Tíminn - 18.01.1957, Blaðsíða 4

Tíminn - 18.01.1957, Blaðsíða 4
Ór sjéprófum vegna sfrands GoKaness: Fiesjmr ekki merktar á sjókortiö í Goöa- — Skipið sprakk og liðaðist sunóor Skýrsíur hásetans, sem stóíJ vi(J stýrií, og loft- skeytamannsins, sem var einn þeirra, er fóru í J1 sjóinn, er skipitS sökk Tíminn birti í fyrradag kafla úr sjóprófum, sem fram fóru í Neskaupstað vegna strands Goðaness, og var þá birtur fram- burður Halldórs Halldórssonar, stýrimanns. Hér kemur ann- ar kafli sjóprófanna, og er næst kafli úr framburði Högna Jónassonar, háseta, sem stóð við stýri, er skipið strandaði: „Vitnið skýrir svo frá, að hann var háseti á b. v. Goðanes í síðustu ferð skipsins. Hann var ásamt Sig- urríki Ormssyni á stýrisvakt frá Jcl. 18,30 þ. 2. s. 1. Um það leyti sem þeir komu á vakt var nýbú- ið að taka land og siglt eftir rad- ar breytilega stefnu inn Djúpin. Stýrðu þeir til skiptis og kl. 20.30 tók vitnið við stýrinu af Sigurríki, var þá búið að beygja fyrir Aust- urnes í átt til Skálafjarðar, og örstuttu síðar fór Sigurríkur að hjálpa til við enda, vegna þess að taka átti höfn fljótlega. Skipstjóri var á stjórnpalli þegar vakt þeirra hófst og stjórnaði siglingu skips- ins alla vaktina, nema 1—2 mín- útur um klukkutíma áður en strandið varð, að skipstjóri brá sér frá og var þá 1. stýrimaður á stjórnpalli á meðan og enda bæði fyrir og eftir. Eftir að Sigurríkur fór af stjórnpalli var skipstjóri einn ásamt vitninu á stjórnpallin- um. Radarinn var í gangi og not- aður við siglinguna. Af radarnum var lesið í kortaklefa og fór skip- stjóri þangað til að lesa af honum. Um leið og skipstjóri gekk inn í klefann gaf hann fyrirmæli um að beygja rólega í bakborða. Frá kortaklefanum gaf skipstjóri síð- an skipun um að rétta hann af og halda því striki sem skipið var komið á. Var þetta um 1—2 mínút um eftir að byrjað var að beygja í bakborða og telur vitnið, að hann hafi beygt á að gizka tvö Strik í bakborða. 1—2 mín. síðar kallaði skipstjóri úr kortaklefa að beygja á stjórnborða og beygði vitnið hart í stjórnborða, en ör- skömmu síðar sagði skipstjóri „þetta beint“ og kom síðan fram í brúna. Vitnið hlýddi fyrirmælun um. Aðspurður kveðst vitnið hafa séð vita framan til við þvert á stjórnborða, sem sýndi grænt Jjós. Vitnið telur að búið hafi verið að sigla örskamma stund þessa stefnu þegar matsveinninn Anton Peter- sen kom hlaupandi upp í brúna og kallaði „land framundan". Skip- stjóri var að koma út úr korta- klefanum, er þetta varð. Sá vitnið §ð skipstjóri leit snöggt á dýptar- mælinn og vatt sér síðan að bak- borðsvélsíma og hringdi á stöðv- jin og strax á eftir fulla ferð aft- i&r á bak. Strax þegar skipstjóri |afði sleppt hendinni af vélsíman fm fann vitnið að skipið tók snöggt fiiðri, síðan hoppaði skipið tvisv- á skerinu áður en það stöðvað- íst. Vitnið fann það á titring á skipinu að vélin var látin vinna aftur á í þann mund er skipið ftrandaði. Skipstjóri gaf vitninu Strax fyrirmæli um að sækja flug «lda og stengur í kortaklefa og skjóta þeim. Fór vitnið aftur á á vélareisn og skaut öllu flugeld- um sem í dunknum voru nema einum sem var ónýtur, ennfremur brenndi hann 2 blysum. Áður en vitnið gerði þetta sá hann loft- skeytamanninn koma úr klefa sín- um og spyrja skipstjóra hvort ekki ætti að senda út neyðarkall. Samþykkti skipstjóri það og mun jíoftskeytamaður hafa gert það.“ Skýrsla loftskeytamannsins Þá kemur næst meginkafli fram burðar Axels Sigurðssonar loft- skeytamanns, en hann var einn þeirra fimm, sem fóru í sjóinn, þegar skipið sökk og var bjarg- ;: að upp í trillubát ■f„Vitnið skýrir svo frá, að hann Var í loftskeytaklefa skipsins, þeg ar það strandaði, ásamt Jónasi Hólm. Klukka skipsins var þá 20, 46 ísl ttferi. Vitijið hafði stuttu áð ur haft samband við Hafnarskrif- stofuna í Þórshöfn og skýrt frá því, eftir umsögn skipstjóra, að skipið myndi verða eftir hálftíma í Runavik í Skálafirði. Hafði vitn i ið setið í klefanum frá því hann ■ kom úr mat um kl. 19,00 og ekki i fylgzt með stjórn skipsins að neinu leyti. Þegar strandið varð fór !vitnið þegar fram á stjórnpall og spurði skipstjóra, sem þar var, hvort ekki ætti að senda út neyðar kall þegar í stað. Neyðarskeyti sent j Játaði skipstjóri því, og ' er vitnið bað um staðar- ákvörðun var honum sagt, að hún væri á skerjunum út af Toftum. Skipstjóri bað jafnframt um, að beðið væri um skjóta aðstoð. Sendi vitnið neyðarkall og neyðarskeyti þegar í stað og Þórshafnarradio kvittaði fyrir neyðarskeyti en bað jafnframt um nánari staðarákvörð un og spurði, hvort það væri á Flesjunum út af Toftum. Vitnið spurði skipstjóra hverju ætti að >vara þessu, og gaf hann það svar, að þeir væru í grænu af Toftavitanum í ákveðinni stefnu, sem vitnið man ekki lengur hver var. Vitnið sendi Þórshafnarradio þetta svar, en þaðan var enn spurt, hvort þetta væri ekki á Flesjun um. Vitnið gáði sjálfur á kort, en fann ekki staðinn, spurði hann enn skipstjóra, hverju svara skyldi Þórshafnarradio, og svaraði hann þá, að það væri á Flesjunum. Vitn inu er sýnt sjókort á dskj. nr. 1, en á því eru merkt blindsker með orðinu „Flesene“. Vitnið segir, að sjókortið, sem var í Goðanesinu, hafi verið í mun stærri mæli- kverða, en á flóanum milli Straum eyjar og Austureyjar hafi hann ekki fundið neitt örnefni. Vitnið : man eftir, að á svæðinu var all- mikið af dýptartölum, og hann minntist þess, að á einum stað var ' talan 3 í hálfum sporbaug. Vitnið skoðaði kortið síðar um kvöldið og komst þá að sömu niðurstöðu. Báfar og skip koma j Vitnið heyrði að b.v.Austfirðingur kvittaði fyrir neyðarskeyti frá Þórshafnarradio, sem móttekið var þangað kl. 21,48 G. m. t. Rétt á eftir bað skipstjóri vitnið að kalla í b. v. Austfirðing og spyrja, hvar hann sé staddur. Kallaði vitnið þegar í Austfirðing og fékk það svar, að þeir væru við Mjóanes og væru snúnir við og myndu verða hjá Goðanesi eftir hálftíma. Vitnið telur þá að klukkan hafi verið 20,55. Um sama leyti fékk hann tilkynningu frá Þórshafnarradio um að tveir bátar væru lagðir af stað frá Ströndum og Skálafirði. Ennfremur skýrði Þórshafnarrad- io frá því, að læknabáturinn Thors havn væri lagður af stað frá Þórs höfn. Aðspurður kveðst. vitnið sjálfur hafa séð vita, sem hann áleit vera á Toftum, og sýna grænt Ijós. Ennfremur sá hann fjölda ljósa í landi á bapði borð. Upp frá þessu var vitnið stanzlaut við fjar- skiptatæki skipsins og vék ekki lengra frá þeim en fram að dyrum klefans til að lita út og fá fyrir- mæli, unz skipið sökk. Allan tím- ann voru viðskipti, ýmist milli Goðaness og annarra skipa eða annarra skipa innbyrðis, sem Goða nes varðaði, enginn tími gafst til að skrifa þessi viðskipti niður, enda aðstaða til þess mjög erfið, | vegna þesá hve skipið lét illa. á skerinu. Vitnið man það, að raf- magn frá ljósavél skipsins fór skömmu eftir kl. 22,00 ,og fór vitn ið þá að máli við skipstjóra og spurði hvað væri að. 1. vélstjóri fór niður til að athuga þetta, en komst ekki fram að rafmagnstöfl unni, leit vitnið þá út um dyrnar á stýrishúsinu og sá, að skipið var farið að síga mjóg að aftan og að bakborðshluti sendiloftnets var slitið niður. Ennfremur heyrði hann að engin Ijósavél var í gangi. Vitnið hafði þegar er ljósin fóru, skipt yfir á neyðarrafgeyma. Af framangreindum ástæðum verður áframhaldandi skýrsla vitnisins ekki algjörlega nákvæm um tíma. Senditækið var opið allan tímann þangað til skipið sökk og nothæft, enda þótt að öll útiloftnet hafi verið slitin úr sambandi og aðeins notazt við leiðslur að útiloftneti. Fyrsti maSur í björgunarstól kl, 4,22 Vitnið hafði mest viðskipti við Austfirðing, sem kominn var á strandstaðinn um kl. 21,30. Að- spurður telur vitnið að klukkan hafi verið 22,15 til 30 er allir voru komnir miðskips. Voru venjuleg- ast 10—12 manns í loftskeytaklefan um, en þar var oftast 14 gróðu hiti á C, og ljós var þar líka frá neyðarrafgeymi. Skiptust menn nokkuð á að vera þar og hlýja sér. Gekk það á þennan hátt þar til björgun gat hafizt, en fyrsti mað- ur fór í björgunarstólinn kl. 4,22. Áður en þetta tókst, höfðu verið gerðar nokkrar tilraunir til að að koma línu á milli, en eftir því sem vitnið gat fylgzt með gegnum fjarskiptatækin voru þær þessar: Menn af b. v. Austfirðing undir stjórn 1. stýrimanns fóru yfir á færeyska skipið Suðurey með línu byssu og línu og skutu ca. þrem skotum að Goðanesinu. Mun eitt skotið hafa hitt skipið framan til, en ómögulegt var að ná í línuna. Því næst mun hafa verið skotið af línubyssu frá færeyska skipinu Hrókur, en þau skot mistókust. Um klukkan 23,00 er spurt frá Þórshafnarradio, hvort Goðanes þurfi meiri hjálp. Eftir fyrirmæl- um skipstjóra svaraði vitnið þvi, að þeir þyrftu alla þá hjálp, sem hægt væri að veita. Þegar skotfæri voru búin fór læknabáturinn Thors havn inn á Skálafjörð, en þar lá þýzki togarinn „Jens Christian“ og sennilega annar þýzkur togari. Voru fengin björgunartæki frá öðrum þessara togara, og farið með þau yfir í Hrók. Klukkan 1,40 heyrði vitnið að Thorshavn til- kynnti að hann myndi verða á strandstaðnum eftir 20 mínútur. Vitnið er ekki viss um tímann, en telur að það hafi verið milli 2,30 og 3,00 að línusamband fékkst við Hrók. Var ætlunin að nota 2 björg unarstóla til að flýta björguninni, en önnur línan festist þegar ann ar stóllinn var kominn í blökk við Goðanesið. Var þessi stóll þá tekinn um borð í Goðanes og önn- ur björgunartæki dregin á hinni línunni. Vitnið sá þetta ekki sjálfur en skýrslan er byggð á skilaboðum sem vitnið tók við og sendi um fjarskiptatækin. Þegar björgunar stóll var tilbúinn til notkunar við Goðanesið, spurði skipstjórinn á Hrók, hvort Goðanesmenn óskuðu björgunar strax, eða vildu bíða birtingar. Skipstjórinn á Goðanesi lét svara því, að björgun yrði að hefjast strax og yrði að draga hratt á milli. Skipið springur og iiðast sundur Eftir að fyrsti maður fór í björg unarstólinn kl. 4,22, fylgdist vitn ið með því, hvenær hver einstakur fór af stað frá skipshl., að og með 16. mannþen kl. var 6,25 er 16. mað ur fór í stólinn. Þá sá vitnið sjálf ur að skipið var farið að springa framan við hádekkið og að liðast í sundur bakborðsmegin og jafn- framt að síga meira að aftan. Eft ir fyrimælum kallaði vitnið í tal- stöðina til björgunarskipanna að það yrði að hafa hraðan á;að hífa, T í MIN N, föstudaginn 18. janúar 1957. „íþróttamene ársins^ í ffcregi, SvíþjóS og Fmnlandi Félög íþróttafréttaritara á Norðurlöndum hafa að undan- förnu kosið „íþróttamann ársins 1956“, en þessari útnefn- ingu blaðamannanna er alltaf veitt mikil athvgli og þykir mikill heiður fyrir viðkomandi íþróttamann að vera kjörinn „íþróttamaður ársins“. í Noregi kaus Félag íþróttafrétta ritara þar í landi spiótkastarann Egil Danielsen sem þann mann, sem náð hafði beztum árangri á s. l. ári. Sigur Danielssen í spjótkasts keppninni í Melbourne, þar sem hann setti nýtt glæsilegt heims- met, þótti bera af öllu því, sem norskir íþróttamenn unnu á árinu, þótt margir aðrir næðu góðum árangri. í öðru sæti varð Hallgeir Brenden, sem sigraði í annað skipti í 15. km. skíðagöngu á Vetr- ar-Ólympíuleikunum í Cortína í Ítalíu. Næstir í röðinni urðu Au- dun Boysen og Ernst Larsen en þeir unnu bronzverðlaun í Mel- bourne í 800 m. hlaupi og 3000 m. hindrunarhlaupi, auk þess, sem Boysen átti bezta heimstím- ann í 800 m. hlaupi s. 1. ár. Finnland. í Finnlandi var hinn frábær' skíðamaður Antti Hyvarinen kjör- inn „íþróttamaður ársins", en hann sigraði með yfirburðum í stökkkeppninni í Cortína. í öðru sæti var K. Lehtonen, sigurvegari í glímu á Ólympíuleikunum í Mel- bourne. í þriðja sæti var göngu- garpurinn mikli Hakulinen, sem áður hefir náð fyrsta sæti í þess- ari skemmtilegu keppni, og fjórði var hlauparinn Voitto Hellsten, en hann var 3.—4. í 400 m. hlaupinu í Melborune. Meðal 10 beztu manna í Finnlandi voru fjór ir skíðamenn, þrír frjálsíþrótta- menn og tveir glímumenn. Svíþjóð. í Svíþjóð var skíðamaður einnig efstur á blaði. Þar var Sixten Jernberg kjörinn „íþróttamaður ársins“, fyrir frábær afrek í skíða göngu. Hann sigraði í Cortína í 50 km. göngu og var í öðru sæti í 15 km. göngu. Annar var Frederik- son fyrir árangur sinn í kajak- róðri, en hann hlaut tvenn guli- verðlaun í Melbourne, auk þess, sem hann hafði einnig sigrað í London 1948 og Helsinki 1952. í þriðja sæti var Lasse Hall fyrir afrek sín í nútíma fimmtarþrau:. Danmörk. í Danmörku fer slík samkeppni ekki fram, heldur eru það einstöku Egil Danielsen dagblöð, sem veita iþróttamönn- um þessa viðurkenningu, en það er einnig gert á hinum Norður- löndunum að auki. Þá hefir Poli- tiken samkeppni hjá lesendum sínum, sem vekur mikla athygli, en það er, að kiósa þann íþróttá- manninn meðal hinna yngri, sem mesta getu hefír sýnt á árinu. því útlitið væri að versna, og vitn i ið bætti við að skipið væri að liðast1 í sundur og síga meir að aftan. i Nokkru eftir þetta, eða um það j leyti sem 18. maður var að fara í björgunarstólinn, kallaði vitnið; beiðni um það, að sendir yrðu J eins margir smábátar og hægt væri eins nálægt og þeir kæmust, til þess að björgunarstóllinn þyrfti ekki að vera dreginn eins langt, enda yrðu tveir í stólnum næstu ferð. Nokkru síðar voru skipstjór inn og 1. stýrimaður að hjálpa tveimur mönnum (19. og 20.) í stólinn, var framskipið þá brotnað frá og lá í stefnu 90 gráður við stefnu afturhlutans. Þá kom ólag og sýndist vitninu brúarvængurinn fara í kaf að aftanverðu og hann sá þessa fjóra menn í sjónum fyr- ir utan brúarvænginn. Illjóp þá vitnið að talstöðinni og kallaði út, að þeir skyldu vera klárir að taka þá upp, sem eftir væru í skipinu, því þeir væru að henda sér í sjó- inn og skipið alveg að sökkva. Það síðasta sem vitnið sá til 'skip- stjórans var þarna í sjónum, en skömmu áður hafði vitnið heyrt hann biðja um hníf, sem var und- ir skápnum undir dýptarmælinum og sá hann vera að skera frá belg, sem bundinn var við blökkina frá björgunarstólnpm. Sá vitnið að hann fékk belginn lausan. I belgn- um voru fjórir endar af sísallínu ea. 50—60 cm. Björgun hinna fyrstu 18 gekk betur er á leið, enda munu þá hafa verið sendir menn til aðstoðar um borð í Hrók frá Austfirðingi, en í uphafi voru þeir full liðfáir á Ilrók. Uin það hvernig vitnið bjargaðist skýrir hann svo frá. Mennirnir sfeypa sér í sjóinn Þegar hann hafði lokið síðasta kallinu, fór hann úr loftskeyta- klefanum fram á stjórnpallinn og sá þá Guðmund Sigurðsson standa bakborðsmegin við dyrnar út á brúarvænginn. Sá hann þá að Guð- mundur stakk sér út um dyrnar og yfir brúarvænginn og í sjóinn. Hann var með bjarghring yfir um sig. Þegar vitnið kom að bakborðs dyrunum, stóð straumurinn inn í stýrishúsið og sjór upp í mitti á vitninu. Hafði hann ekki handfestu og kastaði straumurinn honum aft- ur á bak og lenti hann á dýptar- mælisskápnum, sem festur er á framhlið brúarinnar milli 3. og4. glugga* og. stöðvaðist þar. Gerði vitnið sér nú grein fyrir, að heppi legra myndi að reyna að kom- i (Framhald á 8.,síðu.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.