Tíminn - 04.04.1957, Qupperneq 3
3
T f M I N N, fimmtudaginn 4. apríl 1957.
Þessi mynd var tekin eftir miðdegismat hér í Santiago. TaliS frá vinstri: María, Róbert, Agla.
Vigfús Guðmundsson:
Islenzkt heimili í Chile
Neytendasamtökin hafa gefið ót .
marga bæklinga um vöruval
Neytendasamtökin hafa að undanförnu gefið út bæklinga
til leiðbeiningar við vöruval. Hefir þessi starfsemi mælzt vel
fyrir og verður henni haldið áfram. Félagsmenn samtakanna
fá bæklinga þessa senda heim ókeypis. Tvö hefti Neytenda-
blaðsins eru nýkomin út og nú í nýju broti.
Á aðalfundi Neytendasamtak-
anna 27. október sl. flutti formað-
urinn, Sveinn Ásgeirsson hagfræð;
ingur, skýrslu um starfsemina á
liðna árinu og sagði m. a. frá út-
gáfustarfsemi til þessa.
Þessir bæklingar hafa þegar ver
ið gefnir út: Heimilistörfin, Að
velja sér skó, Heimilisáhöld, Um
nylonsokka, Vandi er dúk að
velja, Matvæli I, og Um málningu.
Þá eru tveir bæklingar í prentun
og koma út bráðlega. Annar er um
notkun tékka og fleira varðandi
bankastarfsemi og peningasending-
ar. Hinn um blettahreinsun. Áður
höfðu samtökin gefið út bækling
til leiðbeiningar þeim, er hug hafa
á að kaupa sér notaðan bíl.
Eins og frá var skýrt hér í blað
inu fyrir nokkru, láta samtökin
félagsmönnum sínum í té lögfræðx
lega aðstoð og upplýsingar, ef þeir
; telja sig blekkta í viðskiptum.
Endurgreiðslur til neytenda
vegna fyrirgreiðslu skrif tofu sam
takanna nema tugum þújunda.
Gæðamat.
Nokkru eftir stofnun Neytenda-
samtakanna var efnt til gæðamats.
Vöruðu þau í upphaíi við þvotta-
efni, sem mikið var kvartað und-
an. Út af því spunnu.st málaferli,
sem ekki er enn lokiö. Hér er um
prófmál að ræða, hvort samtökun-
um sé leyfilegt að birta neytend-
um niðurstöður gæðamatsrann-
sókna. Frekari gæðamatsrannsókn-
ir hafa farið fram en niðurstöður
ekki birtar fyrr en dómur gengur
í máli því, sem fyrr urn ræðir.
Þegar ég skrifaði bréfið hér frá
hofuðborg Chile, alveg nýlega, er
ég sendi Timanum, hafði ég ekki
rekist á hinn litla íslenzka óasa
hér í milljónaborginni. En rétt
þegar ég var búinn að pósta bréfið,
fann ég hann. Hafði heyrt þess
getið, að hér ætti heima ein ís-
lenzk kona, en mig vantaði nægar
upplýsingar til þess að geta fundið
hana. — En nú hefir það heppn-
ast og ég er búinn að heimsækja
hana hvað eftir annað á hennar
mvndarlega heimili.
En að finna góða samlanda með-
al milljónanna í fjarlægum lönd-
um er eitt það hugljúfasta, sem
getur komið fyrir ísl. ferðalang,
sem er einn á ferð á meðal fram-
andi og fjarlægra þjóða.
Þessi íslenzka kona, sem býr hér
og er búin að búa hér um aldar-
fjórðungs skeið, er María Helga-
dóttir (dóttir Helga hjá Zimsen,
sem svo var oftast kallaður) frá
Reykjavík. Hún er gift hér Þjóð-
verja: Robert Knoop. Og hjá þeim
hjónum er ein ísl. stúlka: Agla
Sveinbjörnsdóttir frá Revkjavík.
systui'dóttir Maríu. Geðþekk ung
stúlka, sem er búin að vera hér
syðra í 8 mánuði.
ÞAÐ VAR INDÆLT að koma á
þetta heimili. Hjónin og unga
stúlkan tóku mér með rausn og al-
úð og það engu síður maður Maríu
sem er mjög vinsamlegur í garð ís-
lendinga.
María er greind og skemmtileg
kona og talar m. a. íslenzku ennþá
álíka og hún hefði alltaf verið
heima á íslandi. En auk þess talar
hún reiprennandi spönsku, ensku,
frönsku, þýzku og dönsku. Hún
virðist mjög hamingjusöm með
mann sinn og þann blíða og fagra
stað, þar sem hún býr. Þau hjón
munu vera vel stæð efnalega og
ber heimili þeirra jöfnum höndum
vott um góðan efnahag og fegurð-
arsmekk. M. a. eru falleg íslenzk
málverk á stofuveggjum. Einnig
eru ísl. bækur en ekki samt mikið,
og íslenzk dagblöð koma venjulega,
en þá oftast varla yngri en 5
vikna gömul.
Þótt húsakynnin séu bæði góð
og rúmmikil, þá er þó stór jurta-,
blóma- og ávaxtagarður fast við í-
búðarhúsið, einna allra mest að-
laðandi. Enda setur heimilisfólkið
oftast úti í honum í frístundum sín
um — undir laufbaki vínviðar og
ýmissa fagurra trjáa. Grind er úr
mjóum viðarrenglum yfir lauf-
skálanum í garðinum og á og um
þessar grindur vefur sig vínviður-
inn og skýlir fvrir hinni oft nokk-
uð sterku sól. Hanga svo vínberja-
klasarnir hvarvetna niður undir
höfuð manna, þegar þeir ganga
um í laufskálanum.
Annars er líka fullt af öðrum á-
vöxtum um allan garðinn, og ein-
hverja þeirra er alltaf hægt að
nema af greinum trjánna í öllum
tólf mánuðum ársins.
Þeir ávextir, sem ég minnist að
yxu þarna í garði íslenzku húsfreyj
unnar og fólki hennar, voru: app-
elsínur, grapefruit, perur, ferskj-
ur, gráfíkjur, aprikósur. tómatar,
palda, hindber, rifsber, kirsiber og
sitrónur. Og svo ótal tegundir
blóma.
ÞAÐ VAR EKKI aðeins hressandi
að koma á þetta fagra og myndar-
lega heimili íslenzku húsfreyjunn-j
ar hér úti við Kyrrahafið, langt
suður á suðurhlið jarðarinnar —
það var alveg yndislegt.
Og fögnuður ætti það að vera
okkur íslendingum, að samlöndum
okkar vegni vel og séu landinu okk 1
ar til sóma hvar sem þeir búa í
heiminum — eins og María Ilelga-
dóttir er áreiðanlega hér úti í
hinni fögru höfuðborg Chile.
Vigfús Guðmundsson.
Landsleiktir milli
Englendinga
og Rússa
Föstudaginn 29. f. m. tilkynntu
knattspyrnusambönd Englands og
Ráðstjórnarríkjanna, að tveir
landsleikir þeirra í milli hefðu ver
ið ákveðnir og yrðu þeir háðir
á næsta ári. Eru þetta fyrstu
landsleikir þessara þjóða í milli.
Englendingar fara til Moskvu í
maí, en Rússar til Lundúna í
október.
Hins vegar hafa áður verið sam
skipti milli einstakra rússneskra
og enskra knattspyrnuliða. Má í
því sambandi minna á hina frægu
för Dynamo til Englands 1946,
en það var í fyrsta skipti, sem
rússneskt knattspyrnulið keppti
utan járntjaldsins.
Peysufatadagur Kvennaskolans
Fyrir nokkrum döguin var hinn árlegi peysufatadagur-Kvannaskólans og þaö má segja, aS hinar prúobúnu stúlk-
ur hjfi sett svip á miðbæinn þann dag. Eftir s'o hafa heimsott ýmsa skola og Alþingi komu stúlkurnar saman í
samkorrwhúsinu Silfurtungiinu og hresstu sig á súkkulaði og ágætis pönnukökum. ÁSur en stúlkurnar settust að
borðum tóku þær lagið og er myndin tekin í þann mund. (Ljósm.: Sveinn Sæmundsson).
í þiðviðrinu undanfarið hefir allur snjór bráðnað, en víða myndast pollar
og tjarnir, sem hafa orðið til hinnar beztu skemmtunar fyrir börn að sulla
í. Hins vegar munu mæðurnar ekki vera eins ánægðar, þegar litlu ang.
arnir þeirra koma heim rennvotir í fæturna og forugir upp yfir höfuð.
Sundmót Knattspymufélags Reykj^-
víkur veröur í Síindkakinni í kvöld -
Sundmót KR verður háð í Sundhöllinni í kvöld og hefst kl.
3,30. Keppt verður í níu greinum og í tveimur þeirra verður
keppt um fagra farandbikara.
Greinarnar, sem keppt er í, eru
200 m. skriðsund, og má búast við
að það verði ein skemmtilegasta
grein mótsins. Þar eru meðal kepp-
enda Helgi Sigurðsson, Pétur Krist
jánsson og Guðmundur Gíslason.
í 100 m. skriðsundi kvenna er
keppt um Flugfreyjubikarinn, og
er Ágústa Þorsteinsdóttir öruggur
sigurvegari í þeirri grein.
í 100 m. bringusundi karla er
keppt um Siudrabikarinn, en sex
keppendur eru í þeirri grein. í 50
m. baksundi mætast enn þeir Guð-
mundur Gíslason og Ólafur Guð-
mundsson, en keppni milli þeirra
hefir verið afar tvísýn að undan-
förnu. Aðrar greinar eru 100 m.
bringusund drengja, 50 m. baksund
kvenna, 50 m. bringusund telpna
og 50 m. skriðsund drengja.
Hæfileikar
kommnar
Konur eru yfirleitt álitnar mjög
rólyndar, en sannleikurinn er sá,
að konur hafa alveg sams konar til
finningar og karlmenn, þær þurfa
að fá tækifæri til að þroska hæfi-
leika sína, engu síður en bræður
þeirra. Þeim er alveg eins erfitt
að þola mikla þvingun og karl-
mönnum og það er þröngsýni af
þeim meðbræðrum þeirra, sem bet
ur eru settir, að segja, að þær eigi
eingöngu að snúa sér að því að
prjóna sokka, leika á slaghörpu og
sauma út handtöskur.
Cliarlotte Bronte
(Jane Eyre)