Tíminn - 30.03.1957, Side 1
Innl f blaSinu 1 dag:
Fylgizt með tímanum og lesið
TÍIIANN. Áslíriftarsímar 2323 og
81330. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni.
11. árgangnr
Skýrsla framkvæmdast. Lands-
bankans, bls. 3.
Mýrasýsla, bls. 5.
Samyrkjubú í Rússlandi, bls. 7.
Erlent yfirlit, bls. 6.
74. blað.
Áróðersherferðinni
kaldið áfram: Búlgan-
i.i sendir H. C. Han-
sen bréf
KAUPMANNAHÖFN - NTB, 29.
marz. — Sendiherra Sovétríkj-
anna í Kaupmannahöfn hefir af-
lient H.C. Hansen forsætisráð-
herra ilana bréf frá Bulganin for
sætisráðherra Sovétríkjanna. —
Bréf þetta verður ekki birt fyrr
en síðdegis á morgun eða sunnu-
dag, en fréttaritarar telja víst,
að bréfið sé í öilum meginatrið-
um samhljóða bréfi því, sem
Bulganín sendi Gerhardsen for-
sætisráðherra Norðmanna fyrr í
vikunm og kuniiu ít er af frétt-,
um. Utanríkismálanefnd danska
þ ngsins hefir verið kvödd sam-
ao til sérstaks fundar til þess
að kynua sér efni bréfsins.
Nýjar oííuleiðslur í
stað flutninga um
Súez-skurð
NEW YORK, 29. marz. — For-
síjóri bandaríska olíufélagsins
Standard Oil skýrði frá því í dag,
að vinna við nýja olíuleiðslu frá
Persaflóa til hafna í Tyrklandi
myndi sennilega hefjast fyrir
næstu áramót. Atta olíufélög,
bandarísk, brezk, frönsk og hol-
lenzk sameinazt um að leggja
þessa leiðslu og er kostnaður við
hana áæílaður um 800 milljónir
dollara. Um leiðslu þessa verður
unnt að flytja helmingi meira
magn af olíu, en í öllum öðrum
olíuleiðslum við botn Miðjarðar-
liafs samanlögðum.
Franska stjórnin skýrði frá því
í dag, að hún myndi veita ísraels
stjórn fjárhagslegan stuðning til
þess að koma upp olíuleiðslu frá
Persaflóa til Elath-hafnar við
Akaba-flóa. Taldi stjórnin að
fluttningur olíunnar með þessu
móti myndi ódýrari en flutning-
ur á skipum um Súez-skurð.
Manugrúi kom til að
hlýða á doktorsvörn
KAUPMANNAHÖFN í gær. —
Doktorsvörn fór fram við Hafnar
liáskóla í gær, og var doktorsrit-
gerðin um hið kunna danska
skáld, Nils Petersen, sem S vlinn
er nú meðal fremstu skálda Dan
merkur. Svo óvanalega bri við,
að mannf jöldi mikill strey ndi að
til að hlýða á doktorsvörisina, og
varð aðsóknin svo miki', að lög-
reglan varð að koma til skjal-
anna og stjórna um'erð gesta.
Aðalsalurinn fylltist þegar, og
voru þá teknir til vlðbótar tveir
aðrir salir og komið þar fyrir
gjallarhornum til þess að sem
flestir gætu hlý't á.
— Aðils.
Klúbbfimdur Fram-
sóknarmanna á
mánudag
KLÚrB-FUNDUR Framsóknar-
manna verður n. k. mánudags-
kvöld kl. 8,30 síðdegis á venju
legum fundarstað.
Salisbury, helzti áhrifamaður Ihalds-
flokksins, fer úr stjorn Macmillans
Lýst eftir 13 ára
stúlku
J í gærkvöldi lýsti lögreglan í
! Reykjavík eftir stúlku sem ekki
i er vitað hvar er niðurkomin síð-
! an s. 1. þriðjudag. Stúlkan er 13
ára gömul og klæðnaði var svo
lýst að hún var í rauðri kápu og
bláum gallabuxum. Blaðið leitaði
í gærkvöldi frétta um mál þetta
hjá kvenlögreglunni hér í bær en
frekari upplýsingar fengust ekki.
Vildi ekki sleppa Makarios biskupi. Studdi
Macmillan í forsætisráðherrastól
Lundúnum, 29. marz. — Salisbury lávarður forseti leynd-
arráðs Bretadrottningar og einn áhrifamesti maður brezka
íhaldsflokksins hefir sagt af sér ráðherrastörfum í stjórn
Macmillans, en hann var samveldismálaráðherra og hafði
auk þess aðalábyrgð í sambandi við framleiðslu Breta á
kjarnorku- og vetnisvopnum.' í bréfi til Macmillans forsætis-
ráðherra segist markgreifinn af Salisbury fara úr stjórninni
vegna þss? að hann telji ekki rétt að láta Makaríos erkibisk-
up lausan úr haldi eins og allt sé í þottinn búið.
Ljojm.: Bjorn Björnsson. j
Lóan er komin
Lóan er komin, og vorið. Blað
inu hafa borizt áreiðanlegar
fregnir af ferðum hennar, sem
hér segir: Sást fyrst 21. marz á
Hafurbjarnarstöðum á Miðnesi,
3—4 saman. Hinn 23. marz flugu
sex lóur yfír Laugarnes og hinn
24. vav allstór léuhópur í fjör-
unni lijá Sandgerði.
Lóan er snenitna á ferðinni að
þessu sinni. Venja er, að hún
komi um eða unp úr mánaðamót-
um. Vonandi boðar hún gott vor.
Ný frímerki gefin
út á mánudaginn
Mánudaginn 1. apríl 1957 verða
gefin út tvö ný frímerki með sömu
myndum og íþróttamerkin frá
1955, en í öðrum litum og verð-
gildum. Verðgildi merkjanna er
kr. 1,50 og kr. 1,75, sem eru burð-
argjöld undir einföld bréf innan-
bæjar og út á land frá og með I.
apríl. Hið fyrrnefnda er rautt á
litinn og hið síðarnefnda blátt.
Frímerkin eru teiknuð af Ste-
fáni Jónssyni og prentuð hjá firm
anu Thomas de la Rue & Co., Ltd.,
London.
Grænlenzkir þingmesm deila hart á
Grænlandsstj. Dana í danska þingimi
Hann segist að vísu hafa fallizt
á að leyfa biskupnum að hverfa
frá Seyohelleyjum, ef hann hefði
beint skilyrðislausri áskorun til
skæruliða á Kýpur um að gefast
upp. En þetta hafi biskupinn ekki
gert og þess vegna telji hann mis-
ráðið, að binda endi á útlegð hans.
Svar Macmillans.
Macmillan segir í svarbréfi til
Salisbury, að hann harmi brottför
hans úr stjórninni. Hann bendir
hins vegar á, að ákvörðunin um i
að láta Mararíos lausan hafi verið
tekin með samþykki brezka lands
stjórans Sir John Hardings. „Ég
er viss um, segir forsætisráðherr
ann, að þessi, akvörðun stjórnar-
innar mun leiða gott af sér, en
hins vegar getur aðeins framtíðin
skorið úr því með vissu, hvor okk
ar hefir rétt fyrir sér“.
Tók Macmillan fram yfir
Butler.
Kjærböl GræmlandsmálarátSherra reyndi a$
taka orSiS aí grænlenzkum þingmönnum
Kaupmannahöfn í gær. — Kjærböl Grænlandsmálaráð-
herra reyndi í dag að banna hinum grænlenzku þingmönn-
um að taka til máls í Fólksþinginu, en fékk harðar ávítur
fyrir hjá Frederik Lynge, fólksþingmanni.
Það er rifjað upp í þessu sam
bandi, að Salisbury lávarður á-
samt Sir Winston Churchill, átti
mestan þátt í því, að Elísabet
drottning valdi Macmillan, en
ekki Richard Butler í embætti
forsætisráðherra, þegar Eden
sagði af sér. Taldi Salisbury, að
Macmillan myndi reynast harð-
Salisbury lávarður
vítugri, þegar um væri að ræða
hagsmuni brezka heimsveldisins,
en Butler. Vafasamt, hvort hon-
um þykir nú sú von sín hafa
1 rætzt.
Salisbury lávarður var sá ráð-
herra, sem einkum sá um fram-
leiðslu kjarnorku- og vetnisvopna
í Bretlandi. Tilkynnt er, að for-
sætisráðherra muni hér eftir sjálf
ur annast þessi mál.
Sagði Lynge, að hinum græn-
Ienzku þingmönnum félli það illa,
ef svo væri litið á, sem þeir eyddu
of miklu af hinum dýrmæta tíma
þingsins. Við höfum hingað til á-
litið, sagði hann, að við værum
jafnréttháir og jafngóðir þing-
menn og aðrir, en við höfum
stundum ekki kon^izt hjá því að
sú tilfinning sækti að okkur, að
Grænlandsmálaráðuneytið vildi
halda nokkurri leynd yfir stjórn
Grænlands.
Orðaskipti þessi áttu sér stað
eftir að Lynge hafði haldið langa
ræðu um Grænlandsmál þar sem
hann gagnrýndi harðlega margt í
stjórn Grænlands, meðal annars
það, að beitt væri ótilhlýðilegri
þvingun til þess að fá Grænlend-
inga til þess að flytja úr smáhús-
um sínum í stærri bústaði. — Aðils
Mynd þessi var tekín, er þelr hittust á flugvellinum viS komuna til
Bermuda, Eisenhower forseti og Macmillan forsaetisráSherra Breta. Eis-
enhower kom lítilli stundu fyrr en Macmillan. Milli þeirra sést landstjór-
inn á Bermudaeyium í hvítum einkennisbúningi. Er hann sýnilega ángSur
meS þessa gestakomu og brosir þreitt. Þegar eftir komuna hófst fund-
urinn, sem nú er nýlokiS.
Makarios neitar að semja við Breta
nema þeir leyfi honum að fara heim
Fögnuíur grískumælandi Kýpurbúa takmarkalaus
Mahe, Seychelleyjum, 29. marz. — Makarios erkibiskup
sem nú er orðinn frjáls maður, sagði á fundi með blaðamönn
um í dag ,að hann myndi alls ekki ljá máls á samningavið-
ræðum við Breta um framtíð eyjarinnar fyrr en brezka
stjórnin levfði honum að hverfa aftur heim til Kýpur. Bisk-
upinn kvaðst fyrst mundi fara til Aþenu og síðar halda til
Lundúna.
Lennox Boyd nýlendumálaráð-
herra sagði í gær, að biskupnum
myndi ekki leyft að svo stöddu
að hverfa heim, en hins vegar
teldi brezka stjórnin eðlilegt, að
hann yrði einn helzti fulltrúi eyj-
arskeggja, ef teknir yrðu upp
beinar samningaviðræður um fram
tíð eyjarinnar.
Makaríos vongóður.
Biskupinn kvaðst samt ekki
myndi ljá máls á viðræðum við
Breta að svo stöddu. Hins vegar
sagðist hann vera viss um að
ekki liði á löngu, unz hann gæti
horfið heim til Kýpur og tekið
við embætti sínu. Hann er eins
og kunnugt er foringi grískumæl-
andi eyjarskeggja, þeirra sem
krefjast sameiningar við Grikk-
land. Hann sagði á blaðamanna-
fundinum, að eðlilegasta lausnin
á deilunni væri sú, að leyfa eyjar
skeggjum sjálfum að ákveða fram
tíð sína við almenna atkvæða-
greiðslu. Úrslit hennar eru hins
vegar fyrirfram vís, þar sem fjórir
fimmtu hlutar eyjarskeggja em
grískumælandi og flestir fylgjandi
sameiningu.
Mikill fögnuður á Kýpur.
Óstjórnlegur fögnuður greip
(Framhald á 2. síðu).
Stutt á mið Þorláks-
hafnarbáta
Þorlákshöfn i gær. — S. 1. sunnu
I dag og mánudag var ágætur afli
i hjá netabátunum hér, og fengu
þeir hæstu þá yfir 20 lestir. í gær
og fyrradag var aftur á móti held-
ur lítið og í dag er alger landlega.
Mjög stutt er á miðin, eða varla
méira en 20 mínútna ferð. ÞJ