Tíminn - 14.03.1957, Qupperneq 2

Tíminn - 14.03.1957, Qupperneq 2
2 T í MIN N, fimmtudaginn 14. marz 1957, Félag dægurlagahöíunda gengst fyrir dægurlagakeppni í Þórskaffi Félag íslenzkra dægurlagahöfunda hefir ákveSið að efna til dans- og dægurlagakeppni, sem fara mun fram í Þórskaffi, og hefst hún 26. marz n. k. Verður keppt í tveim flokkum, um gömlu og nýju dansana, en K.K.-sextettinn ásamt Ragn- ari Bjarnasyni og Sigrúnu Jónsdóttur mun flytja nýju dans- ana, J. H.-kvintettinn ásamt Sigurði Ólafssyni mun sjá um gömlu dansana. ___________________ Verðlaun verða veitt þrem beztu lögunum í hvorum flokki, fyrstu verðlaun eru þau, að Fálk- inn h.f. mun gefa lögin út á plötu, önnur verðlaun eru 300 krónur í peningum, en þriðju verðlaun 200 kr. Frestur til 16. þ. m. Frestur til að skila handritum að lögum, auðvitað undir dulnefni (rétt nafn skal fvlgja í lokuðu um- slagi, sem aðeins verður opnað að keppninni lokinni) rennur út hinn 16. þ. m., og ber að senda þau til Þórskaffis, Reykjavík. Öllum er heimil þátttaka í keppni þessari. Viðræðum Breía og Jórdaníumanna iokið AMMAN - LONDON, 13. marz. — í dag lauk í Amman viðrœðum Breta og Jórdaníumanna um upp sögn samningsins frá 1948. Voru þær hinar vinsamlegustu að sögn brezka útvarpsins. Ambassador Breta í Amman og forsætisráð- herra landsins undirrituðu upp- sagnarsamningana, en samkvæmt þeim munu Bretar flytja allan herafla sinn á brott frá Jórdaníu innan 6 mánaða. Danir veita Standard Oil einkaleyfi til borunar eftir olíu í Danmörku Frá fréttaritara Tímans í Kaupmannahöfn. Opinber tilkynning hefir verið gefin út um það af dönsk- um stjórnarvöldum, að Danir hafi gert samning við Standard Oil um einkaleyfi til borunar eftir olíu í Danmörku. „Samið“ um áfram- haidandi dvöl Rússa í Aaustur-Þýzkalandi MOSKVA—NTB, 13. marz: — Samningar voru undirritaðir í dag í A-Berlín af Gromyko, ut- anríkisráðherra Kússa og utan- rikisráðherra A-Þjóðverja um dvöl rússneska liersins í A-Þýzka landi. í samningunum segir m. a., að framvegis skuli rússnesku herirnir ekki blanda sér inn í innanlandsmál A-Þjóðverja og að stærð hersins á hverjum tíma skuli háð samþykki beggja stjórn anna. — Ráðizt er harkalega á ,,hernaðarstefnu“ V-Þjóðverja og sagt er, að herseta Rússa sé nauðsynleg til að koma á móts við óskir Rússa og A-Þjóðverja um frið og öryggi. Nanna Egilsdóttir syngur á þriðjud. Eins og sagt var frá hér í blað- jinu síðastliðinn sunnudag var ráð- gert að Nanna Egilsdóttir héldi söngskemmtun hér í Reýkjavík í kvöld. Nú hefir orðið að fresta skemmtuninni vegna veikinda söng konunnar, og verður hún í Gamla híói næstkomandi þriðjudags- kvöld. Við hljóðfærið verður Fritz Weisshappel. Eins og kunnugt er, ■er Nanna nýkomin heim frá Þýzka 'landi, en þar hefir hún sungið í útvarp og getið sér góðar vin- sældir. Þetta einkaleyfi gildir um bor- un í jörð eftir olíu í danska ríkinu, og gildir til júní 1960. Þá er og það ákvæði í samningnum, að hundrað danskir verkamenn skuli að staðaldri hafa atvinnu við bor- anirnar, og útgjöldin við þessar framkvæmdir eru áætluð um 10 milljónir danskra króna á ári. — Danir hafa að undanförnu borað eftir olíu á Suður-Jótlandi en það hefur borið lítinn árangur. Þó telja jarðfræðingar ekki ósenni- legt, að olía finnist í jarðlögum “Danmerkur. Þá virðist og auðsætt að leyfi þetta nái einnig til olíu- leitar í Grænlandi, og hefur því verið haldið fram, að þar myndi vera olía í jörð. SEATO-fundinum lauk í gær í Canberra CANBERRA - NTB, 13. marz. — í dag lauk í Canberra, ráðstefnu SEATO — Suðaustur-Asíu-banda- lagsins. — Meðal fulltrúa á ráð- stefnunni var John Foster Dulles utanríkisráðherra Bandaríkjanna. í tilkynningu, sem gefin var út um störf ráðstefnunnar segir m.a. að aðildarríkin hafi orðið sam- rnála um að efla enn varnirnar gegn árásarhættunni, sem stafaði af hinum alþjóðlega kommúnisma. Það hefir nú verið ákvevðið að setja upp fast herráð bandalagsins sem mun hafa aðsetur í Bankok, einnig er í athugun að ráða fastan framkvæmdastjóra bandalagsins og mun þð verða Asíumaður. Eisenhower heldur í dag sjóieiðis til Bermuda WASHINGTON, 13. marz. — Til- kynnt var í Washington í dag, að Eisenhower forseti muni leggja af stað í fyrramálið sjóleiðis til Berm uda, þar sem hann mun ræða við Mcmillan forsætisráðherra Breta innan skamms. Forsetinn mun fara með beitiskipinu Canberra, sem búið er með fjarstýrðum flug skeytum. Áður hafði verið áætlað að forsetinn færi í nokkurra daga dvöl til Frórída, áður en hann færi til Bermuda. Vtbreiðið THIANN Fyrir skömmu hélt Búnaðarfélag íslands og forustumann landbúnaðarins Páli Zóphóníassyni, fyrrverandi búnaðarmálastjóra, og konu hans hóf í Þjóðleikhúskjallaranum í tilefni þess að hann hefir starfað um hálfrar aldar skeið að landbúnaðarmálum sem ráðunautur, skólastjóri og síðast búnaðarmálastjóri. Mynd þessi var tekin í hófinu, og er Páll að halda ræðu og þakka heiður sér sýndan. (Ljósm: Þorv. Ág.) Deilan um Gaza (Framh. af 1. síðu.) svo frá, að gæzluliðið geri nú allt, sem í þess valdi standi til að koma í veg fyrir átök eða illindi við inn- borna menn á svæðinu. Burns hershöfðingi gæzluliðsins vottaði í dag aðstandendum pilts nokkurs er beið bana fyrir byssu- kúlum hermanna gæzluliðsins dýpstu samúð sína. Atvik voru þau, að hermenn S. Þ. skutu fyrir skömmu nokkrum viðvörunarskot- Hammarskjöld — ræðir við Nasser um helgina um yfir höfuð mannfjölda, sem gerði sig líklegan til að ráðast á aðalstöðvar S. Þ. á Gaza-svæðinu. Svo illa vildi til, að einn særðist svo alvarlega, að hann lézt í nótt. Áður hafði verið tilkynnt, að eng- inn hefði særzt í átökum þessum. BEN GURION HÓTAR GAGN- AÐGERÐUM ÍSRAELSMANNA Þróun málanna á Gaza hefir valdið mikluin ugg í ísrael. Dav- id Ben Gurion íorsætisráðherra lýsti því yfir í ísraelsþingi í dag, að fsraelsmenn myndu taka til sinna ráða, ef svo færi að Egypt- um yrði á ný hleypt inn á Gaza- svæðið. Ben Gurion sagði, að að- gerðir þessar yrðu framkvæmdar án minnstu viðvörunar og svo gæti farið, að ísraelsmcnn neydd- ust til að beita liervaldi til þess að koina í veg fyrir árásarfyrir- ætlanir Nassers. Ráðherrann full yrti, að Egyptar liefðu ekkert með Gaza-svæðið að gera, í fyrsta lagi væri það ekki þeirra eign, þar sem þeir hefðu lagt það und- ir sig í trássi við boð S. Þ. Það væri sýnt, að Nasser hygðist nú enn einu sinni hefja undirbún- ing árásar á ísrael eftir að hann hefði orðið að yfirgefa Gaza- svæðið með háðung. KREFJAST RÚTTÆKRA RÁÐSTAFANA U. S. A. Haft er eftir góðum heimildum í Jerúsalem, að ísraelsstjórn hafi skýrt Bandaríkjastjórn frá þeirri skoðun sinni, að ef Bandaríkin grípi ekki til róttækra ráðstafana til að stöðva Nasser, muni hann túlka það sem undanlátssemi og leggja Gaza-svæðið undir Egypta með hervajdi þegar í stað. Einnig er haft eftir ábyrgðarmiklum að- iljum í ísrael, að það séu komm- únistar sem fyrst og fremst standi á bak við æsingarnar gegn gæzlu- liði S. Þ. á Gaza. STANDA KOMMÚNISTAR AÐ ÆSINGUNUM? Sagt er að æsingunum sé stjórn að af koinmúnistaleiðtogum. sem nýlega hafj verið sleppt úr fang- elsi. Þeim liafi nú tekizt að fá ofstækisfulla þjóðernissinna í lið með sér og vinni nú að því að fá arabíska flóttamenn á sitt band, en þeir eru mjög fjölinenn- ir á svæðinu. Ennfremur er full- yrt af söinu aðilum í ísrael, að koinmúnistar þessir fái dagskip- anir sínar beint frá höfuðstöðv- unuin í Moskvu. Húseigendur óánægför Framhald af 12. síðu). sér til Iðnaðarmálastofnunar ís- lands og óskað aðstoðar hennar varðandi eftirfarandi: Að greiða fyrir mönnum er vilja afla sér tæknilegrar þekkingar erlendis á þessu sviði; að efna til námskeiða fyrir fagmenn um niðursetningu og viðhald olíukyndingartækja; að gefa út leiðbeiningar um með ferð olíukyndingartækja; að stuðla að því að hið opinbera gefi út fyrirmæli um lágmarksskilyrði um notagildi, öryggi og endingu olíu kyndingartækja. Brunatryggingar í Reykjavík. 1954 voru brunatryggingar í Reykjavík boðnar út og barst þá m.a. tilboð frá Samvinnutrygging um sem bauð upp á 47% iðgjalda- lækkun. Engu tilboðanna var tek ið heldur samþykkt að bærinn tæki sjálfur að sér tryggingarnar. Iðgjöld hafa ekkert lækkað, en tryggingarnar skila þó áiitlegum ágóða. Er talið að hann hafi ver- ið á fjórðu inilljón króna árið 1956. F.R. er heimilt að hafa eftir- lit með ráðstöfun þessa fjár og hefur stjórnin falið Páli S. Páls- syni framkvæmdastjóra félagsins að hafa það með höndum. Fast- eignaeigendafélagið vill að félagið hafi yfirstjórn á brunatrygging- um húsa í Reykjavík og tekju- afgangur af þéim verði endur- greiddur húseigendum eða komi fram í lækkuðum iðgjöldum. Landssamband fasteignaeigenda. Þá var frá því skýrt að F.R. hefði snúið sér til fasteignaeig- enda úti á landi og boðið aðstoð sína til að koma upp félögum þar. Einnig hefur fél. fengið upplýs- ingar um landssambönd fasteigna eigenda á Norðurlöndum og sam band þeirra innbyrðis og borizt hafa tilmæli um að íslendingar gerðust aðili að því. Er nú í ráði Aðalfundur Bygg- ingafélags alþýðu Aðalfundur Byggingarfélags al- þýðu, Reykjavík, var haldinn 10. marz síðastl. — Formaður félags- ins gaf skýrslu fyrir hönd stjórn- arinnar og endurskoðaðir reikn- ingar félagsins voru samþykktir. Hagur félagsins er góður. Úr stjórninni átti að ganga Er- lendur Vilhjálmsson og var hann endurkosinn formaður til þriggja ára, með honum eru í stjórn Guð- geir Jónsson og Gunnlaugur Magn- ússon. Reynir Eyjólfsson var end- urkosinn varaformaður og Hring- ur Vigfússon endurskoðandi. Brekkukotsannáll (Framh. af 1. síðu). og einstæðíngsskapar, á flótta undan þeim sem réðu yfir íslandi. Mér hefur verið sagt að borgað hafi verið undir konuna af mor- mónum, enda hef ég sannspurt að í þeim flokki séu ágætastir menn einhverjir í Vesturheimi. Nema þessi kona er ég nú nefndi til sögu, hún gerir sér lítið fyrir og verður léttari á meðan hún stendur við þar í Brekkukoti að bíða eftir skipi. Og þessi kona, þegar hún hefur alið barn sitt, þá verður henni litið á sveininn og segir hún þá svo: Þessi dreingur skal heita Álfur. Ég mundi nú skíra hann Grím, sagði þá amma mín. Þá skulum við kalla hann Álf- Grím, sagði móðir mín. Og það eitt sem þessi kona hef- ur gefið mér, fyrir utan líkama og sál, það er þetta nafn: Álf- grímur. Eins og allir föðurlausir á íslandi var ég kallaður Hansson. Síðan skildi konan mig eftir nak- inn, með þetta einkennilega nafn, í fánginu á honum Birni sáluga grásleppukalli í Brekkukoti og hvarf á braut. Er nú kona þessi úr sögunni“. Og síðan segir Álfgrímur sögu sína í gömlu og nýju Reykjavík. Koma ýmsir við hana, heldri borg arar og betri menn, og fer varla hjá því, að lesendur telji sig kenna svipmót nokkurra þátíðar- og sam tíðarmanna þar. Sögunni lýkur, er Álfgrímur stígur á skip með poka sinn og hefur námsför til Hafnar. Og sú spurning hlýtur að vakna, hvort hér sé um að ræða upphaf sagnabálks af hendi Kiljans. að stofnað verði landssamband hér á landi á sumri komanda.. Þá hefur félagið snúið sér til ríkisStjórnarinnar og farið þess á leit að félagið fái aðild að undir búningi og framkvæmd laga um húseignir. Er þess vænzt að undir tektir að því máli verði góðar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.