Tíminn - 24.03.1957, Blaðsíða 8
8
TÍMINN, sunnudaginn 24. marz 1959«
Áttræður í dag:
Guðmundur Bjarnason frá
Mosvöllum í Onundaríirði
Frostaveturinn 1918 heyrði ég
um það rætt einhverju sinni, þeg-
ar gestir komu heima, að bjarndýr
hefðu gengið á land á íslands-
strönd. Svo mikið vissi ég þá, að
spauglaust gat verið að hafa hungr
uð og grimm bjarndýr í grennd
við sig og mætti það verða að
tjóni bæði fólki og fé. Og þó að
slikar áhyggjur næðu lítt tökum á
mér að staðaldri minnist ég þungra
þanka af því tilefni, þar sem ég
sat úti í skoti í rökkrinu, áður en
kveikt var. Þá fannst mér rökkrið
langt. En bæri slíkan vágest að
garði hafði og helzt traust á Guð-
mundi Bjarnasyni á Mosvöllum til
að friða byggðjna og vinna björn-
inn.
Og nú er Guðmundur Bjarnason
áttræður í dag.
Ég hefi áður minnst Guðmundar
Bjarnasonar í þessu blaði með fá-
um orðum og verður það ekki end-
urtekið hér. En ég vil nota þetta
tækifæri til að benda á hvers virði i
það getur verið að eiga slíka sam-
ferðamenn og vitna ég þá til
reynslu minnar. Það hefir oft ver-
ið traust að því að vita af honum
í grennd, sem góðum nágranna, ör-
uggum í mannraunum og traustum
liðsmanni í félagsmálum, jafnan
glöðum og reifum.
Einu sinni spurðum við, strákar
af grannbæjum, Guðmund á Mos-
' völlum að því, hvað hann hefði
gert skemmtilegast um dagana.
Hann var þá að aka mykju á tún.
á Mosvöllum að vita hvort hann
vildi verða samferða en svo var
ekki. Þá sagði hann: „Guð hefir
alltaf leitt mig farsællega þegar
ég hefi verið einn“. Ég svaraði
heldur stuttlega: „En þegar þú
hefir verið með öðrum?“ „Þá hef-
ir heldur borið út af“, sagði hann.
Ég hygg að íslenzkar fornsögur
hafi mótað orðlist Guðmundar
Bjarnasonar og þar sé um að ræða
þjóðlega íþrótt. Ég minnist
skemmtilegra viðræðna okkar fyrr
og síðar um persónur fornsagn-
anna, skapgerð þeirra og örlög.
Það gat verið menntandi ekki síð-
j ur en skemmtilegt að vera honum
| samferða.
Formaður Guðmundar Bjarna-
| sonar spurði háseta sína eitt sinn
hvort þeir ættu að baka sér ómak
j og töf með því að gera annarri
i skipshöfn greiða. ' Guðmundur
mælti með því og sagði: „Það
j kynni að koma sér vel að ekki væri
i öllum illa við okkur“. Sízt mun þó
! greiðasemi hans hafa byggzt á því
J að hann vantreysti sjálfum sér.
; Einu sinni svaraði hann þegar hon
1 um var sagt að samferðamenn
færu á undan honum: „Ég segi
! eins og strákurinn: Á ég að fara
! að gráta strax? Ætli.ég borði ekki
áður.“
Mér finnst, að tilsvör Guðmund
ar, stuttorð og gagnorð, hafi löng-
um verið eftirminnileg árétting
á drengilegri lífsskoðun.
Og því vil ég nú í dag bera því
vitni, að sveitungar og samferða-
menn minnast hcns með glöðu
geði og þakklæti. — H. Kr.
Dánarminning
Sigurður H. Þorsteinsson
Laugardaginn 16. marz síðast
liðinn lézt Sigurður H. Þorsteins-
son f. afgreiðslumaður, Hring-
Glettnu brosi brá yfir andlitið þeg1 braut 24 hér í bæ, að sjúkrahúsinu
ar hann svaraði: „Núna langar mig
mest til að koma þessum haug á
túnið“.
Sjálfsagt hefir hann notið þess
að koma okkur á óvart á þennan
hátt. En mér er snilldin í svarinu
og lífsspekin ógleymanleg. Þarna
blasti það við, að bezta og dýpsta
lífsfyllingin og lífsnautnin er að
eiga sér áhugamál og njóta starfs-
gleði vegna þeirra. Þá verður það
hin bezta skemmtun að moka skít.
Það verður lífsnautn.
Guðmundur Bjarnason dvelur nú
í Reykjavík hjá Ólafi syni sínum
og er nú handverksmaöur í höfuð-
borginni i elli sinni. Ég heimsótti
hann núna eitt kvöldið og bar
margt á góma. Meðal annars sagði
hann mér að hann hefði gengið
landsgönguna og minntist í því
sambandi gamalla skíðaferða. Þá
sagði hann að á hinni öldinni hefði
hann verið léttari á sér með 50
pund á baki: „Ellin er þyngri en
það“.
Ráða má af því, sem þegar hefir
verið sagt, að Guðmundur hefir
verið íþróttamaður í tilsvörum og
viðræðum. Einu sinni var ég á leið
í kaupstað á vetrardegi og kom við
Skrffað og skrafað
(Framhald af 7. síðu).
Sú stjórnarandstaða, sem Sjálf
stæðisflokkurinn rekur nú, mun
vafalaust breyta viðhorfi margra
þeirra, sem áður hafa fylgt hon-
um. Nú kemur hann til dyranna
eins og hann er, stefnulaus og
úrræðalaus valdastreituflokkur,
sem hefir sérhagsmuni nokkurra
auðmanna fyrir leiðarljós. Ráð-
stöfun lánanna hjá Sparisjóði
Reykjavíkur er mjög glöggt dæmi
þess hverra flokkur hann er
fyrst og fremst.
Slíkur flokkur dæmir sig ekki
aðeins úr samstarfi við aðra flokka
vegna sérhagsmunabaráttu sinnar,
Sólvangi í Hafnarfirði, 81 árs að
aldri. Utför hans verður gerð frá
Fossvogskapellu á morgun kl. 1,30
eftir hádegi. .
Sigurður Helgi Þorsteinsson var
fæddur á Hóli í Köldukinn 24.
nóv. 1875, en þar bjuggu foreldr-
ar hans það ár.
Faðir hans var Þorsteinn, fædd-
ur að Þverá í Dalsmynni 1829,
Sigurðsson, síðar bónda á Veisu
og Draflastöðum, Þorsteinssonar
bónda í Fremstafelli, Grímssonar
bónda á Fjöllum, Stefánssonar
bónda þar 1703, Ásmundssonar.
Bróðir Sigurðar í Veisu var
Þorlákur á Þórðarstöðum, faðir
Jónatans fræðimanns. — Sigurður
í Veisu var orðlagður elju- og at-
hafnamaður. Hann var tvíkvænt-
ur og átti 22 börn. Urðu 17 þeirra
fulltíða, giftust flest og eiga fjölda
afkomenda. Meðal systkina Þor-
steins á Hóli voru Sigurður bóndi
á Halldórsstöðum í Kinn, faðir
þeirra Halldórsstaðabræðra Krist-
jáns og Sigurðar hreppstjóra og
Friðfinns í Rauðuskriðu, og Helga
móðir Sigurðar búnaðarmálastjóra.
Kona Þorsteins og móðir Sigurð-
ar var Sigríður Eyjólfsdóttir, Þor-
steinssonar bónda í Veisuseli í
Fnjóskadal 1801—1841, Vigfússon-
ar. Móðir Sigríðar var Aðalbjörg
Jónsdóttir frá Naustum í Eyja-
firði ívarssonar. Þorsteinn var
lærður járnsmiður. Hann var stop-
ult við bú, löngum í hús- og vinnu
mennsku, en stundaði iðn sína
jafnframt. Hann var eftirsóttur
smiður, hraustur verk- og þrek-
maður, átti þó alltaf við erfið kjör
að búa.
Sigurður Helgi var fóstraður
upp til fimm ára aldurs í Fjósa-
tungu í Fnjóskadal. Fór þá til for-
eldra sinna er fluttust burt úr
héraðinu til Eyjafjarðar og fáum
árum síðar til Skagafjarðar. Þar
ólst hann síðan upp til tvítugs-
aldurs. Dó þá móðir hans, en þau
áttu þá heima á Ingveldarstöðum
heldur mun sópa af sér miklu því í Hjaltadal. Fluttist faðir hans þá
aftur a fornar stoðvar 1 Fnjoska-
Bréffrá Argentínu
fylgi, sem hann hefir áður haft.
Fjöldi fyrrverandi fylgismanna
hans mun á komandi árum gera
sér ljósa þörf sem víðtækastrar
þjóðlegrar einingar og þar hefir
núv. forusta Sjálfstæðisflokksins
dæmt sig úr leik með sérhagsmuna
haráttu sinni. Því betur, sem ís-
lendingum verður ljóst, að hér er
þörf vaxandi samstarfs í stað
sundrungar, því fámennari verður
sá hópur, sem að lokum mun
standa undir merkjum þeirra sér-
hagsmunamanna, sem ráða Sjálf-
stæðisflokknum.
dal, en Sigurður, er þá var í Hóla-
skóla, varð eftir og var þar með
samvistum þeirra feðga að fullú
slitið.
Er Sigurður hafði útskrifazt úr
Hólaskóla ári síðar, fluttist hann
til Vopnafjarðar að beiðni Her-
manns Jónassonar skólastjóra, en
þaðan hafði verið falazt eftir bú-
fræðingi til þess að hafa forgöngu
í ræktunarmálum þar eystra.
Eftir fárra ára dvöl í Vopnafirði
fluttist Sigurður til Akureyrar og
nam þar múr- og steinsmíði, og
eftir nokkurra ára dvöl þar flutt-
ist hann til ísafjarðar.
Á ísafirði átti hann heimili um
tuttugu ára skeið. Fékkst hann
þar við margt. Vann við múrsmíði
og húsabyggingar, fékkst við út-
gerð og rak þar verzlun um langt
skeið.
Frá ísafirði fluttist hann laust
fyrir 1930 til Grundarfjarðar.
Keypti hann húseign í Grafarnesi
og hugðist ílendast þar. Stofnaði
hann til verzlunar og byggði vél-
frystihús, eignaðist bát og gerði
út. Svo kom kreppan og þessi við-
skipti reyndust Sigurði ofurefli.
— Þarna var um að ræða byrjun
þess er síðar hefir þar giftusam-
lega tekizt með auknu fjármagni
og bættri aðstöðu.
Sigurður fluttist til Reykjavíkur
1935 og átti hér heima síðan. Eftir
að hingað kom fékkst hann við af-
greiðslustörf, m. a. í allmörg ái'
við benzínafgreiðslu hjá Steindóri
Einarssyni, unz hann var ekki verk
fær sökum aldurs og sjóndepru.
Síðastliðin tvö ár var hann sjúk-
lingur á Sólvangi, allþjáður með
köflum, en lengst af hress og skýr
á milli, unz yfir lauk.
Sigurður var tvíkvæntur. Fyrri
konu sinni, Kristjönu Jónsdóttur
trésmiðs á Bergsstöðum í Reykja-
vík Jónssonar, kvæntist hann í
Vopnafirði. Þau áttu fimm börn.
Er eitt þeirra á lífi, Friðjón, áð-
ur verzlunarstjóri, en nú um langt
skeið sýsluskrifari á Hólmavík.
Seinni kona Sigurðar var Salvör
Ingimundardóttir bónda á Reykja-
völlum í Biskupstungum, Ingimund
arsonar bónda sama stað, Jónsson-
ar. Salvör er hin ágætasta kona
og var hún manni sínum mikil
stoð og öruggur styrkur þessi hin
síðustu sjúkdómsár. Þau áttu ekki
börn. -
Af því sem að framan er skráð,
má sjá fremur algenga sögu þeirr-
ar kynslóðar sem nú er að hverfa
(Framhald af 6. síðu).
fsl. héldu suður, halda mjög við
þjóðerni sínu enn og sambandi við
heimalandið.
Má víst lengi deila um á hvern
staðinn heppilegra hafi verið að
flytja fyrir íslendinga, og áreiðan-
lega höfðu vitmennirnir, Einar Ás-
mundsson í Nesi og Jakob Hálf-
dánarson, mikið til síns máls, er
þeir hvöttu til að velja heldur
Brasilíu en Grænland eða
N.-Ameriku til landnáms fyrir ís-
lendinga, þótt margt sé ágætt um
a. m. k. Norður-Ameríku. En því
verður ekki neitað, að í Brasilíu
biðu ötulla handa mörg og stór
tækifæri til góðrar afkomu — og
bíða ennþá. En sem íslendingar
syðra er hætt við að hefði orðið
örðugt með tímanum, þótt senni-
lega hægara heldur en nyrðra í
álfunni, en alls staðar mun „rót-
arslitinn visna vísir, þótt vökvist
hlýrri morgundögg".
ÞAÐ var gaman að koma til
Brasilíu. En nánari sagnir afi
landi, fólki, menningarlífi, siðum|
og háttum og smá ævintýrum mín-
um á ferðalaginu, segi ég ykkur
frá einhvern tíma seinna, ef tæki-
færi bjóðast. Þ. e. að segja þeim,
er kynnu að langa til að heyra
sitthvað frá þessum stóru, blíðu
og gróðursælu löndum hér í sunn-
anverðri Vesturálfunni. Á þá það
sama við um önnur ríki en Bras-
ilíu. Fór aðeins fljótlega yfir Uru-
guay, sem er minnsta og „hvít-
asta“ ríki S.-Ameríku, þ. e., að þar
sjást varla nema hvítir menn og
höfuðborgin, Montevideo, minnir
helzt á að sé verið í einhverri Evr-
ópuborg. Og hingað til Argentínu
er ég nýkominn og því ókunnugur
ennþá.
Eitt langar mig til að minnast
á áður en ég skil við Brasilíu í
þetta sinn. Undanfarið hafa lítil
skipti verið milli hennar og ís-
lands, nema á saltfiski og kaffi.
Brasilíumenn vilja kaupa meiri
saltfisk frá okkur, einkum nú á
föstunni. A. m. k. væri auðvelt að
selja þeim 6—7 þús. tonn á ári í
stað 4 þús. nú, sögðu ræðismenn
okkar í Rio de Janeiro og San
Paulo. En af hverju þá að vera nú
að kaupa lökustu og ódýrustu teg-
undina af kaffi, sem þeir fram-
leiða? Við kaupum kaffið sem okk
ar aðalhressingar þjóðardrykk, ef
svo má segja. Hví þá að kaupa
ekki heldur betri kaffitegundirn-
ar, þótt þær séu dálítið dýrari —
þó að þurfi 2—3 þorskum fleiri
og horfin er sýnum. Uppeldi við
harðbýli og skort, en jafnframt
þrautseigju og kjark er ásamt um-
bótaþrá og atgerfi braut sumum
veg til nokkurra framkvæmda í at-
hafnalífi þjóðarinnar á fyrstu tug-
úm þessarar aldar. — Um Sigurð
er skráður þáttur af Benedikt Gísla
syni frá Hofteigi í Fólkið í land-
inu, öðru bindi, er út kom fyrir
nokkrum árum.
Sigurður var um flest óvenju-
lega vel gerður. Hann var maður
meira en í meðallagi hár, þykk-
vaxinn, vel þrekinn og afburða
karlmannlegur. Fríður sýnum, höf-
uðið stórt og fallega skapað með
gáfuleg augu undir skörpum brún-
um. í svipmóti og hreyfingum var
reisn og vaskleikur er vakti eftir-
tekt. Hann talaði hreint mál, hag-
aði orðum skipulega og innihald
þeirra og framsetning var svo sem
samrunnið hinu gjörfulega svip-
móti. Orð hans féllu haglega og
þó blátt áfram, og birtu skoðun
hans einarðlega og afdráttarlaust,
hvort sem mönnum þótti betur
eða miður, en allt var af hrein-
lyndi mælt. Samúð hans var rík
með þeim er minnimáttar eru,
réttlætiskennd hans sterk og um-
hyggja hans fyrir framförum ein-
staklings og þjóðar lifandi og frjó
fram á elliár.
Sigurður Helgi Þorsteinsson var
kynborinn kvistur af fjölgreind-
um og mergsterkum ættarmeiði.
Sannur fulltrúi margra þeirra
beztu éðliskosta er búið hafa með
þjóð okkar. Þessa vegna er hann
minnisstæður og -hugþekkur þeim
er þekktu hann, og því er bæði
skylt og ljúft að minnast hans við
leiðarlok.
Indriði Indriðason
fyrir hver 100 kg. af betra kaff-
inu. Gæðamunurinn á Rio-kaffi nr.
3 og San Paulo-kaffinu er mikill.
Það síðarnefnda er svo miklu
betra. Fyrir þá, sem þykir kaffi
gott, er unun að drekka það.
Úr því við íslendingar kaupum
kaffið sem almennastan hressing-
ardrykk, þá er sjálfsagt að kaupa
beztu kaffitegundirnar, sem Brasi-
lía framleiðir.
ÉG vona að klakinn og snjórinn
sé farinn að þiðna heima, því óð-
um er sólin þar að hækka á lofti
nú þegar líður á Góuna. Hér skín
sólin hátt á lofti, oftast allan dag-
inn og þá auðvitað úr norðurátt.
Alltaf finnst mér torráðin gáta,
hvers vegna íslendingurinn, sem
skrifaði af ýmsu leyti skemmtilega
ferðasögu sína, aðallega frá aust-
urrönd Suður-Ameríku, kallaði bók
sína „Sól í fullu suðri". Nafnið
virðist verka sem hreint öfugmæli
og einkum þó þegar verið er hér
syðra og verið er að steikjast sí
og æ af blessaðri sólinni, sem alla
daga skín — í norðri.
En heldur er hitinn samt að
minnka og veldur því að verið er
að smáfærast suður á bóginn og
byrjað er að hausta. Þó er nú ekki
margt sem bendir á, að sé að koma
haust. Allt er algerlega í fullum
sumarskrúða ennþá og það þótt
komið sé suður í Argentínu. En
syðst í henni — suður í Patagóníu
og Eldlandinu, eru nú að koma
kaldir hauststormar og rigningar,
engu betri' en á haustum norður á
íslandi. Og þar fara sauðfjárbænd
urnir að velja úr. hinum stóru
hjörðum sínum féð, sem á að
slátra, en ákveða að setja ennþá
fleiri lömb á vetur en í fyrra, því
alltaf stækka hjarðirnar þar með
ári hverju.
Eins og margir vita heima, stend
ur þessi borg að sunnanverðu við
hið stóra fræga fljót Rio de la
Plata — Silfurfljótið, sem er skip-
gengt fleiri hundruð km. inn í
landið og svo breitt viða, að hvor-
ugu megin sér til lands, þótt ver-
ið sé á því miðju.
Buenos Aires stendur á slétt-
lendi og er ólíkt snubbóttara borg-
arstæðið hér heldur en í Rio de
Janeiro. Og mér sýnist borgin við
fljóta yfirsýn, ekki mikið heill-
andi, þótt ríkidæmi muni vera hér
mjög mikið. — Ég er svo óhepp-
inn, að ræðismaður íslands hér er
ekki heima í borginni og verður
ekki fyrst um sinn — og hefi því
engan til að fara til að fá leiðbein
ingar, meðan ég er ókunnugur öll-
um. Enda hugsa ég mér að dvelja
hér ekki lengi. Vil þá heldur lit-
ast um úti á landinu á hinum við-
áttumiklu sléttum — hinum nær
óendanlegu pampas, þar sem nauta-
og sauðfjárhjarðirnar reika um í
þúsundatali, og „náttúran talar
ein við sjálfa sig.“
Með beztu kveðjum.
Vigfús Guðmundsson.
Eru skepnurnar og
heyið Iryggt ?
, MMVMmuTvnMiiimuui
I ampep^*
| Raflagnir — ViSgerSir
Sfmi 8-15-56.
iiuiiiiiiuiuuiuuiuujr'uuu