Tíminn - 16.03.1957, Page 2
2
T í MIN N, laugardaginn 16. marz 1957
Samband bindmdisfélaga í skélmn
tutiugu og fimra ára
í d?.g er Samband bindindisfélaga í skólum tuttugu og
fimm ára. Það var stofnað 16. marz árið 1932 í Mennta-
skólanum í Reykjavík. Stjórn samtakanna ræddi í gær við
blaðamenn um sögu samtakanna, störf þeirra og framtíðar-
Rorfur. Eftir nokkurt hlé, hefir starfið nú verið aukið og
framkvæmdastjóri ráðinn. Ennfremur erindi sem ferðazt
framkvæmdastjóri ráðinn. Ennfremur erindreki sem ferðazt
kynnt sér bindindismál á hverjum stað. í tilefni afmælisins
afhentu samtökin Bláa bandinu í Reykjavík peningagjöf sem
leggst í minningarsjóð séra Magnúsar Jóhssonar frá Laufási,
en sjóðnum hyggst stjórn Bláa bandsins verja til húsakaupa
þar sem stoínuð verði hjálparstöð fyrir áfengissjúkar konur.
Formaður Sambands bindindis-
félaga í skólum, Hörður Gunnars-
son, Verzlunarskólanum, sagði, að
ástæðan til stofnunar fyrsta bind-
indisfélagsins hefði verið sú, að
forða skólafólki frá illum álirif-
um eiturlyfja, svo sem tóbaks og
áfengis en auka heilbrigða félags-
starfsemi og víða væri bindindis-
og íþróttafélög sameinuð. Stofnun
bindindisfélaga innan skóla hefði
anætt mikilli mótspyrnu í upphafi
en því ötullegar hefðu forustu-
menn samtakanna barist og að lok
um borið málið fram til sigurs.
Minntist hanrt sérstaklega þátt-
ar Helga Scheving er var fyrsti
formaður Bindindisfélags Mennta-
skólans og ötull baráttumaður bind
indismála meðan honum entist ald
ur. Þá sagði Hörður að félagsskap-
urinn hefði alla tíð notið mikils
stuðnings og velvildar Pálma heit-
ins Hannessonar rektors, sem
hefði unnið þessum málum af mik
illi ósérhlífni alla tíð.
Ennfremur væri ekki hægt að
minnast svo starfs þessara ára, að
ekki væri þökkuð störf þeim þrem
Þórarni Þórarinssyni, ritstjóra;
Guðmundi Sveinssyni, skólastjóra
og Magnúsi Jónssyni alþingis-
manni frá Mel.
Baráttan gegn tóbaksreykingum.
Ásgeir Sigurgeirsson var nýlega
ráðinn framkvæmdastjóri Sam-
bands bindindisfélaga í skólum.
Ásgeir sagði að sambandið færi nú
út starfsemi sína og sérstök á-
herzla væri lögð á baráttu gegn
reykingum.
Fyrir nokkru var hinn kunni í-
þróttamaður Vilhjálmur Einars-
son ráðinn erindreki sambandsins
og hefir hann þegar ferðazt um
Norður- og Austurland og Borgar-
fjörð eftir því sem hægt var vegna
ófærðar.
Ásgeir sagði sambandið hafa
verið févana þar til fyrir þrem ár-
um að Áfengisvarnarnefnd veitti
því styrk, sem hefði orðið starf-
inu hin mesta lyftistöng. Þakkaði
hann nefndinni og sérstaklega
Brynleifi Tobíassyni þessa hjálp.
Bindindis- og íþróttafélög
æskileg.
Vilhjálmur Einarsson sagði frá
ferðum sínum í erindum Sam-
bands bindindisfélaga í skólum.
Hann kvaðst hafa komist að þeirri
niðurstöðu í viðtölum við marga
skólastjóra að betra ástand væri
nú ríkjandi í bindindismálum en
oft áður. Sérstaklega sagði Vil-
hjálmur að þar sem tekist hefði
að sameina bindindis- og íþrótta
hugsjónina hefði árangur orðið
góður. Sem dæmi um þetta nefndi
hann félagslíf skólafólks á Akra-
nesi, þar sem bindindissemi hefði
stóraukizt samfara auknum íþrótta
áhuga og íþróttalíl'i. Vilhjálmur
sagði það skoðun sína að betra
væri að fá íþróttafélög til þess að
taka bindindishugsjón inn á stefnu
skrá sína heldur en að stofna mörg
félög um þessi mál. Mörg félög
dreifðu starfskröftunum um of.
Stærsta atri'ðið væri að ung-
lingar vissu a'ð það væri ekki leng
ur í tízku að reykja og þess vegna
væri góðs að vænta um þessi mál
í framtíðinni.
Fyrrverandi formaður S.B.S.,
Valgeir Gestsson þakkaði tveim
mönnum sem vel og dyggilega
hefðu unnið samtökunum alla tíð.
Þeim Pálma heitnum Hannessyni
rektor og Þorvaldi Örnólfssyni,
umsjónarmanni samtakanna.
Valgeir skýrði frá fjársöfnun
sem fram fór árið 1954. Söfnuðust
þá um 10 þús. krónur, sem sam-
bandið hefði nú ákveðið að gefa
hjálparheimili áfengissjúklinga,
Bláa bandinu. Jónas Guömunds-
son veitti gjöfinni, sem er að upp
hæð 11085,65 kr., móttöku og þakk
aði fyrir hönd þeirra er reka hjálp
arheimilið. Jónas sagði að fé þetta
myndi lagt í minningarsjóð Magn
úsar prests Jónssonar frá Lauf-
ási, en þeim sjóði yrði síðar varið
til þess að kaupa hús, þar sem
komið yrði upp hjálparstöð fyrir
áfengissjúkar konur.
Stjórn Sambands bindindisfé-
laga í skólum skipa nú: Hörður
Gunnarsson form., Einar Már Jóns
son, varaform., Messína Tómas-
dóttir ritari, Jón Gunnlaugsson
gjaldkeri og Birna Björnsdóttir,
meðstj. Ásgeir Sigurgeirsson er
framkvæmdastjóri sambandsins,
Þorvarður Örnólfsson eftirlitsmað
ur og Vilhjálmur Einarsson erind-
reki.
Níu þúsimd hafatek-
ið þátt í lands-
göiigimni
Landsgangan á skíðum hefir nú
sta'öið nokkra daga og er þátt-
taka allmikil. í gær hcíðu 9 þús.
lokið göngunui á 34 stöðum á
landinu. 1 sambandi við gönguna
hefir það komið í ljós að skiða-
skortur er tilfinnanlegur sums-
staðar á landinu, m.a. á Vestfjörð
um. í Húsmæðraskólanum á
Blönduósi eru aðeins til þrjú pör
skíða og hafa allir kennarar og
námsmeyjar utan þrjir, gengið
vegalengdina á þessuin skíðum.
Þorsteinn Einarsson íþróttafull
trúi bað blaðið að koma bví á
framfæri hvort ekki væri tiltæki-
legt að fram færi hér á landi svip
uð söfnun o gt.d. í Noregi, þar
sem fólk tók til handargagns
gömul skíði og skíðaútbúnað sem
hætt var að nota og sendi til skóla
í nágrenninu. Þannig tókst Norð-
mönnum að búa skóla sína skíðum
með litlum tilkostnaði. Vitað er
að víða liggja slík tæki umhirðu-
lítil á háaloftum og í kjöllurum
og er þeirri hugmynd hér með
komið á framfæri, að fólk athugi
hvort ekki sé tiltækilegt að gefa
nærliggjandi skólum kost á að
nota þau.
Næstkomandi sunnudag hefst
landsgangan á skíðum á þrem stöð
um. M.a. í Hafnarfirði og þar verð
ur jafnframt haldið skíðamót.
Glæsileg frammislaSa Valdemars
Ornólíssonar á skíSamóti í Frakkl.
Nýlega fór fram skíðamót á
vegum síúdenta í Frakklandi og
var keppt um meistaratitla í hin-
um ýmsu greinum. Valdemar
Grnólfsson, sem á'ður hefir getið
sér góðan orðstír í skíðaíþrótt-
inni, tók þátt í þessu móti, og
vann bæði brun-keppnina og tví-
keppni í bruni og svigi. Hann
varð þannig tvöfaldur Frakk-
landsmeistari stúdeuta í þessum
greinum.
Ungverskir stúdentar í Osló heiðra
minmngn látinna frelsishetja
Eínt til hátíílegrar athafnar í Óslóar-háskóla
OSLÓ - NTB, 15. marz. — Ung
verskir stúdentar í Osló héldu í
dag hátíðlegan þjóðfrelsisdag
Ungverja, 15. marz. Með hátíð-
legri athöfn í háskólanum í Osló
var hinum látnu hetjum bylt-
ingarinnar í haust vottuð virð-
ing.
Stúdentarnir fóru í gegn um
borgina og báru þeir kyndla og
norska og ungverska fána. Er
gangan nam staðar fyrir framan
Oslóar-háskóla var þjóðsöngur
Ungverja sunginn og einn stúd-
entanna las kvæði eftir frelsis-
skáldið Sandor Petöfi. Annar stúd
ent rakti frelsisbaráttu ungversku
þjóðarinnar fram á þennan dag.
Lagður var blómsveigur á
minnismerki um fallna stúdenta
til minningar um hinna föllnu frá
Bretar handtaka enn
einn leiðtoga EOKA
NICOSIA, 15. marz. — Brezkar
öryggissveitir á Kýpur handsöm-
uðu í dag einn helzta leiðtoga
EOKA-manna á Kýpur, en 5000
sterlingspund höfðu verið lögð til
höfuðs honum. í tilkynningu um
handtöku mannsins segir, að hann
hafi verið skipaður næst-æðsti
maður EOKA fyrir 10 dögum síð
an er Bretum tókst að handsama
5 af helztu leiðtogum félagsskap-
arins.
Helztu ráðherrar í stjórn Macmillans
ræða friðartilboð E0KA
Hvort vertíur hitS hernaðarlega etia stjórnmála-
lega sjónarmií upp á teningmim hjá Bretum?
LONDON, 15. marz. — Macinill-
an forsætisráðherra Breta kall-
aði nokkra helztu ráðherra sína
á fund í dag, sem haldinn var
að Ðowning Street 10. Meðal ann
arra mættu þar Butler, innsiglis
vörður drottningar, Selwyn Lloyd
utanríkisráðherra og Lennox-
Boyd nýlendumálaráðherra.
Fréttamenn telja fullvíst, að
rætt hefi verið um það boð EOKA
manna á Kýpur að hætta öllum
hernaðaraðgerðum gegn Bretum,
ef Makarios erkibiskup verði leyst
ur úr varðhaldinu á Selchelles-
eyjum og fluttur til Kypur.
Það er skoðun kunnugra, að
öll starfsemi EOKA sé nú mjög
í molum eftir þau skörð, sem ör-
yggissveitir Breta hafa höggvið í
raðir helztu lelðtoga félagsskap-
Frá hernaðarlegu sjónarmiði
mun talið rétt að ganga nú þegar
milli bols og höfuðs á EOKA, en
frá stjórnmálalegu sjónarmiði
kemur annað upp á teninginn.
Spurningin er, hvað vilja EOKA-
menn ganga langt til samkomu-
lags, ef Bretar gefa eftir og láta
Makarios lausan.
Allt hefir verið með kyrrum
kjörum á Kýpur í heilan sólar-
hring, eða síðan EOKA baúð Bret
um vopnahlé.
Miisica sacra efnir ti! kirkjutón-
leika aS nýju? nú í Kristskirkju
Sunnudagskvöld, 17. þ. m. verða tónleikar í Kristskirkju
við Landakot. Tónleikar þessir eru haldnir á vegum Félags
íslenzkra organleikara — Musica sacra —. Organleikari kirkj
unnar, dr. Victor Urbancic, mun leika á hið vandaða orgel,
sem byggt var af Frobeniusi nú fyrir nokkrum árum og er
eitt stærsta hljóðfæri sinnar tegundar hér á landi.
Þá mun og 5 manna lúðraflokk-
ur leika ýms andleg verk, með og
án orgels. Samleikur orgels og
blásturshljóðfæra er mjög vinsæll
erlendis og mikið iðkaður, en lítt
þekktur hér. Meðal slíkra vei’k-
efna verða leikin 3 sálmalög eftir
Karl Ó. Runólfsson í útsetningu
fyrir orgel, trompet, hórn og bás
únu, leikin þannig í fyrsta sinni.
Miðdepill tónleikanna verður þó
nýtt verk eftir Þórarin Jónsson,
orgel-sónata, samin 1956. Allt
verkið er byggt yfir gamalt ísl.
sálmalag: „Upp á fjallið Jesú
vendi“ (frá 1747). Sálmurinn er
um „Fjallræðuna“, sem tónskáld-
ið leitast við að skýra á sinn hátt,
en í miðjunni stendur „Faðirvor“.
— Þórarinn Jónsson hefir hlotið
verðskuldaða hylli fyrir tónsmíð-
ar sínar, svo sem hina snilldar-
legu fúgu fyrir einleiksfiðlu, söng-
lagið „Fjóluna“ o. fl. Mönnum
mun þvi nokkur forvitni á að heyra
þessa ný.iu tónsmíð hans.
Síðast á efnisskrá tónleikanna er
þáttur úr orgelkonsert eftir Hand-
el, þar sem hornin munu leika
hlutverk strengjasveitarinnar.
Tónleikarnir standa í klukkust.
og er öllum heimill ókeypis að-
gangur meðan húsrúm leyfir. Þeir
hefjast stundvísl. kl. 9 síðd.
Schumanns-verk flutt á tónlistarkynn
ingu í Háskólanum á sunnudaginn
Á morgun, sunnudag, kl. 5 síðdegis, verður haldin næst
síðasta tónlistarkynning vetrarins í hátíðasal Háskóla íslands.
Flutt verða af hljómplötutækjum skólans tvö verk eftir Ró-
bert Schumann. Guðmundur Matthíasson, tónlistarkennari,
skýrir verkin.____________________________________________
Efnisskráin verður þessi:
1. Róbert Sehumann: Frauen-
Liebe und Leben, samið við ljóða-
flokk eftir Chamissó. Kathleen
Ferrier (contralto) syngur, John
Newmark leikur undir á slaghörpu.
2. Róbert Schumann: Konsert í
a-moll ópus 54 fyrir píanó og hljóm
sveit. Hljómsveitin Fílharmónía
leikur, undir stjórn Herberts von
Karajan, Dinu Lipatti leikur á pí-
anóið.
Frauen-Liebe und Leben er eitt
af öndvegisverkum Schumanns í
þessari grein tónlistar. Ljóð Gham-
issó hefir séra Matthías Jochums-
son þýtt, og verður gestum afhent
ur ljóðaflokkurinn fjölritaður á
frummálinu ásamt með þýðingu sr.
Matthíasar. Píanókonsertinn télja
margir vera snjallasta og heil-
steyptasta hljóðfæraverk tónskálds
ins.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
1848 og 1956. Þessari hátíðlegu
athöfn lauk með því að stúdentar
og ungverskir flóttamenn sungu
þjóðsöngva Noregs og Ungverja
lands.
Skák í hávegum í
Bólstaðarhlíðar-
hreppi
Frá fréttaritara Tímans
í Svartárdal, 4. marz.
Tafláhugi er nú mikill hér í
Bóstaðarhlíðarhreppi. Tveir tafl-
klúbbar eru starfandi, annar að
vísu ekki formlega stofnaður. Um
þrjátíu meðlimir munu vera í báð
um klúbbunum. Taflæfingar eru
til skiptis á heimilunum og oftast
einu sinni í viku.
Nokkrir áhugamenn um leiklist
æfa nú Hreppstjórann á Hraún-
hamri, eftir Loft Guðmundsson.
Ekki mun neitt afráðið hvenær
leikurinn verður sýndur.
Smíði félagsheimilisins miðar
nú vel áfram. Bíða sveitungar þess
með óþrevju að hægt verði að
taka það í notkun, en þess mun
þó varla að vænta fyrr en í vor.
G.H.
Gaza-deilan
'Framhald af 12. slðuh
Gaza lýsti því yfir í dag, að hann
í nafni egypzku stjórnarinnar,
hefðu tekið við allri stjórn og á-
byrgð á Gaza-svæðinu. Landstjór-
inn sagði, að nærvera gæzluliðsins
hefði engin áhrif á hina borgara-
legu stjórn hans, ennframur upp-
lýsti landstjórinn, að gæzluliðið
yrði fljótlega flutt til vopnahlés-
línunnar.
Eban aðalfulltrúi ísraels hjá S.
Þ. og ambassador lands síns í
Bandaríkjunum sagði í dag, að
krafa Egypta um yfirráð yfir Gaza
og skipun egypzks landstjóra
mvndi ef til vill leiða það af sér,
að Israelsmenn myndu endurskoða
ástæðurnar, sem leiddu til þess,
að ísraelsmenn fluttu her sinn á
brott frá Gaza og Akaba. Frú
Golda Meir, utanríkisráðherra,
hafði áður lýst því yfir, að fsra-
elsmenn myndu beita hervaldi, ef
Egyptar reyndu að hefta siglingar
ísraelsmanna um Akabaflóa.
Attglýsitf í TimaiBum
Garalar og fágætar ljóðabækur og
leikrit á bókauppboði í dag
Sigurður Benediktsson heldur bókauppboð í dag kl. 5.
I Verða bækurnar til sýnis í Sjálfstæðishúsinu kl. 10—16 í
' dag. Eru þarna á boðstólum ýmsar gamlar og fágætar bækur.
; Á þessu uppboði eru einkum ljóðabækur og leikrit.
j Má t. d. nefna frumútgáfu að
■ Kvöldvökum Hannesar Finnssonar
! biskups, gefnar t 1794, ágætt ein-
j tak þeirrar fágætu bókar. Þá er
: þarna 8. útgáfa af Passíusálmun-
um gefin út 1722, og kveðst Sig-
urður ekki fyrr hafa fengið svo
gamla útgáfu af Passíusálmunum.
Þá er bænabók gefin út á Hólum
1683 og leikritið Stormurinn eftir
Shakespeare í þýðingu Eiríks
Magnússonar. Loks má nefna Sig-
ríði Eyjafjarðarsól og Feðgaæfir
Boga Benediktssonar, mjög fágæt-
an bækling, sem ævisagnasafnarar
sækjast mjög eftir.
Járnbrautarslys
fFramh. af 1. síðu).
Björgunarstarfið var í fullum
gangi í allan dag og var ekki lok-
ið síðast er til fréttist. Mikill fjöldi
fólks úr byggðarlaginu hefir gefið
sig fram til björgunarstarfanna svo
og stór hópur lækna. Erfitt er um
samgöngur á þessum slóðum
vegna snjóalaga og er nú unnið
að því að flýtja hina særðu á brott
með sleðum, sem dregnir eru af
hestumi Ekki er talið ósennilegt,
að dánartalan eigi eftir að hækka
nokkuð, þar sem fjöldi manna er
mjög alvarlega særðir.