Tíminn - 02.11.1956, Blaðsíða 12

Tíminn - 02.11.1956, Blaðsíða 12
Yeðurspáin: " n ouðvestan og sunnan kaldi, dálítil iigning eða súld. Hiti á nokkrum stöðum kl. 18: Reykjavík 9 st., Akureyri 10 st., Kaupmannahöfn 4 st., London 9 st., París 5 st. , Föstudagur 2. nóvember 1956. 2óstursamasti íendur enska þingsins í 30 ár ÁSit Bretiaíids, samveldið og A-banda!agið i hættu, - : sögSn stjámarandstæSmgar f' á fjingfrnidi i gær London, 1. nóv. — Fresta varð þingfundi 1 brezku neðri málstofunni í dag um hálftíma vegna hávaða og óláta í þing- mönnum. Hefir slíkt ekki komið fvrir á þeim stað s. 1. 30- ár cða síðan 1927. Sir /vnthony Eden varði gerðir stjórnar sinn- ar. Kvað þær lögregluaðgerðir, bezta aðferðin til að forða stórstyrjöld væri að forðast ekki hinar smærri. Hugh Gait- skell iýsti yfir, að brezka þjóðin væri bæði full blygðunar og skelfingar yfir þeirri staðreynd, að brezkar flugvélar vörp- uðu sprengjum á egypzkar borgir, ekki í sjálfsvörn fyrir Bretland, eklci heldur innan samtaka um sameiginlegt örvggi heldur sem árásaraðilar og í skrá S. Þ. Umræðan var boðuð til þess að ræða vantrauststillögu stjórnar- andstöðunnar á stjórnina vegna aðgerða hennar gagnvart Egypt- um. Krafðist Gaitskell þess, að Bretar hættu öllum aðgerðum unz íyrir lægi álit allsherjarþings S. Þ., sem saman kemur í kvöld. VarS að fresta fundi. Ennfremur krafðist Gaitskell þass, að Eden skýrði frá því, hvórt Bretland ætti í styrjöld við Egypta land. Eden reyndi að svara, en þá var svo mikill hávaði gerður að l’onum frá bekkjum stjórnarancl- stæðinga að ekkert heyrðist til hans. Settist hann þá niður og beið svipbrigðalaus í sæti sínu, en liingmenn Verkamannaflokksins Iirópuðu í ákafa: Svarið, svarið, hvort við höfum sagt Egyptum stríð á hendur? Ákvað forseti þá að slíía fundi. Gekk Eden þá út, en ókvæðisorð stjórnarandstæð- inga dundu á honum. Enginn bilbugur á Eden. Er fundur var settur að nýju, sagði Eden, að Bretar ættu ekki í stríði við Egypta. Taldi hann aðal- i :ga um lögregluaðgerðir að ræða. Ilann var spurður, hvort Bretar í iyndu fúsir að kalla herlið sitt á brott, ef allsherjarþingið óskaði þass, en hann kvaðst ekki reiðu- húinn að svara þeirri spurningu. Lretar hefðu orðið að grípa til skjótra aðgerða til að stöðva bar-1 daga og vernda siglingar um Súez- :kurð. Ef S. Þ. vildu taka við af Bret-! um og Frökkum, er þeir hefðu náð j markmiði sínu í Egyptalandi, j '■æru Bretar aðeins þakklátir fyrír a-3 svo yrði gert. Hann kvað Breta hafa byrjað aðgerðir sínar gegn Egyptum og bær inyndu verða framkvæmdar, unz ýúlganginum væri náð. Fangar njóta ekki réttar Stjórnarandstaðan krafðist m. a. svara af forsætisráðherranum um það, hvort Bretar væru formlega í styrjöld við Egypta, vegna þess að þeir töldu vafasamt, að þeir beinni andstöðu við stofn- brezkir hermenn, sem kynnu að verða teknir til fanga þar, nytu verndar samkvæmt Genfarsáttmál- anum um stríðsfanga, ef ekki' lægi fyrir stríðsyfirlýsing. Eden kvað | þetta rangt. Egyptar væru aðilar að sáttmálanum og allir stríðsfang- ar nytu þessara róttinda, hvort sem formlega hefði verið lýst yfir stríði eða ekki. T. d. hefði aldrei verið formlega háð styrjöld í Kóreu. Stefnt samveídinu í voða. James Griffiths mælti síðan fyr- ir vantrauststillögu Verkamanna- flokksins. Hann fór hinum hörð- ustu orðum um stefnu stjórnarinn- ar, kvað hana hafa fyrirgert sæmd og áliti brezku þjóðarinnar í heim- inum, sundrað þjóðinni á örlaga- stund og væri ekki sjáanlegt hvað af hlytist. Hann kvað nær öll samreldis- löndin hafa fordæmt aðgerðir stjórnarinnar og gæti þetta orðið til þess að eyðileggja samreldið. Ágreiningurinn við bandamenn Breta gæti einnig haft örlagarík- ar afleiðingar fyrir Atlantshafs- bandalagið og sameiginlcgar varn ir vesturlanda. Hann kvaðst mæla fyrir munn allra . góðra Breta, þegar hann skoraði á þessa ríkisstjórn að fara frá þegar í stað. Umræðunni lauk seint í kvöld I og fór þá fram atkvæðagreiðsla. Hún fór þannig, að vantrauststil- lagan var felld með 69 atkvæða meiri hluta. Óeirðir fyrir utan brezka binghúsið London, 1. nóv. — Þegar at- kvæðagreiðsla stóð yfir í brezka þinginu kom til ryskinga og mót- madafunda fyrir utan þinghúsið. Varð að kveðja út ríðandi lög- reglumenn til að dreifa mann- f jöldanum. Erlendir stúdentar, er nema við brezka háskóla voru fjöl mennir í þessum hópi. Tveir voru handteknir. Verkaiýðsráð Bretlands boð- ar herferð gegn stjórninni London, 1. nóv. — Verkalýðs- ráð Bretlands, en að því standa Vei-kamannaflokkurinn, verkalýðs samtökin og samband samvinnu- manna, lýsti yfir því í dag, að það myndi hefja alls herjar herferð gegn aðgerðum ííkisstjórnarinnar brezku í Egyptalandi. Kjörorð þeirrar baráttu væri: „Lög, ekki styrjöld. b., Ráðið krcfst þes sað öllum liernaðaraðgerðum Breta gegn Egyptum verði hætt þegar í stað, þar sem þær séu brot á stofnskrá S. þ. Þá verði hersveitum ísraels- manna skipað að verða á brott þegar í stað frá Egyptalandi. Er skorað á brezku þjóðina að standa saman í þessari baráttu og beita í henni öllum þeim ráðum, sem leyfileg séu samkvæmt stjórn arskrá landsins. FIiIÐRIK ÓLAFSSON Friðrik Ólafsson skrifar skákþált í Tímann í þessu blaði hefst fastur skák þáttur í Tímanum og mun birtast á hverjum föstudegi í vetur. Rit- stjórn þáttarins annast Friðrik Ólafsson skákmeitari. Það er sér stakt happ fyrir blaðið, að liafa fengið ágæíasta skákmeitara landsins til þess að annast rit- stjórn þessa þáttar. Upphaflega C'ar svo ráð fyrir gert, að þessi þáttur hæfist þegar í fyrravetur, en af ýmsum óviðráðanlegum or- sökum gat ekki af því orðið, m. a. vegna annríkis Friðriks, sem hefur síðan víða farið og hvar vetna gert landi og þjóð mikla sæmd. En nú með vetrarlcomu hefst skákþáttur Tímans undir ritstjórn Friðriks Ólafssonar. Blaðið fagnar því að geta boðið lesendum sínum samfylgd Frið- riks um völundarhús skáklistar innar. Skákþátturinn er á bls 5, og mun birtast framvegis í viku hverri. Flótíameoíi bíða m þósuiidism samaii í Alexaodríu Kaíró, 1. nóv. — Yfirmaður egypzku öryggislögreglunnar skip- aði öllum brezkum og frönskum borgurum, að koma til skráningar hjá yfirvöldum innan þriggja daga. Sagt er að lögreglan hafi þegar handtekið 3 karlmenn og 3 konur, sem sakaðir eru um njósnir. Fimm þessara manna eru Gyðingar, en einn Egypti. Útlendingar hafa safn ast saman í Alexandríu svo þúsund um saman og bíða eftir skipsferð. Líkur eru til að þeir fyrstu, sem komast brott verði 1800 bandarísk- ir borgarar, sem hafa selt allar eig ur sínar og ekið í bíl til hafnarborg arinar. í dag voru 120 bílar í lest á leið frá Kaíró til Alexandríu und ir egypzkri lögregluvernd. Brezkir borgarar myndu helzt kjósa að fara á brott, en flugsamgöngur við út- lönd eru rofnar. Þeir, sem eiga bíl frcista þess að aka 1800 km veg til Benghazi í Lybíu. Bandaríkja- menn eru sagðir fúsir, að leyfa frönskum konum og börnum að fara út í herskip það, sem þeir hafa sent frá 6. flotanum til að taka bandaríska borgara. Flotinn er á förum frá Miðjarðarhafi. irásin á Egyptaland sætir iwarveína harðri gagnrýni London, 1. nóv. — Mikillar gagnrýni gætir í garð ísraels* manna og ekki síöur Breta og Frakka fyrir árás þeirra á Egyptaland. Meirihluti samveldislandanna mótmælir opinber- lega svo og fjölmörg öhnur ríki, sem annars eru Bretum og Frökkum vinveitt, svo sem Bandaríkin. Heimsblöðin eru líka mjög andsnúin Bretum og Frökkum og telja að hér sé um óverjandi aðfarir að ræða. Nokkur atriði úr þessari gagnrýni verða rakin hér á eftir. Brezka samveMið er klofið í aístöðunni til aðgerða brezku stjórnarinnar í Egyptalandi. Flest eru andvíg stjórninni, svo sem Ind land, Ceylon og að því er virðist einnig Kanada. Menzies styður Breta. Menzies forsætisráðherra Ástral- íu hefir stutt brezku stjórnina, seg ir að um lögregluaðgerðir sé að ræða. Evatt foringi Verkamanna- flokksins gagnrýnir gerðir Breta harðlega. Holland forsætisráðherra Nýja-Sjálands segist bera fullt traust til brezku stjórnarinnar og þess tilgangs er hún hyggist ná, en málið hafi ýmsar mjög alvarleg ar hliðar. Nehrú æfur af vonzku. Iíeimurinn á móti Bretum. Rússar hamast auðvitað gegn Bretum og Frökkum og segja þá seka um versta glæp. Sama gerir Júgóslavía og í yfirlýsingu stjórn- arinnar segir, að Egyptar njóti sam úðar Júúgóslava. Segir þær þjóðir sem mest tali um frelsi og lýðræði hafi enn einu sinni atað hendur sínar blóði. Brezka íhaldsblaðið Evening News segir, að iistinn yfir þá, sem gagnrýni Breta sé hræði- lega langur. Þar á meðal sé Banda ríkjastjórn, flest samveldislöndin, brezki Verkamannaflokkurinn og yfirgnæfandi meiri hluti brezku blaðanna. Aðalfundur F. U. F. Nehrú forsætisráðherra Ind- lands sagði í ræðu í dag, að hann liefði aldrei vitað svo ótvírætt til- j felli um beina árás. Óháðu ríkin j í Asíu og Afríku munu ekki þola! þessa árás, sem Bretar og Frakk- ar hafa gert sig seka um, sagði hann. Hann hefir ritað Hammar- skjöld bréf og krafizt skjóíra að- gerða af hálfu S. þ. Óeirðir gegn Bretum í Karachí. í Reykjavík Aðalfundur Fé’ags ungra Fram- sóknarmanna í Reykjavík verður lialdinn n. k. fimmtudagskvöld í Þjóðleikhúskjallaranum. Á fund inum verða venjuleg aðalfundar störf. Veitingar verða fram- reiddar. Fundurinn hefst kl. 8,30 síðd. Forsætisráðherra Ceylon sagði í dag, að hvorki árás ísraelsmanna né síðar Breta og Frakka á Egypta væri réttlætanleg. Komið hefir til uppþota í Karachí fyrir framan bú- stað brezka stjórnarfulltrúans í Pakistan. Blöðin fordænia Breta og Frakka. Mikill meiri hluti blaða í flest- um löndum heims fordæmir árás ísraelsmanna á Egypta og ekki síð- ur aðgerðir Breta og Frakka. — Þannig er tónninn í langflestum kanadískum blöðum, svo og banda-1 rískum blöðum. Washington Post segir, að Bret ar og Frakkar hafi tekið upp að- ferðir heimsveldisstefnunar frá 19. öld. Það séu engu líkara en að Bretar og Frakkar keppist við, hvor verði fyrri til að velta Nass- er og þá muni þjóðernisstefna Arabaríkjanna úr sögunni. Steinker í Akranes- höfn náð á flot Akranesi í gær. — í dag var gerð tilraun til þess að lyfta steinkerinu sem setja á framan við hafskipa- bryggjuna á flot. Unnið hefir verið að því að þétta kerið og er því náð á flot á þann hátt að sjónum er rutt út úr því með þrýstilofti. í dag tókst að þoka kerinu nokk uð, en á flóðinu í fyrramálið verð- ur reynt að lyfta því og færa það á þann stað í höfninni, sem það var í fyrravetur. Batnar þá aðstaða hátanna að miklum mun, en sjómenn hafa átt í miklum erfiðleikum að undan- förnu ef eitthvað hefir orðið að veðri og hafa þeir orðið að leyta til Reykjavíkur og liggja af sér veðrið þar. SjálfstæSisf ioklmrínn hefir alltaf fylgt verðbólgastefnunni trúlega Frá nmræSum um ver<$- cg vísitölufestinguna Hinn margraddaði söngur SjáKstæðismanna á þingi um verðfestingu og vísitölubindingu ríldsstjórnarinnar vekur æ meiri furðu manna, enda bætast daglega nýjar raddir við. Syngur þar hver með sínu nefi. Er þessi leikur auðsjáanlega gerður til þoss að rægja á vixl milli stétta og ríkisstjórnar- innar. { Fyrst kemur Bjarni Ben og seg- ir, að launastéttir hafi verið svikn- ar, ríkisstjórnin hafi ekki haft sam- þykki stéttarsamtakanna til aðgerð anna, og er grátklökkur fyrir hönd lítilmagnans. Fer Bjarna þessi kápa elcki vel. Þá kemur annar, Björn Ólafsson og segir að þetta sé raunar gott og blessað, hér sé verið að fram- kvæma stefnu, sem Sjálfstæðis- menn hafi alltaf fylgt. Er þó svo- lítið hikandi um, hvort rétt sé að festa vöruverð, hins vegar ágætt að festa kaup. Þá kemur sá þriðji, Ingólfur Jónsson, og segir að bændur hafi verið sviknir, þeir fái ekki það, sem þeim ber miðað við launa- stéttirnar. Sá fjórði, Ólafur Björnsson, seg- ir, að launafólkið sé hlunnfarið, uppbætur bænda of miklar og þær allar teknar beint af launafólkinu. Þannig er rógsöngur Sjálfstæðis- manna. Enginn veit hvað þeir vilja og allra sízt þeir sjálfir. Þeir ótt- ast aðeins, að aðgerðir þær, sem í vændum eru, komi við buddu braskaranna, og eina ráðið til að klóra í bakkann er að rægja á víxl. ' j

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.