Tíminn - 22.01.1956, Page 12

Tíminn - 22.01.1956, Page 12
40. árgangur. Reykjavík, 22. janúar 1956. 18. blað, Reykjavíkurbörnin nota sér skiðafærið í Öskjuhlíðinni Það er raunar ekki oft, sem Reykjavíkurbörn geta farið á skíði við bæjarvegginn, eða svo hefir ekki verið undanfarna vetur. Nú er ekki langt að fara í skíöasnjóinn og Öskjuhlíðin er einn af þeim fáu stöðum í ná- grenni bæjarins, þar sem hægt er að komast í örlitiar skíðabrekkur. Hn hlíðin er grýtt og því ekki hæf til skíðaferða, nema þegar töluverður snjór er á jörð. Myndin er af skiðaferðum barna i Öskjuhlíðinni. (Guðni Þórðarson tók myndina). Aftaka fárviðri í Danmörku veld- ur stórfelldu tjóni. Nokkrir farast Kaupmannahöfn, 21. jan. — Aftaka fárviðri af norðvestri gengur yfir Danmörku og sunnanverða Skandinavíu. Tjón af völdum fárveðurs þessa er þegar orðið mjög mikið og þó langt frá því, að öll kurl séu komin til grafar. Einkum hefir tjónið orðið mikið á Sjálandi. Fimm manns hafa farizt svo að vitað sé. Samgöngur hafa allvíða teppzt og símalínur slitnað. Ólafsvíkiíigar ætla að róa í næstu viku Frá fréttaritara Tímans í Ólafsvík. Sjómenn og útvegsmenn í Ól- afsvík eru nú alveg að missa þol inniæðina vegna róðrarbannsins og inunu hefja róðra í næstu viku, hvað sem tautar. Eigendur nokkurra bátanna í Ólafsvík eru ekki bunduir af skuldbindingar- víxlum, en aðrir lofuðu að róa ekki fram til 10. janúar. Margt aðkomufólk er koinið í verið til Óiafsvíkur og þykir því að vonuin heldur daufieg vistin í verstöðinni, þegar eins er uni- hvorfs og nú er. Ekki er að fullu ákveðið hvort 10 eða 11 bátar verða gerðir út frá Ólafsvík í vet ur, en þeir voru 8 í fyrra. Hefir útgerð þaðan vaxið stórlega á hverri vertið að undaníörnu, enda liafa bátar þar aflað yfir- leitt vel og oft ágætlega. Aðstaða til þess að taka á móti afla er líka orðin mjög góð í kauptún- inu. 'Jtá ihh^ölm □ Hvolsvelli, 21. jan. — Á síöasta ári bættust um 70 heimilisdrátt- arvélar viö véiaeign bænda hér í sýsiunni, og er nú dráttarvéla- eignin alls orSin um 350 í hér- Eins og kunnugt er liggur há- þrýstisvæði yfir íslandi og allt vestur til Grænlands. Þegar hinn kaldi loftstraumur af þessu svæði mætti hlýrri vindum af Norðursjó, myndaðist mjög mikil lægð á haf- inu fyrir vestan Danmörku, og varð af því fárviðri þetta. Nokkrir farast. Eins og áður segir er vitað með vissu um fimm menn, sem farizt hafa í Danmörku. f Kaupmanna- höfn fuku vinnupallar undan tveim trésmiðum, sem voru að vinnu sinni. Biðu þeir báðir bana. Á Falstri hrundi hús yfir foreldra og þrjú börn þeirra. Fórst eitt barn- anna. Tré brotna, vegir teppast. Veðurofsinn er svo mikill, að tré slitna upp með rótum eða brotna. Hafa þau víða fallið á vegi tii ameAja mjólkur s. I. ár og er aukningin 13% frá fyrra ári. Meginhluti mjólkurmagnsins fór tii vinnslu smjörs, skyrs og osts. og járnbrauíir. Var mildi, að ekki hlauzt stórslys af, er tré féll á veg aðeins 10 metra fyrir framan áætlunarbifreið, sem ók með all- miklum hraða. Nokkrir af farþeg- unum meiddust. Skip hætt komin. Fregnir höfðu borizt í gærkveldi um 6 fiskiskip við vesturströnd Jótlands, sem voru hætt komin og tókst með naumindum að ná landi. Skaðar hafa einnig orðið af veðr- inu um sunnanverðan Noreg og Svíþjóð, en ekki hefir frétzt þaðan um mannskaða eða jafnstórfellt tjón og í Danmörku. Poujade dæmdiir fyrir meiðyrði París, 21. jan. — Dómstóll í París dæmdi í dag Pierre Poujade for- ingja hins nýja flokks, sem við hann er kenndur, til að greiða 500 þús. franka í miskabætur til for- seta franska þingsins fyrir æru- meiðar.di illyrði, sem hann bar á forsetann í kosningabaráttunni fyr ir seinustu áramót. aöinu. □ Akureyri, 21. jnn. — FóikiS á ' Mýri í Bárðardal hsfir óvenju- I legan vetrargest. Þaó er svart- j þröstur, sem settist að í fjárhúsi þar i nóvember, flýgur. út um strompinn á daginn, þegar gott er, en kemur irsn að kviiidi. Þigg ur hann korn og aðrar matar- gjafir og er orðlnn gæfur. □ Húsavík, 21. jan. — Mjólkursam- lag Kaupfétags Þingeyinga tók á móti tæplega 2 millj. lítra □ Se'fossi, 20. jan. — Bændur í héraðinu telja heyin frá sumr- ir,u nijög létt en étast vel og skepnur eru heilbrigðar af þeim. Hins vegar verSur að gefa mjög mikinn fóðurbæti, eigi búféð að sýna arð. □ Fosshóii, 18. jan. — Ungmenna- féiagið Gaman og alvara í Ljósa- vatnshreppi hefir undanfarið sýnt sjónleikinn Ráðskona Bakka bræðra, en vsgna ófærðar ekki getað sýnt í öðrum sveitum eins og ráðgert var. Skáifioffsfnmerkin komin Hin nýju Skálholtsfrímerki, 75+25, 125+75 og 175+125 aur- ar að gildi verða til sölu frá og með deginum á morgun, 23. jan- úar 1956. Frímerkin eru prentuð hjá Thomas de la Rue & Co., Ltd., London. Fjölmenniðáfundinn umsjáv arútvegsmálifl annað kvöld Athygli skal vakin á því, að Framsóknarfélag Reykja« víkur hefir boðað til almenns umræðufundar í Tjarnar* kaffi annað kvöld (mánudag) kl. 8,30. Félagsstjórnin hefir boðið Finnboga Guðmundssyni, útgerðarmanni að flytja erindi um fundarefnið og Stefán Jónsson, skrif« stofustjóri, mun flytja framsöguræðu. Fjölmennið á fundinn og takið þátt í umræðum urrt þessi mál. .J IViesta verkfall í sögu Ástralíu vofir yfir Hafnarverkamenn segjast þrauka 6 mánutSi ! Sidney, 21. jan. — Nýjar viðræSur fulltrúa hafnarverka- manna í Ástralíu og skipaeigenda í dag báru engan árangur. Virðist því víst, að verkfall það, sem samþand hafnarverka* manna hefir boðað til, muni hefjast á miðnætti á sunnudags* kvöld. Taka þátt í því 26 þús. verkamenn og er það mesta verkfall, sem gert hefir verið í Ástralíu, ef til framkvæmda kemur. Verkfallið mun ná til 50 hafna og hindra afgreiðslu 100 erlendra skipa, sem þar eru nú stödd. j 4 Verði verkfallið langt mun það hafa mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir atvinnulíf Ástralíu, einkum mun það koma illa við útflutning landsmanna á ull og öðrum landbúnaðarvörum. Foringjar verkfallsmanna sögðu í dag, að sambandið hefði búið sig undir að heyja 6 mánaða verkfall til að knýja fram kröfur hafnar- verkamanna um bætt launakjör og atvinnuöryggi. Krefjast þeir fastra vikulauna, sem nemi 12 pundum áströlskum á viku. Auk þess krefjast þeir hækkunar bið- peninga úr 16 shillingum í 2 pund. Biðpeningar eru laun fyrir að vera á vinnustað, þótt engin vinna sé þá stundina. Ríkisstjórnin held ur ráðuneytisfund um málið á morgun. Norræni Sumarhá- skólinn í Askov næsta sumar Námskeið til undirbúnings þátt töku í Norræna Sumarháskólan- um hefst í byrjun febrúarmánað- ar n. k. Verður Sumarháskólinn haldinn í Askov í Danmörku næsta sumar. Þeir, sem sækja undirbúningsnámskeiðið, munu sitja fyrir um styrki, sem veittir kunna að verða til þátttöku í Sum arháskólanum. Þeir, sem áhuga hafa á því að taka þátt í undirbúningsnámskeið inu, eru beðnir að snúa sér fyrir 1. febrúar til Ólafs Björnssonar, prófessors, eða Sveins Ásgeirs- sonar, hagfræðings, sem gefa all- ar nánari upplýsingar. Breti fyrstu verðlaen í Monte Carlo I keppninni ! London, 21. jan. — Fyrstu verð- laun í Monte Carlo . kappakstrin- uni voru unnin af Rretanum Ronald Adams frá N-írlandi og tveim félögum háns. Óku þeir Jaguar-bifreið. Önnnr verðlaun hlutu ÞjóSverjar, sem óku Mer- cedeslBenz-bifreið. 80 bifreiðar cedes-Benz-bifreið. 80 bifreiðar ar, sem var 150 km, langur hring akstur á erfiðum fjallvegum um- hverfis Monte Carlo, en 72 komu að marki. Ábyrgur fyrir klaufa- legu orðalagi Washington, 21. jan. — Rit- stjóri tímaritsins Life, sem fyrir skömrnu birti viðtal við Dulles, utanríkisráðhérra. Báhðaríkanna, sem frægt er orðið, hefir nú lýst yfir, að hann taki á sig ög starfs- fólk sitt alla ábyrgið á klaufalégu orðalagi í viðtali þessu, en Dulles hefir kvartað yfir, að skoðanir sínar væru illa túlkaðar í viðtal- inu og jafnvel rangfærðar, syo að misskilningi,.gæti valdið. Seg- ir samt að efnislega sé rétt eftir sér haft, enda hafi hann margoft áður sett fram svlpaðár skoðanir. Seljalandsá flæðir yfir veg- inn og veldur farartájjipa r * f :< í Frá fréttaritara Tímans á HvölsVeíH. i v- i r. Hér hefir ura tíma verið óvenjulega frosthart yeður og snjór talsverður á jörð, svo að heita má, að alger járðbönn séu. Færi á vegum er þó sæmilegt og hafa mjólkurfluthírigar gengið eðlilega. Seinfært er þó niður á Bakkabæi. Seljalandsá hefir hlaupið úr farvegi sínum á kafla og veldur nokkrum farartálma. í frosthörkunum síðustu dagana hefir Seljalandsá bólgnað upp og hlaupið úr farvegi sínum og flæðir nú á nokkuð löngum kafla yfir þjóðveginn og eftir honum bæði austan og vestan brúarinnar, og er austurleiðin nú ófær lrtlum bif- reiðum, en mj ólkurbíiar-mg aðrir stórir bílar hafa enn komizt þar leiðar sinnari Ekki hafa önnur vötn farið úr farvegi svo að valdið hafi farartúlmum. P.E.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.