Tíminn - 26.03.1957, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, þriðjudaginn 26. marz 1957«
Hin fflýja Neskirkja í Reykjavík verð-
ur vígð á pálmasuimudag 14. apríl
Eínt til happdrættis til þess a$ aíla kirkjubún-
j aííar hit5 innra
Bygging nýrrar sóknarkirkju fyrir Nessókn í Revkjavík,
Sem var stofnuð 21. október árið 1940, var hafin vorið 1952
og cr nú svo langt komin, að áformað er, að hin nýja kirkja,
Neskirkja, verði vígð á pálmasunnudag 14. apríl næstkom-
mé'. Hefir sóknarnefnd Nessóknar beðið blaðið fyrir eftir-
farar.di orðsendingu:
Kt söfnuður, sem hefir starfað
kirkjulaus um 16 ára bil, en þó
baldiö' uppi þróttmiklu safnaðar-
<starfi undir forustu hins vinsœla
og ötula sóknarprests síra Jóns
Th.trarensen, mun þá fagna þeim
niil'.la árangri, sem náðst hefir
með ágætu samstarfi safnaðarins
og 'l.i. jarfélagsins. Með hinni nýju
og glæsilegu kirkju gefst tækifæri
ti! að efla safnaðarstarfið til
keiilo. og blessunar fyrir alla, sem
Wut eiga að máli.
Ölluin þeim, sem styrkt hafa
-söfnuðinn til þess að koma kirkj-
tmni upp, bæði þeim, sem unnið
hafa að fjársöfnun og lagt henni
4ái fé og gjafir, færum við kærar
þakicir.
Þó að hin nýja kirkja verði vígð
og tc-ldn í notkun á næstunni,
<ei byggingarsögu hennar hvergi
mærri lokið. Margt er enn ógert.
Nokkur hluti byggingarinnar er
«e»m ófullgerður, og enn vantar
flesta nauðsynlega kirkjugripi.
Eiiiqubúnað vantar.
Til þess að lúka kirkjubygging-
unni rneð nauðsynlegum búnaði
skortir söfnuðinn mikið fé. Þess
vegna hefir sóknarnefndin ákveðið
að reyna nú, um það leyti sem
kirkjan verður vígð og tekin í notk
un, að afla nokkurs fjár til kirkj-
unnar með því að efna til happ-
diættis til ágóða fyrir hana, og
hefir nefndin fengið leyfi stjórn-
anáðsins til þess.
Bæjarbúum verður nú næstu
daga gefinn kostur á að kaupa
Biiða í happdrætti kirkjunnar, og
er það von okkar, að þeir, sem
tojóða þá til sölu, fái góðar mót-
tökur. Vinningarnir verða 18 tals-
ins, yfirleitt mjög góðir vinning-
ar og margir þeirra mjög verð-
mætir. Þeirra á meðal eru ágæt
listaverk, t. d. glæsilegt málverk
frá Þingvöllum eftir stórmeistar-
•ann Kjarval, úrvals bækur, ferða-
lag til útlanda og heimilistæki.
Vinningarnir eru valdir með til-
liti til þess, að kaupendur miðanna
fái tækifæri til þess að eignast
góða gripi til gagns og heimilis-
pjýði, fróðleiks og skemmtunar
jafnframt því, að þeir styðja gott
Biálefni.
Verð miðanna verður aðeins 10
fcrótiur, og dráttur fer fram 2. maí
■æstkomandi.
Sólmarnefndin væntir þess, að
happdrætti þetta fái góðar móttök-
ur bæjarbúa almennt og að sem
flestir kaupi miðana, þegar þeir
verða boðnir til sölu.
Verðmæti vinninganna er íalið
um kr. 34.000,00, en þeir eru:
1. Máiverk frá Þingvöllum eftir
Jóhannes S. Kjarval.
2. Vídalínspostilla.
3. Málverk eftir Þorvald Skúla-
son.
4. Ritverk Halldórs K. Laxness,
10 bindi.
5. Þvottavél.
6. Ritverk Gunnars Gunnarsson-
ar, 15 bindi.
7. Málverk eftir Gunnlaug Schev-
ing, vatnsl.
8. Far með Gullfossi til Kaupm,-
hafnar og heim aftur.
9. Jónas Hallgrímsson, 2 bindi.
10. Málverk eftir Eggert Guð-
muncjsson.
11. Heimskringla Snorra Sturlu-
sonar.
12. Eftirprentun af málverki eft-
ir G. Scheving.
13. íslands þúsund ár, 3 bindi.
14. Málverk eftir Katharina
Wallner, vatnsl.
15. Landnámabók íslands.
16. Standlampi.
17. Jón Hreggviðsson eftir H. K.
Laxness, 3 bindi.
18. Brennu-Njálssaga.
Góð aðsókn að sýn-
ingu Eggerts
Sex hundruð manns sáu mál-
verkasýningu Eggerts Guðmunds-
sonar í Bogasal Þjóðminjasafnsins
fyrstu tvo dagana, sem hún var op-
in. Fjórar myndir hafa selzt fyrir
utan teikningar. Sýningin er opin
daglega frá kl. 2—10.
Stórt skref í áitina
að sameinaðri Evrópu
Samningurinn um sameiginlegan markað V-
Evrópu var undirritatSur af fulltrúum 6 þióSa
í Rómaborg í gær
Rómaborg—NTB, 25. marz: — Fulltrúar 6 V-Evrópuríkja, V-
Þýzkalands, Frakklands, Ítalíu, Hollands, Belgíu og Lúxemborg-
ar, undirrituðu í dag samning um að koma á fót sameiginlegum
markaði ríkjanna og nánu samstarfi á sviði kjarnorkumála. Samn-
iiigur þessi öðlast ekki gildi fyrr en þjóðþing ríkjanna sex hafa
fufigiU hann. Meðal þeirra sem undirrituðu samninginn í Róma-
borg í dag, voru Paul Henri Spaak, utanríkisráðherra Belgíu og
væntanlegur aðalframkvæmdastjóri NATO, og Adenauer forsætis-
| ráðherra V-Þýzkalands, sem báðir hafa beitt sér mjög fyrir fram-
1 gangi þessa máls.
] Samningur þessi miðar að því að gera þessi 6 þjóðlönd að
viðskiptalegri heild, þar sem allir innbyrðis tollmúrar verði m. a.
lagðir niður og heildarvinmunarkaði komið á. Ríkisstjórnir land-
aiina eru sammáia um að vinna að framgangi málsins hið fyrsta.
Er samningur þessi talinn liinn jnikilvægasti fyrir hinar
frjálsu þjóðir Evrópu og er undirritun Iians tvíniælalaust lang-
stærsta skrefið, sem til þessa hefir verið stigið í áttina að sam-
einaðri Eyrópu.
Skákmóti Hafnar-
fjarðar lokið
Hafnarfirði í gær. — Skákmóti
Hafnarfjarðar lauk um helgina. í
meistaraflokki voru 5 þátttakend-
ur og voru tefldar tvær umferðir.
Skákmeistari Hafnarfjarðar varð
Stígur Herlufsen með 6 vinninga.
Jón Kristjánsson hafði fjóra og
hálían vinning. Reykvíkingarnir
Eggert Gilfer og Björn Jóhannes-
son tefldu sem gestir á mótinu og
varð Gilfer efstur með átta og hálf
an vinning en Björn hafði 5 vinn-
inga. í öðrum fiokki voru 13 þátt-
takendur og urðu efstir Hilmar
Ágústsson og Ólafur Magnússon
með 10 vinninga hvor. Ráðgert cr
að efna til hraðskákmóts í Hafn-
arfirði á næstunni. — GÞ.
PúSurskoíin ætiuí á
ílækingshuncla
(Framhald af 1. síðu).
þegar næstá dag hinn 12. marz.
Haukur Bjarnason bar þá fyrir
dóminum, að Hinrik Ólafsson hefði
komið að máli við sig, eigi alls
fyrir löngu, og spurzt fyrir um
það, hvort sér væri eigi heimilt
að flæma burtu flækingshunda,
sem mikið ónæði væri af í Smá
löndum, með því að skjóta af fjár
byssu sinni upp í loftið.
Haukur kveðst hafa varað Hinrik
sérstaklega við því að skjóta kúl
um úr fjárbyssunni upp í loftið,
en bent honum á að afla sér heldur
púðurskota. (Startbyssuskota.)
Skot þessi eru seld í verzlunum
án þess að sérstakt leyfi þurfi til
kaupa á þeim. Svo vildi til, að
Haukur átti þrjú slík skot og gaf
hann Hinrik þau. Staðhæfir Hauk
ur, að Hinrik hafi ekkert á það
minnzt, að skotin væru ætluð til að
bægja manni eða mönnum frá
húsinu.
Hvimleiður ágangur.
Hinril«» Ólafsson kvaðst hafa
sagt lögreglunni, að Haukur
Bjarnason hefði veitt sér heimild
til að beita skotunum gegn Benja
mín. Hins vegar viðurkenndi hann
að Haukur hefði aldrei gefið sér
slíkt leyfi. Hann hefði fengið skot
in hjá Hauki eingöngu á þeirri
forsendu, að þau yrðu notuð til
þess að flæma búrtu flækings
hunda, en Haúkur hefði áður ver
ið búinn að benda honum á þá
hættu, sem- það gæti haft í för
með sér, að skjóta kúlunum úr
byssunni út í loftið. Hinsvegar
hélt Hinrik því fram að þrálátur
ágangur Benjamíns þar í húsinu
hefði verið orðinn svo hvimleiður
að hann hefði talið sér heimilt að
beita púðurskotum til að fæla
hann frá.
Konan biður um hjálp.
Ástæðan til afskipta Hinriks
af Benjamín í umrætt sinn var
sú, að Sigurlína Gísladóttir hafði
kvatt hann sér til hjálpar, eftir
að Benjamín hafði ruðzt inn í
íbúðina. Staðfestir hún einnig frá
sögn Hinriks um, að mikill ófrið
ur hafi stafað af næturheimsðkn
um Benjamíns, sem hafi að undan
förnu þráfaldlega sótt að henni
með ofstopa og jafnvel lagt á hana
hendur, enda að jafnaði verið
drukkinn í heimsóknum þessum.
Af því sem nú hefur verið rakið
er ljóst, að í umræddri grein Mánu
dagsblaðsins er lýst sem staðreind
um því kæruatriði, sem við rann
sókn málsins hefur reynzt stað
lausir stafir.“
Eisenhower skýrir leií-
togum flokkanna frá
Bermuda-ráístefnunni
Washington—25. marz: Eisenhow
er boðaði í dag leiðtoga flokkanna
í báðum þingdeildum á sinn fund
með klukkustundarfyrirvara til að
skýra þeim frá viðræðum sínum
við Macmillan á Bermuda. Nixon
varaforseti og Dulles utanríkisráð
herra munu einnig verða viðstadd
ir.
Flugvél til notkunar
(Framhald af 1. síðu).
Jafnhliða skipunum hefir þó
iðulega verið gripið til annarra
tækja eða aðferða ef talið var að
þau kæmu gæzlunni að gagni eða
gætu orðið varðskipunum til stuðn
ings, eins og t. d. eftirlits eða upp-
lýsinga frá landi, — en þó sérstak
lega notkun flugvéla, — einkum
nú síðari árin.
Árið 1947 varð raunverulegur
árangur af fluggæzlunni, en það
ár var flugvél send út vegna
gruns um fiskveiðibrot, og kærði
eftir þá ferð 9 íslenzk fiskiskip
fyrir ólöglegar veiðar. Næstu ár
var svo flogið áfram öðru hverju
þegar þurfa þótti og gaf það
góðan árangur. Þau skip, sem
voru kærð, voru þó allt innlendir
bátar.
Skipulögð gæzla með flugvélum
hefst þó ekki fyrr en eftir að fisk
veiðitakmörkunum hafði verið
breytt árið 1952 enda komu þá
líka fram ýms ný viðhorf og vanda
mál, sem taka varð til sérstakrar
úrlausnar, — og síðan hefir þessi
þáttur í starfsemi gæzlunnar verið
aukinn og endurbættur jafnt og
þétt.
Frá byrjun og allt fram til síð-
ustu áramóta voru eingöngu not-
aðar venjulegar farþegavélar af
ýmsum gerðum til þessa starfs
enda var ekki á öðru völ. Reynsl-
an sýndi þá að þessar vélar voru
ekki sem allra heppilegastar, en
ekki þótti ráðlegt að fara út í kaup
á sérstakri vél strax á meðan næg
reynsla fyrir notkun þeirra var
ekki fyrir hendi.
Á síðastliðnu ári var þó notkun
flugvéla við gæzlustörf orðin svo
mikil og árangurinn af störfum
þeirra það góður að Landhelgis-
gæzlan fór að leita fyrir sér um
kaup á sérhæfðri vél.
Vildi þá svo heppilega til að
gæzlunni bauðst til kaups flugbát-
ur, sem Flugmálastjórnin hafði
nokkru áður bjargað og síðan
keypt af bandarísku herstjórninni
hér, ■— og tók Landhelgisgæzlan
við þessum flugbát í desember síð-
astliðnum. Hefir hann síðan verið
í stöðugri notkun og reynzt mjög
vel, enda hefir árangurinn af
starfi hans þegar orðið vonum
framar.
Jafnframt hefir jafnt og þétt
verið unnið að lagfæringum og
endurbótum á bátnum, enda þótt
mjög æskilegt tæki vanti enn, er
þó svo komið nú, að telja má hann
„sýningarhæfan" almenningi.
Sjálfur báturinn er af svonefndri
Catalina-gerð (PBY-6A) og getur
lent jafnt á sjó og landi. Er þetta
sama tegund en nýrri gerð af hin-
um þekktu Catalinaflugbátum,
sem m. a. hafa verið í notkun hér
í innanlandsflugi um margra ára
skeið og reynzt mjög vel.
Var báturinn upprunalega ætl-
aður og útbúinn til könnunarflug-
ferða og þess vegna mjög heppi-
legur til almenns gæzluflugs. Hefir
hann tvo hreyfla og getur vel flog-
ið á öðrum. Venjulegur hraði er
110 sjómílur á klst. Eldsneytis-
forði til allt að 17 klst. flugs. Á-
höfn er 6 menn, þ. e. a. s. flug-
stjóri og aðstoðarflugstjóri, tveir
sigíingafræðingar, sem eru skip-
stjóri og stýrimaður frá varðskip-
unum, og vélstjóri og loftskeyta-
maður.
Hvað viðvíkur fyrirkomulagi og
útbúnaði flugbátsins, þá er hann
llllllllllllllUlllllllltlllllllll|||||||||||||||||||l||||||||t|f||||_
1 í miklu úrvali. Margir litir. \
| Tvíhneppt og einhneppt.
| Jakkaföt á drengi 7—14 ára. |
i Matrósaföt og matrósakjólar §
i Drengjabuxur og peysur
| Sldðabuxur kvenna, telpna i
§ Dúnhelt og fiðurhelt léreft I
i Æðardúnssængur
Senduin í póstkröfu
| Vesturgötu 12 — Sími 3570. |
iiiiiimMiiiiimuiuiiiiiiuiiuiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiipi1
yið landhelgisgæzíu
í stuttu máli þannig, að fremst er
rúm með góðu útsýni og er þar
sæti fyrir skipstjórann. Hefir hann
|þar mjög góðar aðstæður til allra
I athugana, svo sem sextantmælinga,
kompásmiðana og myndatöku.
iNæst kemur svo rúm með sætum
Ifyrir flugstjóra og aðstoðarflug-
stjóra eins og venjulegt er í flug-
vélum, þarnæst stór korta- og loft-
skeytaklefi, þar sem stýrimaður og
, loftskeytamaður hafa aðsetur sitt
j við tæki sín. Vélstjórinn hefir hins
jvegar sinn samastað nokkru aftar
, og ofar, uppi undir vængjunum.
í afturhluta vélarinnar er að-
I staða til eldamennsku, 4 farþega-
sæti með borði, legubekkur, og
loks rúm þar sem vopnum vélar-
innar, gúmíbát og öðrum nauð-
synlegum útbúnaði er komið fyrir.
Um framtíð fluglistarinnar í
þágu landhelgisgæzlunnar er ef-
laust heppilegast að spá sem
minnstu. Sem stendur er notkun
flugvéla til þessara starfa hér raun
verulega á byrjunarstigi, en ný
tæki, nýjar aðferðir og þar með
nýir möguleikar koma fram á sjón-
arsviðið svo til daglega. Reynslan
ein sker úr um margt sem nú er
verið að reyna, en eitt er þó þeg-
ar komið í ljós, og það er, að án
þess að nota flugvélar við land-
helgisgæzluna, stæðum við nú
mjög höllum fæti við verndun
hinna friðuðu nvæða.
Hingað til hefir flugbáturinn
ekki borið neitt nafn heldur aðeins
einkennisbókstafi sína, TF-FSD.
En þar sem þeir voru raunveru-
lega eign Flugmál'astjórnarinnar,
þá fékk Landhelgisgæzlan skrá-
setta nýia einkennisstafi, KF-RAN,
og hefir um leið fengið leyfi hæst-
virts dómsmálaráðherra til þess að
fluebáturinn megi bera heitið
RÁN.
Er óskandi að hann eigi eftir
að gegna langri og dyggri þjón-
ustu í þágu lands og þjóðar undir
því nafni.
1953 flognar 5.500 sjómílur, 3
togarar dæmdir. 1954 flognar
12.767 sjómílur, 3 togarar dæmdir.
1955 flognar 19.815 sjómílur, 1
togari dæmdur. 1956 flögnar 26.095
sjómílur, 1 togari dæmdur. 1957
til 25.3. flognar 11.610 sjómflur.
Enginn togari dæmdur.
Danskt flutningaskip
siglir um Akaba-flóa
Óþekkt skip krafðist upp*
lýsinga
NTB—25. marz: Danska flutninga
skipið Birgitte Toft, kom til ísra
elsku hafnarinnar Eliatinst í Ak
aba-flóa. Nokkuð einkennilegur at
burður kom fyrir skipið er það
var að sigla um flóann. Skipstjór
inn skýrir svo frá, að óþekkt skip
hafi siglt í námunda við flutninga
skipið og krafizt þess með merkj
um, að upplýsingar verði gefnar
um ákvörðunarstað og þjóðerni
skipsins. Því var eigi sinnt og hélt
þá skipið leiðar sinnar. Hafnar
borg þessi hefir verið lokuð und
anfarin 8 ár vegna siglingabanns
Egypta, sem upphafið var með
valdi í haust er ísraelsmenn
sendu her inn í Egyptaland og
brutu niður öll hernaðarmann
virki á leið þeirra. Gæzlulið S. þ.
heldur nú vörð við flóann, en
Egyptar hafa krafizt fullra um
ráða yfir þessu svæði.
St. Laurent og Lester
Pearson komnir til
Bermuda
Hamilton—Bermuda 25. marz:
Þeir St. Laurent forsætisráð-
herra Kanda og Lester Pearson
utanríkisráðherra komu í dag til
Bermuda þar sem þeir munu ræða
við Macmillan og Selwyn Llöyd.
Ráðstefnan hefst á því, að Mac
millan mun gefa hinum kanadísku
ráðherrum nákvæma skýrslu um
viðræðurnar við Eisenhower
Bandaríkjaforseta. Ráðherrarnir
munu ræða sameiginleg,.hagsmuna
mál Breta og Kandamanna, m.
a. verzlunarviðskipti laudanna.