Tíminn - 18.05.1957, Síða 1
Fylgist með tímanum og lesiB
TÍMANN. Áskriftarsímar: 2323
og 81300. Tíminn flytur mest og
Gölbreyttast almennt lesefni.
Laugardagur 18. maí 1957.
Inni í blaðinu í dag: jfHM
Kvittanir, bls. 5. ''1*1
Afvopnunartillögur, bls. 6. J
Útvarpið, bls. 7. 3
110. blað.
Blaðamenn í boðsför Flugfélags íslands
í gærmorgun lögðu 10 blaðamenn af stað í boðsferð Flugfélags íslands
til Kaupmannahafnar, Hamborgar og Lundúna, og tekur ferðin fimm daga.
Er ferð þessi farin í tiiefni af komu hinna nýju flugvéta félagsins. Mynd
þessi var tekin á flugvellinum í gærmorgun, er iagt var af stað, og sjást
talið frá vinstri: Auðunn Guðmundsson, Jón A. Guðmundsson, Jónas Páls-
son, Jón Bjarnason, Pétur Thomsen, Agnar Bogason, Gísli Ástþórsson,
Margrét Indriðadóttir, Þorbjörn Guðmundsson, Svavar Hjaltested og
Sveinn Sæmundssoní blaðafulltrúi Flugfélags íslands. (Ljósm.: JHTVl).
Hardd Stassem
Horfur í afvopnunar-
málum bjartari en fyrr
Fundum afvopunnarnefndarinnar frestaU í 10 daga
London, 17. maí. — Harold Stassen, aðalfulltrúi Bandaríkj-
anna á fundi afvopnunarnefndar S.Þ. í London, hefir látið
svo ummælt, að stórveldin fimm væru nú nær því að ná sam-
komulagi um fyrstu skrefin til afvopnunar en þegar hann
gaf Eisenhower Bandaríkjaforseta síðustu skýrslu sína um
gang málanna.
Viðræðum hefir nú verið frestað
í 10 daga til að gefa fulltrúunum
pægan tíma til að hafa samband
við ríkisstjórnir landa sinna um
málið.
Stassen skýrði frá þessu í dag, er ;
hann kom til Bandaríkjanna til að
Frv. um mennmgar-
sjóð og vísindasjóð
til 1. umr.
Frumvörp ríkisstjórnarinnar um
eflingu Menningarsjóðs, stofnun
vísindasjóðs, aukinn stuðning við
byggingu félagsheimila og fleira
var til 1. umr. í e. d. í gær. Gylfi
Þ. Gíslason, menntamálaráðherra
fylgdi frumvörpunum úr hlaði með
ýtarlegum ræðum.
Franski jafnaðar-
mannaflokkurinn
styður stjórnka
Miðstjórn franska jafnaðar-
mannaflokksins birti í dag yfir
lýsingu þess efnis, að flokkur
inn styddi þá kröfu stjórnarinnar
að skjóta Súezmálinu til öryggis
ráðsins.
ræða við stjórn sína um árangur
fundanna.
EFTIRLIT ÚR LOFTI
Hann sagði, að framkvæmd
fyrstu skrefa afvopnunarinnar yrði
m. a. fólgin í eftirliti með herbún-
aði, fjölda hermanna og útgjöldum
til hernaðarþarfa.
Stassen skýrði einnig frá því, að
mikið hefði verið rætt um eftirlit
úr lofti, m. a. tillögu Eisenhowers
um slíkt eftirlit með hernaðarvið-
búnaði Bandaríkjamanna og Rússa.
Harold Stassen
Þrjú stjórnarfrumvörp um bankamál lögð fram í gær:
Aðstaða seðlabankans styrkt
til að móta stefnu peningamála
Dr. Kristinn Guð-
Útvegsbankinn verði hrein ríkisstofnun
í gær voru lögð fram á Alþingi þrjú stjórnarfrumvörp um
bankamál. Hið fyrsta er um breytingu á Landsbankalögunum
í því skyni að gera seðlabankann miklum mun sjálfstæðari
og þannig færari um að stuðla að jafnvægi í peningamálum.
Annað frv. var um að gera Útvegsbankann að algerri ríkis-
stofnur. og hið þriðja um skipulagsbreytingar á Framkvæmda-
bankanum 1 samræmi við aðrar breytingar á bankakerfinu.
mundsson af hendir
Bretadrottningu
trúnaðarbréf
Dr. Kristinn Guðmundsson,
sendiherra afhenti Elísabetu II.
Bretadrottningu trúnaðarbréf sitt
sem ambassador íslands á Bret-
landi við hátíðlega athöfn í
Buekinghamhöll í gær.
Annað skipið var á leiðinni til
Indlands en hitt var á heimleið.
FYRSTU BREZKU SKIPIN
Þetta eru fyrstu brezku skipin,
sem um skurðinn fara eftir að
brezka stjórnin tilkynnti, að hún
myndi ekki setja sig á móti ferð-
um brezkra skipa um skurðinn, þó
að framtíðarlausn hefði ekki náðst
um rekstur hans.
Skipaferðir Breta um skurðinn
munu auka umferðina um rúman
þriðjung og þar með tekjur Egypta
að miklum mun.
Erlendur áburður
til Þorlákshafnar
Þegar núverandi ríkisstjórn tók
við völdum lýsti hún yfir því, að
hún mundi beita sér fyrir breyt
ingum á bankalöggjöf landsins,
m. a. þeirri, að seðlabankinn yrði
settur undir sérstaka stjórn. Aðal
Kjarnorkuknúnar
járnbrautarlestir
smíðaðar í USA?
New York—17. maí: Skýrt hefir
verið frá því hér, að það hafi
verið tekið til alvarlegrar at-
hugunar af bandarískum vísinda
mönnuin, hvort ekki væri mögu
legt að smíða járnbraut, knúna
kjarnorku. Enn mun ekkert hafa
komið fram, sem mælir á móti
því, að það verði mögulegt inn
an skamins.
tilgangur þeirrar breytingar er sá
að greina starfsemi seðlabankans
meira en verið hefir frá starfsemi
viðskiptabankanna og gera um leiS
aðstöðu hinna einstöku ríkisbanka
sem jafnasta gagnvart seðlabankan
um. Frumvörp þessi eru flutt í
samræmi við þessa stefnuyfirlýg
ingu.
I
Sérstök stjórn seðlabankans.
í frumvarpinu um Landsbanka
íslands segir, að bankinn skuli
skiptast í tvær aðaldeildir, Seðla
banka íslands og Viðskiptabanka
og lýtur hvor um sig sérstakri
stjórn. Falla veðdeild og stofnlána
deild sjávarútvegsins undir seðla
bankann en sparisjóðsdeild undir
viðskiptabankann. Er varasjóðum
reikningshaldi og eignum haldið
algerlega aðskildum.
!
Sérstök stjórn er sett yfir seðla
bankann og hann gerður sjáif
stæður að því leyti. Aðalbanka
stjóri skal skipaður af forseta
íslands að fengnum tillögum
bankaráðs. Bankastjóri er ráð
inn af bankaráði. Stjórn seðla
bankans skipa fimm menn, banka
stjórar hans og þrír menn skip
aðir af ríkisstjórninni eftir til
lögum bankaráðs til f jögurra ára
í senn. Landsbankanefndin er
lögð niður, en Alþingi kýs banka
ráð. Framkvæmdastjórn við-
skiptabankans verði í höndum
Framh. á 2. síðu.
(Frá utanríkisráðuneytinu.)
Brezk skip sigldu í gær um Súez og
greiddu Egyptum gjöldin í pundum
Skipafer <Sir Breta munu auka umferSina um þriSjung
London, 17. maí. — 2 brezk skip fóru í dag um Súez-skurð
og greiddu skipstjórar þeirra hinum egypzku yfirvöldum
siglingagjöldin í brezkum sterlingspundum.
Þorlákshöfn í gær. — Að undan-
förnu hefir verið fluttur hingað
mikill erlendur áburður, eða alls
um 3 þús lestir. Eru það sam
vinnuskipin Arnarfell og Hvassa
fell sem flutt hafa áburðinn hing
að frá útlöndum. Er hann settur
hér í vörugeymslur SÍS og sækja
bændur af Suðurlandsundirlend-
inu hann hingað, og er það mik
ill munur miðað við að þurfa að
flytja hann frá Reykjavík. Er
þetta allur erlendur áburður, sem
Suðurlandsundirlendið fær í ár.
Leigubííastöð opnuð
á Akranesi
í dag verður opnuð fölksbifreiða
stöð á Akranesi. Þetta er fyrsta
leigubílastöðin, sem þar tekur til
starfa, en fram til þessa hefir þar '
aðeins verið vörubílastöð. Fimmtán j
leigubifreiðar eru skráðar á stöð- j
ina, sem nefnist Fólksbílastöð
Akraness. Ilún er til húsa að Þjóð- j
vegi 3, en síminn er 550. Fram-1
kvæmdastjóri stöðvarinnar er Ing-!
ólfur Sigurðsson. Mikil þægindi j
eru að stofnun stöðvarinnar, þar j
sem nú verður auðveldara að ná
í leigubifreið. Bifreiðar stöðvarinn
ar er að sjálfsögðu hægt að fá
leigðar til lengri og skemmri ferða-
laga. GB.
Stjórnarkreppan í Danmörku:
Jafnaðarmenn og radíkalir andvígir
stjórnarmyndun íhaldsmanna
og vinstri manna
Lausn á stjórnarkreppunni fæst v-arla fyrr en í lok
næstu vlku eftir heimsókn Bretadrottningar
/
Kaupmannahöfn, 17. maí. —Leiðtogar dönsku stjórnmála*
flokkanna hafa verið á stöðugum fundarhöldum í dag, bæðí
á sameiginlegum fundum og
leiðtoga einstakra flokka.
Þingflokkur radíkala flokksins
hefir gert ályktun þess efnis, að
hann telji ekki æskilegt, að mvnd-
uð verði stjórn, skipuð vinstri
mönnum og hægri mönnum ein-
um, en radikalir muni þó sýna
slíkri stjórn þegnskap meðan hún
geri ekkert, sem brjóti á móti
stefnumálum flokksins.
Erfið vandamál.
Viðfangsefni væntanlegrar stjórn
ar séu alvarleg, þar sem skjót
lausn efnahagsniálanna sé hin
nauðsynlegasta. Miðstjórn flokks-
sérstökum lokuðum fundum
ins hefir verið boðuð til fundar á
mánudaginn.
Þingflokkur jafnaðarmanna hef-
ir einnig lýst yfir því, að ekki sé
heppilegt, að mynduð verði stjórn
vinstri manna og hægri manna
einna.
Ekki er talið líklegt, að nokkuar
lausn náist á dönsku etjórnarkrepp
unni fyrr en í lok næstu viku. Er
það sökum þess, að Elísabet Breta
drottning kemur í opinbera heim-
sókn til Danmerkur á þriðjudag-
inn og dvelst í Kaupmannahöfn I
þrjá daga.