Tíminn - 23.05.1956, Page 5

Tíminn - 23.05.1956, Page 5
l'i , ->; '*» <:. ¥ • ” -----TÍÍVITNTV, migyjkudaginn 23. maí 1956 „Fégiirö landsins og litir, þjóðin, sem hér býr, menning hennar og saga...“ Endúrminning, sem aldrei gleymist, sagði frú Bodi! Begtrup ambassador Dana, sem kvaddi Isiand í gær eftir siö ára síarf Ambas'-:ador Dana á íslandi, írú Bodil Begtrup, flutti þetta kveðjuávarp í ríkisútvarpinu fyrir íielgina. Frúin liélt heim- leiSis tiI Danmerkur me'ð Gull- fossi í gær. VKf.IR SKILJAST, og kveðju stundin er runnin upp. í minja- sáfn' okkar Bætisf endunninningin ufn 'sjo%rsæl'ár á íslandi. Fegurð þéssa.'láfitís og litir, þjóðin, sem liér býr,' hienning hennar og saga — alít hefir þetta fengið okkur mikiis og mun ekki gleymast. Við hugsum til vina okkar á landsbýggðinni, og ég rninnist þá fyrst Éyrarbakka. Þar vorum við gestir í -,,Húsinu“ svonefnda, sem svo margár minningar eru vi'ð tengdar, og ég lifði það að sigla þar inn úr brimgarðinum, eins og gömlu mennirnir, á leið úr Vest- mannaeyjum. í Eyjum var mér vel fagnað, og ég var þar einnig í félagsskap Færeyinga. VIÐ MINNUMST ferðar inn á Þórsmörk í roki og rigningu, öku- ferðar með suðurströndinni til Víkur og Kirkjubæjarklausturs og flugferðar til Hornafjarðar, en það an fórum við yfir fjallið á sólhýr- um sumardegi og vorum við vígslu stórbrúar á Jökulsá í Lóni. Einnig heimsóttum við Neskaup stað og Seyðisfjörð, fengum þar góðar viðtökur og nutum frábærr ar gestrisni. Ógleymanlegur verð- ur okkur hinn dásamlegi Hallorms- staðarskógur, sem veitir fögur fyrirheit um, hvað vaxið getur hér á landi í framtíðinni. Og nætur- gistingin á Egilsstöðum. Sá staður minnir á danskan lýðháskóla. Og ekki að gleyma bóndanum í Möðru dal og ævistarfi hans, kirkjunni, sem hann reisti guði til dýrðar og forfeðrum sínum til vegsemdar. Þá vil ég nefr.a Grímsstaði, en þar er framleidd bezta sýra á landinu, að því er samferðafólkið sagði. A þessum slóðum gnæfir Herðubreið í baksýn eins og þögull minnis- varði. Á FERÐINNI í sumar lögð- um við leið okkar austur á bóginn ti! Vopnafjarðar. Þar rættist sú ósk mín að mega gista í íslenzk- um torfbæ frá fyrri tíð og búa þar við sama híbýlakost sem íslenzkir bændur gerðu í þúsund ár. Dag- ana, sem við vorum hjá bóndan- um á Burstarfelli og frú Jakobínu stóð tíminn kyrr í „voraldar ver- öld“ og fortíð og framtíð runnu saman. Á heimleiðinni um Mývatnssveit., sem drottinn hefir sýnilega haft sérstakt dálæti á, átti ég þess kost að vera viðstödd vígslu félagsheim ilisins Skjólbrekku, og þar hitti ég í fyrsta skipti nöfnu, Bóthildi Benediktsdóttur. Ég dáðist að á- huga fólksins, sem hlustaði í lang an tíma á flutning eða lestur kvæða þó að æskulýðsins biði borðhald og dans. EITT SINN lá leið okkar einn- ig til Húsavíkur. Þar gerði Júlíus Havsteen sýslumaður ekki enda- sleppt við okkur, hann fylgdi okk- ur alla leið í Ásbyrgi. Ég minnist Akureyrar og. töfra liennar, bæjar- ins, sem við nefndum fyrr meir Öfjord,. og var heimili margra Dana. Nú keppjst þessi höfuðborg Norðurlands v-ið að vaxa og verða mikiivæg. Ég sá ullarverksmiðjuna og bragðaði á osti og súkkulaði. Skagafjarðar minnast allir, sem þaðan koma, með hrifningu og viðkvæmni. Þar fara hestar lands- ins í stórhópum, og sögupersón- urnar þyrpast fram í hugann. Við liugsum okkur dalinn þéttskipað- an fólki, og ógleymanleg er sú stund, þegar forna biskupssetrið Hólar með gpmlu kirkjuni, sem Thura gerði uppdrátt að, kemur í Ijós af þjóðveginum. Ég minnist dvalarinnar í Vatns- dalnum, sem er einhvers konar dul arfull paradís á kyrrlátum sólskins i degi. Ég var þar með Sigurði Nor- j dal og Niels' Bohr, og við sáum dalinn í ljómánum af bernsku- , minningum Sigurðar og frásagna1 hans af Ingimundi gamla. AF MIKILLI VARFÆRNI var ekið yfir fjöllin frá Borðeyri á stöðvar Laxdælu. Sú ferð var eins og pílagrímsför :neð bókina í hendi. Það fékk á okkur að sjá Hvamm í Dölum, hinn' dýrðlega bústað Auðar djúpúðgu, og Sæl- ingsdalstungu, ihéð "þá' torráðnu gátu í huga, hvers vbgná Snorri hafði landskipti við 'Cuðrúnu Ó- svífursdóttur. Við 3aú-m-'‘Höskulds- staði og fengum á því-ht-aíðféstingu, að I-Iöskuldur gát - stáðiðj?’ttti "og horft á ferð Ólafs pá inléð ókvik- fénaðarlest sína hekíi—í-IIjarðar- holt. Allt var þetta rifjað upp með fróðlegum frásögnmn um kvöldið hjá Þorsteini sýslumanni, r.em Jif- að hefir á þessum slóðum mikinn hluta ævinnar. Þaðan brugðum við okkur iil ísafjarðar, lentum þar í flugvél á pollinum og hlutum svo góðar viðtökur í þessum notalega bæ, að það er auðskilið, að allir ísfirð- ingar hafa heimþrá. Mér þótti vænt um, að þar á Dansk-íslenzka félagið flesta félagsmenn utan Reykjavíkur. Á HEIMLEIÐ með ströndinni komum við í Stykkishólm og ger.g- um á Helgafell án þess að líta aftur klukkan tólf á hvítasunnu- nótt, hugsuðum til fornmanna og nutum þessarar dularfullu dýrðar- stundar á mörkum dags og nætur. Heim var ekið um Borgarfjörð. Þar sáum við árnar renna gegnum hraunið fyrir framan Gilsbakka, og við hugsuðum til Snorra Sturlu sonar og Egils Skallagrímssonar á Borg. Oft var lialdið til Akraness, Siglu fjarðar, Hafnarfjarðar og annarra staða, sem luku upp fyrir sjónum okkar íslandi eins og það er á vorum dögum og athafnalífi þjóð- arinnar, sem hér býr. Við dáðumst að atorku hennar, bæði sjómann- anna, sem sækia auð í greipar Æg- is, og hinna, sem leggja á ráðin og sjá um framleiðsluna, svo að senda má íslenzka fiskinn út í heim sem gulls ígildi í skiptum fyrir margar vörur, sem þjóðin þarfnast og girnist. Víðs vegar um landið sáum við blómlegan iðnað, orkuver og frystihús, verksmiðjur og síldar- söltun. LEIÐ OKKAR lá oft fyrir Ilvalfjörð, þegar heim var snúið til hvíta hússins í Reykjavík, bæj arins, þar sem nýtt og gamalt tog ast á með svo merkilegum hætti, og hver áfangi á framfarabraut veldur fögnuði. Að öllum skraut- hýsum ólöstuðum er þó Viðeyjar- stofa ef til vill fegurst. Það hefir verið mér óblandiö fagnaðarefni á þessum árum að verða þess vör, hvernig margar þungbærar minningar um sam- skiptin við Dani hafa smám sam- an hörfað úr hugum manna og góðum íslendingi er nú ekki fram ar nauðsyn að minnast þess sí og æ, sem miður hefir farið. Og það er ánægjuefni að vita til þess, hve vel íslendingar kunna við sig í Kaupmannahöfn, og sjá ættir beggja landa tengjast hjönabönd- um. Með konungsheimsókninni fyrir skömmu, sem svo vel tókst til um, er tímaskeið á enda runnið með virðulegum hætti, og nú er opin leið til þess, að við getum sökkt okkur niður í sameiginlega sögu og sótt þaðan fjársjóðu, sem ekki verða til þess eips að gera okkur livora öðrum fráhverfa. BODIL BEGTRUP ÉG KOM til íslands af íund- um Sameinuðu þjóoanna bg -nann- réttindanefndarinnai', og margir hafa spurt þess, hvað ég ætlaðist fyrir í Kaupmannahöfn. Því er til að svara, að ég mun, eins og segir í Bóthildarkvæðinu forna, setjast i helgan stein — í utanríkisráðu- neytinu heima til þess að vinna þar að ýmsum málum, sem varða Norðurálfubúa, og gefa mig aftur að mannróttindamálum. Af þakinu á Danmerkurhúsinu við Hverfisgötu sjáum við út yfir borgina með öllum stjórnar- og menningarstofnunum hennar og framar öllu heimilunum, þar sem svo margir góðvinir okkar búa, og við viljum bera fram alúðarþakk ir fyrir allt, sefn við höfum lifað þessi sjö ár á íslandi. Þegar við nú hverfum héðan, höfum við að veganesti vináttu íólks, sem okk- ur hefir liðið vel með. Gáfur þess og hugarhlýja hefir oft glatt okk- ur. Mér er ljúft að þakka sérstak- lega löndum mínum hér fyrir gest risni og góða viðkynningu, og dönsku ræðismönnunum fyrir stuðning í þeirri viðleitni að treysta bræðraböndin með þessum frændþjóðum. Á því sviði er vissu- lega yfrið verkefni framundan. OKKUR HJÓNUNUM mun oft verða hugsað til íslands, og við munum fagna viðgangi þess og velsæld. Bodil Begtrup. Aðalfimdur Félags Suðurnesjamanna í Reykjavík Friðrik Magnússon endurkjörinn formað- ur félagsins 13. aðalfundur Félags Suðurnesja manna í Reykjavík var haldinn þ 25. apríl 1956. Félagsstarfið á liðnu ári hafði verið með svipuðu fyrirkomulagi og undanfarin ár, þó nokkuð víð tækarar, og voru haldnir allmarg ir skemmtifundir og spilakvöld. Nú hafa verið gróðursettar alls um 36 þúsund trjáplöntur í rækt- unarland félagsins að Háabjalla suðaustur af Vogum á Suðurnesj um og dafna þær yfirleitt vel. Tii að annast ræktunarfram kvæmdir þar framvegis stofnuðu félagsmenn á árinu sérstakt félag, er nefnist Skógræktarfélagið Hái- bjalli. Félagið gaf fjárupphæð kr. 10. 000,00 til Slysavarnadeildarinnar „Þorbjörn“ í Grindavík, til bygg- ingar væntanlegs stefnuvita við höfnina (Hópið) þar, og vildi með því um leið heiðra minningu síra Odds heit. Gíslasonar,: frumkvöð- uls slysavarna hér á landi, sem var Á víðavangi Byggingar þeirra „efnalitlu". Ileildsalabíaðið Vísir telur það eitt helzta einkenni fjár- festingarinnar liér að undan- förnu, að „efnalitlum mönnum“ liafi -verið gert kléift að 'koma upp eiglfl liúshæði. Er' braðið með þessu að reyna að telja fólki trú upi að 'meira beri á sináíbúðáíliýerfinu í Reykjávík eða Hjýnjijun: byggingafram- kvæmdum í Kópavogi, pg úti um lar.d en villúhierfunúm nýju í útjöðrum Reykjavíkur og Morg- unblaðshöllin sjálf hverfur nú í hkðSgtWók bMgfeöiÍ bmþlsal- Þpir „éfna- litlu“ sem háfa'vérið áð b'ýggja. Sennilegá'' cigá þeir; þ’á fíka ,jsmáíftffðarhtérfið“, scm- -íhald- ið> segist. .-Vörai-að konfa >upp í MþL-höIIinni. til að þomaat í kring um fjárféstihgáreftiriitið. Skrifum Vísis um fjárfestingu er bezt sváráð með því að ininha ’ a crð ræðismanns - ís- láhds "í Sviss, sem-ftér var á ferð a dögununi. Hann sagði að slíkar byggingafi'amkvæmdir og hér væri unnið að í einu mundu þykja Stórtíðindi í Sviss. Ekki þarf að væna þennan mann um flokkssjónarmið hér. íhaldið misnotaði frelsið sem veitt var herfilega. Þá hpfu gróðamenn kapplilaup um bygg ingaframkvæmdir, sem ýtti undir dýrtíðina og gerði efna- litlu fólki mjög erfitt og oft -ó- kleift að byggja. Kapphlaupið um vinnuafl til bygginga er svo dýrt og hættulegt að jafnvel rík ustu þjóðir Evrópu munipekkr telja sig liafa efni á því> » » - *»' Framkvæmdir stöSvaðar. Heildsalablöð og áróðursmenn halda því líka fram um þessar mundir að ábendingar „hræðslu bandalagsins“ um skaðsemi höinlulausrar fjárfestingar jafn- gildi því að stöðva eigi viðreisn landsins ef þessir flokkar nái meirililuta. Þarna lætur. íhald- ið eins og slíkar framkvaemdir, j eins og raforkumálaáætljuhín, j og bygging fiskiðjuvera ‘'öj‘'i.J frv. standi með miklum blófttan eins og er. Sannleikurinmer,- að: dýrtíð og gjaldeyrisskortur. hef . ir þegar að verulegu leytí stoSv j að ýmsar slíkar framkvæm'dfri meðan enn nýtur við leiðsögu Sjálfstæðisforingjanna. Þáð er búið að hleypa öllu í strand. í- haldið talar um að aðrir muni reka sig á sker, einliverntínia síðar en vill ekki ræða siglingu j strandkaptcinsins nú, sem þeg- j ar hefir brotið skip sitt. Ástand .j ið er svo slæmt eins og horfir, j að jafnvel útlendar sprautur, j sem íhaldið setur niest traust á j um þessar mundir, duga ekki. Síldin er í sjónum, - við Jmrfum aS læra aS ná henni Síldveiði við Norðurland hefir ^ undanfarin 11 sumur verið mjög treg. Útgerðarmenn, sjómenn, verkafólk og þeir aðrir, er að j miklu liafa byggt fjárliagsafkomu : sína á síldveiðum hafa því orðið ' mjög hart úti. Sjávarþorp og kaupstaðir norðan lands hafa misst mikla og góða tekjustofna. Atvinnuleysi og örbirgð hefiv myndazt á þessum stöðum. Það er talið að hefði meðal síldveiði s. I. 11 sumur verið lík og áður, þá rná áætla að útflutningsverðmæti síld arafurða hefði orðið um 2 þús. miljónir umfram það, sem það hefir verið. Og varla mun annar atvinnuvegur landsmanna geía meiri nettó gjaldeyristekjur. Það þarf því engan dð undra, þótt víða sé hart í búi. Áður fyrr hélt síldin sig við ströndina, inni i fjörðum og fló- um, synti í yfirborði sjávarins og óð sem kallað er í smáum og stór- um torfum. En undanfarin sumur hefir síld- in hagað sér á allt annan hátt. Hún hefir fjarlægzt landið, haldið sig í djúpi hafsins og lítið komið í yfirborðið. Það má segja að síld veiðar undanfarin sumur hafi verið úthafsveiðar. Og það má ætla að svo verði enn um tíma. UNDANFARIN ÁR hefir ver- ið aflaleysi en ekki síldarleysi. Síldarmagnið hefir verið í sjónum líkt og áður. Lífsvenjubreyting prestur í Grindavík um 20 ára skeið, en þ. 8. apríl 1956 voru lið- in 120 ár frá fæðingu hans, og var fjárupphæðin afhent daginn fyrir afmælið. Félagið hefir ýms önnur verk- efni með höndum, er átthagana varða. f stjórn voru kosin: Friðrik Magnússon, stórkaupm., formaður (endurkosinn); Þorsteinn Bjarna- son, kennari, varaform.; Halldór Þórarinsson, innheimtum., gjald- keri (endurkosinn); Adolf Björns- son, bankastarfsmaður, ritari. — Meðstjórnendur: Frú Sveiney Guð mundsdóttir, (endurkosin); Jón Guðmundsson, skrifstofum.; Þor- björn IClemenzson, húsasmíða- meistari (endurkosinn). — Heim- ildin frá formanni félagsins. hefir aðeins átt sér stað hjá síld- inni. Menn hafa ekki getað eða viljað átta sig á þessu. Þess hefir verið vænzt í byrjun hverrar ver- tíðar að síldin yrði sú sama og áður, kæmi að ströndinni, fyllti flóa og firði og skvetti sér í yfir« borði sjávarins. Við verðum að horfast í augu við þær líkur að síldveiðarnar verði að stunda sem úthafsveiðar. Síldarrannsóknir og athuganir ýmsar svo og veiðitilraunir fram- kvæmdar af v;<rðskipinu „Ægi“ og norska rannsóknarskipinu G. O. Sars hafa leitt í ljós að nóg er til af stórum síldartorfum í hafinu. Skipstjórar íslenzku sild- veiðiskipanna er útbúin væru góð um síldarleitartækjum staðfesta hið sama. Sumir þeirra hafa þeg- ar veitt síld, án þess að sjá hið minnsta til hennar, aðeins með hjálp tækjanna. ÞAÐ MÁ slá því föstu að síld artorfur smáar og stórar syndandi djúpt niðri í sjónum má finna af síldveiðiskipi, sem útbúið er as- dic-tæki og með hjálp bergmáls- dýptarmælis má sjá hversu marga metra síldin er niðri í sjónum. En það sem vantar til að veiða síldina með er gott veiðarfæri. Líkur og allt að því fulívissa benda til að bezta veiðarfæríð til að veiða mikið magn af síld séu stórar snurpu- og hringnætur að líkri gerð og nú eru notaðar en allt að því helmingi lengri og dýpri eða 250 til 350 faðmar á lengd og 50 til 70 faðmar á dýpt. Þegar næturnar eru orðnar þetfa stórar verður að gera þær úr mjög grönnu garni sem þó um leið verð ur að vera sterkt, t. d. næloni, til að fyrirbyggja að þær Verði um of þungar. Með nefndum-veið- arfærum má án efa ná síld sem stendur djúpt í sjónum, og sem mannsaugað fær ekki greint né séð. ÉG ER SANNFÆRÐUR ,um að þetta er það er koma skal. Og ég er ennfremur sannfærður um að gott og vel útbúið veiðiskip, með asdic-tæki, bergmálsdýptar- mæli og stórri síldarnót er fært að færa meiri hagnað af síldveið- um en hinni beztu þorskvértíð. Steindór Hjaltalín.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.