Tíminn - 17.05.1956, Blaðsíða 12
Veðrið í dag:
1 Sunnan gola víða skýjað.
40. árg.
Veðurúlli! i d»g: j
• ií 4A, «»* riiMt»t j
1L‘» ihí I..m !«$<»;
t'
;i**aV KoparpoHi úr sælgætisgerð, 0!ín.
, >. im burf i hjólbörum og buöu
sem broiajárn
\ l" ----
>'*»•» ••*!■ |M\
-** ' ?*>
:«f.4 ■- • Z-1'
ivlp *<* *-..•
:V* •>■ i-;*i
L'*r'í*»iKjíksí V •••> i
-i já •iý/'.-í'-
♦;r .. . ÍA **>•• IA
» M- A ... • . . !*';>• Lt
ÍA».-. " ' ". ■:
Vf'O-rl’AiiA^Í-S' ,'iíS kví»»tóu pS-.jj
4r, '• . u '• * '» *••• i ***r *nt ' Jf
.r i'Sf&'x ;.-á..'£*•■j** ♦'vmrifcjwid.if* -jT" T
Kt tA. Vitr.S' .;/» rvír.K!
* :.:■*. á .><*'• '.Uufl'tlh-
... »•;;.; Yt ’•' 'i> hh'* ♦ :«ukk.urrf»
- a*a p*t:*e'i ttn iý'. *'• 'u'r«4 «•*.-/*
. '• ifv;r.*J *.*•• ;* . .;: *.f;';n; i Attítui' -
. , ívti'inrr. K:»*.<p • .•'>*.■% * r 2.n m
i „A hfji'.-.-j. <-*.•* 4*i •.•«*]>;-.; Ynn,ut.
»■•„♦ (.„«.•, :■ iyvjr-wató
,Tvær fyrirsagnir á sömii bls. í Mbl. -
Myndin sýnir tvær fyrirsagnir á
sömu blaðsíðu Jlorgunblaðsins s. 1.
laugardag. Önnur fregnin — sú
minni —- fjallar um kaup íslend-
inga á stærsta skipi kaupskipaflot-
ans og einhverja þýðingarmestu
ráðstöfun til eflingar atvinnulíf-
inu, sem gerð hefir verið nú um
langan tíma, en hin — sú stærri
— um þjófnað á potti úr sæl-gætis
gerð hér í bænum. Hvernig ætla
menn nú að blað, sem sér viðburði
í sínu eigi landi með svona gler-
augum, gangi að átta sig á og
leggja rétt til erlendra tíðinda?
Meðferð Morgunblaðsins á fregn-
inni af kaupum olíuskipsins sann-
ar óumdeiianlega, að allar „fréttir“
i því blaði eru fyrst látnar á vog
pólitísks áróðurs og ,,gildi“ þeirra
fyrir „flokkinn‘ vigtað áður en
lengra er haldið. Og þá verður út-
koman oft eins og í þetta sinn, eða
eins og þegar Mbl. varð að algerðu
viðundri í frásögn sinni af NATO-
fundinum og bjó til heljarmikla
stríðsfyrirsögn um fundinn á sama
tíma sem önnur blöð gerðu hin
nýju viðhorí að umræðúefni á hóf-
legan hátt.
Ismay Iávar'ðnr á bla'Samamiaíundi í Osló:
•Iflfitl
Brefar sprengja kjarn-
orkusprengjur
í fyrrinótt á fjórða tímanum
sprengdu brcvkir og ástraiskir
kjarnorkufræðingar kjarnorku-
sprengju á Monte ÍJello við Ástr-
alíu. Vfðstaddir voru um 2000
brezkir og ástralskir liermenn,
vísindamenn og ýmsir aðstoðar-
menn. Er þetta þriðja kjarnorku-
sprengjan í tilraunaskyni, sem
Bretar gera. Vetnissprengjutil-
raunum Bandaríkjamanna við
Marsiiaiieyjar í Kyrrahafi hefir
nú verið frestað sjö sinnum
vegna óliagstæðra veðurskilyrða.
Ráðgert var að reyna enn einu
sinui á morgun.
r
Iþrótianámskeið
á Hólmavík
| Axel Andrésson sendikennari
j í. S. í. og fræðslumálastjóinar
j hefir nýlokið námskeiði á Hólma-
! vík. Þátttakendur voru úr ung-
llinga- og barnaskóla kauptúnsins
og úr U. M. F. Geislanum. Ails
i voru þeir 123, eða 4. hver maður
kauptúnsins. Áhugi og árangur var
mikill. Seinustu 4 daga námsKeiðs
ins fóru fram í félagsheimilinu!
sýningar á Axelskerfinu fyrir hús-
fylli áhorfenda. Námskeiðið stóð
frá 10. apríl til 4. maí.
únistar aö heimsyfirráðum
Rússar ero neyddir til að draga úr herafla
sínum til að halda framfeiðslunni gangandi
Osló, 16. maí. — Ismay lávarður, framkvæmdastjóri NATO,
hélt blaðamannafund í Ösló í dag. Sagði Ismay, að misskiln-
ings hefði víða gætt varðandi ályktun síðasta funds utanríkis-
ráðherra NATO í París. Hana mætti alls ekki skoða sem svo,
að aðildarríki NATO mættu leggja niður allar varnir mog
leggja eingöngu áherzlu á efnahagsmál og félagsmál Aílants-
hafsríkjanna.
Biti á nokkrum iioðum klukkaa 18:
Hiti á nokkrum stöðum kl. 18:
Reykjavík 5 stig, Akureyri 3,
London 15 stig.
Fimmtudagurinn 17. maí 1956.
Morðingi Inu var einn álrnga
samasti leitarmaðurinn
Verkstjórinn reyndi eitt sinn að fyrirfara sér
Fyrir nokkrum árum var hann settur á
geíveikrahæli til rannsóknar
Eins og blaðið skýrði frá fyrir skömmu hefir hin dularfulla
morðgáta í Danmörku verið leyst og verkstjóri hinnar myrtu
stúlku Inu játað á sig morðið. Enn er mikið skrifað um mál
þetta í dönskum blöðum, m. a. vekur danska leynilögreglan
athygli á því, að dagana eftir morðið var Hansen hinn róleg-
asti eins og ekkert hefði komið fyrir.
Vakin er athygli á því, að á
meðan lögreglan lét grafa í haug-
imum þar sem líkið fannst að lok-
um að tilvísan morðingjans, var
verkstjórinn alltaf viðstaddur og
aðstoðaði dyggilega við leitina að
líki stúlkunnar. Menn minnast
þess jafnvel, að hann hafi unnið
að greftri í haugnum, þar sem
hann hafði falið líkið.
„Nú fæ ég 16 ára
fangelsisdóm.“
í plast-verksmiðjunni varð
ekki séð, að nokkuð hefði komið
fyrir. Hann virtist glaður og á-
iátning Morgunbla&ins í gær:
*
Áfraaihaldanái herseia er eina lausn-
in á öryggismáli þjóðarinnar
Túlkun íhaldsins á ummælum erlendra hershöí(Singja
upplýsir hugskot gróðamannanna
Ismay sagði, að vestræn lýð-
ræðisríki æsktu þess sannarlega,
að góð og eðlileg sambnð skapað-
ist við Rússland, en eins og nú
stæðu sakir, mættu vest'-ænar
þjóðir ekki byggja stefnu sína á
þeirri skoðun, að kommúnistar
hefðu sagt skilið við þá hugsj jn
sína og fyrirætlun að stefna að
heimsyfirráðum.
Rússar neyddir til að minnka
heraflann.
Ismay gerði að umtalsefni þá
tilkynningu Rússa, að þeir hyggð-
ust minnka herafla sinn. Hann'
sagði, að þetta hefði ekki komið^
NATO neitt á óvart, þar sem bú-
izt hafði verið við þessu, nú væri'i
það komið fram. Rússar hefðu nú '
mikla þörf fyrir aukin mannafla'
til landbúnaðar- og iðnaðarstarfa
og þeir væru blátt áfram neyddir,
til að draga úr herafla sínum til
að halda framleiðslunni gangandi. i
Einnig legðu Rússar nú mikla á-
herzlu á framleiðslu nýjustu
vopna, svo sem fjarstýrðra flug-1
skeyta og kjarnorkuvopna. Þar,
ýæri þörf mikils mannafia í vopna
verksmiðjurnar til að útbúa
Rauða herínn nýjustu vopnum
nútimans.
Járntjaldið enn við lýði.
Þeir prédika ,,sam-tilveru“
sagði Ismay, en samt er járn-
tjaldið blákpldur veruleiki eins
og fyrr. Þeir banna fólkinu að
fer.Sas.t á milli landa — það er
enginn vafi á því, hver myndi
híða lægri hlut, ef frjálsar sam-
göngur væru leyfðar á milli aust-
urs og vesturs.“
Enginn
íslandi.
árásarflugvöllur á
Ismay var spurður um livert
væri álit hans á hernaðarlegu
mikilvægi íslands. Ismay sagði,
að iandið hefði mjög mikla hern
aðarlega þýöingu. Flugvellir
NATO væru ekki ætlaðir til á-
rása pg allra sízt flugvöllur At-
lantsftafshandalagsins á 'íslandi.
Morgunblaðið, sem nú má fara
að kalla málgagn liershöfðingj-
anna, hefir fundið ummæli í
bandarísku blaði, sem höfð eru
eftir Jerauld VVright flotaforingja
A-bandalagsins. Lætur hershöfð-
ingin í ijós þá skoðun, að „full-
nægjandi lausn muni fást á þeim
vandamálum, sem blasa við
Bandaríkjamönnum á ísiandi.“
Er þessi setning stærsta frétt
Mbl. í gær, en var örfáar línur
í einum dálki í heimildarblaðinu.
En meðferð Mbl. á henni getur til
kynna
að blaðið og foringjar Sjálfstæðis
flokksins sjá enga leið til að
tryggja öryggi landsins nema á-
framhald verði á hersetu þótt
friður ríki. Er nú komið annað
hljóð í strokkinn en var 1949, er
Bjarni Benediktsson talaði fyrir
því að ísland gengi í A-banda-
lagið.
Þá voru gefnar út margar yfir-
lýsingar um að ekki skyldi vera
hér her þegar ríkti ástand í ver-
öldinni eins og í dag. Og aðild að
bandalaginu ein mundi veita ís-
landi öryggi, enda mundi aðstoð
látin í té ef til ófriðar drægi.
(Framhald á 2. síöu).
HarryTruman heim-
sækir Evrópu
Harry S. Truman, fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, kom til Par
ísar í dag ásamt konu sinni. Ætl-
ar hann að. ferðast um flest lönd
Vestur-Evrópu og ræða við for-
ustumenn þjóðanna. í Englandi
verður Truman gestur Edens og
Churchills. Ákveðið hefir verið að
gera Truman að heiðursdoktor við
háskólann í Oxford.
Systkinabrúðkaupið í Seífosskirkju
Eins og sagt var frá hér í biaSinu nýlega fór fram fjórfalf systkinabrúökaup í Selfosskirk'ju. Myndin er tekin
við athöfnina í kirkjunni og á henni eru talin frá vinstri: ICatrín Elsa Jónsdóttir og Ragnar Bjarnason. Helga
Bjarnadóttir og Stehndór Hjörleifsson. Margrét Bjarnadóttir og Garðar GísJason. Herdís Árnadóttir og Hannes
Bjarnason. — Ljósmynd: Studio —
Poul Hansen
nægður og ekkert virtist geta
haggað rósemi hans og ánægju.
Strax fyrstu dagana barst grun-
ur að honum, en liann reyndi að
eyða honum með kæruleysi og
gamanseini. Oft vakti hann ínáls
á þessum grun að fyrra bragði
og talaði gjarnan um, að nú færi
lögreglan að koma til að fang-
elsa hann.
Tveim dögum áður en hann
bugaðist og játaði allt, sagði
hann: „Nú fæ ég 16 ára fang-
elsisdóm. Lögreglan kemur áreið-
anlega í dag tii áð ná í mig.“
Mikilvægt vitni gaf sig ekki
fram.
Það er nú sannað, að til var
mikilvægt vitni í máli þessu, sem
aldrei gaf sig fram. Verkstjórinn
ber það sem sé fyrir réttinum, að
maður nokkur hafi séð sig fara
með hjólið út í skóg til að fela
það og til að rugla lögregluna.
Méður stúlkuiuiar grunaði
verkstjórann.
Skömmu eftir livarf stúlkunnar
átti verkstjórinn tal við konu þá,
er ína bjó hjá. Sagði verkstjór-
inn þá, að liann vonaði, að hann
(Framhald á 2. síðuJ
Erlendar fréttir
í fáum orðum
□ Samkvæmt skýrslu flóttamanna-
nefndar S. þ. eru nú 65 þúsund
flóttamanna í flóttamannabúðun-
um í Þýzkalandi, Austurríki, Ítalíu
og Grikklandi. Allir hafa þessir
flöttamenn fiúið frá kommúnista-
löndunum.
□ Mollet og Pineau ræða nú við for
ustumenn Rússa í Kreml. Búlgan-
in hélt þeim félögum veizlu í gær
í salarkynnum Kreml. Hélt Mollet
þar ræðu og skoraði á Rússa að
gera sitt til að rífa niður þá mú,va,
sem hingað til hafa staðið í vegi
fyrir eðlilegum samskiptum Rússa
og vestrænna þjóða.
□ Úrsiit hafa nú verið gerð kunn úr
Saar-kosningunum, en þær íóru
fyrir skömmu fram í sjöunda sinn
á þremur mánuðum. Eins og við
var búizt, urðu litlar breytingar,
Kristilegi demókrataflokkurinn, er
styður stefnu Adenauérs kanzlará
fékk flest atkvæði. Kommúhjstar
töpuðu atkvæðum og hafa;n,ú a«?-
eins 6% greiddra átkvæða. Er það
nú ljósara en nokkru sinni fyrr,
að mikil.l meiri hluti íbúanna í
Saar, vill sameiningu við Þýzka-
land.