Tíminn - 21.04.1956, Síða 2
.1
iiií.í;.' 'C'^j sl
e
ti! útianda s sumarleyfum sínum \ suniar
Svo virðist sem nú sé mjög mikill áhugi hjá fólki fyrir ut-
anlandsferðum í sumar og segir Ásbjörn Magnússon for-
stjóri Orlofs, að sjaldan eða aldrei hafi eins margt fólk spurt
um möguleika á því að komast út fyrir landsteinana í sumar-
leyfinu.
Námsstyrkur við
Wisconsin-háskóla
Háskólinn í Madison, Wisconsin,
i Bandaríkjunum, bauð fyrir
nokkru fram 1500 dollara styrk til
handa íslenzkum stúdont til náms
ivalar þar vestra næsta vetur, og
var Háskóla íslands falið að aug-
ýsa styrkinn og úthluta honum.
Styrkur þessi hefir nú verið
veittur Halldóri Sigurðssyni, rit-
höfundi, sem hefir tekið höfundar-
nafnið Gunnar Dal. Hann hefir
stundað heimspeki við háskólana
í Edinborg og Kalkútta og gefið út
tvö rit um heimspekileg efni, auk
Ijóðabókar, svo sem kunnugt er.
tfann hyggst leggja stund á amer-
ska heimspeki þar vestra og rita
am hana í framhaldi af hinum
fyrri bókum.
Prófessor Einar Haugen frá
Madison, sem hefir dvalið hér á
landi undanfarna þrjá mánuði og
flutt nokkra fyrirlestra við háskól-
ann, hefir haft milligöngu um styrk
þennan.
Hátíð skólabarna i
Vík í MýrdaS
Skólabörn i Vík í Mýrdal efndu
til hátíðahalda á sumardaginn
fyrsta undir forustu Björns Jóns-
sonar, skólastjóra. Fór þar m.a.
fram í annað sinn Skólahlaupið,
sem er víðavangshlaup drengja úr
barnaskólanum. Jón Kjartansson,
Hlíðarenda, bar sigur úr býtum og
hlaut í annað skiptið skólabikarinn
sem vinnst til eignar ef sami mað-
ui' vinnur hann þrisvar í röð, eða
fimm sinnum alls. Annar að marki
var Sveinn Kjartansson og þriðji
Einar Matthíasson. Þá voru og leik
sýningar og víkivakar til ágóða fyr-
ír ferðasjóð skólabarna. Víkurbíó
hafði kvikmyndasýningu og runnu
tekjur af henni í sjóðinn. Þóttu
hátíðahöldin fara hið bezta fram.
Nýtt slenzkt leikrit
frumsýnt bráðlega
í Þjóðleikhúsinu
Ásbjörn segir að áberandi sé,
hvað fólk sé nú farið að meta bet-
ur að verðleikum þá kosti, sem hin
ar skipulögðu hópferðir hafa fram
yfir ferðalög einstaklinga, sem lit-
ið eru vanir því að ferðast. utan-
lands. Verða þær ferðir vftnjulega
mun ódýrari fyrir hópana, auk þess
sem fólki gefst þá kostur að sjá allt
hið merkasta, sem hægt er að sjá
á þeim stöðum, sem farið er um.
tekið fyrir utan.landsferðir fólks,
enda þótt um tilfinnanlegan gjald-
eyrisskort væri að ræða hjá þess-
um þjóðum eftir stríð.
Næsta utanlandsferð Orlofs verð
ur til Italíu. Farið með járnbraut
frá Þýzkalandi beint suður til Ver-
óna og síðan með bil í þriggja
vikna ferð um fegurstu og sögu-
frægustu staði Ítalíu. Fararstjóri
verður Thor Vilhjálmsson.
Næsta viðfangsefni Þjóðleik-
hússins, á eftir Djúpinu bláa,
verður nýtt íslenzkt leikrit, eftir
Tryggva. Sveinbjörnsson. Fékk
það fyrstu verðlaun íslenzkra leik
rita í samnorrænni leikrita-
keppni. Heitir þetta leikrit „Spá
dómurinn“. Leikstjóri verður
Indriði Waage.
Nú eru sýnd þrú leikrit í Þjóð
leikhúsinu, fslandsklukkan, sem
enn gengur fyrir fullu liúsi og bú
ið er að sýna sextán sinnu í vet
ur, Maður og Kona, sem sýnt
verður einu sinni enn og búið er
að sýna 23 sinum fyrir fullu húsi
og loks Vetrarferðin, sein búið er
að sýna fimm sinnum.
íbúar Limasoll fá sam-
eiginlega refsingu
Nicosia, 20. apríl. — Landsstjór-
inn á Kýpur hefir kveðið upp þann
úrskurð að ölium íbúum Limasoll
á Kýpur skuli hegnt sameiginlega
fyrir morð á grískumælandi lög-
reglumanni, sem framið var í bæn-
um í gær. Úlgöngubann verður í
bænum aö næturlagi til þriðju-
dags, öllum samkomuhúsum og
skemmtistöðum verður lokað þenn
an tíma og fleiri ráðstafanir gerð-
ar, sem lama allt eðlilegt líf í bæn
um. Útgöngubann hefir verið sett á
12 þorp á norðvestur hluta evjar-
innar fyrir mótþróa við Breta. —
Landstjórinn var sjálfur viðstadd-
ur í dag, er 1200 hermenn fram-
kvæmdu leit í hverju eina.sta húsi
í þorpi einu rétt við Nicosia.
Margir komu til Hafnar, en fáir
sáu nokkuð nema Ráðhústorgið
og „Strikið".
Ég var fimm ár fulltrúi íslenzku
flugfélaganna í Kaupmannahöfn,
sagði Ásbjörn, og þá kynntist ég
því hvað það voru fáir, af þeim
mikla fjölda, sem þangað kom að
heiman, sem sá sig nokkuð um í
borginni að ráði, svo ekki sé talað
um aðra hluti Danmerkur, sem auð
velt ér að ná til þegar til Hafnar
er komið.
Flestir létu sér nægja að eyða
mörgum dögum í tilganslaust
ráp um sörnu göturnar, Ráðhús-
torgið og „Strikið", en sáu hvorki
þá staði, sem tengdir er.u sögu ís-
lands, eða það sem að öðru leyti
er markverðast að sjá í borginni.
Utanlandsferðir ekki talin gjald-
eyrissóun hjá menningarþjóðum.
Margir tala urn, að það sé óþarfa
eyðsla á gjaldeyri að fara ^til út-
landa, en nágrannaþjóðir okkar,
sem betur kunna að fara með gjald
eyri en við, eru ekki á sama máli.
Þanr.ig hafa Bretar og Danir aldrei
Heimsóknin
(Framhald af 1. sfðu.)
svöruðu í sama tón. Taldi Búlganin,
að héðan í frá myndi sambúð Breta
og Rússa batna smátt og smátt,
stig af stigi. Ferð þeirra félaga
bæri að skoða sem upphaf að þeirri
þróun mála.
Sýningar hefjast á kvik
mynd af konungskomu
í dag hefjast í Nýja Bíó sýning-
ar á kvikmynd frá konungskom-
unni, er móttökunefndin lét taka.
Sýning myndarinnar tekur um 45
mínútur. Jafnhliða henní verður
sýnd íslandsmynd, er rússneskir
kvikmyndatökumenn tóku hér 'í
fyrrasumar. Hún er í Agfa-litum
með dönsku tali.
Konungskomumyndin er tekin
af fjórum íslenzkum ljósmyndur-
um, þeim Óskari Gíslasyni, Vigfúsi
Sigurgeirssyni, Hannesi Pálssyni
og Hannesi Guðmundssyni, og er
unnin að öllu leyti hér heima.
Kynnir er Bjarni Guðmundsson,
blaðafulltrúi.
Saksóknarar reknir
í Póllandi
Varsjá, 20. apríl. — Ráðlierra
þeim, sem fram til 1953 fór með ör
yggismál í Póllandi og síðan hefir
gegnt öðru ráðherraeiubætti var í
dag vikið frá embætti ásamt rheö
tveim öðrum opinberum stari's-
mönnum, saksóknara ríkisins og
saksóknara hersins. Þeim tveim sið
arnefndu var gefið að sök, að því
er Varsjárútvarpið tilkynnir, að
hafa framið ýmis embættisafglöp,
en um ráðherrann var ekki getið.
Þá hefir þingnefnd krafizt þess, að
réttarfarskerfi landsins verði end-
urskoðað og m. a. tryggt, að dóm-
arar séu svo óháðir og friðhelgir í
embættum sínum, að þeir geti ó-
hindrað framkvæmt skyldustörf
ísl. unglingar á sænsk-
um verknámsskóla
Fyrir atbeina Norrænafélagsins
fá 14 unglingar ókeypis skólavist á
sænskum verknámsskóla. Þessir
unglingar fá ókeypis vist á Osby
lantmannaskola í Skáne í Svíþjóð
í sumar. Nöfn þeirra eru: ■
Ágústa Sigurðardóttir, Rvík.
Árni.B. Sigurbjörnsson, Rvík.
Björn Gunnarsson, Rvík.
Emdía*Jónsdóttir, Rvík.
Erla Þórðardóttir, Laugárvatni.
Hulda Ingvarsdóttir,, Rvík.
Ingibjörg Sigurðardóttir, Áness.
Jóhanna Steinþórsd., Hæli, Árn.
Ljótunn Indriðadóttir, Rvík.
Hólmfríður Sigurðard., Mosf.sv.
Margrét Gísladóttir, Rvík.
Oddný Vilhjálmsdóttir, Rvík.
Þórunn Jónsdóttir, Akranesi.
Sigurbjörg Jónsd., Rvík.
Þetta er í þriðja sinn, sem rekt-
or Emil Arfwedson í Osby býður
íslenzkum unglingum fría skólavist
sumarlangt.
T í MIN N, laugardaginn 21. aprfl 195U.
íslendingar þurfa að fylgjast með kjarn-
orkurannsóknum eins og aðrar þjóðir
Notkun kjarnorku til lækninga og í þjón-
usiu atvinnuveganna fer hraðvaxandi
Alþingi Eiefur tekiS fðrystu s ssiéiinu sam»
kvæmt tiHögu Frantsékiiarmansia.
Hagnýting kjarnorku til írið-
samlegra starfa virðist vera eití af
stærstu viðfangsefnum vísiödanna
nú á tímum. Engin þjóð, hvort
sem hún er fjölmenn eða fámenn,
getur talið það sér óviðkomandi.
Það viðhorf hafa íslendingar fyrir ,
sitt leyti staðfest með þátttöku í j
alþjóðaráðstefnu þeirri, sem hald-
in var í Genf í ágústmánuði í sum-
ar.
Framangreind urnmæli eru úr
greinargerð fyrir tillögu til þings-
ályktunar, sem Framsóknarmenn-
irnir Skúli Guðmundsson, Vilhjálm
ur Hjálmarsson, Karl Kristjánsson,
Gísli Guðmundsson og Helgi Jón-
asson fluttu á síðasta Alþingi, um
kjarnorkumál.
Tillagan var samþykkt í þir.glok-
in í síðastl. mánuði og er svohljóð-
andi: „Alþingi ályktar að fela rik-
isstjórninni að láta fram fara ræki
lega athugun á því, hverjir mögu-
leikar eru til hagnýtingar kjarn-
orku og geislaVirkra efna hér á
landi í þágu atvinnuveganna og til
lækninga og gera ráðstafanir til,
ef heppilegt þykir, að athuguðu
máli, að rannsóknarráð ríkisins
fylgist með nýjungum í þeim efn-
um og hafi með höndum rannsókn
ir og forgöngu um framkvæmdir,
eftir því sem gagnlegt þykir og' víð
ráðanlegt er.“
í sambandi við þetta mál hefir
verið bent á, að framleiðsla á
„þungu vatni“ við jarðhita kunni
að geta orðið arðvænlegur stóriðn-
aður hér á landi.
Jafnframt hefir það gerzt í mál-
inu, að stofnuð hefir verið, með
atbeina rannsóknarráðs, fjölmenn
kjarnorkunefnd áhugasamra sér-
fræðinga hér á landi, og hefir
nefndin skipt með sér verkum,
þannig að sérstök undirnefnd at-
hugar sérstakléga notkun geisla-
virkra efna til lækninga, önnur
hagnýtingu slíkra efna í þágu land-
búnaðarins, þriðja möguleika til
framleiðslu á þungu vatni o. s. frv.
Er ástæða til að ætla, að íslenzkir
vísindamenn eigi eftir að vinna
þjóðinni mikið gagn á þessu sviði,
enda þótt undirstöðu þekkingar-
innar sé og verði að sjálfsögðu aíl-
að meðal stærri og auðugri þjóða.
Það slys varð á Hverfisgötu í
gær á móts við nr. 59, að ungl-
ingsdrengur lenti á vörubifreið og
slasaðist.
Slysið varð með þeim hætti, að
drengurinn mun hafa ætlað yfir
götuna, en ekki gætt nógu vel að
sér. Hljóp hann út af syðri gang
stétt og lenti á hægri hlið bíls
ins með þeim afleiðingum að hann
fékk sár á höfuð og heilahristing.
Blaðið fékk þær upplýsingar hjá
lögreglunni í gær, að Margrét Ól-
aísdóttir, sem varð fyrir bifreið
fyrir viku og hefir legið
meðvitundarlaus síðan, hafi verið
farin að nærast í gær, en ekki far
in að tala. Margrét er átta ára.
Nú er röðin komin
að bókmenntunum
Nú hafa stjórnendur Rússlands
snúið sér að því að uppræta og
fordæma allar bókmenntir frá
Stalíns-tímanum. Nú er verið að
fræða verkamenn, rithöfunda,
sögukennara, menntamenn og list
málarana á því, að stjórnarstefna
Stalíns liafi reynzt röng og hættu
leg og jafnframt beri að upp-
ræta allar bókmenntir frá þeim
tíma til þess að vinna að fullu
bug á persónudýrkun og efla hina
„samvirku forffktu“. Er nú viður-
kennt, að bókmenntir hafa verið
notaðar eingöngu til flokkslegra
þarfa kommúnistaflokksins til að
útbreiða stefnu þeirra. Með þess-
ari viðurkenningu á misnotkun
bókmennta og lista í Rússlandi er
staðfest allt það sem blöð lýðræð
isflokka Vesturlanda hafa ætíð
lialdið fram um ástandið í Rúss-
landi og hvernig valdhafarnir
liafa notað rithöfunda og lista-
menn tii að koma kenningum sín-
lím á framfæri.
Danskirbakararog sjó-
menn enn í verkfallinu
Einkaskeyti frá Kaupmannahöfn
Bakarasveinar og sjómenn halda
áfram verkfalli sínu. Bakarasvein-
ar mættu ekki í morgun til vinnu,
þrátt fyrir fyrirskipun stjórnar fé-
lagssamtaka sinna um að gera svo.
Verða þeir nú að greiða dagsektir,
20 kr. danskar á dag hver maður.
Nema þesspr sektir nú samtals um
15 þús. kr. Sjómenn hafa enn ekki
tekið upp vinnu, en þeir halda
fund í kvöld og taka þar ákvörðun
um, hvort verkfallinu skuli haldið
áfram.
„Káta ekkjan"
í ÞjóðSeikhúsinu í vor
f vor verður söngleikurinn
„Káta ekkjan“ sýnd í Þjóðleik-
húsinu. Verður það síðasta við
fangsefni Þjóðleikhússins á leik
árinu og liefir leikárinu venju-
lega lokið með söngleik, en þeir
hafa jafnan náð miklum vinsæld
um. Má reikna með að svo verði
enn að þessu siiíifi.
Káta ekkjan verður frumsýnd
um mánaðarmótin maí og júní.
Sænska söngkonan Stina Britta
Melander fer með aðalhlutverkið.
Mývetningar líta mjög alvarlegnm
augum á landnám minksins |>ar
Hætta á útrýmingu fágætra andategunda
svo sem húsandarinnar.
Frá fréttaritara Tímans
í Mývatnssveit.
Almennur sveitarfundur í Mý-
vatnssveit haldinn að Skjólbrekku
31. marz 1956 lítur mjög alvarleg-
um augum á minnkapláguna, sem
nú vofir yfir þessari sveit. Lítur
fundurinn svo á, að svo rnikil
hlunnindi og náttúruauðæfi scu
hér í veði, að það verði að gera
allt, sem hugsanlegt er, til útrým-
ingar þeim ófögnuði. Lítur fund-
urinn svo á, að ríkinu beri skylda
til að bera allan kostnað af eyð-
ingu minka. Minnkurinn var flutt-
ur inn á ábyrgð hins opinbera áii
nokkurrar íyrirhyggju. Skorar því
fundurinn eindregið og alvarlega”á
Alþingi og ríkisstjórn að gera aHt
sem unnt er til eyðingar minki og
reyni að finna nýjar leiðir til út-
rýmingar honum. Viljum við ber.da
á að hér við Mývatn er fjölskrúð- ■
ugt fuglalíf, og jafnvel fuglategund
ir, sem ekki eru annars staðar til
í heiminum, eins og Húsönd, og er
liún í hvað meslri hættu, þar sem
hún er hér allan veturinn við Mý-
vatn og Laxá. Tillagan var sam-
þykkt með öllum atkvæðum. pj.