Tíminn - 25.05.1956, Blaðsíða 1
Skrifstofa Framsóknarflokksins er
í Edduhúsinu, Lindargötu 9A,
III. hæð, sími 6066.
íbúð í nýju húsi fyrir 10 kr., ef
heppnin er með. Nú líður að því
að dregið verði í hinu glæsilega
happdrætti Framsóknarmanna.
40. árg.
í blaðinu í ðag: ^
Um Victor Hugo, bls. 4.
Vettvangur æskunnar bls. 5.
Erlent yfirlit, bls. 6.
Um Sigfús á Geirlandi, bls. 7.
Minnig Þorst. Þ. Þorsteinssonar,
bls. 8.
115. blað.
Fyrsti kjósendafundurinn í Reykjavík:
10. þing S.Í.B.S. á ReykjaSundi:
Stuðningsmenn A-listans
boöa til fundar n.k. þriðjudag
Stðrglæsiiegur
árangur hefir náðst
við berklaveikina
i
StuSningsmenn A-listans í Reykjavík vi5 kosningar
þær, sem nú fara í hönd, efna ti! aSmenns kjósenda-
fundar í Gamla bíói næst komandi þriðjudagskVöid, 29.
maí, kl. 9 síSdegis. Ræðumenn verða þessir:
Haraldur Guðmundsson, alþingismaður
Hermann Jónasson, alþingismaður
Eggert Þorsteinsson, alþingismaður
Rannveig Þorsteinsdóttir, lögfræðingur
Gylfi Þ. Gíslason, alþingismaður
Eysteinn Jónsson, ráðherra
Hér er um að ræða fyrsta almenna kjósendafund-
inn, sem stuðningsmenn framboðslista í Reykjavík boða
til. Nánar verður sagt frá fundinum næsta sunnudag.
Þing S.U.F. hefst að Bifröst í
Borgarfirði í dag
Sambandsþing ungra Framsóknarmanna hefst að
Bifröst í Borgarfirði kl. 8,30 í kvöld. Forseti Sambands-
ins, Þráinn Valdimarsson, setur þingið. Síðan verður
kcsið í nefndir og nefndarstörf hefjast. Eftir hádegi á
morgun flytur Hermann Jónasson, formaður Framsókn
arflokksins, ræðu á þinginu. Horfur eru á að þetta þing
verði fjölmennt. Upplýsingar um ferðir á þingsfaðinn
eru veittar í skrifstofu Framsóknarfiokksins í Eddu-
húsinu.
Karlakór Rvíkur fagnað á geysifjöl-
mennu íslendingamóti í Höfn
Ágætir dómar um kórinn í dönskum blöðum
Frá fréttaritara Tímans í Kaupmannahöfn í gær.
íslendingafélagið í Höfn efndi til íslendingamóts í gær-
kveldi til þess að fagna Karlakór Reykjavíkur, en það var
síðasta kvöld kórsins í Höfn. Mótið var haldið í hinum stóru
sölum Stúdentasambandsins í Höfn, sem voru þéttskipaðir.
Formaöur félagsins, Höberg
Petersen, setti mótið og bauö gesl-
ina velkomna, einkum kórinn.
Sveinn Björnsson, lormaöur kórs-
ins, svaraöi og lét í ljós gleði sína
yfir því að vera kominn á íslend-
ingamót í Höfn, því að kórfélagar
minntust enn hinna ánægjulegu
sönghátíða með íslcndingum í
Höfn árin 1935 og 1937.
Mikill söngur.
Eftir þetta hóf stjórnandi kórs-
ins, Sigurður Þórðarson, upp tón-
sprotann og kórinn hóf sönginn,
ásamt einsöngvurunum Guðmundi
Jónssyni og Stefáni íslandi, en
Fritz Weisshappel lék undir. Kór-
inn söng með hléum nær tvær
klukkustundir. í hléi færði dansk-
ur drengjakór kórnum söngkveðju.
Akranes sigraði
Val 5-2
f afmælisleik Knattspyrnufé-
lagsins Vals, sem fram fór á f-
þróttavellinum í gærkveldi fóru
leikar þannig að Akurnesingar
sigruðu Val með fimm mörkum
gegn tveim. Nánar verður sagt
frá leiknum í íþróttasíðu blaðs-
ius á morgun.
Tilheyrendur hylltu kórinn og aðra
söngvara ákaflega. Kórinn lauk
(Framhald á 2. síðu).
Víða finna Þjóðvarn-
armenn fylgismenn
Frambjóðandi Þjóðvarnar-
flokksins í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu fór nýlega ásamt öðrum
forystumönnuai flokksins til
Grindavíkur til þess að freista að
konia fótum undir fiokksfylgi þar.
Hittu þeir mann einn að máli þar
og ræddu við hann um stund.
Sögðu þeir honum miklar trölla-
sögur af fylgi flokksims i sýslunni
og kváðu undirtektir ails staðar
hinar ágætustu þar sem þeir
hefðu komið. Þó væri einn skuggi
á þessu enn. f Grimdavík væri
fylgi flokksins heldur lítið og
þyrfti um það að bæta. Þó kvaðst
frambjóðandinn vita með vissu
um eina fjölskyldu, sem stæði
fast með Þjóðvarnarflokknum.
Jæja, sagði heimamaður. —
Ilvaða fjölskylda er það. Fram-
bjóðandinn kvaðst ekki muna
nafn á heimilisföður en nefndi
liins vegar býli það, sem fjöl-
skyldan ætti heima á.
— Jæja, það getur verið, sagði
heimamaður. — Þar hefir enginu
búið síðustu áratugiua.
Staríið að Reykjalundi, seni miðast
við að styðja sjíika til sjálfsbjargar,
kefir verið heillaríkt
Frá þingsetningunni í gær
Liósm.: Svcinn Sæmundsson
Frá setningarathöfn 10. þings S. í. B. S. aS Reykjalund'. Fulltrúar hlýða á setningarræðuna. Að ofan til hægri:
Maríus Helgason, sem verið hefir forseti Sambandsins síðast liðin tíu ár, setur þingið.
Laust eftir kl. 2 í gær hófst tíunda þing Sambands ís-
lenzkra berklasjúklinga að Reykjalundi. Fundarstjóri var
tilnefndur Þórður Benediktsson og flutti hann kveðju frá
Sigurði Sigurðssyni berklayfirlækni, en hann var kosinn heið
ursfélagi S. í. B. S. þann 11. maí síðast liðinn. Maríus Helga-
son forseti S. í. B. S. flutti þingsetningarræðu þar sem hann
rakti í stórum dráttum sögu berklaveiki og berklavarna á
íslandi.
Maríus kom víða við í ræðu sinni.
Hann sagði, að þó að engar óyggj-
andi heimildir lægju fyrir um
berkladauða hér á landi til forna,
væri þó ýmislegt, sem benti til
þess, að margt nafnkunnra manna
og kvenna hefði orðið hvíta dauð-
anum að bráð. Sennilegt væri einn
ig, að plágur þær og hallæri, sem
yfir landið gengu, hafi nær út-
rýmt berklaveiku fólki um stund-
arsakir.
Fyrstu lög um berklavarnir.
Fyrstu lög um berklavarnir
voru sett af Alþingi árið 1903. Með
þeim voru héraðslæknar skyldaðir
til að skrásetja alla berklaveika
menn og konur. Árið 1906 var
Heilsuhælissjóður stofnaður og
þremur árum seinna var hann orð-
inn 30 þús. kr. Þá var ráðist í bygg
ingu lieilsuhælis að Vífilsstöðum
og var hornsteinn lagður 31. maí
1909. Vífilsstaðahælið tók svo til
starfa rúmu ári seinna, eða 5. sept. I
1910. Nokkru seinna var hafist
handa um byggingu heilsuhælis-1
ins að Kristnesi og rúmaði það 75
sjúklinga. Einnig starfrækti Kven-
félagið Hringurinn hæli fyrir
berklasjúklinga í Kópavogi, sem
síðar var notað fyrir holdsveikis-
sjúklinga.
Tímamót.
Árið 1921 setti Alþingi enn lög
um berklavarnirnar, sem marka
tímamót í baráttunni. Þar var
sjúklingum séð fyrir ókeypis hæl-
isvist og lögboðið að sjúklingar
með smitandi berklaveiki dveldu
á heilsuhælum. Samt sem áður dró
ekki úr útbreiðslu veikinnar og
dauðsföllum af vöidum hennar
næstu árin. Árið 1925 varð dánar-
talan hæst, en eftir 1989 fór fyrir
alvöru að draga úr veikinni og á
síðustu tuttugu og fimm árum, hef
ir baráttan gegn henni gengið bet
og verið árangursríkari, en bjart-
sýnustu menn þorðu að vona. Væri
það frábæru starfi lækna, hjúkr-
unarkvenna og sjúklinga sjálfra að
þakka.
Aldrei jafn bjart framundan.
Þá ræddi Maríus framtíðarhorf-
ur og taldi að aldrei hefði verið
bjartara framundan í þessum mál-
um. Þó bæri að varast of mikla
bjartsýni og baráttunni yrði hald
ið áfram unz fullur sigur ynnist.
Hann sagði, að berklarannsóknir
þær, sem fram hefðu farið hér á
landi, hefðu verið áhrifaríkar og
vakið heimsathygli.
Þá taldi Maríus, að með skipun
sérstaks berklayfirjæknis, hefði
(Frámhald á 2. síðul
Þórður Benediktsson
ræSir við tvo þingfulltrúa.
Eldflaugar minnka
gildi herstöðva
úti um heim
Ameríska blaðið Observer í
New York-fylki birtir ritstjórnar-
grein nýlega um íslenzk varnar-
mál og er þar skýrt frá ákvörðun
Alþingis og nokkrar vangaveltur
um gildi Keflavikurstöðvarinnar.
En síðan segir blaðið: Mikilvæg-
ur þáttur í varnarkerfi okkar eru
herstöðvar í öðrum löndum. Eng
inn óvinur gctur hrakið okkur
úr þeim. En eííir því sem limar
líða muni vinir okkar beita álxiií-
um sem erfiit verður að staiida
í gegn. En sem betur fer geia
eldflaugar, sem fara heimsálfa í
milli og langfleygar sprengjuflug
vélar framstöðvar þessar æ minna
virði fyrir öryggi hins frjálsa
heims.__________________
Skipstjórinn skaut
brytann til bana
Kaupmannahöfn 22. maí. — í gær
gerðist sá atburður um borð í
sænska skipinu Hemsö á sigiingu
undan Gotlandsstrond, að skip-
stjórinn skaut brytann á skipxnu
með skammbyssu og fór kúlan í
gegnum höfuðið. Skipstjórinn er
sænskur, 37 ára gamall, Gunnar
Sjö að nafni, en hrytinn var dansk-
ur, 28 ára, frá Álaborg og hét
Knud Möller. Eftir verknaðinn,
sem, gerðist undir þiljum, liljóp
skipstjórinn, som var ölvaður, upp
á þilfar og hrópaði, að hann hefði
drepið brytann. Ahcfn skipsins tók
stjórnina í sír.ar hendur og' gerði
lögreglu í landi aðvart. Kona hins
myrta bryta var farþegi með skip-
inu. Skipið kom siðan til Visby
og þar tók lögreglan skipstjórann
til yfirbeyrslu. Hann játaði -um-
svifalaust. Sagðist hafa lent í
rifrildissennu við brytann og misst
stjórn á skapi sínij.