Tíminn - 08.06.1956, Síða 1

Tíminn - 08.06.1956, Síða 1
1 blaðinu í dag: íþróttir og Bréf frá París á bls. 4. Úr Heljarslóðarorustu og Stattu kyrr svo ég geti barið þig ábls.5. Erlent yfirlit á bls. 6. Vísitöluráð íhaldsins á bls. 7. íslcndingaþættir á bls. 8. 125. blaS. ísSenzkar aSþingiskosningar vekja heimsathygli í fyrsta sinn: Von á erlendnra útvarps- og blaðamönnum til fréttaöflunar Útvarpsmenn vilja fá að senda fréttir af kosningaiirsiitiim jafnliarSan með stuttbyl gj mitvarpi til stöðva sirnia Sumir munu koma nokkru fyrir kosningar til þess a<S kynma sér málefnin sem bezt Af skrifum erlendra blaða er það löngu orðið ljóst, að alþingiskosningum þeim, sem nú fara í hönd hér á landi, er veitt meiri athygli í öðrum löndum en dæmi eru um kosningar hér. Fullvíst er nú, að erlend stórblöð, fréttastof- ur og útvarpsstöðvar munu gera sérstakar ráðstafanir til þess að fá fljótar og greinilegar fréttir af kosningabarátt- unni síðustu daga og úrslitunum. Tilkynning um endurskoðun varnarsamnings senn afhent Blaðið hsfir spurt utanríkisráðherra, hvað líði end- urskoðun þeirri á varnarsamningnum, sem fyrir dyr- um stendur samkvæmt ályktun Alþingis, 2. marz s. I. Hann skýrði blaðinu svo frá, að tilkynning um þetta efni væri tilbúin og mundi afhent fljótlega. Mundi birt tilkynning um málið jafnskjótt og frá því hefði verið gengið. Frá bæjarstjérnarfundi í gær: iÆtlar íhaldið að fresta afgreiðslu launa- j samþykktarinnar fram yfir kosningar? Vill ekki taka afstöðu til breytingar- I tillagna lögreglumanna fyrir þær Á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur, sem haldinn var í gær, bar fulltrúi Framsóknarflokksins fram fyrirspurn til borgarstjóra um drátt þann, sem orðið hefði á afgreiðslu launasamþykktar fyrir starfsmenn bæjarins. Landbúnaðartækni Rússa á mjög lágu stigi Pineau leggur af stað í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna eftir 9 daga. Hann flutti ræðu í gær og lagði áherzlu á það, að Vesturveld in mættu ekki fyrir alla muni halda í járntjaldið, ef Rússar sýndu það í verki, að þeir vildu lyfta því. Pineau sagði, að Mollet hefði lagt áherzlu á það í viðræðum sínum við rússneska ráðamenn í Moskva, að Frakkar myndu halda áfram nánu samstarfi við vína- þjóðir sínar í NATO og standa við allar skuldbindingar sínar við bandalagið. Pineau sagði, að það sem mésta athygli sína hefði vakið í Rúss- landi; væri hve landbúnaðar- og iðnaðartækni Rússa stæði á lágu stigi. ins í Edinborg 4. júní: Karlakór Reykjavíkur söng í Ed- inborg á heimleið úr söngför til Danmerkur, Noregs og Svíþjóð- ar. Kórinn heillaði okkur raun- verulega, eins og kór getur bezt gert með' því að syngja sig inn í hjörtu áheyrenda. Þeir sungu hina íslenzku söngva af lífi og sál. Söngstjórinn Sigurður Þórðarson, sem jafnframt er stofnandi kórs- ins flutti þarna þrjú af verkum sínúm, eitt um landnámsmennina og siglingu 'þeirra yfir úthafið. Eitt af því bezta á söngskemmt- uninni var meðferð kórsins á lagi Karls O. Runólfssonar um drauga- skipin. Knldatíð á norðausturlandi Akureyri í gær. — Enn er hér kuldi-og hálfgerð vetrartíð. Hríð- árfjúk var í nótt og í morgun lim aílan Eyjafjörð. Enu hefir elvki fest snjó í byggð, en íjöll eru grá að neðan, en hvít upp við efstu tinda. í morgun var grátt af snjó við bæina fyrir ofan Akurcyri. Kuldinn er þegar far inn að spilla gróðri og eru lauf á trjám farin að dökna. Lausa- fregnir herma, að hafís hafi sézt norður af Grímsey, en ekki hefir fengizt staðfesting á þeim frétt. Vitað er, að nokkrar . útvarps stöðvar senda hingað sérstaka fréttamenn og hafa leitað leyfis og aðstöðu til þess að senda fregn ir jafnharðan með stuttbylgjuút- varpi til stöðva sinna. Þá er einn ig vitað um blaðamenn frá stór blöðum, einstaka hafa þegar ákveð Einsöngur Guðmundar Jóns- sonar baritonsöngvara var svo góður, að hann getur varla verið betri. — Stór maður. sem söng stórkostlega. ið komu sína en margir aðrir leitað upplýsinga og spurzt fyrir um möguleika á því að koma. Nokkrir áður komnir. Ýmis þau skrif erlendra blaða, sem hingað hafa borizt sum byggð á vafasömum fréttaskeytum frétta ritara hér á landi, hafa töluvert verið rakin hér áður í blaðinu, og skal elcki endurtekið liér. Þótt margt sé missagt í fræðum er- lendra blaða um þessi efni, er það augljóst, að íslenzkum stjóru málum hefir aldrei verið gefinn slikur gaumur erlendis, jafnt 1 Evrópu sem í Bandaríkjunum. Orsök þess er fyrst og fremst sú ályktun Alþingis, að óska skuli endurskoðunar á varnarsamningn um með brottför liersins fyrir augum og sí'ðan stjórnarslit út af efnahagsmálunum og fleiru, þingrof og nýjar kosningar. Nokkur stórblöð sendu þegar eft ir að þetta gerðist blaðamenn sína hingað, og má nefna New York Times og Christian Science Moni- ior. Fréttamenn útvarps og blaða væntanlegir. Nú dregur fast að kosningum, (Framhald a 2. síðu) Fulltrúi Framsóknarflokksins, Þórarinn Þórarinsson, gerði þá grein fyrir fyrirspurninni, að frum varp að nýrri launasamþykkt fyrir starfsmenn Reykjavíkur hefði ver- ið til 1. umræðu á bæjarstjórn- arfundi fyrir mánuði síðan. Borg- arstjóri hafi þá talið málið svo aðkallandi, að hann hefði ráðgert að kveðja saman aukafund í bæj- arstjórninni í næstu viku og ganga þar frá lokaafgreiðslu þess. Af því hefði hins vegar ekki orðið og væri nú búið að halda tvo reglulega bæjarstjórnarfundi, án þess að launasamþykktin hefði verið tekin til meðferðar. Sá orð- rómur væri jafnframt kominn á kreik, að borgarstjóri og 'bæjar- stjórnarmeirihluti ætluðu ekki að taka málið til afgreiðslu fyrr en eftir alþingiskosningarnar. Fulltrúi Framsóknarflokksins taldi, að þessi dráttur væri orð- inn með öllu óviðunandi fyrir j starfsmenn bæjarins. Hér væri um það að' ræða, að þeim væru tryggð liliðstæð réttindi og upp- bietur og starfsmenn ríkisins liefðu fengið með nýju launa- lögunum, er Alþingi afgreiddi fyrir hálfu ári síðan. Það væri orðið með öllu óafsakanlegt að draga þá á þcssum kjarabótum lengur. Borgarstjóri gerði þá grein fyrir drættinum, að' félag lögreglu- manna hefði óskað eftir breyting- um á frumvarpinu um launasam- þykktina, en fulltrúar Starfsmanna félags bæjarins hefðu ekki viljað fallast á þær. Reynt hefði verið að ná samkomulagi milli félag- anna, en án árangurs til þessa. Hefði það valdið drættinum. Fulltrúi Framsóknarflokksins kvaðst ekki hafa á móti því, að reynt yrði að ná samkomulagi milli viðkomandi félaga, en ekki (Framhald á 2. síðu) * Agætur (undur umbótaflokkanna á Hvammstanga Hvammstanga, 4. júní. — Umbóta- flokkarnir hcldu fund á Hvamms- tanga í gær og var hann ágætlega sóttur. Frummælendur voru Skúli Guðmundsson, alþingismaður, Her- mann Jónasson, form. Framsókn- arflokksins og Bragi Sigurjónsson, ritstjóri. Var gerður góður rómur að máli þeirra allra. — Ríkir al- ger einhugur bandalagsflokkanna í sýslunni. Kosningafundnr í Kelduhverfi Frá fréttaritara Títr.ans í Kelduhverfi. Síðastliðinn mánudag var hald- inn fundur hér í Kelduhverfi á vegum þeirra fjögurra stjórnmála- flokka, sem hafa menn í ‘.jori í sýslunni. Fundurinn var haldinn í félagshúsi ungmennafélagsins við Grásíð'u og hófst hann klukkan 2, 30. Eftirtaldir frambjóðondur tóku til máls á íundinum: Gísli Guðmundsson, alþingismáður, fyr- ir Framsóknarflokkinn, Barði Frið riksson fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Hermann Jónsson fyrir Þjóðvarn* arflokkinn og Rósberg Snædal fyr ir Alþýðubandalagið. Funduriaa Var fjölsóttur og fór í a la slaði hið bezta fram. — IH. VELKOMNIR HEIM , Liósm.: Sveinn Sæmundsson I gærmorgun kom Gullfoss frá útlöndum og me3 honum Karlakór Reykjavlkur, kominn heim eftir vel heppn- aða söngför um Norðurlönd. Er skipið lagöi að landi stóðu kórfélagar á afturþiljum og sungu: ísland, ísland. ég vil syngja. — Myndin er af Karlakór Reykjavíkur og nokkrum öðrum farþegum. Karlakór Reykjavíkur komiun heim ur vel heppnaðri söngf ör Hlaut mjög lofsamlega dóma í skozkum Möðum Karlakór Reykjavíkur kom heim með Gullfossi í gær- morgun, eftir mjög vel heppnaða söngferð til Norðurlanda og Skotlands. Söng kórinn í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, og í Edinborg í Skotlandi. Blaðið hefir áður greint frá ferð- um kórsins og lofsamlegum dómum, er hann hlaut í Nor- égi og Danmörku. — Til viðbótar eru hér aðalatriði úr dómi hins víðkunna skozka blaðs ,,The Scotsman“ um söng kórs-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.