Tíminn - 03.04.1957, Page 2
2
T í MI N N, miðvikudaginn 3, aprfl 1951
Fjölmennur kvennafundur krefsl jafn
réttis í launakjörum hins opinbera
Starfsmannafélag ríkisstofnana hélt sérstakan fund um
launamál kvenna 1. apríl s. 1. Nefnd kvenna innan félagsins
hafði undirbúið fundinn. Nefnd þessi hafði safnað skýrslum
um launakjör karla og kvenna í félaginu á 30 mismunandi
ríkisstofnunum.
.Skýrslur þessar leiddu í ljós,
að i.þrem lægstu launflokknunum
voru 55% af konum, en enginn ein
asti kartmaður. í efstu flokkunum
3(.—5.) var hins vegar ein af
hundraði af konum, en þar reynd-
ist vera riílega fimmti hver karl
maður. í 10.—12. launaflokki var
bilið minnst, eða 3'2% af konum
á móti 38% af körlum. En í 7.—9.
flokki breikkaði það verulega, eða
var 11% af konum á móti 41 %
af körlum.
Fundurinn var fjölmennur og
voru eftirfarandi tillegur og á-
lyktanir samþykktar einróma:
„Fundur um launamál kvenna
haldina að tilhlutan Starsmanna-
félags ríkisstofnana, 1. apríl 1957,
telur að þrátt fyrir lagaákvæði
um launajafnrétti kvenna og
iifcarla í þjónustu ríkisins, hafi
konur, sem starfa hjá ríkinu yf-
-irleitt mun lakari kjör en karl-
ar.
Fundurinn skorar á ríkis-
stjórnin aað láta svo fljótt, sem
við verður komið, endurmeta
þau störf ,sem metin voru sem
„kvennastörf", þegar þeim var
skipað í launaflokka (1945) og
vill sérstaklega benda á:: hjúkr
unarkonur, talsímakonur, Ijós-
xnæður, vélritara, matráðskonur,
svonefndar aðstoðarstúlkur af
greiðslustúlkur o. fl. Telur fund
urinn æskilegt að mat þetta
verði falið sérstakri nefnd, sem
skipuð væri bæði körlum og
konum.
Fundurinn telur, að þar sem
slík nefndarstörf óhjákvæmilega
hljóti að taka töluverðan tíma,
verði til bráðabirgða að gera
ýmsar lagfæringar á framkvæmd
launalaga, svo sem:
1. að allir ritarar, sem ráðnir
hafa verið, eftir gildistöku launa
laga 1958, í 14. fl., fái sambæri
leg launakjör og fyrirrennarar
þeirra í starfi.
2. að aðstaðarstúlkur á rann
sóknarstofum, sem vinna sjálf-
stætt við rannsóknarstörf, fái
laun sem aðstoðarmenn 1. stigs.
3. að samræma verði iaun mat
ráðskvenna á Landspítalanum,
Kleppi og Vífilsstöðum.
4. að konur, sem gegna gjald-
kera-, bókara-, aðstoðarmanna-
og ritarastörfum jöfnum hönd-
um, séu ekki flokkaöir sem rit-
arar.
5. að aukavinnugreiðslur verði
lagfærðar í tveim lægstu launa-
flokkunum, með tilliti til þess,
að fækkað hefur um einn flokk.
Fundurinn fagnar því, að 18.
þing BSRB skuli hafa valið sér-
staka milliþinganefnd til þess
að vinna að launamálum kvenna.
Skorar fundurinn á nefnd þá og
stjórn BSRB að vinna ötullega
að þeim sjálfsögðu lagfæringum
á launakjörum kvenna, sem hér
hefir verið bent á.“
LéSegur afSi
í Hafnarf jarðarbáta
Frá fréttaritara Tímans,
í Hafnarfirði.
Afli Hafnarfjarðarbáta hefur
' verið lélegur, það sem af er ver-
tíð, og mun minni en í fyrra. Heild
(arafli um síðastliðin mánaðamót
I nam 3402,2 lestum, en var 5110,4
| lestir á sama tíma í fyrra. Mestan
! afla hefur vb. Ársæll Sigurðsson
! fengið — 277,8. lestir. Ársæll hef
ur eingöngu verið gerður út með
net.
Hér á eftir fer aflaskýrsla
þeirra báta sem róa frá Hafnar
firði og er miðað við síðustu
mánaðamót.
Netabátar: Ársæll Sigurðsson:
277,8 lestir, Fjarðaklettur: 249,8
1., Fákur: 176,6 1. Jóhannes Ein-
arsson: 130,4 1. og Stefnir: 92,8 1.
Línu- og netabátar: Fagriklett
ur: 273,9 1. Faxaborg: 267,6 1.,
Reykjanes: 214,4 81., Flóklettur:
206,9, Fram 203,3 1. Fiskaklettur:
203,1, Hafnfirðingur: 186,2, Dóra
170,1 Fróðakle'Áur: 171,6, Örn
Arnarson: 167,8 og Freyfaxi 83.5.
Línubátar: Hafbjörg 189 lestir,
Guðbjörg 152 lestir og Valþór
80,4 lestir. GÞ
Þing S. Þ.
ÍFramhald af 12. síðu).
skamms til New York. Maccloy
kynnti sér sérstaklega fjármála
hliðina í sambandi við ruðning
Súez-skurðar. Ekki er talið ó-
sennilegt, að allsherjarþingið
verði kallað saman til að ræða
nýjustu atburði við Súez. Það er
með öllu óákveðið, hvaða lönd
fást til þess að greiða kostnaðinn
af hreinsuninni, en stimar þjóð
ir, m. a. nokkur kommúnistaríki,
hafa lagt til, að Bretar og Frakk
ar verði látnir greiða kostnaðinn.
FrÉ Golda Meir:
Síðustu atburðir í Gaza í algjörri
métsögn við gefin loforð
ísraelsmönnum þykir Bandaríkjamenn sýna
Egyptum linkind
Jerúsalem NTB 2. apríl. — Frú
Golda Meir, utanríkisráðherra ísr-
ael, sagði í ræðu í þjóðþingi lands-
ins í dag, að nýjustu atburðirnir
í Gaza væru í algjörri mótsögn við
þau ioforð, sem ísraelsmönnum
hefð verið gefin. Utanríkisráðherr
ann dró ænga dul á það, að hún
hefði orðið fyrir miklum vonbrigð
um er Bandaríkin hefðu látið hjá
líða að beita áhrifum sínum til að
koma í veg fyrir síðustu þróun mál
anna í Gaza með valdatöku Egypta
i héraðinu.
Frú Meir lagði á það áherzlu, að
siglingar um Akabaflóa yrðu að
vera öllum frjálsar og kvaðst vona
að réttur ísraeismanna ti lsiglinga
um Súez-skurð yrði senn viður-
kenndur.
Vaxandi áhugi almennings fyrir
ljósmyndagerS.
I íélagi áhugaljósmyndara eru nú oríinir um 250
félagsmenn og hefir félagií opna vinnustofu fyrir þá
Aðalfundur Félags áhugaljósmyndara, en það var stofnað
fyrir 4 árum, var haldinn í Silfurtunglinu 25. febrúar. Félags-
menn eru nú um 250. í stjórn þess eru: Runólfur Elentínusson
formaður, Freddy Laustsen gjaldkeri, Atli Ólafsson ritari og
Kristján Jónsson meðstjórnandi.
voru og erindi flutt á fundum. Er-
Félagið Iiefir komið á laggirnar
vinnustofu að Hringbraut 26, sem
félagarnir eiga aðgang að gegn 30
króna gjaldi fyrir 5 klukkustundir
í scnn (kl. 13 til 18 eða 18 til 23)
og eru þar fyrir stækkunarvél og
önnur tæki sem til þarf við að
slækka myndir. Hefir vinnustofan
verið starfrækt i eitt ár og mikið
verið noluð. Stendur til að auka
t*ki á henni, svo að fleiri geti
linnið þar í senn.
9 fundir voru haldnir á árinu.
Fundarsóloi var góð, að meðaltali
70 manns. Sýndar voru margar ís-
lenzkar kvikmyndir og litskugga-
myndir eftir marga félaganna. Þá
lend farsöfn frá félögum áhuga-
manna í ýmsum löndum voru einn-
ig skoðuð og sýnd.
j haust eru liðin þrjú ár síðan
FÁ gekkst fyrir ljósmyndasýningu
í Reykjavík og hyggst fclagið efna
til sýningar þá. Mun hún eins og
fyrsta sýning félágsins verða opin
þátttakendum, hvort sem þeir eru
í félaginu eða ekki. f undirbúningi
er að fá þátttöku í sýninguna frá
áhugamönnum í Feneyjum á Ítalíu.
Að lokum skal þess getið, að fé-
lagsmenn eiga kost á verulegum
afslætti á efni til ijósmyndagerðar
hjá ýmsum fyrirtækjum, sem með
þær vörur verzla.
Egypska stjórnin íékkst til að beita
sér fyrir friði og ró á Gaza
Hammarskjöíd fékk þessu framgengt í viíiræð-
unum vitS Nasser í Kairó
Sameinuðu þjóðunum New York * 1 koma í veg fyrir öll illindi við
—2. apríl: Tilkynnt var í dag í landamærin. Á þetta verði lögð
áherzla við og við, ef þurfa þyki.
2. Egypskum viðurlagum um af-
brot á Gaza verðt beiít og íbúum
Gaza veroi skýrt frá hlutverki
gæzluliðsins í því að kveða niður
iliindi og árásir.
aðalstöðvum S. þ. að tekist hefði
að ná samkomulagi við Egypta
unt að reyna að koma í veg fyrir
og stöðva allar árásir og illdeil-
ur á landamærum ísraels við
Gaza.
Dag Hammarskjöld tókst að fá
þessu framgengt í viðræðum hans
við Nasser í Kairó á dögunum.
Ennfremur náðist um það sam-
komulag að gæzlulið S. þ. skyldi
um sinn taka sér stöðu á landa-
mærunum og stöðva allar mögu
legar árásir á landamærunum.
Stefna Egypta skýrð.
Hammarskjöld mun hafa tekizt
að fá egypsku stjórnina til að
samþykkja þessi 2 atriði:
1. Egypska stjórnin mun gera
öllum íbúum á Gaza, bæði flótta
mönnum og öðrum, það greinilega
ljóst, að það sé stefna hennar, að
Lúsoddafrétt í Þjóðviljanum um
„bandaríska stríðsfélagshátíð“
íslenzkir brunaverÖir voru á árshátíÖ ásamt
eiginkonum og 4 bandarískum gestum
í sunnudagsblaði Þjóðviljans
birtist ferleg ritsmíð, með mynda
skýringum, um „bandaríska
stríðsfélagahátíð“, sem haldin
hefði verið í Golfskálanum í
Reykjavík.
Ræddi blaðið um smyglað á-
fengi og lauslæti veizlugesta, og
lagði svo út af textanum eins og
eitt sinn var siður að gera í því
blaði, en hefur legið niðri nú um
sinn.
í gær upplýstist svo það, sem
glöggir lesendur mun hafa séð,
að þetta eru Lúsoddaskrif, og
hefur hugurinn hlaupið með blað-
ið í gönur.
Samkoma sú, sem Þjóðviljinn
gerði að umtalsefni með þessum
óvenjulega hætti. var íslenzk
samkoma, haldin af íslenzkum
brunavörðum á Keflavíkurflug-
velli, sem hafa haldið slíka árs- i
hátíð oft áður. Meðal gesta voru
aðeins 4 Bandaríkjamenn, sam-
starfsmenn íslendinganna, en all-
ur borri manna íslenzkt fólk,
flest gift fólk, og ailar konurn-
ar giftar. Fór samkoman vel og
siðsainlega fram að öllu leyti og
orðbragð Þjóðviljans þar hvergi
nærri sannleikanum.
Húsvörður í Golfskálanum,
Trausti Eyjólfsson lögregluþjónn,
vottar í Alþýðublaðinu í gær að
samkoman hafi verið á vegum ís-
lenzku slökkviliðsmannanna, og
hann ber og til baka sögu Þjóð-
viljans um smyglað áfengi.
Ljósmynd Þjóðviljans af dans
pari, sem átti að sína ósiðsem-
ina, var af skemmtikröftum frá
fyrirtækinu íslenzkir skemmti-
kraftar, og var sýndur Rock and
Rolidans, eins og á mörgum öðr
um samkomum hér í Reykjavík að
undanförnu.
Fé til Búnaðarhankans
(Framhaid af 1. síðu).
Forsætisráðherra lýsti því lítil-
lega hversu hláleg vinnubrögð
Sjálfstæðismanna eru í þessu máli
og miðuð við sýndarmennsku eina.
Jón Pálmason hefði sjálfur borið
fram tillögur um fjárútvegun til
bankans í tíð fyrrverandi stjórnar
en það hefði ekki nægt til lausn
ar vandanum, vegna þess að fé var
ekki fyrir hendi. Nú væri viður-
kennt að enn hefði stórlega
þrengst um lánsíjárútvegun alla
og þá reyndi þessi sami flutnings
maður að leysa málið á þann hátt,
sem ekki dugði einu sinni, með-
an flokksbróðir hans var for-
sætisráðherra.
Tíðinda að vænta innan
skamms.
Það þarf að afla fjár- til þess
að hægt sé að auka lánsfé Bún-
aðarbankaus, sagði forsætisráð-
herra að lokum, og það verður
ekk.i gert með tillögu Jóns Pálma
sonar, annað og meira þarf til.
Verið er nú að vinna að því að
Ieysa þetta mikla vandmál á þanu
hátt að það komi að gagni, það
er að segja að útvega fjárinaga
og það vona ég að takist, sagði
ráðherrann, áður en langur tími
líður.
Ljósí eftir 1-2 daga, hvort von er um
skjéta lausn í Súez-deilunni
JartShiti
(Framhald af 1. síðu).
langt út fyrir landareign einnar
jarðar eða fleiri.
Út frá þessu sjónarmiði eru
einnig settar þær takmarkanir
vegna borunar, að enginn má bora
nær landamerkjum en 200 metra,
ef bora þarf nær, þarf sérstakt
leyfi að koma til. Er þetta ákvæði
sett vegna þess, að oft hagar þann-
ig til að ein borun eftir lieitu
vatni eyðileggur nálægar upp-
sprettur.
Forsætisráðherra gat þess, að
ætlunin væri að raforkumálastjóri
hefði sérstaka stjórn allra þessara
mála.
Hermann Jónasson forsætisráð-
herra drap að lokum nokkuð á
hið víðtæka og mikla notkunar-
gildi jarðhitans fyrir þjóðina.
Einkanlega væri það þó gufan
og notkun hennar, sem mest
liefði verið á dagskrá umfram þá
nof.kun, sem alkunn er. Hefði
meðal annars í því sambandi ver-
ið talað um rafvirkjanir.
Jóhann Hafstein og Magnús Jóns
son tóku einnig til máls um hið
nýja frumvarp, en töldu báðir að
svo skammt væri síðan að það
kom fram, að þeir hefðu ekki get-
að myndað sér skoðun um málið.
Þeir viðurkenndu báðir nauðsyn
þess að koma á heildarlöggjöf um
þetta efni, en töldu heppilega þá
uppástungu forsætisráðherra að
WASHINGTON—NTB 2. apríl:
John Foster Dulles. utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði á
blaðamannafundi í Washington
í dag, að það yrði nú ljóst inn-
an eins eða tveggja sólarhringa,
hvort samningaumleitanir hæf-
ust við Egypta á grundvelli, er
gæfi nokkra von um skjóta lausn
Súez-deilunnar.
Dulles endurtók fyrri ummæli
sín um siglingar um Súez-skurð,
sagði ráðlierrann, að það væri
skoðun Bandaríkjastjórnar, að
skurðurinn ætti að vera opinn
öllum skipum, jafnt ísraelskum
sem öðrum.
Meðan á tékknesku vörusýning-
unni stendur í Reykjavík í sum-
ar mun einnig verða haidin tízku-
sýning. Hér er mvnd af hentug-
um lékkneskum kvenklæðnaði.
í Ifímmum
•aHTœailaœMiiæliH'sWis^NiBa i
Norsknr leikflokkur sýnir Brúðu-
heimilið á 12-14 stöðum bér á Sandi
NTB-Osló í gær. — Ríkisleikhúsið sendir í sumar leikflokk
til íslands, og mun hann sýna Brúðuheimilið eftir Henrik
Ibsen á 12—14 stöðum víðs vegar um land. Leikflokkurinn
mun leggja af stað í íslandsförina 3. júlí og koma heim úr
henni væntanlega 24. júlí. ,
Norsku leikararnir, sem koma,
eru þessir: Liv Strömsted, Olav
Havrevold, Gerd Wiik, Karl Ellert
Wiik, Helga Bakke, Eva Knoop og
Svein Byring. Frumsýningin verð-
ráðrúm gæfist til að skoða málið
í meðferð milli þinga.
ur í Reykjavík. Það er Samband
íslenzkra leikfélaga, sem stendur
fyrir boði þessa norska leikflokks
frá ríkisleikhúsinu, og hefir sam-
bandið fengið nokkurn ríkisstyrk
á fjárlögum þessa árs til þess að
annast móttökur, ferðalög og sýn-
ingar flokksins á íslandi.
Norsku leikararnir, sem fara
eru í röð fremstu leikara í Noregi.