Verða þeir oft fleiri þó hvorki
sé snjór eða hálka á götunum.
Á mynd>nni sjást þezr tveir vís>ndamenn, sem hafa hreinræktað mænuve>kive>rur á rann-
sóknarstofu sinni í Kaliforníu- Menn þessirheita dr. Schaeffer og dr. Schwerdt. T*1 vinstri
sjást slíkir veirukrystallar, stækkaðir 1500 sinnum. í hverjum krystal er um einn m>ljarff-
ur af veirum.
Róa á dýpri mið
og afla vel
Frá fréttaritara Tímans
á Fáskrúðsfirði.
Sjö bátar stunda róðra frá
Fáskrúðsfirði, þegar gefur og
vel stendur á straum, en und
anfarna daga hefir ekki ver
ið róið. Síöast þegar þátarnir
réru fyi’ir fáeinum dögum var
sæmilegur afli, eða allt upp i
6 lestir á bát. Lögðu þe>r þá
iíruma nokkru dýpra en venja
hefír verið nú að undanförnu.
Fjölþætt hátíðahöld stúd
enta á fullveldisdaginn
Eins og venjulega efndu háskólastúdentar til hátíðahalda
á fullveldisdaginn, 1. des. Ilófust þau með guðsþjónustu í
kapellu háskólans. Séra Sigurður Pálsson í Hraungerði pred-
ikaði. Kl. 13,30 fiutti Halldór Kiljan Laxness aðalræðu dags
ins og talaði úr útvarpssal. Fjallaði ræða hans um sann-
verulegt sjálfstæði þjóðar og manngildi einstaklingsms.Lagði
hann á það áherzlu, að menn létu ekki fríð>ndi og veraldar-
gæði véla s>g til að láta af sannfæringu sinni og rétti.
Klukkan 15,30 héldu stúd-
entar samkomu í hátíöasal
Háskólans. Björgvin Guð-
mundsson formaður stúdenta
ráðs flutti ávarp. Ræddi
hann um endurheimt hand-
ritanna frá Danmörku og
dvöl erlends hers í landinu.
Kvað hann stúdenta krefjast
þess að herinn yrði á brott.
Verður íslendingnum Leifi heppna
reistur minnisvarði í Washington?
Málið komið á dagskrá í Bandaríkjunum
vegna ákvarðana um hverjuin skuli reist-
ir minnisvarðar I höfuðborginni
Tvímenningskeppni Bi’idge-
félags kvenna lauk síðastlið-
inn mánudag. Alls tóku 48
pör þátt í keppninni. Sigur-
vegarar urðu Ása Jóhanns-
dóttir og Kristín Þórðardótt-
ir með 615 stig. Meðalskor var
525 og er þetta því óvenju-
góður árangur hjá þeim. —
Stigatala næstu para var sem
hér segir:
2. Ingibj. Oddsd. og Mar-
grét Jensd. 578, 3. Rósa ívars
og Sigr. Siggeirsd. 577, 4. Egg
rún Arnórsd. og Kristjana
Steingrímsd. 573,5, 5. Ásta
Fiygenring og Ebba Jónsd.
571.5, 6. Ásgerður Einarsd. og
Laufey Arnalds 568, 7. Hug-
borg Hjartard. og Vigdís Guð
jónsd. 565 5 8. Elín Jónsd. og:
Rósa Þorstein.sd. 562,5, 9. Soff;
ía Thecdórsd. og Viktoria Jóns1
561.5, 10. Dagbjört Bjarnad. í
og Liija Guðnad. 555, 11. |
Hulda Bíarnad. og Unnui’l
Jónsdóttir 554.5, 12. Guðríður
Guðmundsd. og Ósk Kristjáns
552, 13. Hanna Jónsd. og Sigr.
Jónsd. 551, 14. Anna Arad. og
Laufey Þorgeirsd. 551, 15.
Anna Guðnad. og Þorgerður
Þórarinsd. 545, 16. Rannveig
Þorsteinsdóttir og Sigurbjörg
Ásbjörnsdóttir 539.
Ýmsir að>lar í Bandaríkj- j
unum hafa hug á því, að
re'sa Leifi heppna minnfs-1
merk> x Washington höfuð-1
borg Bandaríkjanna og vær* ^
þar með á vissan hátt v>ður- i
kenndur landafundur og j
landnám íslendinga- Verði
mmnismerk>ð reist í AVash- j
ínglon gerir Bandaríkja- j
ctjirn það. Vaiclimar Björns
son hlnn ágæti íslendmgur, |
áh -ifainaður í stjórnmálum j
í Minr esoíaríki, hefir nýlega ■
skrifað gre>n um betta mál
í blað bað, sem hann er með
ritstjcri við. Vekur Valdi-
mar máls á þessu í sam-
bandi vzð áform, sem uppi
hafa verið í Washmgton og
á þingi Bandaríkjanna um
aJff reisa ýmsum forsetum
þeirra m>nn>smerki í höfuð-
borg ríkjasambandsins. Var
nýlega ákveðið að ekk> þætti
viðezgandi að reisa forsetum
m>nnismerki, meðan þeir
værú enn í tölu lifenda.
Gáfu íslendingum
Leifsstyttuna.
í sambandi við það, að
minnismerki komust á dag-
skrá í höfuðborginni bentl
Valdimar á það, að vel færi
á því að reisa Leifi heppna
minnismerki í höfuðborg
Bandaríkjanna og viður-
kenna þar með Ameríkufund
hans. Það hafa Bandaríkja-
menn að vísu gert áður, því
e>ns og kunnugt er, var
það ríkisstjórn Bandaríkj-
anna, sem gaf íslendingum
standhxynd þá hina mxklu
af Leifi heppna, séxíi stend-
ur á Skólavörðuholti. Var
myndin gefin 1930 og á henni
er eins og kunnugt er áletr-
un frá Bandaríkjaþjóðinni,
þar sem sagt er að myndin
sé gefin íslenzku þjóðinni af
hinnx bandarísku til minn-
ingar um Leif heppna, son
íslands og könnuð Vínlands.
í grein Valdimars er þess
getið, að afsteypa muni vera
til af myndinni í Bandaríkj
nnum og sé bví annað hvort
liægt að setja liana upp í
Washington, eða láta gera
aöra með það fyrir augum.
Þar sem þessu máli hefir
nú verið svo myndarlega
hreyft, er vel líklegt aö að-
xlar í Wasliington taki málið
upp, með þeim árangri að
þessum syni íslands verði
reistur veglegur minn>svarði
í höfuðborg Bandaríkjanna
og þar með endanlega v>ður-
kennt, að það hafi verið ís-
lendingurinn Leifur heppni,
sem fyrstur fann Ameríku.
(Framhald á 2. síSu.)
Kvöldvaka Frara-
sóknarmanna er í
Tjarnarkaffi í kvöld
Kvöldvaka Framsóknarfé-
laganna í Reykjavík hefst kl.
8,30 í kvöld í Tjarnarkaffi.
Þegar er séð, að aðsókn verð
ur mikil, og er því nauðsyn-
legt, að þeir, sem hafa
tryggt sér miða sæk> þá í
dag i skrifstofu Framsókn-
arfélaganna í Edduhúsinu,
og aðrir, sem ekki hafa pant
að miöa gerx það þegar S
síma 5564 og 6066.
Vel er vandað til skemmti-
atriða þessarar samkomu.
Fyi’st er sögulestur, Sveínxi
Skorri Höskuldsson. Þá
skemmtir Karl Guðmunds-
son, leikari, og flytur þátt,
sem nefnist Nóbelsverðlaun
in. Þar næst er spurninga-
þáttur og að lokum verður
dansað.
Fjölmennið i Tjarnarkaff*
í kvöld.