Tíminn - 18.01.1957, Side 2
2
MacMillan ávarpar brezku þjóðina:
Samstarf Breta og Bandaríkjanna verö-
ur að byggjast á gagnkvæmri virðingu
Telurstjórn sína sterka og samhenta og
muni hún sitja út þetta kjörtímabil
London, 17. jan. — Harold Macmillan forsætisráðherra
Breta hélt fyrstu útvarps- og sjónvarpsræðu sína til þjóðar-
innar í dag. Hann sagði, að hann væri þess fullviss, að sag-
an myndi sanna réttmæti aðgerða Breta í Egyptalandi. Þau
vandræði, sem brezkur almenningur yrði nú að búa við svo
sem olíuskorturinn væri það gjald, sem greiða yrði fyrir
að hafa gert það, sem nauðsynlegt var í máli þessu. Ef allt
hefði verið látið reka á reiðanum, myndi gjaldið hafa orðið
enn þungbærara fyrir brezku þjóðina. Hann kvað raunhæft
-samstarf Bretlands og Bandaríkjanna verða að byggjast á
-gagnkvæmri virðingu.
Bretland hefir ekki í hyggju að
slíta tengslin við Bandarikin, sagði
forsætisráðherrann, en hyggst held
ur ekki verða Bandaríkjunum und-
iránug á nokkurn hátt. Ég er
líka viss um, að Bandaríkin óska
þess ckki að við tökum upp slíka
afstöðu til þeirra, sagði ráðherr-
ann.
Stendur höllum fæti, en . . .
Því öflugra sem Bretland er, því
betri félagar munu Bretland og
Bandaríkin verða. Hann kvað Bret
land ekki geta jafnast á við Banda
yíkin eða Sovétríkin, þegar um
væri að ræða efnalegan styrkleika,
en gífurlegur styrkur væri falinn
:í brezka samvelainu og ekki síður
í samstarfi Breta og þjóða Evrópu.
Bretland væri þegar tengt traust-
um böndum við þessar þjóðir, ekki
sízt Frakkland, og hann kvaðst
þeirrar skoðunar, að örlög Bret-
lands væru nátengd örlögum þess-
ara ríkja. Samanlagður máttur sam
veldislandanna og hinna evrópzku
þjóða, væri ekki minni en hvers,
' stórveldisins um sig, Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna.
sjálfa okkur. Við skulum hætta að
tala um Bretland sem annars flokks
stórveldi. Bretland hefir verið stór
veldi, er stórveldi, og mun halda
áfram að vera það, ef við snúum
bökum saman og hefjum starfið.
Stopular samgöngur
við Eyjar
VESTMANNAEYJUM í gær: Hér
eru allir bátar í höfn og ekki er
kunnugt um að neinar skemmdir
hafi orðið á þeim í roki því, sem
nú geisar. Samgöngur hafa legið
niðri að mestu undanfarið og ekk-
ert hefir verið flogið síðan á laug
ardag vegna veðurs.
Síðastliðinn þriðjudag voru um
tuttugu bátar á sjó héðan en afli
var tregur. Mestur afli var sex
ilestir á bát þann dag.
Doktorspróf þjóð-
minjavarðar á
morgun
Doktorspróf Kristjáns Eld-
járns þjóðminjavarðar fer fram
í hátíðasal liáskólans á morgun,
laugardaginn 19. janúar, og hefst
kl. 2 e. h. Andmælendur af há-
skólans hálfu verða norski forn-
minjafræðingurinn dr. phil. Jan
Petersen, yfirsafnstjóri frá Staf-
angri, og prófessor dr. phil. Jón
Jóhannesson.
Öllum er heimilt að hlýða á
doktorsvörnina.
r
Ohagstætt veður
hamlar síSdveiðum
Norðmanna
ÁLASUNDI, 17. jan. — Heildar-
síldaraflinn, sem borizt hefir á
land í verstöðvunum vestanlands
í dag, nemur um 35 þús. hl. Mest-
ur hluti þessa magns er rekneta-
síld og um 20 þús. hl. bárust til
Álasunds. Vindur er allhvass á
miðunum og geta snurpunótabát-
ar ekki athafnað sig, en rekneta-
bátar eru enn á veiðum. Síldar:
aflinn er enn fremur tregur, enda
hefir veðrátta verið óhagstæð.
Fiskhús og hjallnr fuku í stór-
viðri á Flateyri í fyrrinótt
Mun sitja út kjörtímabilið.
Hann tók þáð skýrt fram, að
stjórn sín myndi sitja út allt
þetta kjöríímabil, eða næstu þrjú
árin. Hann gaf í skyn, að dregið
yrði úr útgjöldum til landvarna,
og sagði, að Bretar myndu bera
sinn réttláta skerf af vörnum til
sameiginlegs öryggis, en heldur
ekki meira. Hann kvað stjórn
sína sterka og einhuga og nefndi
Butler, sem sinn nánasta sam-
verkamann.
Þjóðina skortir forustu.
Ráðherrann bað menn leggja
■.niður deilur og úlfúð. Takast
•myndi að yfirstíga erfiðleikana, ef
menn aðeins sneru bökum saman.
Hann kvaðst fylgjandi „framfara-
jinnaðri íhaldssemi“. Brezka þjóðin
oiði nú eftir dugmikilli forustu.
Hann kvaðst myndi gera sitt ítrasta
til að láta þá forustu í té. Brezka
þjóðin á nægilegan styrk og dug
sagði ráðherrann. Allt sem við
öörfnumst er trú á land okkar og
Fólk hætt komið í íbúÖarhúsum, sem urSu
fyrir braki úr húsunum, sem fuku
Flateyri í gær.
í Önundarfirði, einkum á Flateyri, urðu miklir skaðar
af ofsaveðri í nótt sem leið. Hefir fokið fiskaðgerðarhús og
fiskhjallur, einnig skemmdust íbúðarhús, og munaði litlu,
að meiðsli yrðu á mönnum.
Veðrið sópaði fiskhúsinu, sem
er eign Kaupfélags Önfirðinga, á
brott, svo að aðeins stóðu eftir
grunnstöður og veggpartur. Fauk
brak úr húsinu á íbúðarhús, sem
nærri stóð, en þar býr á efri hæð,
Trausti Friðbergsson kaupfélags-
stjóri ,en á neðri hæð Guðmundur
Jónsson, starfsmaður kaupfélags-
ins. Brotnuðu gluggar í húsinu, og
var fólk í hættu af glerbrotum,
sem þeyttust inn. Brak fauk einn-
ig á bílskúr, fór inn úr vegg hans
og braut rúður í bíl.
Þá fauk einnig hjallur með all-
miklu af fiski, sem ísfell átti. —
Skemmdist fiskurinn nokkuð, en
fauk ekki teljandi.
Enn var veður mikið í Önundar-
firði og óttuðust menn þá, að enn
myndi hvessa. Nokkuð tjón mun
hafa orðið á bæjum í Önundarfirði,
en þó var hvergi vitað um stór-
tjón í gærkveldi.
Þak gistihússms á
Haganesvík fauk í gær
Fleiri skemmdir urtSu í kauptúninu og í ná-
grenninu
Haganesvík í gær.
í Haganesvík og þar í kring urðu ýmsar skemmdir 1 fár-
viðri því sem staðið hefir undanfarið. Þak tók af gistihúsi
staðarins í heilu lagi'. Allar símalínur slitnuðu s. 1. mánu-
dag og var símasambandslaust í tvo daga. Meiri og minni
skemmdir hafa orðið til sveita og hey víða fokið og skemmzt.
Biksteinninn
(Framh. af 1. síðu).
ef flytja ætti hann vestur um haf
:með íslenzkum skipum.
Ef Þjóðverjar ákveða að fá bik
stein í Loðmundarfirði, þarf að
fara fram lokarannsókn á honum,
ug sú rannsókn er allumfangsmik-
.11 og dýr, og ekki yrði lagt í hana
:nema ákvörðun hefði verið tekin
lun nýtingu áður.
50 milj. marka rannsóknarsjóður.
Þá hefir blaðið frétt, að V-Þjóð
verjar hafi ekki alls fyrir löngu
stofnað hvorki meira né minna en
50 milj. marka rannsóknarsjóð, og
er sjóðurinn eingöngu ætlaður til
rannsókna orlendis, ekki sízt á
ýmsum hagnýtum jarðefnum.
Munu Þjóðverjar ekki ófúsir til
að leggja fram fé úr sjóði þess-
um til slíkra rannsókna hér á
landi, og mun það mál nú vera
i athugun.
Síðastliðinn mánudag brast á
suðvestan ofsaveður í Haganes-
vík. Þakið fauk af gistihúsinu í
heilu lagi og hluti af þaki sölu-
búðar kaupfélagsins. Símasam-
bandslaust var frá því á mánudag
þar til í fyrradag, vegna þess að
allar langlínur slitnuðu.
Að Lundi í Holtshreppi fauk þak
af hundrað kinda fjárhúsi og varð
bóndinn að koma fénu fyrir á
næstu bæjum. Á BjarnargUi fauk
járn af þaki íbúðarhússins og einn-
ig sextíu til sjötíu hestar af heyi.
Á Brúnastöðum og Stór-Holti fauk
af íbúðarhúsunum og á Sléttu fauk
hey og hluti af fjárhúsþaki. Að
Litla-Holti fauk hey en náðist aftur
að mestu.
Einstök hlýindi hafa verið að
undanförnu og er jörð alauð, og er
slíkt fátítt um þetta' leyti árs. f
gær var suðvestan hvassviðri í
Iíaganesvík. SE.
T í MIN N, föstudaglnn 18. janúar 1957.
Vestan stórviðri gekkyfir alltland
í gær og mótt, - kyrrir árdegis
Mun snúast í suÖaustan átt og hlýna meÖ
kvöldinu
Blaðið átti í gærkveldi tal vi* Pál Bergþórsson veður-
fræðing um óveður það, sem gekk yfir landið undanfarin
dægur og í gær. Sagði hann, að þetta suðvestan hvassviðri
væri þá komið um allt land og mundi vart hvessa meira í
þetta sinn. Með nóttinni var búizt við, að veðrið snerist í
norðvestur og kólnaði þá um leið, en ekki yrði teljandi frost
eða snjókoma hér suðyestan lands, en búast mætti við élj-
um eða snjókomu norðan lands.
Þegar líður á morguninn er bú-
iizt við að veður kyrri, en í nótt
mun veður á ný snúast í suðaust-
ur og hlýna svipað og verið hefir
undanfarjð.
í gærmorgun komst vindur allt
upp í 12—13 vindstig vestan lands,
en annars var veðurhæðin mis-
jöfn, mjög hvasst á sumum stöð-
um, en á stöðum eigi langt frá
allmiklu kyrrara.
Tveim erlendum fréttaritur-
um í Búdapest vísað úr iandi
Búdapest, 17. jan. — Tveim fréttariturum í viðbót var
vísað úr landi í Búdapest í dag. Er annar þeirra fréttaritari
Reuters,, Wiga'U að nafni, en hinn frá þýzku blaði. Fyrir
nokkru var fréttaritara blaðsins New York Times vísað úr
landi fyrir rangan fréttaflutning. Fréttariturunum tveimur
var tilkynnt að þeir yrðu að vera á brott úr landinu fyrir
kl. 12 1 kvöld, en þeir kváðu slíkt óframkvæmanlegt og fengu
þá frestinn framlengdan til miðnættis á föstudag.
Fréttaritararnir voru báðir
kvaddir í ungverska utanríkisráðu-
neytið í morgun og þar tilkynnti
frú Erdely, sem er háttsett í þeirri
deild ráðuneytisins, sem sér um
erlenda blaðamenn, um brottvísun
þeirra. Var hún aðeins gerð munn-
lega.
Uppþotið við Csepel-
verksmiðjurnar.
Ástæðan fyrir brottvísun var tal
in hegðun þeirra 11. jan. s. 1. er
uppþotin urðu við Csepel-stálverk
smiðjurnar. Þeir óku þangað ásamt
fjórum erlendum fréttariturum, er
kunnugt var um uppþotið. Þeim
var hleypt í gegnum hring lögreglu
mannanna og fylgdust þeir allvel
með atburðum. Verkamenn kröfð-
ust hærri launa og mótmæltu því
að Stalinistar hefðu verið teknir
á ný í stjórn verksmiðjunnar. Lög-
reglan skaut á verkamennina og
voru tveir drepnir, en margir
særðir.
Minningarathöín um skipstjórann á
GoSanesi í NeskanpstaS í gær
Frá blaðamanni Tímans, Neskaupstað.
í gær var haldin minningarathöfn hér í Neskaupstað um
skipstjórann á Goðanesi, Pétur Hafstein Sigurðsson, sem
fórst með skipi sínu við Færeyjar. Athöfnin fór fram í Norð-
fjarðarkirkju að viðstöddu fjölmenni.
Chu En-Lai
(Framh. af 1. síðu).
burðunum í Ungverjalandi, að
hvert sósíalistískt _ríki, sem sneri
baki við Sovétríkjunum, mætti
vænta þess að lenda í klónum á
auðvaldsríkjunum. Þess vegna
væri óhjákvæmilegt að öll sósíalist
ísk ríki héldu órofa tryggð við
Sovétríkin, enda myndi vinátta
Kína og Sovétríkjanna vara að
eilífu.
Búlganin sagði í sinni ræðu, að
stefna Eisenhowers við austanvert
Miðjarðarhaf sýndi greinilega, að
Bandaríkin óskuðu ekki eftir að
binda endi á kalda stríðið. Áætlun
forsetans væri liður í fjárhagslegri
og stjórnmálalegri útþenslu Banda
ríkjanna á þessum hjara. Hins veg-
ar myndu viðkomandi þjóðir á-
byggilega skilja til hvers refirnir
væru skornir og haga sér sam-
kvæmt því.
Góðar togarasöfiir
f fyrradag seldi togarinn Pétur
Halldórsson afla sinn í Bremer-
haven 203 lestir fyrir 105800
mörk. Einnig seldi Egill Skalla-
grímsson í Cuxhaven 181 lest^fyrir
110800 mörk. Sléttbakur seldi í
Grimsby 2969 kit fyrir 15328 pund
í dag seldi ísborg afla í Grimsby
2557 kit fyrir 11509 pund. í dag
selur síðasti íslenzki togarinn í
Bretlandi í þessum mánuði, er
það Gylfi, sem selja mun í Grims-
by. —
Viðstaddir minningarathöfnina
um Pétur heitinn voru áhafnir
tveggja togara, hins nýja togara
Gerpis og Austfirðings, en marg-
ir menn af þessum skipum höfðu
verið skipsfélagar Péturs heitins
áður fyrr.
Erfitt tíðarfar.
Togarar afla nú lítið vegna ó-
stöðugrar tíðar og hafa margir
togarar leitað til hafnar á Aust-
fjörðum undan óveðri. — Guðni.
m&asm
Kvikmyndasýning
Germania
Á morgun, laugardag, verður
kvikmyndasýning í Nýja bíó á
vegum félagsins „Germania", og
hefst sýningin kl. 2 e. h. Verða
þar sýndar tvær fréttamyndir
með mörgnm atriðum frá Berlín,
en jafnframt verður sýnd sér-
stök fræðslumynd þaðan, sem
nefnist „Verliebt in Berlin“ (Ást-
fanginn í Berlín) og var sú mynd
sýnd á síðastl. sumri. Vakti hún
þá mikla athygli, svo að ástæða
hefir þótt til að sýna hana aftur,
enda er Berlín eitt einkennileg-
asta fyrirbrigðið í pólitískri sögu
Evrópu. — Af fræðslumyndum
verða ennfremur sýndar „Wett-
erwarte auf der Zugspitze", veð-
urstöðin á Zugspitze, hæsta fjalli
Þýzkalands, með myndum af
hinu undurfagra landslagi Alpa-
fjallanna, og loks „Unser taglich
Wasser", þar sem vakin er at-
hygli manna á því, hvílík nauð-
synjavara vatnið er, en því vilja
margir gleyma, og hvernig þess
er aflað til að fullnægja hinum
furðumiklu þöríum stórborg-
anna.