Tíminn - 22.05.1957, Blaðsíða 4

Tíminn - 22.05.1957, Blaðsíða 4
T í MIN N, miðvikudaginn 22. maí 1957« Hir»n svissneski lífvörður páfa, klæddur skínandi stáli og bláum og gullnum ein- kennisbúningum, heilsaði virðulega að hermannasið miðalda. Hjálmskúfar biöktu, atgeirar blikuðu. Höfðingjar voru að heim- sækja Vatikanið. ' Þetta var hin fyrsta opinbera heimsókn furstahjónanna úr Mon- aco, Rainier III. og Grace prins- essu, til páfa og jafnframt fyrsta ^ekiptið sem Grace hitti Hans Heil- agleika. Páfinn ráðlagði furstahjón 'uhum að sýna kaþólskri trú óbif- andi tryggð, það gæfist bezt í hrin- !um og harðviðrum lífsins. Píus kvað Grace hollast að eignast mörg bbrn; það mundi aukin heldur tryggja vöxt og viðgang þjóðhöfð- ingjaættarinnar í Monaco. Bernskuheimili Trumans .fyrrum Bandaríkjaforseta, •n-.úrsteinshús í smáborginni Lamarr, hefir verið gert að minjasafni bandarísku verka- ilýðsfélaganna. Truman félist á þessa ráðstöfun nú fyrir skömmu. í sömu viku átti hann fund með upplýsinganefnd rafmagnsnotenda í Washington. Þar tók Harry «tj órn Bandaríkjanna svo rösklega til bæna að hann minnti meira á ungan og upprennandi 'rambjóð- anda en roskinn og ráðsettan stjórnmálamann. „Það er verið að drepa okkur með vöxtum og vaxta Vöxtum“, hrópaði hann, „og á hieðan hamast aðrir republikanar gegn smákaupmönnum og öðrum minni háttar spámönnum.“ „Ég er ekki sósíalisti“, sagði hann, „en það er verið að hrekja mig út i sósíalisma.“ Morguninn eftir átti Truman leið hjá Hvíta húsinu. „Hver býr þarna núna?“ spurði hann blaðamennina sem fylgdu á hæla honum. Þegar honum var sagt, að Ike væri í fríi á búgarði sínum hjá Gettysburg hnussaði í • honum: „Þetta er þokkalegt! Þið hefðuð steikt mig lifandi, strákar, ef ég hefði verið að slæpast svona á minni tíð.“ Aímanningur og einnig þair er telja sig hafa vit á listum í Bretlandi nöldra nú og tiauða úf af nýju málverki af Fiiippusi drottningar- roartni. MálverkiS er eftir ítalskan iistmálara, Pietro Furstahjón hjá páía — Traman hrak- inn út í sósíalisma — Hefði verið steiktur lifandi — Hrokalegur drottn- ingarmaður á mynd — Engin kona vill slíkan eiginmann Annigoni og er á sýningu the Royal Academy í Loond-J on. Gagnrýnandi Daily Mail sagði meðal annars: „Ef hann er þessu líkur vildi ég ekki eiga á hættu að mæta honum í myrkri.“ Daily Mirror: „Myndin væri góð — ef hún væri eftir gangstéttamálara." „Það væri gaman að vita hvað drottningunni finnst um þetta“, sagði The Star. „Engin kona kýs sér slíkan eiginmann •— kuldaleg- an, næstum hrokalegan". Lista- maðurinn sjálfur var fjarri, á vinnustofu sinni í Flórenz. „Ég málaði hann eins og ég sá hann“, sagði Annigoni. „Hann var alvar- legur, virtist viljasterkur; og hann var áreiðanlega enginn samkvæm- ismaður.“ Málverkið af Filippusi. SumarbúSir Þjóðkirkjunnar aS Löngumýri í Skagafirði Það hefir nú veri,ð ákveðið að efnt verði til dvalar fyrir börn og unglinga að Löngumýri í Skagafirði í sumar. Þetta verður á vegum þjóðkirkjunnar og munu ýmsir prestar, kennarar og annað áhugafólk undirbúa og stjórna þessu starfi _____________________ um, sem farin verða í nágrennið, meðan námskeiðin standa. Far gjald til og frá Löngumýri mun verða stillt í lióf eftir megni. Iíennsla, starf og leikir: Á nám skeiðum þessum mun leitast við að búa þátttakendum tækifæri til þess að dvelja á fögrum stað við nám, starf og leiki. Þessar grein ar verða kenndar: I viðræðuformi verður farið í níu af dæmisögun Jesú Krists og boðskapur þeirra skýrður fyrir þátttakendum. Veitt verður tilsögn og leitast Við að kenna sálma, ættjarðarlög og ýms lög við hæfi unglinga. Garðrækt og jurtasöfnun verður kennd og iðkuð. Handíðir (föndur) af ýmsu tægi verða kenndar. íþróttir og leikir verða ríkur þáttur í starfinu. Áhugafólk í þessum greinum mun annast kennsluna og hefur mjög vel tekizt um val þess fólks. í sambandi við námskeiðið verð ur efnt til ferðalaga í nágrenn ForeldrarTða aðstandendur sæki ’ 'f ,sögusta®ir um dvöl fyrir börnin eða ungling sfchm _ ___ Staðurinn: Fcu’stöðukona Hús- mæðraskólans að Löngumýri, frk. Ingibjörg Jóhannsdóttir, hefir af mikilli vinsemd og áhuga á þess um málum lánað liúsakynni stað arins fyrir starf þetta og á ýms an hátt greitt fyrir því, að af þessu geti orðið. Löngumýri er vel í sveit sett og umhverfið mjög fagurt sem kunnugt er. Á-1 stæður eru á ýmsan hátt ákjósan legar þarna. Ræktun er þar mikil I og grösugt. Góðar aðstöður til' íþrótta umhverfis og sundlaug eigi fjarri. Tíml: Starf þetta mun verða í námskeiðum, sem standa í tíu daga hvert. Verða þau fjögur eða á eftirfarandi hátt. 2.—12 júlí. fyrir telpur 10— 12 ára. 17.—27. júlí, fyrir drengi 10— 12 ára. 31. júlí—9. ágúst fyrir stúlkur 12 ára og eldri. 12, ágúst—22. ágv fyrir pilta \ 12 ára og eldri. I ana og sendi umsóknir til sóknar presta sinna, en þeir eru síðan beðnir að senda þær til biskups- skrifstofunnar í Reykjavík. Um sóknarfrestur er til 15. júní. Öll um umsækjendum mun verða skrifað og þar skýrt frá undir búningi, ferðalögum, útbúnaði og dvölinni. • Kostnaður: Dvalarkostnaður verður 350.00 kr. fyrir hvern þátt takanda í þessa tíu daga. Þar er og talinn kostnaður af ferðalög Rainier og Grace við hlið páfagarðs. iÁ sunnudögum verður farið til kirkna nálægra og væntanlega koma þar einnig börn og ungling ar úr sóknunum. Lögð verður á herzla á prúðmannlega framkomu umgengi og reglusemi í hvívetna. Útbúnaður. Að þessu verður vikið nánar í bréfum til umsækjenda, en ætlast er til að þátttakendur hafi með sér hlýjan fatnað og hæfilegan til starfs og leikja. Sundföt og striga skó, hreinlætistæki og sængur fatnað. Þá er æskilegt að þeir sem eiga, hafi með sér myndavél, knetti og meðfærileg hljóðfæri. Hver þátttakandi hafi með sér Biblíu eða Nýja-testamentið og vasasöngbókina. Ritfong þarf einn ig að hafa með. Takmark. Öll börn eða unglingar á nefnd um aldri eru velkomin til þessar ar dvalar svo engi sem hún verður en 40—50 munu komast að hveýju sinni Það er kunnugt, að for- eldrar vilja gjarna koma börn- um sínum til dvalar í sveit að sumri og ýms félög vinna ötullega að því, að svo geti orðið. Á kristi legum grundvelli hafa KFUM og K unnið merkilegt starf í þess um efnum. Við teljum æskilegt að kirkjan í heild vinni að þessu efnum. Við teljum æskilegt að Reykjavíkurmótií: Valur sigraði KR með 2-0 Áttundi leikur Reykjavíkur- mótsins í knattspyrnu var háður í fyrrakvöld. Léku þá KR og Val ur, og var búizt við að það yrði skemmtilegur leikur. Því var nú ekki a'ð heilsa. Valur sigraði með tveimur mörkum gegn engu eftir tilþrifalítinn leik af beggja hálfu. Úrslit í þessu Reykjavíkurmóti eru orðin alleinkennileg. í fyrsta leik mótsins tapar Valur fyrir Vík í ing, sem síðan tapar fyrir Fram ' og KR með óvenjulega háum töl um, jafnvel á íslenzkan mæli- kvarða, þar sem styrkleiki liða er þó eins ójafn og hugsazt getur. Eftir tapleikinn gegn Víking hafa Valsmenn hins vegar náð sér á strik, og ekki er ólíklegt, að þeir hafi á að skipa sterkasta liði Reykjavíkurfélagana, einkum hvað leikreynzlu viðvíkur. Þó hef ir Valur ekki enn stillt upp öllum sínum beztu mönnum í þessum leikjum t. d. léku Árni Njálsson og Páll Aronsson ekki gegn KR. Um leikinn í fyrrakvöld er lítið að segja. Valur lék undan góðri golu í fyrri hálfleik, og lá þá meira á KR. Eitt mark var skor að í háfleiknum og gerði það hinn harðskeytti miðherji Vals, Björg vin Daníelsson. f síðari hálfleik sóttu KR-ingar meir, en Valsvörn in,' stóð sig vel einkum markmaður inn Björgvin Hermannsson, Einar Halldórsson og Magnús Snæbjörns son. Halldór Halldórsson hafði einnig góð tök á miðjunni. Þrátt fyrir að KR-ingar væru meira í sókn, voru það þó Valsmenn, sem skoruðu eina markið í hálfleikn- um. Gerði það Ægir Ferdinands son með ágætu skoti frá vítateig. Vinstri útherji Vals, Matthías Hjartarson, skapaði sér nokkur góð tækifæri i leiknum, sem hon um tókst ekki að nýta, en þar er greinilega á ferðinni maður (Matthías er 17 ára), sem Vals- menn eiga eftir að hafa mikla ánægju af. í heild náði KR-liðið sér aldrei á strik. Varamarkmaður lék nú með liðinu, nokkuð óöruggur, og hafði það áhrif á vömina, sem virtist afar opin. Þó átti Ólafur Gíslason ágætan leik, og var bezti maður liðsins. Framverðirnir byggðu ekki sem skyldi upp, en dugnaður þeirra er mikill. Fram línan var mjög sundurlaus, og komst lítið áleiðis gegn hinum traustu varnarleikmönnum Vals. Dómari var Hannes Sigurðsson, Fram, og dæmdi hann vél. Varð hann þó oft að grípa til flautunn ar. þar sem leikurinn var á kafla mjög grófur á báða bóga. —hsím. Ármann varð íslandsmeistari í sundknattleik í 17. sinn í röð Nýlega er lokið keppni um ís- landsmeistaratitilinn í sundknatt- leik. f mótinu tóku þátt þrjú fé- lög. Voru það Ármann sem hlaut 4 stig, Ægir, sem fékk 2 stig og K.R. sem hlaut ekkert. _ Einstakir leikir fóru þannig, að Ármann vann Ægi í úrslitaleik 6 gegn 3, en KR gaf leik sinn við Ármann, Ægir vann KR 13:2. Þetta var í 17. sinn í röð, sem Ármann vann þennan titil. Úrslitaleikur ÁÁrmanns og Æg- is var ágætlega leikinn, höfðu Ár- menningar þó greinilega yfirhönd- ina í leiknum. íslandsmeistarar Ármanns eru: Guðjón Ólafsson, Helgi Björgvins- son, Ólafur Diðriksson, Sigurjón Guðjónsson, Ólafur Guðmundsson, Pétur Kristjánsson, Einar Hjartar- son og Sólon Sigurðsson. f B-liði kepptu sveitir frá Ægi og KR og vann Ægir með 5:1. Sýslun. Rangæinga skorar á Alþingi að lögfesta frv. um skyldusparnað Leggur áherzlu á aí Holtavegur verííi hækk- aíSur og rannsókn hafin á vegarstæíi yfir há- IenditS og brúarstæíi á Tungnaá Frá fréttaritara Tímans, Hvolsvelli. 1 Aðalfundur sýslunefndar Rangárvallasýslu var haldinn að Skógaskóla undir Eyjafjöllum dagana 8. til 11. maí s. 1. Auk venjulegra sýslufundarmála lágu fyrir 50 erindi til af- greiðslu. Hæstu tekjuliðir á fjárhags- áætlun sýslunnar 1957 eru: Sýslusjóðsgjald Sýsluvegasjóðs og hreppatillög Framlag rikissjóðs til sýsluvega Helztu gjaldaliðir: Skólamál Vegamál Heilbrigðismál kr. 285.000.oo 275.000.oo — 153.000.oo kr. 160.000.oo — 500.000.oo — 30.000.oo Byggðasafnið að Ytri Skógum Tónlistarskóli Rangæ- inga Héraðsbókasafnið i I 30.000.oo 10.000.oo 9.000.OO kirkjan í heild vinni að þessu í vaxandi mæli og er þetta ein fyrsta tilraunin í þessa átt. Það er von okkar, að vel muni takast um starfið í sumarbúðunum að Löngumýri og foreldrar gefi börn- um sínum tækifæri til þessarar dvalar við heilbrigð og þroskandi viðfangsefni. Sýslunéfnd skoraði á Alþingi að lögfesta hið fyrsta framkomið frumvarp um skyldusparnað. Þá samþykkti sýslunefndin að beina þeim tilmælum til vega- málastjórnarinnar, að hún léti þegar á þessu ári framkvæma veru lega upphækkun Holtaevgar frá Þjórsárbrú að Ytri Rangá, en þessi kafli Suðurlandsvegar er að vetrar lagi einn hinn erfiðasti yfirferðar. Loks skoraði sýslunefnd á vega málastjórnina að hefja þegar rann sókn á vegarstæði yfir hálendið frá Þingeyjarsýslu til Rangárvalla sýslu, og um leið brúarstæði á Tungnaá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.