Tíminn - 03.04.1957, Síða 5

Tíminn - 03.04.1957, Síða 5
TÍMINN, miðvikudaginn 3. apríl 1957. 5 Greinaflokkur Páls Zóphóníassonar Snæfells- og Hnappadalssýsla — búskapurinn fyrr og nú — Eins og glöggl kemur fram í skýrslunni hér aS neðan, hefir meSaljörðin, sem búið er á, breytzt minna en í Borgarfjarðar- og Mýrasýslu. Hún var: tun 3,1 ha en er nú: tún 6,4 ha breyting er: tún +3,3 ha taða 90 hestar — úthey 124 — nautgr. 3,4 taða +197 hestar — úthey 94 Túnið hefir vel tvöfaldazt, en taðan þó gert betur, en ekki verður sagt hve túnin hafi batn að í rækt fyrir það, því töðu- aukninigin gæti stafað af því, að nytjuð væri tún eyðijarða, og því líti svo út, sem meiri taða fengizt nú af hverjum hektara. ÚTHEYSKAPURINN er nú að- eins Yi af því, sem áður var. Heildarheyskapurinn á meðal- jörðinni hefir aukizt úr (90+ 124) =214, og í (287 + 30) =317, eða um 103 hesta. Skepnur á fóðri hafa aftur aukizt um 1,2 nautgripi og 52 kindur, en hross um fækkað um 2,6. Fjölgun bú- fjárins hefir hér gengið örara fyrir sig en ræktunin, og er það illa farið, enda þótt það megi réttlæta það, eins og verð- lag á fóðurbæti hefir verið liér um árabil. Eftir endinlangri sýslunni gengur Snæfellsnesfjallgarður- inn, sem klýíur hreppana í hreppana á sunnanveröu nes- inu, og á því norðanverðu. Hrepparnir á sunnanverðu nesinu selja mjólk til Borgar- ness nema Breiðuvíkurhreppur, en á norðanverðu nesinu er engin mjólkursala, nema það sem nokkrir bæir (7) úr Helga- fellssveit selja til Stykkishólms. Margar jarðir í öllum hrepp- um sýslunnar eiga land að fjall garðinum, og í honum gengur því fé að sumrinu, en sameigin- leg stærri upprekstrarsvæði eiga sveitirnar ekki. Sauðland verður þó alls staðar að teljast allgott, en þó dálítið misjafnt, og einna bezt á Skógarströnd. Eftir túnastærð skiptast jarð- irnar á Snæfellsnesi svo: 1 hefir innan við 1 ha tún 8 hafa milli 1 og 2 ha tún 18 hafa milli 2 og 3 ha tún 29 hafa milli 3 og 4 ha tún 43 hafa milli 4 og 5 ha tún og því 99 innan við 5 ha tún. 53 hafa milli 5 og 7 ha tún 45 milli 7 og 10 ha tún og 37 yfir 10 ha. Það verður ekki um það ef- azt, að sýslan sem heild, hefir orðið nokkuð á eftir Borgarfirð inum meö umbætur á jörðun- um, og veldur að einhverju leyti, að sýslan vegaðist seinna en Borgarfjörðurinn, og að menn stunduðu víða sjósókn á opnum bátum jafnhliða bú- skapnum, og það gerði sitt til að menn urðu seinni til fram- kvæmda til umbóta en víða ann ars staðar á landinu. Um einstaka hreppa vil ég segja þetta: 1. Kolbeinsstaðahreppur. 1920 voru 33 sérmetnar jarðir í hreppnum, en ein þeirra var þá í eyöi. Siðan hefir eitt nýbýli verið stofnað, og fjórar jarðir eru nú mannlausar í eyði, eða notaðar irá öðrum jörðum. Meðaltúnið í hreppnum hefir stækkað líkt og meóaltún sýsl- unnar og töðulall vaxið. Lítur út fyrir að túnin um 1920 hafi verið í lélegri rækt, eða taöan illa framtalin, nema hvort tveggja hafi verið. Útheyskap- urinn er að hverfa eins og ann- ars staðar, þar sem ekki er um , vélslægnar ilæðiengjar að ræða. t Fólki í hreppnum hefir fækk- i..' að um 19 og afkóst á mann í i hreppnum því aukizt, þó minna en víðast í Borgarfirðinum. , Bændurnir verzla ymist i Borg- , arnesi, en þangað selja þeir , mjólk daglega, eða við Stykkis- i hólm, og er slík skipting á verzl un úr sama hreppi aldrei til blessunar. Tíu byggðar jarðir í hreppn- um hafa minna en 5 ha tún, og á fjórum þeirra eru þau óbreytt að stærð frá því sem þau voru 1932, eða 3,3 ha, 2,0 ha, 2,8 ha og 3,1 ha. Á Flysjustöðum, Mýrdal og Tröð hafa túnin kringum það fjórfaldazt að stærð og töðufalli, en mest hef- ir nýbýlið Grund breytzt. Það er fyrst sérmetið 1932, þá ný- lega reist. Nú er þar 10,6 ha tún og töðufallið 350 hestar. 2. Eyjahreppur. Þar voru fjörtán jarðir sérmetnar 1920. Eitt nýbýli hefir síðan verið stofnað og sérmetið, en farið í eyði aftur, svo jarðatalan er ó- breytt. Meðaltún í hreppnum hefir stækkað til muna meira en meðaltún sýslunnar. Hey- skapurinn á meðaljörð var 100 +280 = 380 hestar, en er nú 400 hestar taða og 44 úthey, eða 444, og hefir því aukizt um 64 hesta. Fólki í hreppnum hef ■ ir þó fækkað um 14, svo af- kastaaukningin er nokkur. Meðaláhöfn hefir þá líka vax- ið meira en á meðaljörð sýsl- unnar, en því miður örara en ræktunin. Hrossunum hefir fækkað sem betur fer. Ekki er nema ein jörð í hreppnum með minna en 5 ha tún. Mest hefir túnið á Rauðkollsstöðum stækk- að, úr 5 ha, sem gáfu af sér 170 hesta 1932, í 16,9 ha, sem nú gefa af sér 500 hesta. Mjólk er send úr hreppnum til Borgar- ness, og bændur tvískiptir með verzlun sína, eins og í Kolbeins- staðahreppi. 3. Miklaholtshreppur. Jarðirí hreppnum, sem sérmetnar voru 1920 voru 24. Síðan eru talin stofnuð 8 nýbýli, en eitt þeirra er veitingahús, sem enn hefir litla ræktun, og er ekki talið með þegar meðal áhöfn á jörð er reiknuð. Hins vegar hafa þrjár jarðir farið í eyði, eða verið lagðar undir aðrar jarðir, svo nú eru 28 eða 29 jarðir í byggð, eftir því, hvort Vegamót (Veitingahúsið) er talið með eða ekki, en það á mela út frá sér, sem eru auðræktanlegir. Fimm jörðum hefir nýlega verið skipt í 10, eitt nýbýlið stofnað frá hverri jörð, og lækka þau meðaltún, töðufall og áhöfn á meðaljörð hreppsins verulega, því á þeim öllum hafa nýbýlin komið áður en tún hinna jarðanna voru orðin það stór, að þau væru til að skipía. Á Syðra Lágafelli var 2,7 ha tún, sem hafði stækkað í 6,1 ha fyrir skiptin. í Hrisdal var 5,6 ha tún, sem orðið var 8,4 ha fyrir skiptin. í Dal var 4,3 ha tún, sem var orð- iö 9,6 ha fyrir skiptin. í Hjarð- arfelli var 6,4 ha tún, sem var orðið 12,1 ha fyrir skiptin og í Miðhrauni var 5,2 ha tún, sem sauðfé 62 — hross 7,2 sauðfé 114 — hross 4,6 sauðfé + 52 — hross 4-2,6 fyrir skiptin var orðið 13,£ Þó tún allra jarðanna liafi stækkað siðan 1932, en frá því ári er fyrri túnastærðin, til 1955, en á því ári er síðari túna stærð, og þá talin saman tún- in á nýbýlinu og gömlu jörð- inni, sem það er myndað frá, þá eru túnin of lítil til að skipta. Ég held að túnin þurfi að komast í 16—20 ha stærð, áður en rétt sé að skipta jörð- inni og stofna nýbýli. Væru nýbýlin fimm ekki orðn ar sérmetnar jarðir, þá væri meðaltúnið jafnstórt í Mikla- holtshreppnum og það er í Eyja hreppnum, eða 8,6 ha. En ný- býlin þurfa að koma og eiga að koma. Bezt er þegar allir standa saman að umbótunum og endur bótunum á jörðinni, þar til tún ið er orðið það stórt, að skiptin komi eins og af sjálfu sér, og þá að samvinnan sé það góð, að mögulegt reynist að reka bú- skapinn í félagi af systkina- hópnum og vandamönnum. Form fyrir slíkum samvinnu- rekstri vantar, og er þó slíkur rekstur kominn á á einstaka jörð. Stærsta kúabú sveitarinnar er á Fáskrúðarbakka. Þar var 4 ha. tún en er nú orðið 13,1. Þar eru 15 nautgripir, 326 fjár og 34 hross. Heyskapurinn 1955 var aðeins 500 hestar, og hefði hrokkið skammt' ef ekki hefðu verið fyrningar. Fjárbúið 1955—56 var stærst í Borg. Þar var túnið 6 lia um 1920, en er nú orðið nærri 20. Af því fengust 800 hestar, sem fóðraðir voru á 3 nautgripir og 393 kindur. • Arður pr. fóðraða kind í sveit inni hefir aukizt hin síðustu ár, enda er þar starfandi óvenju á- hugasamt sauðfjárræktarfélag, sem hefir mikinn hug á að bæta féð og auka arðinn af þvi, og hefir þegar sézt greinilegur árangur. 4. Staðarsveit. Síðan 1920 lief ir meðaltúnið nærri tvöfaldazt, en töðumagnið þrefaldazt. Hefir spretta túnanna því aukizt, enda þótt aukningin kunni að einhverju leyti að stafa frá notk un túna á jörðum, sem eru í eyði. Útheyskapur hefir minnk- að um helming, en heildarhey- skapur á meðaljörð aukizt um sem næst 100 hesta. íbúum sveitarinnar hefir fækkað um 65 manns, og þó hefir heyskap- urinn aukizt um Ya. Hins vegar hefir meðalbúið aukizt um 3,6 nautgripi og 41 kind, og þó nú sé 3,1 hrossi færra en áður var, þá er stækk- un meðalbúsins meiri en hey- aukningin til lætur, en það er þróun, sem ekki á að verða. Ræktunin á að ganga fyrir fjölg un búfjárins. Mjólk úr hreppn- um er seld til Ólafsvíkur og Reykjavíkur. Verzlað er ýmist MEÐAL BYGGÐ JÖRÐ 1920 við Stykkishólm, Ólafsvík eða Borgarnes. 5. Breiðuvíkurhreppur. Þar voru 1920 36 sérmelnar jarðir, en 7 þeirra eru þá í eyði. Síð- an hafa verið reist þar 6 nýbýli, og mátti því nú búast við 42 sérmetnum jörðum. Af þeim eru 28 í byggð en 18 í eyði, nytjaðar frá öðrum jörðum eða ónytjaðar með öllu. Úr hreppnum var áður út- ræði á opnum bátum, og flestir bændur stunduðu þá jöfnum höndum sjó og land. Þegar sjó- sóknin lagðist niður smám sam an, og útgerðin var stunduð á mótorbátum frá kauptúnunum Sandi og Ólafsvík, reyndist ekki mögulegt að lifa af landbúskap einum á jörðunum, og því fóru þær í eyði smám saman því tún in voru ekki stækkuð, skilyröin til landbúskaparins ekki bætt, og fólkið undi ekki að verða að sækja atvinnu langt frá heim- ili sínu, enda oft óhægt um vik að komast heimanað. Jarðirnar ,sem minnst höfðu túnin, og ekki aðra möguleika til heyskap ar og lélegar útheysslægjur, cða þá alls engar, eins og sumar þeirra, lögðust því í eyði. 1920 var meðaltúnið í hreppn um 3,1 ha, og fengust af því 80 hestar af töðu. Á þeim 24 jörð- um, sem nú eru í byggð, var túnið þá 3,4 ha, og sést af því, að það eru jarðirnar með minnstu túnin, sem horfnar eru úr byggð, komnar i eyði. Nú er meðaltúnið orðið 4,9 ha, og hef ir því meðaltún þessara jarða stækkað um 1,5 ha, og verður það ekki talið mikið á 35 árum. 1920 var heyskapiuúnn 80 liest ar taða og 154 hestar úthey, eða 234 hestar. 1955 var heyskapurinn 166 hest ar taða og 40 hcstar úthey, eða 206 hestar og hefir því minnkað um 28 hesta. Nautgripir eru nú 0,2 fleiri, og sauðfé 32 kindum fleira en 1920. Hross eru aftur 2,66 færri. Og þessi aukning bú stofnsins verður þrátt fyrir minnkaðan heyforða að magni til. Þrcunin er ekki heillavæn- leg og þyrfti að breyta um stefnu. Hér er meðalbúið of lítið til þess að fjölskylda geti lifað af arði þess. Má því skilja við- leitni manna að stækka það og nota fóðurbætisgjöf til þess, en til frambúðar verður það ekki. Að stunda atvinnu utan heim ilis, eins og margir gera nú, er ekki heldur framtíðar búskap- arlag. Menn verða að hafa næga vinnu á heimilunum, við heim- ilisstörfin, ef vel á að fara, og geta með henni framleitt vör- ur, sem fyrir fæst nægjanlegt til framdráttar fjölskyldunni. Hreppsbúar verzla við útibú Kaupfélagsins í Ólafsvik og Stapa. 6. Neshreppur utan Ennis. Þar hefir farið líkt og í Breiðu- víkurhreppnum. Jarðirnar voru 19 og 7 nú eftir byggðar. Þess- ar 7 jarðir höfðu meðaltún. sem var 3,2 ha 1932, en er nú 4,5. Stækkunin aðeins 1,3 ha. En heyskapurinn hefir þó aukizt nokkuð. Hann var allur nær 184 hestum á meðaljörð 1920, en er nú 329 hestar, en vafalít- ið er eitthvað af þeirri töðu slegið á eyðijörðum, sem ann- ars eru að nokkru nytjaðar frá Hellissandi. 7. Fróðárhreppur. Þar er sömu sögu að segja. Útræði, sem var úr hreppnum, er horf- ið, og með því hverfa bændur frá þeim jörðum, er ekki höíðu heyskaparmöguleika. 18 jarðir af 24 eru því í eyði nú. Meðal- tún þeirra 28 jarða, sem voru sérmetnar og byggðar 1920 vaí 1,9 ha, en þeirra 11, sem cru í byggð 2,4, og sýnir það, að það eru jarðirnar mcð litlu tún- in, sem í eyði fara fyrst og fremst. Nú er meðaltúnið á þessum 11 jörðum orðið 5,1 ha og hefir því vel tvöíaldazt. Hey skapurinn 1920 var 53 hcstar taða og 50 úthey, eða 103 hest- ar. Nú er hann röskir 300 hest- ar, eða þrefaldur. Vafalaust stafar aukning töðunr.ar að verulegu leyti af heyskap á tún um eyðijarða, en hve lengi helzt, eða verður haldið við, rækt á þeim? Eins og sést á samarburðar- yfirliti á meðaljörðum hrepp- anna, hefir fólki í Fróðarhreppi fækkað úr 177 í 57, eða um Afkastaaukningin er véruleg, þó tillit sé tekið til þess, að margir af þeim íbúum, er áður áttu heima í hreppnum, höfðu tekjur sínar að verulcgu leyti úr sjónum. Bændur í Fröðarhreppi liggja næst Ólafsvík. og væri eðlilegast að þeir seldu mjólk í Ólafsvík. Svo er bó ckki. Um tíma gerðu þeir það, en hættu því aftur, og stunda nú sauð- fjárrækt, sem þeim finnst arð- vænlegri. Fóru þá Ólafsvíkur- búar að fá mjólk úr Síaðar- sveit, þó þar sé yfir heiði að fara, sem oft getur lokazt vegna snjóa. 8. Eyrarsveit. 1920 voru 50 sérmetnar jarðir í sveitinni. Síðan hafa komið til 8 nýjar sérmetnar jarðir, en nítján far- ið í eyði eða lagzt undir aðrar jarðir, svo byggðu jarðirnar eru 39. Meðaltúnið var 2,4 ha og gaf af sér 82 hesta af töðu. Þá var útheyskapurinn 67 hestar, og allur heyskapurinn á meðal- jörðinni þá aðeins 149 hestar. Nú er meðaltúnið á þcssum 39 jörðum sem byggðar cru, orðið 4.6 ha, en var á þeim 2,8 1932, og hefir því ekki tvcfaldazt síð- an. í sveitinni er vaxandi þorp og útgerð frá því, en útgerð, sem áður var sótt frá einstaka jörðum lögð niður. Á búskapn- um í sveitinni er nokkurt los sem stendur, eins og oft vill verða þar sem þorp rísa upp. Fólk úr sveitinni sækir þangað atvinnu, býr þar jafnvel og flyfc ur þangað heyið af jörðinni, sem það dvelur aðeins á tíma úr árinu, og er aldrei að vita fyrirfram hvernig slíkt cndar. En margar jarðir bafa það lítil tún, að hætta er á að þær fari í eyði, geti þau ekki mjög fljótt tekið þeim umbótum er þarf til þess að á þeim megi framfleyta þeim skepnum, að fjölskylda geti bæði haft nóg að gcra við að hirða og heyja fyrir, og af honum haft nægar tekjur sér til framdráttar. Mjólk handa Grafarnesbúum er nú að mestu framlcidd í kauptúninu sjálfu, en hér mun koma verkaskipting. Bændurn- ir fara að einbeita sér að bú- skapnum og skipuleggja sölu mjólkur í Grafarnesi, moðan þeir, sem þar búa, gefa sig al- veg að sjósókninni, og hætta að hafa búskap við hliðina, sem oftar en hitt gefur tap. í Eyrarsveit er mjög sér- kennilegt og mjög fagurt, og er hún ein með fegurri sveitum landsins. 9. Helgafellssveit. í Helga- fellssveit eru nú 24 byggðar jarðir, en þær voru 37, 1920. Meðallúnið hefir meira en tvöfaldazt, var 3,0 ha, en er nú 7.7 ha. Meðalútheyskapur var 115 hestar og taða 98, eða all- ur heyskapur liðugir 200 hest- (Framhald á 8. síðu). MEÐAL BYGGÐ JORÐ 1955 TALA BYGGÐRA BÝLA Túnstærð, heyskapur. Áhöfn um 1920 Ibúar íbúar Túnstærð, heyskapur. Áhöfn 19; Hreppar 1920 1955 Tún Taða Úth. Nautg. Sauðf. Hross 1920 1953 Tún Taða Úth Nautg. Sauðf. Hross ha hestar hestar tala tala tala ha hcstar hestar tala tala tala i. Kolbeinsstaða 32 30 3,8 89 89 4,0 87 12,6 193 174 7,8 303 18 5,0 134 8,9 2. Eyjahr. 14 14 3,1 100 280 5,4 114 15,8 115 101 8,6 400 44 7.6 162 8,7 3. Miklaholtshr. 24 29 4,3 115 179 4,5 106 10,7 193 157 7.1 296 37 4,4 149 5,4 4. Staðarsveit 35 32 3,9 94 154 3,3 55 6.5 276 211 7,6 266 75 6,9 96 3,4 5. Breiðuvíkur 29 24 3,2 80 154 3,2 39 4.7 174 171 4,9 166 40 3,4 71 2,1 6. Nes utan Ennis 14 7 3,2 94 90 3,1 51 6,0 — 4,5 32S 0 4,7 112 1,7 7. Fróðarhr. 28 11 1,9 53 50 2,5 24 2.9 177 57 5,1 297 15 2,3 88 1.4 8. Eyrarsveit 50 39 2,4 82 61 2,9 37 4,8 453 . 432 4.6 248 0 2,8 68 1,7 9. Helgafellssv. 35 24 3,0 98 115 3,1 67 6,8 261 120 7,7 388 21 5,9 125 6,0 10. Skógarströnd 29 24 3,1 114 169 3,4 30 6,5 231 130 6,1 289 37 3,4 164 5,5 Alls 290 234 Meðaltöl 3,1 90 124 3,4 62 7,2 6,4 287 30 4,6 114 4,6

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.