Tíminn - 08.06.1956, Page 9

Tíminn - 08.06.1956, Page 9
T f M I N N, föstudaginn 8. júní 1956. Si = 3 1 Bezta matinn fáií þér hjá okkur | uninmuuiiiinuiiiiininiimiiuiiiiiiUHiimumiimfliiiniiinnnininumiiimuniniuiHuuiuuuiumummiauu 45 ekki komið — Hefir hún hinggð;? Konan hristi aftur höfuðið. — Það er vonandi ekkert að? , — Má ég koma innfvrir? sagði Andrés þunglega. Honum vgr vísað inn í setu stofuna. Hann heilsaði föð- nr Lísu. Hann tók eftir þvi, að stórbóndinn leit hann horn auga. — Ef þér eruð komnir til að líta á hina nýju eign yðar, komið þér hálfum mánuði of snemma. Andrés hristi höfuðið. — Það hefir orðið misskiln- ingur, sagði hann. — Óðal yðar fer ekki á uppboð. Stórbóndinn og kona hans litu undrandi á hann. — Viljið þér ekki íá yöur sæti, herra de Borcn, sagði móðir Lísu. Hún sá að ungi maðurinn var dauðþreyttur. Ahdrés settist. —- En hvar getur hún veiiö niðújr. komin? spurói hann ör- yæntingarfuilur. ■ Svo fór hann að segja frá. Hann skýrði frá atburðinum á skrifstofunni um morgun- inn, og hve annríkt hann hefði átt allan daginn, svo að hann hafði ekki náð tali af Lísu. Hann kvaðst ekki hafa haft hugmynd um, að Lísa Brun væri dóttir Rasmussens stórbónda. Og smám saman rann það upp fyrir foreldrum Lísu, hvað komið hafði fyrir. — Hún hefir líklega farið til frænku sinnar i Nýborg, á- leit móðirin, — hún hefir varla farið neitt annað. — Hefir hún síma? spurði Andrés. Móðir Lísu hristi höfuðið. — Þá ek ég til Nýborgar og Sæki hana, sagði Andrés, — hún sefur ekki róleg í nótt, ef ég skýri ekki máliö fyrir henni. Hann stóð upp. — Nei, sagði móðir Lísu. — Þér verðið að staldra við and- artak og fá yður kaffisopa. Þér eruð mjög þreytulegur. Andrés settist aftur, og móð ir Lísu flýtti sér fram i eld- húsið. Stórbóndinn leit hikandi á ,unga manninn. Andrés brosti dauflega. — Ég hefi víst gert mjög íllt af mér, sagði hann svo. Það va reinkennandi fyrir Andrés, að hann gerði enga til raun til að fegra gjörðir sín- ar eða skella skuldinni á Schmidt. — En Schmidt sagði, að þér þyrftuð á peningunum að halda, skaut Rasmussen inn i. Hann var ennþá .hikandi. — Það þarf ég líka, svaraði Andrés, og sagði frá skógar- högginu, sem hafizt hafði um morguninn. — En hvað þá? — Ég get ferígið peninga í Kaupmannahöf n. — Þá er sem sagt allt í þezta gengi.... — Já, það gengur yel á Borchholm. , — Nauðungaruppboðið á aö fara fram þann fimmtánda. — Ég ræddi við Schmidt í morgun, og það verður fallið frá kröfunni. — Ég er þakklátur fyrir það.... Stórbóndinn vissi ekki gerla, hvernig hann átti að koma orðum að þessu. -— Ef þér gefið mér þriggja ára frest mun ég gera hreint fyrir mínum dyrum. Uppskeran var mjög góð í ár. — Þér fáið eins mikinn tíma og þér kærið yður um, sagði Andrés og kvað fast að, — og ef orðrómur hefir eyðilagt lánstraust yðar, finnum við lika ráð við því. Hann er ekki svo slæmur, hugsaði stórbóndinn, fáir myndu hafa hugsað um eyði- lagt lánstraust. Innra með sér var hann hamingjusamur. Hann myndi halda jöroinni sinni. Síðasti mánuðurinn hafði verið sem martröð. Kona hans kom inn meö kaffi á bakka. Einnig stórt fat með hveitibrauði og smjöri. Hann hefir líklega ekki borð að mikið í dag, hugsaði hún þegar Andrés tók fimmtu brauðsneiðina af fatinu. Andr- ési fannst hann sitja við hlið- ina á sjálfum sér. Hann hlust aði undrandi á rödd sína. Ilann varð að finna Lísu. Að lokinni kaffidrykkjunni stóð hann aftur upp. Hann fékk heimilisfang frænkunn- ar í Nýborg. Hann lofaði að hringja næsta morgun. For- eldrarnir fylgdu honum til dyra. — Þakkir, sagði stórbóndinn aðeins, þegar komið var að kveðjustundinni, en Andrés mundi lengi á eftir þétt hand — Lísa, hvar ert þú? taut- aði hann. Hvað ætti hann að segja við hana? Það rann allt i einu upp fyrir honum, að það fegraði alls ekkert verkn- aðinn, að hann hafði ekki vit að, að það voru foreldrar Lísu, sem hlut áttu að máli. Hefðu það ekki verið þeir, hefði að- eins önnur fjölskylda orðið ó- hamingjusöm. Var hann annars orðinn svo peningasjúkur, að hann hugs aði ekkert um tilfinningar annarar manna? Var hann orðinn svona sjálfselskur? Svona vondur? Hamingja hans sjálfs hafði stigið hon- um svo til höfuðs, að hann lét sig ekkert varða um aðra. Var hann sjálfur þá aðalat- riðið? Lísa hafði rétt fyrir sér. Hann var ekkert betri en Elsa. Peningar. Hvaoa þýð- ingu höfðu peningar fyrir hann? Hann gat þó etið sig fullsaddan á hverjum degi. Hann hugsaði til þess, hve mikillar vinnu hann hafði krafizt af vinnufólki óðalsins. Hann hafði heimtað of mikið. Að vísu hafði hann ekki dreg ið af sjálfum sér, en það var ]íka hann, sem hirti afrakst- urinn. Fólkið fékk launin sín, en þau voru svo sem ekki ýkja mikil. Andrési varð ó- glatt, þegar hann hugsaði um þetta. Nú sá hann gerla, að hann hafði ekki farið rétta leið. Það verður að breytast þegar í stað, hugsaði hann. Svo sá hann Lísu aftur fyrir sér. Var það of seint? Hún hafði tekið grímuna frá and- liti hans. Myndi hún..... Það olli honum engum erf- iðleikum að finna bústað frænkunnar. Það var ekkert MATARBÚÐIR i ■ =s | Sláturféiags Suðurlands ( nilllllllllllllllllliuillllllllllllllliuilllllllllllllinillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllillllimiw | Alikálfakjöt, svínakjöt, f oíaldakjöt, kjáklingar og r j ápurl tak vinnuvanrar handarinnar. ljós í húsinu. Andrés leit á Hugsanir Andrésar voru hjá Lísu, þegar vagninn þaut gegnum myrkrið. Hann rnundi hvert einasta orð, sem hún hafði sagt við hann. — ... .vondi maður ... ,þú hefðir átt að halda í EIsu.... þið eruð ágæt saman. En það er gott að augu mín hafa opn- azt fyrir því, hvers konar maður þaö er, sem ég hefi eytt ást minni á. Siðustu orðin hljómuðu stöðugt fyrir eyrum hans. Hafði hún eytt ást sinni á hann? Smám saman skýrðist þetta fyrir honum. Hann mundi eftir ýmsum smáatvik um. Svitinn rann niður kinn- ar hans. Það var angistarsviti. Hún hafði elskað hann og hann'hafði virt ást hennar að vettugi. Skyndilega fann hann, að hann gat ekki lifað án Lísu. En hve hann hafði verið heimskur og blindur. Hann hafði tekið hana sem sjálfsagða. Án þess að hugsa nokkurn tíma um tilfinningar hennar. Já, hún hafði rétt fyrir sér. Hann var vondur maður. Hann hafði aðeins hugs að um sjálfan sig. Hann hægði á vagninum, þegar hann ók gegnum Óðins- vé. Honum fannst ökuferðin vera sem draumur. Var það ánriafs harín sjálfur, sem ók litla sportvagniríum? pnorrabraut 56. Útibú, Melhaga 2. Sími 2853, 80253j| - Sími 82836 1 miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimmimiiiiiiiiiiiiiiiuiii Fjölbreytt úrva af KJÖTVÖRUM klukkuna. Það var komið ná- lægt miðnætti. Hann gekk gegnum litla garðinn. Það var engin dyra- bjalla, en hann barði á dyrn- ar. Það heyrðist ekkert hljóð. Hann barði aftur, öllu fastar. Það var kveikt ljós á fyrstu hæð. Andartaki síðar var opn- aður gluggi. — Hver er það, spurði kven- rödd. Andrés sagði til nafns sins og spurði eftir Lísu. — Hún var hér um miðjan dag, en fór til Kaupmanna- hafnar. Andrési sortnaði fyrir aug- um. — Hvað var hún að gera þangað? — Hún ætlaði að heimsækja vinstúlku sína. — Hver er það, spurði Andrés hásróma. — Hún heitir Inga. Hún er gift bakara í Kaupmanna- höfn. Ég veit ekki hvar hún á heima. — Hvert er ættarnafn henn- ar? heyrði Andrés sjálfan sig spyrja. — Það veit ég ekki. Andrés sat ráðþrota í bíln- um. Hann hafði ekki hugmynd um hvað hann ætti að gera. Átti hann að aka áfram til Kaupmannahafnar? Hanrí hafði ekki heimilisfangið. Og Austurstræti iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiuiijiiiiiiimuiimimtijjiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiijiiiuHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiui

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.