Tíminn - 04.04.1957, Blaðsíða 12

Tíminn - 04.04.1957, Blaðsíða 12
VeBrið I dag: ' r Norðan stinningskaldi, skúrir. Finuntudagnr 4, anríl 1957. Hitinn kl. 18: ^ Hitinn kl. 18: Reykjavík 8 stig, Akureyri 8, Kaupmannahöfn 10, London 10. Indverski efnafræðingiirion dr. M. S. Patel: „Saltverksmiðja í Krisuvík getur fullnægt saltþörf Islendinga” Tæknileginn erfiðleikum hefir veriU rutt úr vegi aS mestu en rannsóknir á stofnun og starfrækslu salt- verksmiíju hafa staíií yfir í nokkur ár Undanfarna daga hefir dvalizt hér á landi indverskur efna- verkfræðingur, dr. M. S. Patel að nafni. Hann hefir á síðari árum komið nokkrum sinnum hingað til lands og fylgzt með j rannsóknum þeim, er Raforkumálaskrifstofan hefir látið fara | fram á því, hvort hér sé unnt að hefja saltvinnslu í stórum stíl Dr. Patel hefir lengi haft áhuga fyrir íslandi og íslenzkum málefnum. Hann lét þá skoðun í ljósi við blaðamann frá Tím- j anum, að tæknilegir erfiðleikar á stofnun saltverksmiðju hér- lendis væru senn úr sögunni og að íslendingar gætu innan fárra ára framleitt allt það salt, sem notað er hér við fisk-’ framleiðsluna. Dr. M. S. Patel stundaði efna verkfræðinám í Bandaríkjunum og kynntist þá dr Richard Beck, sem sagði honum margt frá ís- landi að fornu og nýju. — Hvað var það helzt, sem Jtichard Beek sagði yður frá ís- landi? — Hann talaði um fornsögurnar íslenzku, sagði frá hetjum og frægðarverkum og höfuðið á hon um var fullt af hugmyndum og framtíðairáætlumlm varðandi ís land. Ég aftur á móti sagði honum margt úr sögu Indverja og við ræddum þetta fram og aftur. Síð an hefir mér alltaf fundizt margt sameiginlegt með fornsögum þess ara tveggja óskyldu þjóða. — Hvenær komuð þér fyrst hingað til lands? — Það var árið 1948. Ætlaði i að koma hingað að loknu skóla- námi árið 1926 en þá var engin | skipsferð hingað til lands beint j frá Ameríku. Eftir slríðið frétti: ég af flugferðum hingað. Þá ákvað . ég að komast hingað og sjá hita- j veituna. Hér tók Hjálmar Blöndal á móti mér og sýndi mér margt: inerkilegt. Ég tók að glugga í verzlunarskýrslum íslendinga og sá þá hve mikið salt þið flytjið inn. Þá vaknaði spurningin: Er ekki liægt að framleiða salt úr sjó með aðstoð jarðhitans? huganir á þessu Ég hóf þá at- en erfiðleikar sýndust þá óyfirstíganlegir. Eftir að ég kom aftur til Banda ríkjanna ræddi ég þessi mál við ýmsa þekkta verkfræðinga og eft- ir því sem tímar hafa liðið, hefir tæknilegum erfiðleikum á fram- kvæmd þessa verks verið rutt úr vegi. Þið eigið hér mjög góða menn á verkfræðisviðinu. Til dæm is Baidur Líndal efnaverkfræðing, sem unnið hefir að rannsókn þessa máls að undanförnu. í Krisuvík. — Hvaða staður er líklegastur fyrir saltverksmiðju? — Ein og málin standa í dag er það Krisuvík. Þar þarf að leggja tíu kílómetra langa leiðslu sem sjónum væri dælt eftir upp í hverasvæðið og þar mundi verk smiðjan standa. Eins og ég sagði áðan eru enn þá nokkur tæknileg vandamál ó- leyst í sambandi við byggingu þessarar verksmiðju. Ég fer áleið is til Bandaríkjanna í kvöld en kem hingað til lands að sex vik- um liðnum og vonast þá til að hafa ýmislegt nýtt fram að færa. Þessi mál hafa aðallega þokazt fram á við síðan 1954. Ég vil taka það fram, að afskipti mín (Framhald á 2. síðu). SmfáfíliiMjáinsveitin efnir til operu- tónleika í ÞjóSIeikhúsinu í kvöld •i Á efnispkránni ern létt og vinsæl lög, sem eru almenningi kirnn í kvöld kl. 8,30 efnir Sinfóníuhljómsveitin til óperutónleika í Þjóðleikhúsinu og verða viðfangsefnin flest úr óperum, sem eru ísienzkum almenningi kunnar. Paul Pamplicher stjórnar S’R’öníuhlUmsveitmni, en söngvarar eru þau Hanna Bjarna- dóttir og Guðmundur Jónsson. löngu þjóðkunnur og afar vinsæll Forráðamenn Sinfóníuhljómsveit arinnar áttu í gær tal við blaða- inenn um þessa hljómleika. Sögðu beir að efnisskráin hefði verið val in með það fyrir augum að serr. flestir gætu notið þess sem þarna verður leikið. Þetta væri létt exnis- skrá, lög sem flestir kynnu eða könnuðust við svo sem Söngur nautabanans úr óperunni Carmen og aría úr Rakaranum í Sevilla. Paul Pampiechler hefir áður stjórnað Sinfóníuhljómsveitinni og sýndi þá að hann er mjög hæfur stjórnandi. Hanna Bjarnadóttir kemur þarn í fyrsta sinn fram með Sinfórlu-| hljómsveitinni, en hún hefir um | margra ára skeið stundað söngnám | í Hollywood. Eftir heimkomuna! - kom hún fram í Töfraflautunni þar | sem hún söng hlutverk Papagenu. Guðmundur Jónsson er fyrir söngvari, sem getið hefir sér vax- andi orðstír með hverju viðfangs- efni. Á efnisskránni eru þessi lög: Sigurmars úr óperunni Aida eftir Verdi. Ballade eftir Herbert Hrie- bersehsck. Aría úr Madame Butt- erfly, Aría úr Grímudansleiknum eftir Verdi. Fjórar vatnsmyndir úr óperunni Peter Grimes eftir Britt I en. Forleikur úr óperunni Donna Diana eftir Reznicek, Aría úr Rak- aranum frá Sevilla eftir Rossini, Söngur nautabanans úr Carmen eftir Bizet. Þá verður fluttur hluti ; 3. þáttar óperunnar Rigóletto eftir Verdi og vals úr Rósariddaranum eftir Strauss. Hljómleikarnir hefj- ast kl. 8,30. Brezk, frönsk, fcandarísk ©g um sinni Silfurþjófnaður framinn um háfc jarian dag í íbiið hér í bænum í fyrradag var stolið nokkru af silfurmunum hér í bænum. Ennfremur var stolið armbandsúri og skartgripum, þar á meðal armbandi. Nemur verðmæti þess, sem stolið var, að líkindum einum fimm þúsund krónum. Gripir þessir voru í einkaeign. Voru þeir geymdir í kommóðu í herbergi í rishæð Aðalstrætis 12. Er hér um bíræfinn þjófnað að ræða, enda farið inn um hábjartan dag inn í íbúð. Silfrið var tólf skeiðar og tólf hnífar og er það eitt út af fyrir sig mikið verðmæti. Ættu þeir, sem kynnu að verða varir við þetta, ef þeim verður boðið silfur til kaups, að gera rannsóknarlögreglunni að- vart. Póstur og sími tefla innbyrÖis í fyrrakvöld fór fram skák- keppni milli starfsmanna símans annars vegar og starfsmanna póst þjónustunnar hins vegar. Teflt var á tuttugu borðum. Leikar fóru þannig, að símamenn unnu með fjórtán og hálfum vinning móti fimm og hálfum. LONDON—NTB 3. apríl: Brezk ir skipaeigendur hafa ákveðið að láta ekki skip sín sigla um Sú- ez-skurð fyrr en Nasser forseti hefir fallizt á þau 6 grundvallar atrið, sem öryggisráð S. þ. hefir lagt fram sem undirstöðu lausn ar Súez-deilunnar. Haft er eftir góðum heimild um, að bandarískir, franskir og dansHir skipaeigendur hyggist gera hið sama . kröfu um að hætta máiaferlunum LONDON—NTB 3. apríl:: Dómar inn í morðmálinu gegn Adams lækni, sem nú er sótt og varið í Old Bailey í London, hafnaði í dag kröfu frá verjanda hins á- kærða v— að málaterlunum skyldi hætt, þar sem ákæruvald ið hefði ekki getað aflað nægra sannanna til að halda málaferl unurn áfram. Verjandi Adams Geoffrey Lawrence, fullyrti fyr ir réttinum í dag, að mikils ó- samræmis gætti í vtnaleiðslun um gegn hinum ákærða. Verjand inn mun nú hefja vitnaleiðslur til varnar hinum ákærða. Ný gerð Ferguson dráttarvéla með tvöföldu drifi að koma á markað Hópurinn sem sótti námskeið hjá Massey- Harris fyrirtækinu komnir heim 1 fyrradag komu hingað til lands menn þeir, er fóru utan til Englands fyrir rúmum hálfum mánuði að kynna sér með- ferð Ferguson dráttarvéla hjá Massey-Harris fyrirtækinu í Bretlandi. Blaðið hafði snöggvast tal af Hirti Eldjárn í gær og lét hann hið bezta yfir förinni. Kvað hann ferðina hafa orðið að miklu gagni fyrir þátttakendur, en einmitt um þessar mundir eru nokkrar breytingar að verða á gerð Ferguson- vélanna, sem utanfararnir kynntu sér. Myndin er tekin af þátitakendum héðan meðan námskeiðið stóð yfir ytra. Hjörtur sagði, að framleiðslu eldri gerðar Fergusonvélanna væri nú hætt og ný gerð Fergusonvéla að koma á markað. í því sambandi gat Runólfur Sæmundsson, skrif- stofustjóri hjá Dráttarvélum h.f. þess, að vélar af nýju gerðinni væru væntanlegar hingað í næsta mánuði. Þátttakendum kynntar nýjungar. Námskeiðið beindist einkum að því, ,að kynna hópnum héðan nýj- ungar þær, sem eru í framleiðslu nýju vélarinnar. Þessar vélar eru kraftmeiri, en eyða þó ekki meira benzíni. Þá er það helzta nýjung- in, að þær eru með tvískiptu drifi. Tvískipting drifsins veldur því, að þær geta unnið mikið hægar en áð- ur, eða farið hægast hálfan kíló- metra á klukkustund. Hámarks- hraði vélanna er sá sami og hann var. Þá er vökvakerfi vélarinnar sterkara, fjölþættara og meira sjálfyrrkt á nýju vélunum. Hjörtur sag^i,' jáð;i þeim hefði verið boðið að ^ci.ða,;:iær^smiðju, þar sera vél- ariS'ÆiHiijframleiddar, og horfðu þefr á’fullbúnar dráttarvélar renna þa^áfjfæribandi aðra hverja mín- útu-ieða þrjátíu og þrjár vélar á kíukkustund. Fergusori á þriðja hverjum bæ. Mennirnir héðan nutu góðrar og , ánægjulegrar fyrirgreiðslu á nám- *fee;ðinu í Stoneleigh við Coventry. (Framhald á 2. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.