Tíminn - 18.05.1957, Síða 12
Veðrið í dag:
Norðaustan og austan kaldi skýjað
með köflum.
Hitinn kl. 18:
Reykjavík 9 stig, Akureyri 3, Par
ís 16 Kaupmannahöfn 16, New
York 20.
Nýir afgreiðsluhættir við flugvélar
Á myndinni er verið að setja
"clclsneyti á aðra Viscountvél Flug-
tfélags íslands. Fram til þess hafa
allar flugvélar í eigu íslendinga
•verið afgreiddar þannig, að slöng-
ur frá bifreiðum hafa verið dregn-
ar upp á vængi þeirra og siðan
dælt niður í geymana. Nýju Vis-
vount vélarnar eru aftur á móti út
Mnar þannig, að þær eru fylltar
neðan frá. Slöngurnar eru tengdar
undir vængjunum og dælt upp í
geymana með þrýstingi. Síðan
Flugfélag íslands tók til starfa hef
ir Shell og síðan oliufélagið Skelj
ungur annazt alla afgreiðslu elds-
neytis til véla félagsins. Á síðast-
liðnu sumri eignaðist Skeljungur
nýja afgreiðslubifreið, sem þannig
er útbúin, að hún getur afgreitt
flug\'élar undir væng, sem kallað
er. Bifreið þessi hefir aftanívagn
og getur afgreitt viðstöðulaust í
einu rúma tíu þúsund lítra. Meðal
áfyllingar á Viscount vélar Flug-
félagsins í utanlandsferðum munu
vera um fimm þúsund lítrar.
Mæðradagiirinn er á morgun
Veliur á þessum degi hvort mæðraheim-
ilið í Hlaðgerðarstaðakoii verður opnað
núísumar-
Sumardvöl mæUra á vegum MæSrastyrksnefndar
hefir alltaf veri'S vel þegin upplyfting og hvíld
Á morgun er mæðradagur. Mæðrablómin verða seld á göt-
unum, eins og undanfarin ár en ágóðinn af sölunni fer til þess
að kosta mæður og börn þeirra til sumardvalar. Mæðrastyrks-
nefnd hefir komið upp mæðraheimili í Hlaðgerðarstaðakoti,
en þangað er um tuttugu mínútna keyrsla frá Reykjavík.
Mæðrastyrksnefnd leggur mikla
áherzlu á að hægt verði að opna
jnæðraheimilið í sumar, en nú sem
Tillögur að skjald-
armerki og sigli
Á fundi bæjarstjórnar Reykjavík
«r í gær skilaði nefnd, sem kos
in var til að gera tillögur um og
sjá um hugmyndakeppni að skjald
armerki og innsiglismerki Reykja
víkur. Nefndinni bárust alls 24
tillögur en engin var talin hæf
til 1. verðlauna. Hins vegar voru
lagðir að jöfnu þrír uppdrættir,
þar sem byggt var á hugmyndinni
um öndvegissúlur í merkinu. Hall
dór Pétursson var síðan fenginn
til að útfæra þær betur, en nefnd
in hefir ekki orðið sammála, en
meirihluti hennar hefir lagt fram
tillögur þær, sem hér birtast mynd
ir af. Eru það Öndvegissúlur, sem
skera bylgjulínur, á bláum fleti.
Núverandi innsiglismerki bæjarins
er frá 1815, gert af dönskum mæl
ingamanni og sýnir þeirrar tíðar
tómthúsmann í hversdagsklæðum
með göngustaf. í skjaldarmerkis
nefndinni eiga sæti Auður Auðuns
Matthías Þórðarson, Þór Sandholt
F,áirus Sigurbjöhrnsson, Sigurður
Guðmundsson og Ásmundur
Sveinsson.
stendur vantar allt innbú í heim-
ilið. Dagurinn á morgun er því sá
dagur, sem borgararnir leggja sitt
til að hægt verði að opna þetta
nauðsynlega sumarheimili mæðra í
ár, með því að kaupa mæðrablóm
dagsins.
Sæluvikur.
Það eru nú tuttugu og þrjii ár
síðan byrjað var á mæðradeg-
inum og blómasölu til ágóða
fyrir mæður, svo að þær gætu
leitað sér hvíldar utan bæjarins
með börnum sinum. Einnig hafa
mæðumar einar hvílt sig viku-
tíma að sumrinu á einliverjum
þeirra staða, sem Mæðrastyrks-
nefnd hefir fengið það árið. Kon-
urnar hafa nefnt þennan hvíldar-
tíma Sæluviku. I gegnum árin
hefir Mæðrastyrksnefnd annazt
siunardvöl fimmtáu hundruð
mæðra og barna og um níu hundr
uð einstakar konur liafa notið
sæluvikuunar á vegum nefndar-
iunar. Talsmaður Mæðrastyrks-
nefndar sagði í gær, að fáir hefðu
meiri þörf fyrir hvfld en kona
með stórau barnahóp.
Draumurinn um eigið hús.
Nú vantar aðeins herzlumuninn
að draumur Mæðrastyrksnefndar
um eigið hús rætist á þessu sumri.
Konurnar hafa fram til þessa dval-
ið í héraðsskólum og á Þingvöll-
um. Eins og fyrr segir er risið upp
myndarlegt mæðraheimili í Hlað-
gerðarstaðakoti og ekki nema
herzlumunurinn eftir til að það sé
fullbúið til íveru. Það er því lík-
legt að mæðrablómið seljist með
meira móti á morgun, ef það gæti
orðið til þess að mæðraheimilið
yrði opnað í sumar. Mæðrablómið
verður selt í ísaksskólanum og öll-
um barnaskólum bæjarins og í
skrifstofu Mæðrastyrksnefndar,
Laufásvegi 3, Salan hefst klukkan
níu.
Kaupfél. Húnvetnínga lauk við endur
byggingu slátur- og frystihúss s.l. ár
Endurgreiddi til íélagsmanna 7% af ágó'ða-
skyldum viðskiptum. — Runólfur Björnsson
lætur af formennsku eftir 19 ár, Guðmundur
Jónasson kosinn formaÖur félagsins
Síðastliðið haust var slátrað hjá
sláturhúsinu rúmlega 28 þúsund
fjár, og var meðalþungi dilka 14,75
kg. Þá var og slátrað 974 folöld-
um.
Endanlegt verð til bænda fyrir
haustafurðir 1955 var kr. 17,50
Framh. á 2. síðu.
ASalfundir Kaupfélags Húnvetninga, Sláturfélags Austur-
ílúnvetninga og Mjólkursamlagsins voru haldnir á Blönduósi
dagana 5. til 9. þ. m. Fluttar voru skýrslur um rekstur og af-
koniu félaganna á síSastliðnu ári, og reikningar lagðir fram.
Vörusal? kaupfélagsins var 12,2 millj. kr. og hafði aukizt um
1,6 millj. kr. frá því árinu áður. Úthlutað var 7% arði til við-
skiptamanna, þar af voru 4% lögð í stofnsjóð, en 3% færð í
reikninga.
Stofnsjóður félagsmanna hafði
aukist á árinu um 285 þús. kr. og
er nú kr. 1.734.000,00.
Varasjóður félaganna hafði auk-
ist um kr. 185.000,00, og er nú
samtals kr. 1.681.000,00.
Innstæða í Innlánsdeildum hafði
aukist á árinu um kr. 1.400.000.00
og er nú kr. 7 milljónir.
Stofnsjóður hjá SÍS nemur nú
kr. 1.278.000,00.
Mjólkursamlagið tók á móti
2.547.000 kg af mjólk, og var þar
um að ræða 25% aukið mjólkur-
magn samanborið við næsta ár á
undan. Meðalfita reyndist 3,6%.
Útborgað verð innveginnar mjólk-
ur til framleiðenda var kr. 2,85
hver lítri.
Runólfur Björnsson
— kjörinn heiðursfélag*
Hussain Jórdaníukonungur hefir
boðið Saud í opinbera heimsókn
Eru sammála um hættuna af heimsvaldastefnu
kommúnismans
Japanir mótmæía
kjarnorkutilraunum
LONDON—17. maí: Brezka stjórn
in hefir nú svarað þeim tilmælum
japönsku stjórnarinnar um að
Bretar hætti við kjarnorkutilraun
.irnar á Kyrrahafi. Bretar telja sér
ekki fært að vera við tilmælum
þessum .
Samkv. fréttum frá London
hafa tilraunir þessar gengið að
óslcum og geislavirk áhrif hafa
ekki verið teljandi. Mikið hefir
verið um mótmælagöngur í Jap
an og hafa stúdentar verið þar
fremstir í flokki.
Stærsta vandamálið er að forða heim-
inum frá tortímingu kjarnorkuvopna
Osló-NTB, 17. maí. — Norska þjóðin hélt í dag hátíðlegan
þjóðhátíðardag sinn á hinn venjulega hátt.
Saud konung-
ur í Arabíu
hefir þekkzt
boð Hussains
Jórdaniukon
ungs um að
koma í opiu
bera heim-
sókn til Amm
an. Ekki he£
ir enn verið
ákveðið hve-
nær verður
af heimsókn-
inni.
Þykir þetta önnur gild sönnuu
fyrir því, að Hussain ætli sér að
leita náinnar samvinnu við Saud
konung, en báðir eru þeir sam
mála um, að heimsvaldastefna
konmuinismans ógni nú frelsi
landanna fyrir botni Miðjarðar
hafsins og beri því að vinna að
því af fremsta megni að uppræta
upplausnaröflin.
Jórdanska stjórnin hefir vikið
fjórum sendiráðsstarfsmönnum
sínum erlendis úr embætti. Eru
þeir sakaðir um að vera fjand
samlegir Hussain konungi.
Hussain
í öllum þorpum og bæjum lands-
ins, allt frá Nord Kap til Lindes-
nes fjölmenntu jafnt börn sem full-
orðnir í hinum litskruðugu skrúð-
göngum dagsins með lúðrasveitir í
broddi fylkingar.
Skrúðgöngur á Karl Jóhann
50 þús. skólabörn gengu í dag
fylktu liði niður Karl Jóhanns-
breiðgötuna í Osló og framhjá kon-
ungshöllinni, en þar stóð konungs
fjölskyldan uppi á svölum og veif-
aði til mannfjöldans.
Hinn 84 ára gamla konungi Há-
koni, bárust fjolmargar árnaðar-
óskir í tilefni dagsins, m. a. frá
Eisenhower Bandaríkjaforseta.
Þjóðhátíðarræða Gerhardsens
Einar Gerhardsen, forsætisráð-
herra, flutti þjóðhátíðarræðu og
ræddi meðal annars um alþjóða-
mál.
Gerhardseu sagði m. a., að eitt
af stærstu vandamálunum er biði
úrlausnar væri að komast að
tryggu samkomulagi, er frelsaði
mannkynið frá hættunni af tor-
tímingu kjarnorkuvopnannai
Forsætisráðherrann sagði, að
það vandamál yrði ekki aðskilið
vandamálinu um afvopnun þjóð-
Framh. á 2. síðu.
Ung sjómannsefni í Reykjavík
Þótt margt manna vanti á fiskiskipaflotann okkar, sjást þess sem betur
fer víða merki, að hugur unglinga hneigist til sjósóknar. Þessi mynd var
tekin fyrir nokkrum dögum við Reykjavíkurhöfn. Þar eru tveir drengir
að greiða netin s<n. Vonandi hafa þeir afiað vei