Tíminn - 18.05.1957, Blaðsíða 4
T f MIN N, langardaginn 18. maí 1957.
^ I ^
Fyrir nokkrum dögum
hiaut hinn bandaríski öld-
ungadsiidarþingm. Joseph
A'iacCarthy síðustu blessun
og þjánustu sjúkrahúsprests-
ihs í Bethesda sem sannur
sonur hinnar kaþólsku trúar.
Hann hefir lengi þjáðst af
lifrarsjúkdómi, sem að lok-
urrs varö honum að fjörtjóni.
Fyrrverandi starfsbræður
hans í Bandaríkjaþingi minnt
ust hans með virðingu og ein
lægni sem góðs félaga, sem
var glaöur í vinahóp, en harð
ur í horn að taka er hann
vildi þsð við hafa.
Jafnvel hatrömmustu óvinir
Jians í blaðamannastétt, sem voru
margir, virtust harma andlát hans.
Blöð í Manilla og Madrid skrifuðu
um hann lofgreinar. London og
París létu sér fátt um finnast, en
engar harmatölur heyrðkst frá
Moskva. Truman sagði, að sér
fyndist betta „mjög leitt“, en Eis-
enhower forseti sendi „einlægar
samúðaróskir“ til ekkju hins látna
öklungadeildarþingmanns og heims
fræga stjórnmálamanns. Mac
Carthy trúði eitt sinn vini sínum
íy rir því, að hann vonaði það íast-
lega, að er hann létist, stæði dýrð-
erljómi um minningu hans, er
lengi liCði. Hætt er við, að Mac-
Cárthy liafi verið á annarri skoð-
un síðustu 12 mánuði ævi sinnar.
Þráði vöSd og metorð
Enginn vafi leikur á því, að Mac
Carthy var metorðagjarn maður
Jheð afbrigðum og þráði það heit-
ast að ná völdum sem spámaður
lýðsins og leiðtogi þjóðarinnar. Sá
'draumur rættist aldrei sem kunn-
ugt er.
Menn eru almennt á þeirri
skoðuti, að hann hafi rutt sér
braut of laugt og með ívið mikl-
um hávaða til þess að vel gæti
farið. Er hann lézt var liann
gleymdur og yfirgefinn niaður og
lelja kuanugir að hin sáru von-
brigði hafi átt mikinn þátt í því
að lei'ða hann til dauða.
Var þekktur hnefaleikari
Joe MacCarthy hóf gönguna upp
rtietoröastigann árið 1946 er hann
rtáði kosningu sem öldungadeild-
aiþingmaður. í menntaskóla var
hann þekktur hnefaleikari í þunga-
vigt og var ætíð borinn á gullstóli
að keppni lokinni.
Ekki leizt honum á ýmsa starfs-
bræður sín? í Washington er hann
kom til þings í fyrsta sinn. Þeir
voru nefnilega sumir þeirri nátt-
úru gæddir að sætta sig við mála-
miðiun lieldur en að berjast af
hörku íil hins ýtrasta til sigurs,
en bíða ósigur að öðrum kosti, on
það hafði MacCarthy lært í hnefa-
leikunum og hélt sig við þá að-
ÖldungadeiMarmaðurinn MacCarthy
var niSurbrotinn maður er hann lézt
— Barátta hans gegn „kommónist-
umu var aSeins ímynduS leiS upp í
æSstu valdastéla — Hann gekk o
osigur
(G
ferð í þinginu. Næstu 3 árin var
heldur hljótt um MacCarthy í þing
inu og ekki var hann kenndur við
neina merkilega löggjöf frá þeim
tíma.
Teningnum varpað
En árið 1950 kom tækifærið
mikla. Þrálátur orðrómur gekk um
gjörvöll Bandaríkin þess efnis, að
h'inn magnaði njósnahringur al-
þjóðakommúnismans hefði iengt
sínar fingralöngu krumlur tii
Bandaríkjanna og hreiðrað vendi-
lega um sig. Þjóðin stóð á öndinni
og vissi ekki sitt rjúkandi ráð sr
málalok Hiss-réttarhaldanna frægu
voru kunngcrð.
I Hér var tækifærið mikla iil að
hafa áhrif á almenningsálitið, til
i þess að ná landi í ölduróti stjórn
máianna, það skipti ekki máli
á hvers kostnað.
Teningnum var varpað. A Lin-
coln-deginum boðaði MacCarthy
til mikillar samkomu í Wheeling
Va., veifaði plöggum sínum og
hrópaði af lífs- og sálarkröftum:
Kommúnistískir stjórnar-
starfsmenn
„Hérna, liérna hef é.g í hönd-
tun mínum lista yfir fjöimarga
starfsmenn stjórnarinnar, sein
Dean Acheson utanríkisráðherra
* veit, að eru meðlimir bandaríska
konimúnistaflokksins.“
Blöðin tóku málið óstinnt upp
og kröfðust þess að MacCarthy
yrði leiddur fyrir dómstól þar sem
hartn yrði krafinn sönnunargagna,
en lýstur ómerkur að öðrum kosti.
En MacCarthy hélt áfram; hann
stimplaði Truman-stjórnina sem
„föðurlandssvikara" og margir
fleiri fengu sinn skerf. Marshall
kallaði hann falskan „lygara“ og
jafnvel Eisenhower var ekki
„hlíft“. MacCarthy safnaði í kring-
um sig hóp af samstarfsmönnum;
bar þar hæst lögfræðinginn Roy
! Cohn, sem frægur varð um gjörv-
öll Bandaríkin á meðan á réttar-
i höldunum stóð, sem öllum var
sjónvarpað.
MacCarthy, elgin-
kona 6g nýfætt
barn þeirra.
FerSalög tii Evrépu
Annar félagi hans og skjólstæð:
| ingur var David nokkur Schine,
milljónamæringur og hóteleigandi.
Þeir félagar tóku sér á hendur
margar ferðir til Evrópu til að
„kanna“ framferði starfsmarina
. bandaríska utanríkisráðuneytisins.
' Urðu þeir félagar iila þokkaðir í
þes -:u ' sjálfkjörna eftirlitsmanna-
starfi og varð það til að minnka
veg þeirra og álit.
Urn- tíma var svo komið, að ef
! einhver dirfðist að gagnrýna
gerðir MacCarthys var hann af
j féliigum hans annað hvort stimpl-
aður kommúnisti eða fífl.
I
Þolinmæðin á þrotum
MaeCarthy gagnrýndi nú hvern
ráðamanninn á eftir öðrum, jafnt
Dulles, Bohlen o.fl. og sakaði um
undanlátssemi við kommúnista. En
ekki leið á löngu þar til þolinmæði
þingmanna og fjölmargra fleiri var
á þrotum. Bandarísk þingnefnd tók
máliö til gaumgæfilegrar athugun-
; ar, ekki sízt þar sem MacCarthy
: hafði nokkru áður borið hinar
; þyngstu sakir á bandaríska her-
! málaráðuneytið. MacCarthy og fé-
lögum hans var stefnt fyrir r.efnd-
ina, en í nenni áttu sæti ýmsir
frægir lögfræðingar, og brátt. tók
að halla undan fæti.
! Kjarkurinn minnkaði
Yfirheyrslurnar stóðu lengi ög
. er líða tók á þær virt ist mesti
I kjarkurinn í MacCarthy og fólög-
1 um hans vera fokinn út í veður og
vind. Hann virtist taugaóstyrkur,
borðaði lítið og rödd hans skalf.
Málalok urðu þau, að MacCar-
thy var víttur fyrir framferði sitt.
Margir fyrri samstarfsmenn hans
virtu liann nú að vettugi og vinir
hans tóku eftir því, að hann var
niðurbrotinn maður á sál og lík-
ama. Hann kvæntist nokkrn síð-
ar bráðmyndarlegri konu og' eft-
ir það sást hann sjaldan í þing-
inu. Hann sagði vinuin sínum frá
því, að nú ætlaði hann að helga
sig konu sinni og nýfæddu barni
Frá hinum viðburðaríku
réttarhöidum bandarísku
þingnefndarinnar. Talið frá
vinstri: David Schine,
MacCarthy og hinn síhvísl-
andi lögfræoingur Roy
Cohn.
óður árangur Vilbjálms í langstökki
en dauf mát FÍRR að öðru leyti
Vormól FrjálsíþróttaráSs Reykjavíkur var háð á íþrótta-
vellinum s. 1. fimmtudagskvöld. Mótið í heild var mjög
dauit, þátttakendur fáir í hverri grein, og nokkur brögð að
því að skráðir keppendur mættu ekki til leiks. Keppt var í
átta groinum, og var árangur í flestum þeirra heldur lakur.
Eti þó voru ljósir punktar innan
um. Vilhjálmur Einarsson stökk
yfir sjö metra í langstökki, 7,05
meíra, og átti auk þess lengri stökk
ógild. Er þetta jafnt bezta árangri,
sem Vilhjálmur hefir áður náð í
þessari grein, og má því telja full-
víst, að honum takist að stökkva
mun lengra síðar í sumar. Vil-
hjálmur er nú mun léttari og
sneggri en hann hefir áður sézt hér
á íþróttavellinum.
í 1500 m. hlaupi unglinga náði
Kristleifur Guðbjörnsson ágætum
árangri, alveg keppnislaust, 4:07,4
mín. Þórir Þorsteinsson sigraði
bæði í 100 m. hlaupi og 400 m.
hlaupi en árangur var ekki sér-
stakur. Mótvindur var í 100 m.
hlaupinu.
Þorsteinn Löve sigraði með
nokkrum yfirburðum í kringlu-
kasti, kastaði lengst 47,29 m. Sama
er að segja um Skúla Thorarensen
í kúluvarpi, en þar var keppni hins
vegar minni. Áhorfendur höfðu
gaman að því að sjá Örn Clausen
í keppni aftur, en hann var annar
í kúluvarpi og fjórði í kringlu-
kasti. Árangur hans í kúluvarpinu,
13,40 m., er lítið lakari en hann
hafði áður náð bezt. í stangar-
stökki náði Valbjörn sér ekki á
strik, en hann virðist í öldudal
sem stendur.
Helztu úrslit urðu þessi:
100 m. hlaup.
1. Þórir Þorsteinsson, Á. 11,5 sek.
2. Guðm. Vilhjálmss., ÍR 11,6 sek.
3. Daníel Halldórss., ÍR 11,8 sek.
Langstökk.
1. Vilhj. Einarsson, ÍR 7,05 m.
2. Valbj. Þorláksson, ÍR 6,31 m.
3. Pétur Rögnvaldsson KR 6,09 m.
Kúluvarp.
1. Skúli Thorarensen, ÍR 15,19 m.
2. Örn Clausen, ÍR __ 13,40 m.
3. Eiður Gunnarsson, Á. 12,96 m.
400 m. hlaup.
1. Þórir Þorsteinss., Á. 51,0 sek.
2. Svavar Markússon KR 51,6 sek.
3. Guðf. Sigurfinnss., ÍBK 56,5 sek.
3000 m. hlaup.
1. Sig. Guðnason ÍR 9:08,4 mín.
2. Hafst. Sveinss., Self. 9:34,2 mín.
Stangarstökk.
1. Valbj. Þorláksson, ÍR 4.00 m.
2. Heiðar Georgsson, ÍR 3,55 m.
3. Valgarður Sigurðsson ÍR 3.55 m.
þeirra hjóna. Sjúkleikamerki fóru
nú að sjást á MacCarthy og hann
var tíður gestur í Bethesda-
sjúkrahúsinu. Joseph MacCarthy
var sjúkur maður.
Til Arizona
Hann sagði eitt sinn við vin
sinn, að hann ætlaði nú að draga
sig algjörlega út úr stjórnmálum,
flytja suður í Arizona og kaupa
þar lítinn búgarð og lifa þrr til
æviloka með konu sinni og barni.
Hann kvaðst jafnvel vona, að hann
félli í næstu kosningum.
MacCarthy varS ekki að
ósk sinni. Sjúkdómurinn í
lifrinni varð alvarlegri með
hverjum deginum. Enn var
hann fluttur i Bethesda-
sjúkrehúsið til rannsóknar og
uppskurðar, en það varð í
síðasta sinn. Hann lézt þar í
síðustu viku.
Vilhjálmur Einarsson
Kringlukast.
1. Þorsteinn Löve, KR 47,29 m.
2 Friðrik Guðmundss. KR 45,69 m.
3 Tómas Einarsson, Á. 40,49 m.
Englendingar
komast í úrslit
Eftir sigur Englendinga í lands
ieiknum í knattspyrnu við Dani
sl. miðvikudag hafa hinir fyrr
nefndu tryggt sér rétt til að taka
þátt í úrslitakeppni um heims-
meistaratitilinn í knattspyrnu, er
háð verður í Svíþjóð næsta sumar.
Hafa Englendingar sigrað í sín
um riðli, unnu Dani í báðum leikj
unum og eins fra. Danir voru ó
heppnir í leiknum á miðvikudag
inn, þar sem einn leikmaður
þeirra meiddist það mikið, að
hann varð að yfirgefa völlinn
nokkrar mínútur. Á því tímabili
skoruðu Englendingar tvö mörk
og tryggðu sér sigurinn, en Danir
skoruðu fyrsta markið í leiknum,
sem lauk 4:1, og í fyrri hálfleik
var staðan 1:1.
Flokkakeppni
í hraðskák
Mánudagskvöld, 20. maí, verður
háð flokkakeppni í hraðskák. í
keppni þessari taka þátt tíu fjögra
manna sveitir.
Tefld verður tvöföld umferð —
tvær skákir á tíu mínútna um
hugsunartíma. Flokksfyrirliðar og
þar af leiðandi 1. borðs menn
verða:
1. Arinbjörn Guðmundsson.
2. Friðrik Ólafsson.
3. Guðmundur Ágústsson.
5. Ingi R. Jóhannsson.
4. Guðmundur S. Guðmundsson.
6. Jón Þorsteinsson.
7. Kári Sólmundarson.
8. Lárus Johnsen.
9. Sveinn Kristinsson.
10. Þórir Ólafsson.
Ofangreindir keppendur munu
aðeins keppa innbyrðis og má því
búast við, að keppnin verði bæði
hörð og spennandi.
Keppnin hefst kl. 20.00 í Þórs
kaffi og verður lokið þá um kvöld
ið. J