Tíminn - 14.03.1957, Blaðsíða 4

Tíminn - 14.03.1957, Blaðsíða 4
4 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: BROSIÐ DULARFULLA TÍ9II ?í,N, fiijrfptadaginn J4. raarz 1957.; ÞjóSJeikMsið frumsýndi á þriðjutídgskvöldið Brosiö tíular- fulla eftir Aldous Huxley í þýð- ingu Ævars R. Kvarans, sem einnig annast Ieikstjórn. Þetta er leikrit um afbrot. Það er byggt upp á sama hátt og sú bókmenntategund, sem enskir nefna „thrillers". Höfundurinn hyggst nota þá spennu, sem lausn morðgátunnar er, en vill jafnframt fjalla um málið á sálfræðilegan hátt. Til þess að neyta hinna sál- fræðilegu bragða verður hann þó þegar í upphafi að gefa um of í skyn, hver hinn seki 'sé. Þetta veldur því, að leikritið verður eins konar kleyfhugi, svo að talað sé í sálfræðilegum tón. Spennan, sem lausn glæpamálsins er, dvínar fyr- ir þá sök, að lausnin er gefin í skyn í upphafi, en aftur njóta hinar sálfræðilegu og heimspeki- legu bollaleggingar sín miður vegna óleystrar morðsögu leikrits- ins. Um leikritið má því með nokkrum rétti segja að „röddin er rödd Jakobs, en hendurnar eru hendur Esaú.“ Slík tvíþætt bygg- ing getur oft aukið á listrænt gildi í bókmenntum, ef höfundi tekst að láta báða þætti streyma í einn farveg. Hins vegar getur hitt líka orðið, að hin andstæðu skaut dragi hvort annað niður, afhlaði verkið þeirri spennu, sem tekizt hefði mátt að ná, ef aðeins hefði verið sinnt einum þætti. Sú virðist mér hér hafa orðið raunin. Að flestu öðru leyti er bygging þessa leikrits góð. Atburðarásin er trúverðug og hæfilega hnitmið- nð. Þó finnst mér síðasta atriðinu í fangelsinu ofaukið. Það varpar engu nýju ljósi á skapgerð eða fer- il Huttons, og auðvelt var að tákna þann tíma, sem á meðan Iíð- ur, með einhverjum öðrum og hæfilegri hætti. Hinn sálfræðilegi og heimspeki- legi þáttur þessa leikrits virðist mér heldur utangarna. Hinar skin- helgu oröaræður um fagrar listir og bókmenntir orka fremur óheilt. Það vantar heitara blóð J þetta allt. Heimspekiboðandi höfundar- ins er læknirinn gamli, og er hann furðu haglega gerð persóna frá hans hálfu. Hann er einna sam- kvæmastur og mannlegastur af því fólki, sem þarna er um vélt. En þrátt fyrir heimspekilegar og eálfræðilegar vangaveltur, virðist mér þetta leikrit ekki varpa neinu xiýju ljósi á þau gömlu sannindi, að maðurinn uppskeri svo sem hann hefir sáð, og sumt af lífs spekinni er nauðaléttvægur skáld- skapur. Þótt þannig megi að mínum dómi sitthvað að þessu leikriti finna, er það mjög þokkalegt verk, og persónusköpun höfundar hefir víða vel tekizt. Sjónleikur eftir Aídous Huxíey Leikstjóri Ævar R. Kvaran Bryndís Pétursdóttir og Inga Þórðardóttir í hlutverkum. Téklmeskt knattspymeliS kesssor fiingaS á vegom Víkings í soiasar Þorlákur Þffirííarson kjörinn forimaSnir Vskings — Frá aoaífundi félagsins Inga Þórðardóttir, Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Jón Aðils sem Janet Spence, Braddock hjúkrunarkona og Spence hershöfðingi. Baldvin Halldórsson og Róbert Arn- finnsson sem fangavörðurinn og l Henry Hutton. Ævar R. Kvaran hefir þýtt leik- ritið á islenzku, og virðist þýðing hans góð, að því er heyrt verður. Hann stjórnar einnig leikritinu, Og er þetta í annað sinn, sem hann eetur sjónleik á svið Þjóðleikhúss- ins. Leikstjórn hans virðist vel unnin, staðsetningar eru góðar, en heldur virðist mér um of hæga- gangur í Jeiknum.. Kóbert Arnfinnsson leikur ann- að aðalhlutverkið, Henry Hutton. Þetta er góðlátlegur, enskur yfir- stóttarmaður. Hefir áhuga á listum og bókmenntum, góðum vínum og fögrum konum. Hann er engan veg inn svipmikill persónuleiki og á- stundar meðalmennskuna í flest- um greinum. Róbert leikur þenn- an mann ai smekkvísi og nærfærni. Leikur hans er traustur og heil- steyptur. Þá konu, er ber brosið dularfulla og heitast elskar Hutton leikur Inga Þórðardótíir. Leikur Ingu er mjög góður. Hún lifir sig inn í hlutverkið, nær víða snilldargóð- um tökum á persónu þeirri, sem hún á að túlka. Bezt þótti mér hún í þrumuatriðinu, en hún er einnig mjóg nærfærin í þeim at- riðum, þegar þessar ógæfukonu heldur við sturlun í lok leiksins. Libbard iækni leikur Haraldur Björnsson. Það er ekki hans sök, I þótt sumar tiitektir þess heiðurs- | manns séu í það reyfarakenndasta, og Haraldur leikur lækninn af. sinni góðkunnu list. Þetta er eng- j inn þrjótur, eins og Haraldur hef- ir oft fengizt við, heldur þvert á móti góðviljaður, víðsýnn og mann j legur vinur þess fólks, sem í raun- ir leiksins ratar. Haraldur ieikur þennan mann rólega og ýkjulaust. Braddock hjúkrunarkonu leikur Guðbjörg Þorbjarnardóttir. Leik- ur Guðbjargar er afbragðsgóður í i þessu hlutverki. Hún er pipruð (Framh. á 8. síðu.) Aðalíúndur Knattspyrnufélags- ins Víkingur var haldinn s. 1. sunnudag í félagsheimiii Víkings við Réttarhcltsveg. Er þetta fyrsti fundurinn, sem haldinn er í hinu glæsAega féiagsheimili, sem fé- lagsmenn binda miklar vonir við. Aðalíundurinn var mjög vel sótt- ur, só fjölmennasti, sem um getur í sögu félagsins. Reykjavíkurbær hefir félagsbeimilið sem kunnugt er á leign nú og rekur þar skóla, og opinber vigsla þess hefir enn ekki farið fram. Fráfarandi íorma'ður, Gunnar Már Pétursson, setti íundinn og tilnefndi Guðmund Hofdal sem fundarstjóra, en Hall Símonarson sem fundarritara. Skýrsla félagsstjórnar. Gunnar Már las síðan skýrslu félagsstjórnar, en umíangsmesta verk hennar á árinu var bygging félagsheimilisins. Framkvæmdir við félagsheimiiið hófust á árinu 1953 og heíir því tekið rúmlega þrjú ár að koma því upp. Kostnað- ur við það næmi nú einni milljón og sjötíu þúsund krónum og er það skemmtileg taia, þar sem fé- Iagið átti sjötíu þúsund krónur, er framkvæmdir hóíust. Kostnaður við félagshe?n::l:ð á síðasta ári nam 660.000 krómjm. Eftir er nú að koma verk við það: Dúklagningu og málningu íbúðar og stiga, inn- rétting eidhúsa, innrétting bað- og búniRgsáirrru Qg.p.ú.Þýráng utanhúss, I byggingarnefnd stcrfuðú á ár- inu Gunnar Már formaður, Þorlák- ur Þórðarson, Sigurður Jónsson, Árni Árnason og Gunnlaugur Lár- usson. Má segja, að G:mnlaugur hafi starfað daglega v:ð byggingar- framkvæmdir. Þakkaði aðalfundur- inn þessum mönnura írábært starf á áriisu, eiriknm þó í'ormanninum og Gunnlangi. Fjárhagur félags- heimilissjóðs er allgóður, þótt fé- lagið skuidi að vísu enn talsverða upphæð vegna byggingarfram- kvæmda. Lítill árangnr í íþróíttun. Árangur 'Víkings í knattspyrnu og handknattleik var heidur lélcg- ur á árinu, en þó er ekki ástæða til að vera annað en bjartsýnn á framtíð félagsins, sem nú hefir í fyrsta sinn skapað sér aðstöðu sem önnur félög í bænum með bygg- ingu ffclagsheirnilis, og í surnar verður unnið að því, aö Koma upp íþróttasvæði viö félagsheimilið. Þarf þá ekki að efa, að i hinu íjöl- byggða hverí'i rrrunu koma upp sterkir knaL .pyrnu- og uandknatt- lejksflokkar. í ísland.-irótinu í knattspyrnu féll meistarafiokkur félagsrns nið- ur í 2. deúd. Einu Ijó-u punktarn- ir á íþróttasvioinu voru árangur 3. og 4. flokks íélagsins í knattspyrnu en þessir flokkar urðu báðir í öðru sæti í sínum riðlum í íslandsmót- inu, og væntaniega eiga þessir ungu drengir eítir að varpa Ijóma á nafn félag.ins á ný. Félögum í þessum flokkura íjölgaði mjög á j árinu, og æfingar voru vel sóttar. | Tékkneskt 113 kemur í sumar. Samkvæmt- úthiuLur. Knatt- spyrnuráðs Reykjavíkur á Víking- ur fyrstu erlendu knattspyrnuheim sóknina á þessu ári. Mun sterkt tékkneskt LS koma hingað á veg- úm félagsins síöari hiuta iúní-mán- aðar og leika hér nokkra ieiki. Væntir féiagið sér mikils af þeirri heimsókn. Stjórnarkorníng. Þá fór fram stjórnarkosning og voru kosnír íormaður og tveir með stjórnendur. Fráfarandi formaður, Gunnar Már Pétursson, og fráfar- andi gjaldkeri, Gunnlaugur Lárus- son. báðust e ndregið undan endur- kosningu. en þeir munu starfa áfram í byggingarnefnd. ) Formaður var einróma kjörinn Þorlákur Þórðarson og með honum í stjórn Jóhann Gíslason og Jón Stefánssom en fyrú í st.iórn voru 1 Magnús Tbjell og Pétur Bjarnason. Formaður knattspyrnunefndar 'var .’kjör'nn Gunnar A'ífiDtelnsson. for- maður handknattie^ksdeildar Pétur Bjarnason og íormaður . kíðadeild- ar Freyr Bj.rrtrnarz. í varastjórn i voru kjnrn'r Gu'rr-uridur Kr’stjáns ; son cg Hjörtur Hjarf ar.son. Endur- | skoðendur: Ingvar N. Pálsson og ! Olafur Jónsson, Fiosa. 1 Haukur Eyjólfsson, formaður I fulltrúaráðs, iagði fram lög um | fulltrúaráð Knattsþyrnufélagsins j Víkingur, sera vcru sarnþykkt á ifundinum. í trúnaðarmannaráð fé- I lagsins voru kjörnir Agnar Lúð- Kramnaid a ti sföu.j Lokaspreiturmn í 15G0 m. hlaupi í Melboíirne Sem kunnugt er urðu úrslit í 1500 m. hleup.nu a Olytupíuleikunum I Melbourne mjög tvísýn og þar sigraðl hlaupari, sem ekki hafði verið reiknað með í fyrstu sætunum, írlendingurinn Delaney, á nýju ólympísku meti. Á myndinni sést er Delaney slítur fagnandi marksnúruna á 3:41,2 mín. Annar er Þjóðverjinn Richtzen- hain, sem einnig kom mjög á óvart, hljóp á 3:42,0 mín. Þriðji er ástralski stórhlauparinn Landy, sem hlaut sama tima. Þá berjast þeir Tabori, Ungverjalandi, cg Hewson, Engiandi um fjórða og fimmla sætið, og varð Tabori á undan á 3:42,4 mín., en Hewson hljóp á 3:42.6 mín. Þrír öftustu menn eru taíið fiá vinstri: Boyd, Eng- landi, Jungwirth, Tékkóslóvakíu, og Scott, Nýja-Sjálandi. Tékkinn hristi hina tvo af sér og hlaut sama tíma og Hewson, Scott hljóp á 3:42.8 mín. og Boyd á 3:43.0 mín. eða sama tíma og heimsmel Svians Gunder Hágg var, sem Stóð um árabil. Allir 12 mennirnir í úrslitahlaupinu hlupu Innan við gamla Ólympíumetið, en það voru til viðbótar nr. 9 Ken Wood, Englandi, 10. Gunnar Nielsen, Danmörku, 11. Halberg, Nýja Sjálandi og Lin- coln, ÁstraSíu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.