Tíminn - 16.03.1957, Page 4
T f M'.TN N, laugardagmn 16. masz 1957.
Fá ekki aS hvíla oáreittir í gröfinni — p
Minningaflóð og bréfasöfn — Sagn-
fræSingur baS skáldkenu en fékk
bryggbrot — DrasIiS eftir Beetkoven ^
— Ekki kona heldnr snillingur
e£eá!l
itiámci
MyrkriS er nógu b jar^
Lsikur úr frelsisbaráttu Ungveria —
Eftir Christopker Fry
Þeir, sem lifa svo lengi að
þeir verða hárir og gamlir
fá að sjá samtíð sína í spegli
ævisagnaritara og útgefenda
gamalla bréfa. Ekkert stór-
menni vorra tíma fær að
liggja lengi óáreittur í gröf
sinni. Áður en varir eru kunn
ingjar hans farnir að skrifa
minningar sínar um hann,
menn setjast niður við að rita
ævisögu hins látna, bréf hans
koma fyrir almannasjónir.
Máske leynist bak við þetta
sú tilfinning að allt sé á
hverfanda hveli, jafnvel for-
tíðin má ekki vera of langt
undan.
Enska skáldkonan Virginia
Woolf hefir meðal annarra sætt
þessum örlögum og svo sá hópur
Tithöfunda, gagnrýnenda, sagnfræð
inga og málara, sem hún tilheyrði
og kenndur er við Bloomsbury í
London, sem á einni tíð var helzta
listamannahverfið þar í borg. At-
hyglisverðasta bókin, sem út hefir
komið um þessi efni, er tvimæla-
laust útdráttur úr dagbókum Virg-
iniu Woolf, sem gefinn var út fyr-
ir skömmu, hrífandi bók og fróð-
leg. En stöðugt bætast nýjar bæk-
ur í hópinn. Nú hefir mágur Virg-
iniu, gagnrýnandinn Clive Bell,
gefið út minningar sínar; þar eru
hnyttnar lýsingar á sumu helzta
fólkinu í Bloomsbury-hópnum og
skemmtilegar frásagnir af lífi lista-
manna í París á fyrsta og þriðja
tugi aldarinnar. Auk þess eru ný-
útkomin í bókarformi bréf þeirra
Virginiu Woolf og Lyttons
Strachey, en þau skrifuðust á að
staðaldri í 25 ár.
Lytton Strachey og Virginia Woolf — höfuðpaurar í Bloomsbury-hópnum.
Engar hjartaskerandi
játningar
Margir munu hafa búizt við að
f þessum bréfum gæti að líta ýms-
ar forvitnilegar upplýsingar um
einkalíf höfundanna og samband
þeirra sín í milli. Þessir hinir sömu
urðu fyrir vonbrigðum. Það er
greinilegt að skáldkonan og sagn-
fræðingurinn hafa verið slíkir vin-
ir, að þeim hefir verið óþarft að
fylla bréf sín stórum trúnaðarmál-
um eða hjartaskerandi játningum.
Að vísu kemur fram í þeim, að
Strachey hefir beðið Virginiu ein-
hvern tíma þegar bæði voru kom-
jn hátt á þrítugsaldur, en henni
var á hinn bóginn fullljóst, að sam-
hand þeirra var ekki þess eðlis, að
það væri vænlegt til hjónabands.
Og daginn sem skáldkonan hrygg-
brýtur hann, skrifar hann henni:
„Eins og þú sagðir, þá skiptir það
mestu máli að við séum vinir hvað
sem í skerst; og okkur þykir vænt
hvoru um annað, á því er enginn
efi."
En flest bréfin 'fjalla um hvers-
dagslegustu hluti, miðdegisverðar-
boð, helgi upp í sveit, sameigin-
lega kunningja — eða þá að þau
ræða rrtstörf sín: leiðann við að
skrifa, gleðina þegar einhverju er
farsællega lokið. Bæði voru þau
þunglynd og þörfnuðust stöðugrar
Uppörvunar utan frá, og á köflum
er kostulegt að sjá, hvernig þau
etappa stálinu hvort í annað með
gagnkvæmu hrósi.
Á stundum gera þau upp reikn-
ingana við samtíð sína. Þannig
segir Strachey á einum stað um
Viktoríutimabilið — það tímabil,
sem hann fjallaði einmitt mest um
6jálfur: „Heldur þú að það séu
eintómir fordómar, sem koma okk-
ur til að hata Viktoríutímabilið eða
höfum við rétt fyrir okkur? Mér
virðist það safn af stóryrtum, yfir-
drepsfullum svikahröppum; en
kannske hafa þessir menn samt
einhverja töfra til að bera, sem
barnabörn okkar eiga eftir að upp-
götva“. Og síðan lýsir hann (barna
legri?) von sinni um bókmenntir
framtíðarinnar: „Þær verða sann-
ar og ósiðlegar og skemmtilegar
og rómantískar. Og þá (eftir á að
gizka 100 ár) verður loksins skrif-
að vel“. Það er nú svo ...
En Virginia Woolf er varkár
i gagnvart hinu nýja, vísar því jafn-
! vel á bug. Forlag það, sem hún og
maður hennar stýrðu, hafnaði þann
ig bók James Joyce — Ulysses.
„Ég held“, skrifar hún, „að hin há-
þróaða aðferð hans nái engum öðr-
, um árangri en skera útskýringarn-
ar niður og setja hugsanirnar milli
þankastrikanna. Þess vegna finnst
mér að við ættum ekki að gefa bók
ina út“. Svo hart getur rithöfund-
ur dæmt um verk annars, þótt báð-
ir stefni í rauninni að sama marki.
Gamlir kunningjar
Minningar Clive Bell, Old
Friends, er talsvert skemmtilegri
lesning. Hann skrifar þarna um
gamla vini, mágkonu sína Virginiu
Woolf, Lytton Strachey, hagfræð-
inginn Maynard Keynes, gagnrýn-
andann Roger Fry og T. S. Eliot.
En hann dregur ekki upp neina
heildarmynd af Bloomsbury-hópn-
um; hann leggur einmitt áherzlu
á að hópurinn „var hvorki söfnuð-
ur eða klíka, heldur hópur ein-
staklinga, sem hver um sig hafði
sínar skoðanir og viðhorf". Og í
hinum skemmtilegu minningabrot-
um hans frá París 1904 og á þriðja
tugi aldarinnar er það ekki and-
rúmsloftið þar eða menningar-
straumarnir, er vekja áhuga hans,
heldur fólkið, það er að segja frægt
fólk. í bók hans birtast merkisber-
ar lista og bókmennta í spegli
menntasnata — en snati sá er rit-
fær í bezta lagi.
Þannig lýsir hann veizlu, sem
haldin var í kaffihúsinu Les Deux
Magots þar sem þeir Picasso, Stra-
vinsky, Joyce og Proust voru heið-
ursgestir. Proust kom ekki fyrr en
seint og um síðir og var þá svo
óheppinn að lenda við hlið Stra-
vinsky. Hann sneri sér að tónskáld
inu með ýtrustu kurteisi: „Þér dá-
izt vafalaust að Beethoven“? sagði
hann. „Ég hef viðbjóð á Beethov-
en“, var svarið. „En, cher maitre,
hvað um hinar síðari sónötur hans
og kvartetta“? „Ennþá verri' cn
hitt draslið“, hreytti Slravinsky úr
sér og þar með var samtalið á
enda.
Hann lýsir einnig morgunverðar-
boði hjá sænska málaranum Nils
von Dardel, þar sem Clive Bell
hitti dansmeyna frægu Isadora
Duncan. Þegar staðið var upp frá
borðuni, hallaði hún sér á næsta
; sóffa, greip hönd Englendingsins
og hvíslaði: ,,Ég er ekki kona, ég
er snillingur“. Til allrar hamingju
sátu þau svo lengi í þessum hríf-
andi stell'ingum, að von Dardel
tókst að draga upp mynd þeirra.
I Þannig úir og grúir af skopleg-
I um frásögnum í bók Bells. Hér er
, Picasso á þeirri tíð, er liann var
I „fashionable“, Matisse á hestbaki
og André Gide í skoplegu afbrýðis-
kasti og svo mætti lengi telja. Og
maðurinn, sem sögurnar segir, hef-
ir á stundum næstum því of skarpt
auga fyrir sérvizku og uppátækj-
1 um hinna miklu manna, en hann
hefir jafnframt góða kímnigáfu og
kann vel að segja frá. Hann er ekki
einn þeirra, er ræðir um hina „glöt
uðu kynslóð“ eftir fyrra stríðið.
Hann segir um sjálfan sig á þess-
um árum: Eins og flestir aðrir var
ég hamingjusamur, enda var margt
til að gleðjast yfir. Styrjöldinni var
lokið, og það skipti mestu máli.
Hversu margir þora í dag að við-
urkenna að þetta hafi þeim einnig
þótt — á þessari tíð.
Firmakeppni á
skiðum
Firmakeppni Skíðaráðs Reykja-
víkur í svigi fer að öllu forfalla-
lausu fram sunnudaginn þ. 17.
marz og hefst hún kl. 2 e. h. við
Skíðaskálann í Hveradölum. Að
þessu sinni taka 80 fyrirtæki þátt
jí keppni þessari og er það mun
| fleira en nokkurn tíma áður. Kepp
! endurnir, sem eru frá öllum skíða-
í deildunum, verða 40 og fer hver
þeirra 4 umferðir í 2 flokkum og
HID SERKENNILEGA nafn
leiksins, „Myrkrið er nógu bjart“
(The dark is light enough) er sótt
í rit eftir hinn heimsíræga íranska
skordýrafræðing, J. H. Farbe. Þeg-
ar tjaldið er dregið frá í upphafi
fyrsta þáttar, sjáum við gestina í
hinum reglulegu fimmtudagsboð-
um Rosmarin greifafrúar af Oten-
burg. Sveitasetur greifafrúarinnar
stendur á mörkum Ungverjalands
og Austurríkis, en Ungverjar berj-
ast nú vonlausri baráttu gegn kúg-
urum sínum, sem að þessu sinni
eru Austurríkismerm. Þetta er vet-
urinn 1848—1849. Greifafrúin sést
hvergi og gestirnir undrast fjar-
veru hennar. Áður en langt um líð-
ur kemur frúin aftur og í fylgd
með henni er Richard Gettner,
fyrrverandi eiginmaður Geldu dótt-
ur hennar. Gettner hefir strokið
úr ungverska hernum og er á
flótta. Skömmu síðar kemur Janik,
foringi í uppreisnarliðinu, með
menn sína í leit að Gettner, en
Rosmarin greifafrú ákveður að
halda honum í leynum. Uppreisn-
armennirnir handtaka núverandi
eiginmann Geldu, Peter Zichy,
verða notaðar 2 svigbrautir.
Nöfn þeirra fyrirtækja, sem þátt
takendur eru í keppninni, fara hér
á eftir: Trésm.verkst. Bened. Ey-
þórsson, Hótel Skjaldbreið, Sindra-
smiðjan, Reykjavíkur Apótek,
Hvannbergsbræður, Keildv. Björg-
vin Schram, Klæðaverzl. Álafoss,
Dvergur h.f.. Hafnarfirði, Síld &
Fiskur, Feldur h.í., Verzl. Vaðnes,
Lárus G. Lúðvíksson, fkóverzlun,
Klæðaverzl. Braga Brynjólfssonar,
Brunabótafélag íslands, Hellas,
sportvöruverzl., Skógerðin h.f., Sjó
vátryggingafélag íslands h.f.,
Sindri, vélsmiðja, Verzl. Hans Pet-
ersen, Heildverzl. Davíð S. Jónsson
& Co„ Timburverzl. Árna Jónsson-
ar, Klæðaverzl. Andr. Andrésson-
ar, Bókabúð Lárusar Blöndal, Þ.
Jónsson & Co„ bifvélaverkst., Fé-
lagsprentsmiðjan h.í„ Verzl. Edin-
borg, Ölg. Egill Skallagrímsson,
Vátr.skrifst. Sigfúsar Sighvatsson-
ar, Verzl. L. H. Miiller, Bifreiða-
stöð Reykjavíkur, Veiðarfæraverzl.
Geysir h.f„ Skóbúð Reykjavíkur,
Leðurverzl. Jóns Brynjólfssonar,
Byggingarv.verzl. ísleifs Jónssonar,
Heildverzl. Haraldar Árnasonar,
Timburverzl. Völundur, Vélsm.
Hamar h.f„ Heildverzl. G. Stefáns-
som Haraldarbúð h.f„ Belgja- og
skjólfatagerðin h.f„ Sveinn Egils-
son h.f„ A. Jóhannsson & Smith,
Vélsm. Dynjandi, Sælgætisgerðin
Opal h.f„ Á. Einarsson & Funk,
Landssmiðjan, H. Benediktsson &
Co„ Vátrvggingarfélagið h.f„ Vél-
smiðjan Héðinn h.f„ Heildverzl.
Kr. Ó. Skagfjörð. Vinnufatagerð
íslands h.f„ Reiðhjólaverzl. Fálk-
inn, Skeljungur hi„ Olíufélagið
(Framhald á 5. siðu ■
sem er liðsforingi í austurríska
hernum og halda honum í gislingu.
I öðrum þætti hefir Janik og menn
hans lagt íbúðarhús greifafjölskyld
unnar undir sig og flutí þangað
bækistöðvar sínar. Fjölskvldan hef-
ir flutt út í hestshús, þar sem
Gettner er falinn uppi á loftinu.
Þarna fá Gelda cg Richard Gettner
tækifæri (;I að ræðast við í ein-
rúmi undir óvenjulegum aðstæðum
um hina aumlegu stöðu lians og
hið misheppnaóa hjónaband þeirra.
STEFAN, bróðir Geldu, kemur
og varar Richara við hennönnun-
um, sem eru á leið til hestshússins
og Richard hveríur aftur til felu-
staðar sins á loftinu. Húsgögn eru
flutt út í hesthúsið og Janik upp-
reisnarforingi kemur til að færa
fram afsökun sína við greifafrúna
vegna þeirra óþæginda, sem hann
og menn hans hafi valdið henni.
Hann lofar greifafrúnni að sækjast
ekki eftir lífi Getlners, en ráðlegg-
ur henni jafnframt að láta hann
ekki verða á vegi uppreisnar-
manna. Peter Zichy hefir verið
leystur úr haldi og verður nú áhorf
andi að þvi, er Gettner klifrar
drukkinn ofan frá loftinu og kyss-
ir Geldu. Það verður árekstur milli
Stefans og Gettners, en greifafrúin
revnir að eyða málinu með því að
biðja um músik og hvetja hermenn
ina til að hefja dans. Þeir leggja
frá sér vopnin og Stefan löðrurig-
ar Gettner og án þess að athygli
vekji hverfa þeir út í myrkrið.
Skot hevrast að utan og Gettner
kemur æðandi inn. Hann telur .sig
hafa drep;ð Stefan. Hérmennirnir
vilja handtaka Gettner og færa
hann foringja sínum en greifafrúin
mótmælir því. Stefan er borinn
inn. Hann er lifandi en milcið særð
ur, þá þolir Rosmarin greifafrú
ekki meira og hnígur niður með
yfirbugað hjarta.
FRELSISBARÁTTA Ungverja hef-
ir verið bæld niður og austurriska
stjórnin hegnir grimmilega öllum
þeim, sem þátt tóku í uppreisn-
inni. Greifafrúin hefir flutt aftur
í íbúðarhús sitt, en nú er séð að
líf hennar mun ekki verða lengra.
Enn leitar flóttamaður náðar henn-
ar og að þessu sinni er það Janik,
foringinn úr uppreisnarliðinu. Hún
tekur við honum, þótt aðrir reyni
að letja hana þess. Gettner fréttir
veikindi greifafrúarinnar og kem-
ur á fund hennar. Hann misskilur
ástæðuna fyrir lífgjöf hennar og
heldur að hún elski sig. En þegar
hann biður hennar, fær hann af-
svar. Hermenn stjórnarinnar berja
að dvrum í leit að Janik og Gettn-
er, sem nú er einnig í hættu, er í
þann veginn að hverfa út um glugg
ann, þegar greifafrúin skilur við
þennan heim. En þá verða áhrif
hennar sterkust. Honum skilst
hvers hún hafi ætlazt og ákveður
að bíða örlaga sinna. Sbj.
Morðið á greifanum af Lamberg í Pesth hinn 28. september 1848. Með því hófst uppreisnin. Samtímamynd úr
Leipziger lllustrierten.
Herréttur framkvæmir aftöku Zichy greifa á eyjunni Csepel. — Samtímamynd úr Leipziger lllustrierten.