Tíminn - 26.03.1957, Blaðsíða 3

Tíminn - 26.03.1957, Blaðsíða 3
XÍMINN, þriðjudaginn 26. marz 1957. 3 Sá atburSur, sem ég hefi hugsaS mér að minnast á* snertir ySur öll, — kemur lyður öllum við, hvort sem þér kunnið að sitja inni á veit I ingahúsi eða iiggið á sjúkra- húsi. Hvort sem þér eruð úti i á sjónum eða þér eruð að! ferðast með bíl á vegum úti. Það snertir þig, sem situr heima hjá þér í hlýrri stof- unni og einnig þig, sem kannt að hýrast einhvers stað ar einn og yfirgefinn. — Það snertir þig, glaður og ærsla- fullur æskulýður, og þig, sem kembir þínar hvítu hærur og lifir í minningum gamals tíma. Þessi alburður kemur yður öll um við, því að fyrir yður öll dó frelsarinn á Golgata. — Beinið at hygli yðar stundarkorn að kross festingu Krists, og heyrið, hvað hann hefir að segja yður á deyj ana degi. j Ég ias fyrir yður bin sjö orð Jesú á krossinum. Fylgstu með þessum orðum. Hvað segja þau þér um hann, sem á krossinum dó? Hin fyrstu þrjú sýna kær- leika hans til mannanna. Hann biður fyrir óvinum sínum. „Fað ir, fyrigef þeim, því þeir vita ekki, hvað þeir gjöra“. Hann fyrirgefur þeim, æðstu prest- unum, Pílatusi, faríseunum, — lygurunum, spotturunum. Hann fyrirgefur ræningjanum, sem líður við hlið hans og getur þó fengið sig til að spotta hann. Hann biður fyrir þeim öllum, þessum steinblindu mönnum, er snúast gegn kærleika guðs með fjandskap og hatri. Nú langar mig til að spyrja í fullri alvöru: Finnurðu enga á- stæðu til að setja þessa bæn í samband við sjálfan þig? Eða mundirðu treysta þér til að segja við þann sem á krossinum hangir, að þú hafir aldrei snúist gegn honum í neinu? Einu sinni varst þú skírður til hans nafns, en hef- irðu aldrei á ævi þinni aukið á sorg hans, eða þjáningu? Hefirðu ekki stundum verið tregur til að hlýða kenningu hans og boði? Veiztu þig saklausan af að hafa einhverntíma á ævi þinni jafnvel lastmælt því, sem hann gaf heiminum? Hefirðu aldrei snú ist gegn kristindómnum, tafið fyr ir boðun hans, gert gys að hinu hreina og heilaga? Hefirðu aldrei aukið á vanlíðan þeirra, sem þjáð ust? Mundu, að allir, sem bágt eiga, eru hans minstu bræður, og það, sem þú gerir þeim, gerir þú einnig honum. Reyndu að vera full komlega raunhæfur og líta sjálf an þig vægðarlaust í réttu ljósi. Athugaðu framkomu þína við mennina, t. d. þá, sem þér eru næstir, og þú hefir mest samneyti við. Ef þú hefir grætt einhvern að ástæðulausu, geturðu þá hugsað þér tár hans á vöngum Krists? — Hefirðu ekki einhverntíma snúist með háði og lastmælum gegn vinum, sem vildu þér vel, og jafnvel þjáðust þín vegna? Þá varst þú í hópnum, sem hróp aði að Jesú við fætur krossins. — Og hefir það aldrei komið fyr ir þig, þegar þér sjálíum leið illa að beiskja þín og reiði bitnaði á þeim, sem stóðu með þér í þjáningunni? Þá varstu líkur ræn ingjanum, sem svalaði sér í þján ingunni með því að særa frelsar ann með orðum. Eigum vér ekki að vera fullkom- lega einlæg og kannast við það, að vér þurfum einnig á bæninni að halda, sem hann bað, — vér, sem ýmist höfum sært mennina eða snúist gegn sannleikanum og kær- leikanum, — jafnvel sært sjálfan Drottinn. Hvílík huggun og hug- hreysting, að drottinn sjálfur elsk- ar oss, þrátt fyrir það, hvernig vér höfum talað og breytt. ANNAÐ orðið segir hann við ræn ingjann, sem iðrast. „Sannlega segi ég þér. f dag skaltu vera með mér í paradís". Hugsarðu nokkurn tíma um það, að einhvern tíma átt þú að deyja? Þó að oss finnist eins og séra Hallgrími, að marg- breyttar leiðir liggi út úr heimin- Föstiiprédikun eftir séra Jakob Jónsson: Hin sjö orð Jesú á krossinum um, þá er þó einnig víst, að „allr- ar veraldar vegur vvkur að sama punkt“. Sá, sem glaðast syngur í kvöld, verður einhvern tíma þann- ig staddur, að honum verða tileink uð grafarljóðin. Aflið og yndis- þokkinn hverfur eins og loginn, sem slokknar. Þá verður þér mesta sælan að heyra röddina hans tala til þín, sem sagði: ,,í dag skaltu vera með mér í paradís“. Mundi hún segja það við þig í kvöld, ef stundin þín væri komin? Engi.nn- vafi er á því, að hann sjálfur mundi ekkert fremur vilja en að j bjóða þér inn til sinnar gleði. En! kærir þú þig um slíkt heimboð | sjálfur eða sjálf? Þú átt marga! vini og kunningja, sem biðja þigj að vera með sér. En hvert viliaj þeir fara með þig? og hvert ósk-1 arðu helzt, að þeir fari með þcr? I Þjónar Drottins flytja þér frá; vöggu til grafar heimboðið hans'1 — inn í paradís, inn í guðsríki trú- arinnar, inn í sálufélag beirra, sem elska hann. Ertu þakklátur fyrir það heimboð? Paradís hans er ekki aðeins á himni ,heldur og á jörð- inni. En inn í hana fer enginn nauðugur, heldur aðeins sá, sem iðrast synda sinna, sér eftir því, sem hann hefir gert rangt og þrá- ir að bæta ráð sitt. Það liggur í hlutarins eðli. Ég á hér ekki við það, að þú sért syndlaus eða full- kominn. Það var ræninginn á krossinum áreiðanlega ekki. Það, sem hér er átt við, er aðeins það, að vilji þinn til að fylgja Kristi, sé einlægur, og að þú raunveru- lega setjir traust þitt á hann, en ekki sjálfan þig. Einu sinni átti ég tal við mann, sem vissi vel um syndsamlegar tilhneigingar sínar, og hann sagði við mig það, sem ég gleymi seint. Hann sagði: Ég finn, að ég get engan dag án Krists verið, af því að ég er breyzkur maður, — en ég finn, að hann er með mér og hjálpar mér“. — Ef þú finnur, að þú ert ekki sjálfum þér nógur, — og það er enginn — þá farðu að eins og þessi maður. Hann bað til Krists, eins og ræn- inginn á krossinum. Og orð Krists á krossinum er ekki aðeins talað til fólks suður í Jerúsalem, heldur einnig til vor hér úti á íslandi. Kirkja bans hefir séð um, að heim boðið hefir einnig náð til vor í niu aldir. sinn fyrir gamla móður, þannig biður hann oss öll fyrir þá, sem eru hjálpar þurfi í þessum heimi. Þú ert lærisveinninn, sem hann vill að sé sonur eða dóttir, bróðir eða systir hinna sjúku og fátæku, hinna einmana og áhyggjufullu. Gættu í kringum þig, og sjáðu, hvort ekki er einhver í grennd við þig, sem Jesús á krossinum vill biðja þig sjálfan að liðsinna. — Þeir kunna að vera nær þér en þú heldur, því að ekki bera allir raunir sínar utan á sér. „Getur undir glaðri kinn, grátið stundum hjarta“. Það er gott og blessað að hafa alla vora sjóði og líknarstofn anir, tryggingar og félög, embætt- ismenn og nefndir, — en vafalaust veizt þú einhvers staðar um mann- lega neyð, sem ekkert af þessu nær til, — og enginn hefir ástæðu til að létta af, nema þú einn. Gleymdu því ekki, að það ert þú, sem Jesús viil senda til þessa með búa þig undir dauðastríð þitt, þeg- ar þar að kemur, ef þér gefst ráð og ræna til slíks. — Togarasjó- menn, sem horfast í augu við dauð- ann, af strönduðu skipi, hafa hvað eftir annað látið bænarsálmana sína etja kappi við rokið og sjó- ana, og kvatt heiminn í friði trú- arinnar. En það þarf ekki deyj- andi menn til. Þú, sem lifir, átt þinar raumr og erfiðleika. baráttu og stríð. Farðu þá leiðina, sem deyjandi frelsarinn vísar, lærðu sálma og bænir, — vendu þig á það, meðan þú ert heill heilsu, ungur og glaður, að ganga til kirkju þinnar, til að læra að biðja með öðrum, — og gakk þú einnig inn í svefnhús þitt, eins og frels- arinn eitt sinn ráðlagð, og þegar þú hefir lokað dyrunum og ert einn með sjalfum þér og guði, — þá talaðu við hann, eins og barnið talar við góðan föður. Og sértu fjarri heimili þínu, þá minnstu ÞRIÐJA orðið á krossinum er tal að til móður frelsarans og til þess lærisveins, er hann treysti bezt til að taka hana að sér. — „Kona, sjá, þar er sonur þinn“. „Sjá, þar er móðir þín.“— Og lærisveinn- inn gekk Maríu í sonar stað. Frels arinn bar umhyggju fyrir móður sinni. Þú átt einnig móður, annað hvort þessa heims eða annars. Hvernig hugsarðu til hennar, ef hún er dáin? Hvernig kemurðu fram við hana, ef hún er á lífi? Hún var kannske ekkert fullkomn- ari eða meiri en aðrar konur, en hún var fyrsta mannlega veran, sem elskaði þig, þjáðist þín vegna, og hversu mikill maður, sem þú nú þykist vera í eigin augum eða heimsins, ert þú í hennar augum fyrst og fremst barnið, sem hún elskar, — barnið, sem hún gerði sér svo miklar og göfugar vonir um. Fyrst og framst hefir hún samt sem áður þráð og vonað, að þú yrðir góður maður, sem lifðir öðrum til blessunar. Hvað gerir þú svo sjálfur til að vonir hennar rætist? Hefirðu brugðist vonum hennar, eða hefirðu gert þér far um, að verða henni til gleði? — Jesús var góður sonur. Því var snemma spáð, að sverð mundi nísta sáí móður hans, en það var ekki hann, heldur aðrir, sem særðu hjarta hennar. Gættu þess, að særa ekki hjarta þinnar móður, hver sem þú ert. En orðin, sem Jesús talaði, af umhyggju fyrir móður sinni, fólu um leið í sér umhyggju fyrir öllum, sem standa í svipuð- um sporum og hún, eru gamlir og sorgbitnir, umkomulitlir fyrir heiminum, þreyttir eftir erfiði æv- innar, lasnir, sjúkir, mæddir og þjáðir. — Eins og hann bað vin bróður þíns. Til þín er orð hans á krossinum einnig talað. Fjórða og fimmta orðið á kross- inum beinir athygli þinni að dauða stríði Jesú sjálfs. í sinni eisin neyð leitar hann í tvær áttir eftir miskunn. Til síns himneska föður. — og til mannanna. Sterk einmana tilfinning hefir gagntekið hann. Jesús gat fundið til á sálunni, engu síður en líkamanum. Og hanti viðhefir í dauðastríðinu hina sömu aðferð og margir lærisveinar hans hafa síðan haft, að leita sér hugg- unar í gömlum sálmi. Einu sinni var ég sóttur til deyjandi konu um nótt. Hún hafði fulla rænu og skirt mál, og. átti bó aðeins fáar stundir ólifaðar. Hún baðst fvrir með orðum Passíusálmanna. Við byrjuðum á versinu „Vertu guð faðir, faðir minn“, og síðan fór hún með það, sem eftir var af 44. sálminum. — Menn heyrðu Jesú mæla fram fyrstu hendinguna í 22. Davíðs sálmi: „Guð minn, guð minn, hví hefir þú yfirgefið mig! En ef þú lest þennan sálm allan — reyndu að muna ,að það er tutt- ugasti og annar Davíðssálmur — ef þú lest hann. þá sérðu, hve vel sálmurinn á við það, sem Jesús er að ganga í gegnum. Sálmurinn er trúarljóð manns, sem auðsjáanlega líður mikið, en hann leitar til guðs og finnur traust og hjálp hjá honum. Þannig leitar Jesús til síns himneska föður í þjáningum sín- um, og finnur hjá honum hina ó- endanlegu föðurelsku, kærleika, sem aldrei að eilífu bregzt. — Einn ig þetta orð Jesú vísar þér veginn, þegar þú átt erfitt. Þannig skaltu þess, að Jesús baðst fyrir inni á fjöllum og úti á vatninu, og inn miíli trjánna í Getsemane. Og þú munt komast að raun um, að guð hefir aldrei yfirgefið þig. Þú ert stundum feiminn við að leita til mannanna með það, sem hvílir á huga þínum, en þú þarft aldrei að vera feiminn við guð. Fyrir honum er líka óþarfi að reyna að dyljast, því að hann þekkir þig. ÉG sagði, að Jesús hefði einnig leitað til mannanna eftir miskunn. „Mig þyrstir“, sagði hann, — og hvað gerðu mennirnir fyrir hann? Þeir gáfu honum edik að væta varir sínar á. — Það var öll þeirra miskunn á þeirri stundu. Sýrublandinn drykkur, sem róm- verskir hermenn höfðu til að væta kverkar sínar í sólskininu. Einhver örlítill vottur um linkind, þrátt fyr ir allt. Ég veit ekki, hvernig þetta hefir litið út í guðs augum. Ef til vill hefir gleðibjarmi farið gegn um himinninn, við það að frelsar inn fann eitt andartak eitthvað svalandi koma við varir sínar. Og þó er eins og þetta atvik hljóti að vekja hjá oss skelfingu, þegar vér hugsum um það í ljósi þess, sem er að gerast. Er þetta ekki eitt þeirra fjöldamörgu smá-atvika sem lýsa vondri samvizku mann anna, þegar þeir eru grimmastir og miskunnarlausastir? Er ekki ó- þægilega mikið af góðverkum og góðgerðarsemi mannkynsins með þessum svip? Er þetta ekki hitinn sem réttur er að hinum hungraða þegar rangsleitni mannanna hefir svift hann brauðinu? Er það ekki handahófsgóðgerðasemin við þá, sem þjóðfélögin hafa kúgað? Er það ekki sú rönd af himninum, er fjötruðum fangabúðarmanni er leyft að sjá gegnum grindarglugg ann? Er það ekki vinmælin, sem þú eða ég segjum við þá, sem vér annars höfum sært og kvalið með einhverju móti. Berðu saman það, sem þú getur gert fyrir með bræður þína og það, sem þú raun verulega gerir. Berðu saman það, sem mennirnir hefðu getað gert fyrir Krist og það, sem þair raun verulega gerðu, — og þú munt komast að raun um, að hróp hans eftir svaladrykknum heldur áfram að vera skerandi neyðaróp allra þeirra, sem líða, en menn irnir vanrækja að hjálpa og líkna. Þannig heldur bæn frelsarans til mannanna að bergmála, — hún berst frá prédikunarstólnum og ölturum kirkjunnar um allan heim inn, hvort sem mennirnir vilja hlusta á hana eða ekki. Það er ekki aðeins mennirnir, sem biðja til guðs, heldur biður guð einnig til mannanna, — biður börnin sín um miskun, í stað þess að neyða þau með harðri hendi. Hefir þú nokurn tíma hugsað út í það, að sjálfur Drottinn biðji til þín, — fari að þér bónarveginn — biðji þig um kærleika þinn? Ef þetta er þér ókennileg hugsun, þá taktu eftir fimmta orði Jesú á kross inum. Hvernig ætlarðu að bregð ast við bæn hans? BRÁTT er sagan á enda. — Tvö siðustu orðin á krossinum, — síð ustu hugsanirnar, sem vér vitúm að Jesú hafi hugsað hér í jarð nesku lífi, felast í þessum orðum. Þótt sýrudrykkur hermanna væri lítilfjörleg miskunn, er það þó sennilega þeirri miskunnsemi að þakka, að varir Jesú gátu borið fram síðustu orðin: „Það er full komnað — og — „Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn.'“ Nú var allt fullkonmað, — ferðin farin á leiðarenda. Menn irnir höfðu lokið sínu verki og Jesús hafði lokið sínu. Nú var fullkomnuð sú fórnfæring, sem raunverulega hófst, þegar lítið barn fæddist á hinni fyrstu jóla nótt. Þá steig hinn guðlegi andi lausnarans niður í myrkur synd ugrar jarðar, til þess að líða og elska. Á einum stuttum manns aldri hafði hann dreift út meðal mannanna blessun sinni, náð og sannleika, hvar sem hann fór. Nú hélt sonurinn aftur heim úr út legðinni, — ekki hinn týndi sonur sem lauslæti, svall og leti hafði knúið til að eta draf með svínum, — heldur sá sonur, sem fer inn í svínastíuna til bróður síns og hvíslar í eyra honum hugsunum um góðan og ástríkan föður, sem vilji fá hann aftur heim. — Jesú felur föðurnum himneska sjálfan sig í dauðanum. Það var sá faðir sem hafði sent hann inn í þenn an þrautanna heim, og nú var viðbúinn að rétta honum báðar hendur við heimkomuna. í þessu viðkvæma andvarpi frelsaráns finn um vér hvílík gleði og fögnuður hefir fyllt sál hans við tilhugsun ina um lausnina, sem senn var í vændum. Þannig hefir margur læri sveinn hans fyrr og síðar fundið tilhlökkunina gagntaka sig, þeg ar dró að leiðarlokum. Margt mæðubarnið á þessari jörð hefir að lokum þráð að losna frá erfið leikum jarðlífsins og fara heim —. hverfa frá hinu jarðneska lifi, —. já, jafnvel að hverfa frá mönn unum, sem oft og tíðum höfðu lagt á það þungar byrðar og sært það djúpum sárum hér í lífi. Þó mun heimvon Jesú tæplega rétt lýst með því að segja, að þetta eitt hafi fyrir honu mvakað. Bæði kenning hans og jarðlíf og þá ekki síður upprisa hans og send ing hins heilaga andá bera þess vott, að hann vildi ekki losna við mennina, — heldur taka þá með sér til guðs. Til þess lifði hann og færði sína miklu fórn að færa guði aftur heim sín' týndu börn. Bæði þig og mig — og mannkynið í öllum löndum heims. Með síð asta orðinu á krossinum gefur hann oss til kynna, í hvers hend ur hann vill leiða mannsandann, svo að maðurinn, hin hugsandi og þó villuráfandi vera, — hið (Framhald » 11. síðu./

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.