Tíminn - 18.01.1957, Blaðsíða 1
Jylgizt með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 og
81300. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni.
41. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 19. janúar 1957.
Efni í blaðinu í dag: ^
Skákþáttur Friðriks Ólafssonar,
bls. 5. ]
Heimsókn í Listasafn ríkisins, \
bls. 7. I
Karl Einarsson 85 ára, bls. 8. f
11. blað.
Liggja af sér óyeðrið i Reýkjavíkurhöfn
V-Þjóðverjar haf a sterkan hug á að
hagnýta bikstein úr Loðmundarfirði
ÞaS var margt um báta í Reykiavíkurhöfn í gær, og fleiri en heimilis-
bátar. Akranesbátar komu flestir þangaS í fyrrakvöld, þegar séS var,
að óveður fór aS. Einnig lágu þar ýmsir fleiri aSkomubátar. Myndin var
tekin í gærmorgun og sýnir hiuta flotans. (Ljósm: Sv. Sæmundsson.)
Chou En-lai leggnr Messtrn sínayíir
ofbeMisverk Róssaí Ungverjalandi
Verndarvængur Sovétríkjanna ómissandi
Moskvu, 17. jan. — Chou en-lai forsætis- og utanríkis-
ráðherra Kína konr frá Búdapest til Moskvu í dag. Áður
hafði hann gefið út sameiginlega yfirlýsingu með Kadar
um viðræður þeirra. Lýsir Chou fullum stuðningi við Kad-
arstjórnina og segir uppreisn ungversku þjóðarinnar hafa
verið gagnbyltingu. Er hann kom til Moskvu hélt hann ræðu,
þar sem hann lagði enn út af þessu efni og lýsti með sterk-
um orðum tilraunum auðvaldsríkjanna til að sundra einingu
sósíalistísku ríkjanna og hremma þau síðan eitt og eitt. Ung-
verska „gagnbyltingin“ væri Ijósasti vottur þessa.
" —..... j
Ræða þessi var haldin fyrir 3
þúsund verkamönnum, en viðstadd
ir voru helztu valdamenn Sovét-
ríkjanna. M.a. tók Búlganin til
máls og lýsti innilegri ánægju
sinni yfir, að kínverska stjórnin
skyldi líta sömu augum og Sovét-
ríkin á atburðina í Ungverjalandi.
Fjölmargir liðsíor-
mgjar handteknir
í Jakarta
Býður Sókarnó komm-
únistum aðild að
stjórninni?
LONDYON, 17 jan. — Fregnir
frá Jakarta, höfuðborg Indónes- i
íu, herma að fjöldi manns hafi
verið handteknir þar í borg í
dag. Flestir þeirra handteknu eru !
háttsettir liðsforingjar í hernum. j
Sókarnó forseti tilkynnti í dag,!
að hann hefði gert ráðstafanir til,
þess að bæta úr þeim ágöllum á'
stjórnarskránni, sem leitt hefði j
til uppreisnarinnar á Súmötru. I
Sagði forsetinn, að æskilegt væri,
að veita hinum ýmsu hlutum ríkis I
ins aukið sjálfstæði, en eins og nú
stæðu sakir yrði því ekki komið
Búizt er við, að Sókarnó beiti
sér fyrir endurskoðun ríkisstjórn
ar landsins og bjóði koinmúnist-
um aðild að stjórninni.
Tregur afli Sand-
gerðisbáía
SANDGERÐI í.gær: — Hcr er
ofsaveður í dag, en ekki er kunn-
ugt. um að skemmdir hafi orðið
af völdum þess. Bátar, sem komu
að landi í fyrradag, fengu lítinn
afla, enda veður afleitt.
StofnacSur hefir verií 50 milj. marka sjó^ur
í Þýzkalandi til rannsókna erlendis, og munu
ÞjótJverjar vilja leggja fram fé úr sjótinum til
jartfefnarannsókna hér á landi
Blaðið hafði 1 gær tal af Sveini Björnssyni, forstöðu-
manni Tðnaðarmálastofnunar ríkisins, og Tómasi Tryggva-
syni, jarðfræðingi, og fékk, aðallega hjá hinum síðari, nokkr
ar upplýsingar um athuganir þær, sem síðustu mánuðina
hafa farið fram á möguleikum til hagnýtingar biksteins.
Það virðast einkum vera Þjóðverjar, sem nú eru að hugsa
um biksteininn. hafa athugað hann og eru að athuga um
möguleika á flutningi hans til Þýzkalands og bræðslu hans
þar og gera hann að byggingarefni.
í sumar voru tveir V-Þjóðverj-
ar hér á landi við rannsóknir við
Mývatn, bæði á botnleir vatnsins,
sem er mjög kísilríkur, og eins á
brennisteininum í Námaskarði og
gufum, sem koma úr borholum
þar.
Biksteinninn athugaður.
Tómas Tryggvason fór í vor til
Þýzkalands, Norðurlanda, Hol-
lands og Englands í því skyni að
kanna möguleika á hagnýtingu bik
steins, og virtist helzt vera um
slíka möguleika að ræða í Þýzka-
landi. Einnig hafði Tómas sent
sýnishorn út. Þegar Þjóðverjarnir
voru hér í sumar, fór Tómas með
þá austur í Loðmundarfjörð og
eins að Prestahnjúk við Kaldadal
og sýndi þeim biksteinslögin. Tóku
þeir sýnishorn og gerðu ýmsar at-
huganir og mælingar. Eftir heim-
komuna hafa þeir svo unnið úr
þessu rannsóknarefni og haft sam
band við íslendinga um málið.
Hugsa um Loðmundarfjörð.
Virðist svó sem Þjóðverjar hafi
allmikinn hug á að fá hér bik-
stein, og þá helzt úr Loðmundar-
firði, því að þeir mundu ekki taka
bikstein í mjög stórum stíl, a. m.
k. fyrst um sinn, þar sem aðeins
er kominn upp í Þýzkalandi einn
ofn til að bræða bikstein. Bik-
steinninn mundi verða notaður til
framleiðslum á plötum í bygging-
arefni. Ef það tekst að leysa vanda
málið með útskipun biksteinsins í
Loðmundarfirði, er það miklu
handhægara fyrir Þjóðverja, bæði
er sigling þaðan styttri til meg-
inlandsins, og þar er biksteinninn
auðunninn og nærri sjó. Ef nýta
á biksteininn í Prestahnjúk, þarf
vinnslan að vera í miklu stærri
stíl, þar sem um langan iandflutn
ing er að' ræða, en vafalaust yrði
hentugra að taka hann þar, t. d.
<Framhald á 2. síðu.)
Þakkar Sovétríkjunum.
Chou sagði, að auðvaldsríkin
hefðu ekki óskað eftir friði í heim-
inum s. 1. þrjú ár, þótt tekizt hefði
að varðveita heimsfriðinn á þess-
um tíma, sökum hins mikla friðar
vilja kommúnistaríkjanna. Þessi
ríki væru í rauninni grundvöllur
þess, að friður mætti haldast. Þess
vegna viidu auðvaldsríkin eyði-
leggja þennan hluta heimsins. Það
sýndu atburðirnir í Ungverjalandi.
En með hjálp Sovétríkjanna hefði
tekizt að koma í veg fyrir áform
þeirra, festa sósíalistíska stjórn í
sessi og skapa ró og frið í landinu.
Ilann kvað það nú sannað af at-
(Framhald á 2. síðu.)
Einn af bæjarfulltrúum
flokksins segir sig úr
Petrína Jakobsson segir ástæíuna vera yfir-
ráí kommúnista og fylgispekt ÞjóSviljans vií
Rússa í Ungverjalandsmálinu
Þau tíðindi gerðust á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur
í gær, að einn af bæjarfulltrúum Sósíalistaflokksins, Petrína
Jakobsson, lýsti yfir því, að hún hefði sagt sig úr flokknum,
en myndi þó áfram gegna störfum bæjarfulltrúa á eigin
ábyrgð.
og gerði grein fyrir henni. Efni
hennar var á þessa leið:
Sosíalista-
flokknum
Petrína kvaddi sér hljóðs nokkru
eftir að fundurinn hófst og las
upp yfirlýsingu, þar sem hún
skýrði frá þessari ákvörðun sinni
Eini dekkbátur VopnfirSinga slitn-
aði upp, rak á sker og
Frá fréttaritara Tímans í Vopnafirði í gær.
í dag milli kl. 1 og 2 slitnaði vélbáturinn Báran NS-18
af bóli sínu í bátahöfninni, rak út höfnina og strandaði á
skeri. Mun báturinn vera eyðilagður eða stórskemmdur, og
fer þar með síðasti dekkbáturinn, sem Vopnfirðingar eiga.
Báran er 14 smálestir að stærð
og var ekki gerð út s. 1. ár, enda
er báturinn orðinn allgamall og
vélin léleg.
Ofsastormur var hér á sunnan
eða suðvestan, þegar báturinn
slitnaði upp, og rak hann þegar
út af höfninni og rak upp á sker,
sem er skammt innan við Leiðar-
höfn. Varð ekkert að gert vegna
veðurofsa og sjógangs. — KB.
YFIRLYSINGIN.
Sósíalistaflokkurinn var á sín-
um tima stofnaður af kommún-
istum og hluta úr Alþýðuflokkn-
um. Þróunin liefir orðið sú, að
kommúnistar hafa náð algerum
tökum á flokknum og er flokks-
stjórnin nú einlit að þessu Ieyti.
Ég hefi lengi verið óánægð yfir
þessu og þó einkum eftir að til
sögu koinu þeir atburðir í Ung-
verjalandi, er mesta athygli liafa
vakið um skeið. Blað fiokksins,
Þjóðviljinn, liefir t. d. bersýni-
lega verið á bandi Rússa og sýnt
það með ýmsum hætti. Ég get
ekki sætt mig við þetta lengur
og liefi því ákveðið að segja mig
úr Sósíalistaflokknum, en mun
starfa áfram sem bæjarfulltrúi á
eigin ábyrgð.
KVEÐJUR GUÐMUNDAR.
Þegar Petrína hafði lokið máli
sínu, kvaddi Guðmundur Vigfús-
son sér hljóðs. Aðalefni ræðu
hans var að mótmæla þvi, að
kommúnistar réðu Sósíalistaflokkn
um, en þó vék hann sér undan að
færa rök fyrir þeirri fullyrðirigu.
Hann þakkaði svo Petrínu fyrir
samstarfið og óskaði henni góðsj
gengis í framtíðinni.
Fækkað um nær eina
millj .í Kommén-
istaflokki Ítalíu 1
RÓMABORG, 17. jan. — Mið-
stjórn ítalska kommúnistaflokks-
ins barst í dag skýrsla frá for-
manni skipulagsnefndar flokks-
ins, Amendola, þar sem hann
skýrir frá gífurlegu fylgishruni
flokksins. Síðastliðið ár voru
skráðir meðlimir flokksins 2,3
milljónir, en hingað til hafa ekfci
nema 1,5 milljón endurnýjað
flokksskírteini sín. Formaðurinn
skýrði einnig frá því að borizt
hefði mikill fjöldi úrsagna frá
einstökum mönnum, sem þekktir
eru fyrir afrek á sviði lista eða
vísinda. í bréfum, sem fylgja
þessum úrsögnum er oftast sagt,
að ástæðan til þess að viðkom-
andi vill ekki lengur vera í
flokknum séu aðfarir Rússa í
Ungverjalandi.
Þinghúsiðí Gufudal fauk af grunni
um helgina og brotnaði í spón j|
Húsið var járnklætt timburhús og byggt
íyrir 27 árum , (
Frá fréttaritara Tímans í Reykhólasveit.
Um helgina fauk samkomuhúsið í Gufudal í Gufudals-
hreppi. Tók það af grunninum og kom niður í túnið og brotn
aði við það í spón. Samt er talið að hægt sé að bjarga ein-
hverju af nothæfu timbri úr brakinu og er verið að vinna
að því. <
Samkomuhúsið í Gufudal var
eign Gufudalshrepps og ungmenna
félagsins og var þinghús hreppsins
og skemmtistaður. Þetta var lítið
hús, 4x8 m„ byggt úr timbri og
klætt járni og byggt fyrir tuttugu
og sjö árum. Þ. Þ,
Eins og kunnugt er, þá var mik-
ið hvassviðri á þessum slóðum um
helgina. Fauk einnig þak af hest-
húsi, við samkomuhúsið í Beru-
firði í Reykhólasveit, en ungmenna
félagið þar átti húsið.