Tíminn - 16.03.1957, Page 8

Tíminn - 16.03.1957, Page 8
8 Minnmg: Helgi Jónsson Deildartungu Hinn 19. október síðastliðin’ andaðist að heimili sínu að Deild- artungu í Borgarfirði, einn af elstu þegnum þess héraðs, Helgi Jónsson. „Um héraðsbrest ei get- ur þó hrökkvi sprek í tvennt." Það mun hafa sannast þar, enda mála sannast, að um sæti hans haf sjaldan staðið styrr. Slík sæti eru ekki baráttusæti að jafnaði, i þeirri merkingu, sem venjulegasí er lagt í það orð. Og þó mun þaC hverri kynslóð hollt, að þaðan sé ekki runnið fyrir hverjum and- byr. Helgi í Tungu, — eins og hann var oftast nefndur af þeim, sem nánast þekktu hann, — var einn hinna hljóðlátu sona þjóðarinnar. Hann var einn hinn síðasti úr stétt, sem frá öndverðu hefir ver- ið allfjölmenn meðal þjóðarinnar, en nú er að mestu horfin, stétt sem sinn þátt átti í að fleyta þjóð- inni yfir örðugleika fátæktar og harðbýlis, stétt, sem samtíð okkar hefir, — a. m. k. að eigin mati, — efni á að þurrka út úr þjóðlífinu. Hann var alla sína löngu starfs- ævi vinnumaður og jafnvel svo traustur í því efni, að hann dvald- ist 52 ár samfleytt á sama heimil- inu sem slíkur, að svo miklu leyti, sem orkan entist. Og því verður ekki neitað að hann entist flest- um betur. Helgi var fæddur í Hvammi í Norðurárdal 2. október 1867 og var því búinn að fylla 89. árið, þegar hann lézt. Foreldrar hans voru hjónin Þór- laug Jónsdóttir og Jón Helgason, þá vinnuhjú í Hvammi. Hann var annað barn þeirra hjóna, en alls urðu þau þrettán. Þau hjón voru borgfirzkra ætta og þremenningar að frændsemi, en sá þáttur verður ekki rakinn hér. Þau reistu bú að Króki í Norðurárdal vorið eftir að Helgi fæddist og bjuggu þar um skeið. Hlóðst þeim þar mjög ó- megð, en harðbýlt og nytjarírt þar í Króki. Varð þröngt í búi þeirra, og það ráð því tekið að vista þá eldri bræður svo fljótt, sem kostur var. Varð það og hlutskipti Helga. En hann mun hafa verið heilsu- lítill og seinþroska, enda barist um áraskeið við sjúkdóm, sem löngum hefir verið harðhentur á íslendingum. Um tvítugsaldur mun hann hafa háð úrslitaorrust- una við þann vágest. Lá hann þá mikinn hluta árs og má telja víst, að við berkla hafi verið að etja. Settust þeir mest að í mjöðm og á fæti, og sóttu svo fast að, að hann fékk fót sin aldrei heilan, og gekk því haltur alla ævi. Trúlegt er, að sú fötlun hafi átt sin þátt í að Helgi'kaus sér þann kost, sem raun gaf vitni. Framan af ævi dvaldist hann á ýmsum stöð um í Borgðarfirði, löngum í Þver- árhlíð og Reykholtsdal. Vorið 1893 mun hann hafa ráð- ist að Hömrum í Þverárhlíð. Þar var og vinnukona, sem Þuríður hét Halldórsdóttir. Voru þau þremenn ingar að frændsemi. Þau felldu hugi saman um skeið, og varð tveggja sona auðið, sem báðir eru á lifi og atgervismenn. Þau Helgi og Þuríður giftust aldrei og slitu að fullu samvistir sínar, meðan þeir bræður voru enn á bernsku- skeiði. Vorið 1904 réðst Helgi að Deild- artungu til Vigdísar Jónsdóttur, er þar bjó ekkja við stórbú og mikla rausn. Hafði hann ekki vistaskipti eftir það, og höfðu húsráðenda- skipti þar í Deildartungu engin á- hrif í því efni, enda voru þau þess eðlis, að um fátt mun hafa skipt þar við þau ein. Breytingar heimil isins þá hálfa öld, sem hann dvald ist þar, munu meir raktar til ann- ars en húsráðendaSkiptanna. Slík samskipti milli húsbænda og hjúa, sem löngum ríkti þar í Deildartungu milli Helga og hús- bændanna munu sjaldgæf á þess- ari öld. Þau munu oft hafa borið meiri svip samrýmdra systkina en húsbænda og hjúa, og þó slík, að hvor aðili hélt sínu um skoðanir og jafnvel starfsháttu. Mikinn hluta þess tíma, sem Helgi dvald- ist í Deildartungu réði þar húsum hin þekktu hjón Sigurbjörg Björns dóttir og Jón Hannesson. Var Jón sem kunnugt er, einn af hinum fyr irferðamestu í forustuliði bænda um langt skeið. Sigurbjörg mun og hafa haldið sínum hlut með hinn’ fyllstu sæmd, þótt þeir Jón og Helgi væru svo samhentir sem raun gaf vitni, voru þeir á margan hátt höfuð andstæður. Að Helga mun aldrei hafa hvarflað að ætla sér sæti utan heimilisins og anna þess. Og þó hann væri aldrei skrá settur ráðsmaður þar, mun ráða hans hafa gætt þar talsvert enda óhætt að telja það til hollráða, er þangað var sótt. Mun svo ætíð hafa reynst öll þau ár, sem hans naut við fyrir aldurs sakir, hvað sem húsráðendaskiptum leið þar í Deildartungu. Eins og áður er getið fatlaðist Helgi svo á yngri árum að mjög horfði til örkumla. En slík var starfsorka hans og starfshæfni, að ekki mun hafa verið á almennings færi að draga úr greipum hans um afköst við flest verk. Var á orði haft hve miklu hann fékk afkast- að og mun fjárgeymslan þar minnisstæðust, einkum þó þegar haila tók undan fæti fyrir aldurs- sakir. Hirti hann um og yfir 300 fjár flesta vetur fast að áttræðu og löngum með lítilli hjálp nema hina siðustu vetur. Mundu slík af- köst þykja ærin þó yngri skyldu um fjalla og ófatlaðir, þótt ekki kæmi beitarhúsavegur til. Þótt störf Helga fyrir Deildar- tunguheimilið væru á margan hátt athyglisverð fyrir sakir áræðis og atorku munu þó fjallferðir hans mörgum samtíðamönnum hans, er^ fjær stóðu minnisstæðastar. Frá því hann kom fyrst að Deildar- tungu og fast að áttræðu, var hann alltaf hin sjálfsagði sendimaður heimilisins þegar leitir eða rekst- ur til afrétta voru annars vegar, enda var hann um langt skeið hinn sjálfkjörni foringi slíkra ferða. — Mun hann hafa eignast margt vina í þeim ferðum, ekki aðeins í sínu umhverfi heldur og norðan heiðar, vegna samskipta Reykhyltinga og Vatnsdæla í göngum. í minning- um vina hans frá þeim ferðum, sem annars staðar ber hæst hinn hugrakki og ráðslyngni gleðimað- ur, en ófyrirlátssamur hvort sem í hlut áttu kappsfullir samferða- menn eða óvægin öræfaveður. Helgi mun engrar fræðslu hafa notið í æsku, þegar frá er talin hin lögskipuðu fræði til ferming- ar. Framan af ævi munu honum ; lítt hafa gefist tómstundir til lest- urs. En eftir því, sem aldur færð- ist yfir hann stundaði hann þær menntir meir, enda átti hann er hann féll frá allgött bókasafn og vel hirt. Mun þá hafa komið í Ijós að hlutgengur gat hann og orðið á þeim sviðum. Eg spurði konu, sem um ára- bil var með Helga þar í Deildar- tungu, hvað henni væri minnis- stæðast í fari hans. „Vinnugleðin og trúmennskan“, — var svarið. Það er athyglisvert, að henni varð ekki starsýnast á afköstin, sem oft munu hafa verið furðuleg af svo fötluðum manni. Það var trú- mennskan, sem fylgdi þessum sér stæða gleðimanni til leiðarloka, er hún mundi bezt, — mat mest — og vissulega að verðleikum. „Tvisvar verður gamall maður barn.“ Fyrir þessu sígilda lögmáli lífsins varð Hélgi í Tungu að beygja sig eins og aðrir. En hann varð eftirlætisbarn þar í Deildar- tungu. Hefir það sína sögu að segja um mat þeirra, sem þar ráða húsum á störfum hans og í garð hans. En það segir líka sína sögu uiii háttu hans í garð þeirra, sem TIMINN, laugardaginn 16. marz. 1957, Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika tókst aö lokum að taka útvarpsþáttinn „BrúSkaupsferSin" á segulband á Akureyri. Hér sjást fimmmenningarnir berjast viS eina óskina í Nýja bíói á Akureyri. TaliS frá vinstri: Helgi Sæmunds- son, FriSfinnur Ólafsson, SigurSur Magnússon, SigurSur Ólason og IndriSi G. Þorsteinsson. nefndar. Enn liggur ekkert fyrir um úrslitin, þar sem þættinum lýkur ekki endanlega fyrr en síð- ustu upptökunum hefur verið út- varpað. Jt BrúSkaupsferSinm4 lauk meS tveim upptökum þáttarins á Akureyri Útvarpsþættinum „Brúðkaupsfei-ðin“, sem Sveinn Ás- geirsson hefir stjórnað mun nú að öllu óbreyttu vera lokið, en tvær síðustu upptökur á honum fóru fram á Akureyri síðast liðna helgi. Gekk ei'fiðlega fyrir þá sem í þættinum störfuðu að komast þangað og enn verr að komast þaðan, vegna þess að flugferðir hafa verið strjálar sökum slæmra flugskilyrða norðanlands. imiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmumi í upphafi var fyrirhugað að upptaka þáttanna færi fram á Ak- ureyri um fyrri helgi, en þá var ekki hægt að komast norður. Eft ir nokkurt þóf, þ.á.m. gistingu á Sauðárkróki tókst að komast til Akureyrar um hádegi s.I. sunnu- dag og voru þættirnir teknir á segulband síðdegis og um kvöldið, bæði skiptin fyrir fullu húsi. Vinsæll þáttur. Þrátt fyrir nokkra gagnrýni og tíðum meiningarlitla, hefur þátt- urinn „Brúðkaupsferðin“ verið vinsælt útvarpsefni yfirleitt. Hins vegar mun reynast erfitt að gera svo öllum líki í þessu efni sem öðru. Verðlaun eru ókeypis brúð- kaupsferð til Mallorka í Miðjarðar hafi (Balaríeyjar), en þau hlýtur það par ,sem ber af að áliti dóm- Sjötngnr: Sturlaiigiir Einarsscn, skipstjóri, Stykkishólmi í dag er sjötíu ára Sturlaugur Einarsson skipstjóri frá Stykkis- hólmi Sjötíu ár er talinn allveru- legur dvalartími á mælikvarða mannlífsins. Þó er það svo með þá, sem eiga þess kost að líta heilbrigða ævibraut til baka finnst þessi tími ekki vera langur. Stur- laugur má með sanni kallast gæfu maður. Hann hefur alla tíð aðlag- ast bjartari hliðum tilverunnar, og notið vinsemdar og virðingar þeirra er honum hafa kynnst. — Hann er Breiðfirðingur að ætt, fæddur 16. marz 1887 að Hnúki Skarðsströnd. Foreldrar Sturlaugs voru sæmdarhjónin Einar Odds- son og Guðrún Sturlaugsdóttir, sem þar bjuggu, og síðar að Dag- varðarseli. Ungur að árum byrj- aði Sturlaugur sjómennsku, sem hann og starfaði við fram á fimm tugsaldur, lengst af sem skip- stjóri á fiskiseglskipum (skútum) sem aflamaður og öruggur sjó- maður, sem búinn var ábyrgðar- þroska og leikni í starfi. Það er einnig vert að geta þess að það var ekki ávallt auðveldur leikur að stjórna vélvana seglskipi í mis jöfnum veðrum, og á hættusöm- um slóðurn. Þeir sjómenn sem njóta nútímatækni í fyllsta máta mundi ærið bregða við, ef þeir ættu að skipta um. þar sátu með honum, að hann mun hafa verið nokkuð jafnt eftir læti þeim, sem þar trítluðu fyrstu sporin um pallinn og hinum, sem önn dagsins heimti til sín. Og síð- ast munu það hafa verið móður- hendur húsmæðranna í Deildar- tungu, sem hlúðu að bernsku hans við leiðarlokin. Guðm. Jósafatsson. Sturlaugur er kvæntur Stein unni R. Bjarnadóttur, breiðfirzkri að ætt, ágætri konu, sem hefur stutt mann sinn með ráðum og dáð. Þau hjónin bjuggu að mestu í Stykkishólmi ,þar til þau fluttu til Reykjavíkur árið 1935, ásamt börnum sínum, fimm að tölu, sem öll eru nú uppkomin og búsett hér í Reykjavík og nágrenni. Um nokkurt árabil hefur Sturlaugur unnið á vegum Skipaútgerða, ríkisins, sjómennsku lagði hann að mestu niður eftir að hann flutt íst suður. Að lokum vil ég óska Sturíaugi allra heilla á þessum merku tímamótum og þakka hon- um góða viðkynningu fyrr og síð- ar, með von um að vinir hans og aðrir samferðamenn fái lengi að njóta góðvildar og glaðsinnis. S. S. m H !llS||||!||lliíii| S ‘llíijí k | l!lh U 11 firlt —K

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.