Tíminn - 23.05.1957, Blaðsíða 2

Tíminn - 23.05.1957, Blaðsíða 2
2 T í MIN N, fimmtudaginn 23. maí 1951« Ljáslækniíélag íslands vinmir aS bæffri lýsingn í landinn og IræSsIu Aðalfundur Ljóstæknifélags íslands var haldinn 9. maí s. 1. Formaður skýrði frá starfsemi félagsins á liðnu ári. M. a. voru gefin út tvö rit á vegum félagsins, haldnir tveir fyrir- Lestrár í skólum, hafin myndataka af lýsingu á ýmsum stöð- utn og gerðar athuganir á lýsingu eftir beiðni. Sendur var fulltrúi tii að heim- tsækja ljóstælknistofurnar í ná- grannalöndunum og lögð áherzla á að ná sambandi við þær. Stofnanir Ítgssar gáfu félaginu ýmsar bækur, ba-klinga og sérprentanir um ljós tækni og síðan hefir verið aukið við það safn. Á fundinum voru flutt tvö er- indi: Gísli Jónsson, rafmagnsverk- fræðingur flutti erindi um Viðhald lýsiagarkerfa og Aðalsteinn Guð- j ohn sen, rafmagnsverkfræðingur, um Ljóstæknilega tilrauna- og mælistofu. Að erindunum lokn- um var sýning á áhrifum ýmissa ljósgjafa á liti. Ljóstæknifélag íslands er ungt að árum, stofnað liaustið 1954. Starfsemi þess færist í aukana og eru félagar nú 109, þar á meðal ýrnsar stofnanir og fyrirtæki. — Féiagið vinnur að bættri lýsingu í landinu og veitir hlutlausa fræðslu uni allt, sem ljóstækni Er það mikið happ fyrir félagið og í.ílenzka flugþjónustu, að tak- ast Slcyldi svo fljótt að fá þessar föHkomnu flugvélar. Hefir notkun iþí-irra vakið mikla athygli erlend- is og mun vafalaust verða til þess að- æ fieiri ferðast með flugvélum félagsins jafnframt því, sem þær eni góð landkynning. Ráusnarlegar móttökur. Fréttamönnum var tekið af mik- illi rausn og alúð af forstöðumönn- um Flugfélags íslands í áður neir.d um liorgum. Fyrst var komið til Kaupmannahafnar og tók Birgir Þórhailsson, sem veitir skrifstofu Flugfélagsins þar forstöðu, á móti gestunum. Var skoðuð skrifstofa 'félagsins við Ráðhústorg, en síðan sseíið veizluboð um kvöldið. Daginn eftir var Kastrupflugvöllur skoðað- ui’ og skýrt frá þeirri stórfelldu stækkun, sem fyrirhuguð er á vell- inum. Skáldið á Þröm, ævisaga Magn- úsar Hj. Magnússonar, eftir Gunn- -ar M. Magnúss, sem út kom fyrir síðustu jól, er nú komin út í 2. útgáfu. Bókin hlaut frábærlega góðar viðtökur jafnt lesenda sem riídómara. Hún var mikið keypt og írijag umtöluð, og ritdómarar luk>u á hana einróma lofsorði. — Sverrir Kristjánsson, safnfræðing uc, ritaði höfundi frá Kaupmanna böfn 2. jóladag 1956, m.a. á þessa lóið: „Ég get ekki stiilt mig um að hripa þér þessar línur til þess að þakka þér fyrir eina andvöku- nótt. Börnin mín heima á íslandi sendu mér Skáldið á Þröm í jóla- gjöf, og þegar ég opnaði bókina í gær, þá gat ég ekki lokað henni fyrr en ég hafði lesið hana spjald- anna á milli. Ég hef ei í langan tíma lesið bók, sem hefur gripið inig sterkari tökum. Þú hefur skrifdð hér lífssögu manns, sem ei’ um leið lífssaga hins fátæka <*g umkomulausa fólks á landi varðar, en ijóstækni er nú viður- kennd sem sérstök tæknigrein og er í örum vexti í öllum löndum. Félagið á ýmis mælitæki, svo sem birtumæli, mæli tii að á- kveða birtuþörf ýmissa sjónstarfa og mæli til að ákvéða skærleika ög þægindi lýsingar. Eitt af verkefnum félagsins er að koma á fót ljóstæknilegri til- rauna- og mælistofu. í sumar eru ráðgerðar mælingar á dagsbirtu og skærleika himinsins. Eriendar ljóstæknistofnanir hafa hvatt til slíkra athugana hér, til að fá sam anburð við mælingar, sem gerðar hafa verið sunnar á hnettinum. Stjórn félagsins skipa: Formað- ur: Steingrímur Jónsson, rafmagns stjóri; ritari: Jakob Gíslason, raf- orkumálastjóri; gjaldkeri: Hans Þórðarson, stórkaupmaður; með- stjórnendur: Hannes Davíðsson, arkitekt; Bergsveinn Ólafsson, augnlæknir og Kristinn Guðjóns- son, forstjóri. í Hamborg var dvalið á sunnu- dag. Birgir Þorgilsson veitir for- stöðu Skrifstofu félagsins þar. Tók hann gestum af mikilli alúð og gestrisni. Á mánudag var haldið til Lundúna. Þar veitir Jóhann Sig- urðsson forstöðu skrifstofu, sem er rekin sameiginlega af Eimskipafé- lagi íslands og Flugfélaginu. Er skrifstofan í miðju borgarinnar við Piccadilly. Húsakynni eru hin glæsilegustu. Þar var setið síðdeg- isboð og voru meðal gesta forseta- hjónin, sendiherra íslands í Lun- dúnum og Vilhjálmur Þór banka- stjóri. Sveinn Sæmundssqn blaðafull- trúi hjá Flugfélagi íslands var í fylgd með blaðamönnunum og greiddi för þeirra á allan hátt af hinni mestu lipurð og dugnaði. Munu þeir, er þátt tóku í bessari för á vegum Flugfélags íslands, lengi minnast hennar með ánægju. voru. Eg hafði aldrei ímyndað mér, að Magnús Hj. Magnúson hefði í raun og veru verið slík kempa og hetja, sem bók þín sannar, svo að ekki verður efast um. Hvílík ódrepandi lífsbarátta þessa manns fyrir því, sem hann elskar, unnustu sinni, börnum og bókum. Skyldi ekki margur mað- urinn, sem pastursmeiri er, hafa lagzt hundflatur niður á fæðingar hreppinn og lofað honum að sjá fyrir sér. En maðurinn gengur með sigur af hólmi úr illvígustu viðskiptum við pakkið á himni og jörð. —. Ljósvílíingurinn er ein kærasta bók, sem ég hef lesið eftir Laxness, en hvað er hún í raun og veru móts við dagbækur Magn- úsar, eina rit íslenzkra bókmennta, þar sem alþýðan hefur skrifað sjálf lífsharmleik sinn í þúsund ár. Það er ekki í fyrsta skiptið, að listin verður bara eftirherma lífsins. Mér þykir bók þín hið merkileg asta sagnfræðirít, sem komið hef- ur út um íslenzka þjóðarsögu . .“ Stjórnarkreppan harðnar enn í Finnlandi HELSINGI, 22. maí. — Fager- holm forsætisráðherra Finnlands lagði í dag endanlega lausnar- beiðni sína fyrir Kekkonen Finn landsforseta. Ilafði hann áður beðizt lausnar, en síðan faliist á að reyna til þrautar, hvort unnt væri að halda áfram stjórnar- samstarfi jafnaðarmanna og Bændaflokksins. Hefir mikill á- greiningur gert vart við sig upp á síðkastið milli flokkar.na, en hins vegar róttækra aðgerða þörf í efnahagsmálum. Hefir ríkissjóður hvað eftir annað orð- ið að fresta fastbundnum greiðsl- um, sökum fjárskorts. Fréttarit- arar segja, að samningatilraunir liafi endanlega strandað á af- stöðunni til kaupgjaldsmála. Hafi sýnt sig að ágreiningur flokk- anna um þau mál sé svo mikill að Fagerholm liafi talið vonlaust að lialda áfram tilraunum sínum til satnkomulags. Stóreignaskattur og sparifé (Framhald af 1. síðu). framleiðendur til sjávar og sveita. Það eru milliliðir og eig- endur stórra fasteigna í kaup- stöðum og aðrir slíkir. Þá kvað ráðherrann ekki þurfa um það að ræða, að skattinum væri ætlað að renna til lífsnauð- synlegrar starfsemi, þar sem væru íbúðahúsabyggingar og veðdeild Búnaðarbankans. Plata frá Bjarna. Næstur tók til máls Sigurður Bjarnason. Var ræða hans mjög í sama anda og ræða Bjarna Ben. um málið í neðri deild. Var hann með sömu gróusögurnar um gengis lækkun og sömu plötuna um kaup- og verðhækkun í landinu að und anförnu. Málinu var vísað til ann- arrar umræðu. Dráttarbraut á Seyftisfir'ði (Framhald af 1. síðu). svo búið má ekki standa. Að auki kemur svo hitt, að rökstudd vissa er fyrir því, að smíði stálskipa mun á næstu árum færast að miklu leyti inn í landið. Ein styrkasta stoðin, sem renn- ur undir jafnvægi í byggð lands- ins, er dreifing þungaiðnaðarins. Tillaga þessi er flutt í trausti þess, að hæstv. Alþingi og ríkisstjórn skilji nauðsyn þess, að viðhald og nýsmíði hinna stærri skipa verði ekki einskorðuð við Reykjavík. í lögum nr. 29 23. apríl 1946, um hafnargerðir og lendingarbæt- ur, er að vísu gert ráð fyrir styrk úr ríkissjóði og ríkisábyrgð fyrir lánum til byggingar slíkra mann- virkja. Hins vegar verður að líta svo á, að hér sé fyrst og fremst um að ræða hagsmunamál heils landsfjórðungs, og þykir því rétt að fela ríkisstjórninni að'láta gera nákvæma áætlun um kostnað við slíkt mannvirki.“ ALÞINGI Dagskrá efri deildar Alþingis í dag kl. 1,30 miðdegis: 1. Stofniánadeild sjávarútvegsins. 2. Heilsuvernd í skólum. 3. Skipakaup o. fl. 4. Lax- og silungsveiði. Dagskrá neðri deildar Alþingis í dag kl. 1, 30 miðdegis: 1. Hlutafélög. 2. Búfjárrækt. 3. Útflutningsgjald af sjávarafurð- um. 4. Eyðing refa og minka. 5. Sjúkrahúsalög. 6. Skemmtanaskattur og þjóðleik- hús. 7. Húsnæðismálastofnun o. fl. Hkar nýju flugvélar Flngfélags Is- kids vekja mikla athygli erlendis S. 1. föstudag fóru 10 fréttamenn frá blöðum og útvarpi í boði Flugfélags íslands til Kaupmannahafnar, Hamborgar og Lundúna. Var komið aftur á þt'iðjudagskvöld eftir mjög ánægjulega för. Tilefni boðsins var að gefa blaðamönnum kost á að kynnast hinum nýju flugvélum af Vickers Visí count gerð, er Flugfélagið fékk fyrir nokkru. Var það ein- rórna álit blaðamanna, er þátt tóku í förinni, að þeir hefðu ekki flogið með þægilegri flugvélum, enda hefir komið á daginn, að eftirspurn eftir fari með hinum nýjii flugvélum hefir stóraukizt á skrifstofum félagsins erlendis. Skáldið á Þröm komið í 2. útgáíu Nýtt sjúkrahús að rísa af grurnii á Sauðárhæðum við Sauðárkrék Brýn þörf oröin fyrir nýtt sjúkrahús í Skaga- fjarciarsýslu Frá fréttaritara Tímans á Sauðárkróki. í gær var byrjað á því að steypa nýja veggi í sjúkrahús, sem verið er að byggja á Sauðárhæðum við Sauðárkrók. Þetta nýiá sjúkrahús verður stór bygging og bætir úr brýnni þörf, þar sem gamla sjúkrahúsið á Sauðárkróki fyllir hvergi þær kröfur, sem gera dag. í fyrrahaust hófst vinna við nýja sjúkrahúsið. Þá var grunnur grafinn og steyptur kjallari. Ekki var unnt að vinna við húsið í vet- uiy en nú fyrir nokkru hófst vinna við húsið á ný og var byrjað að steypa í gær. Fimmtíu ára gamalt hús. Gamla sjúkrahúsið stendur inni í miðjum Sauðárkróksbæ, við norð urhlið kirkjunnar og er orðið næsta fornfálegt innan um ný hús, sem risið hafa þar í kring. Húsið mun vera í kringum fimmtíu ára gamalt og þótt Skagfirðingar hafi ekki nema gott eitt um þá ágætu verður til slíkrar byggingar í byggingu að segja, fuilnægir hún alls ekki þeim kröfum sem gera verður til sjúkrahúss í dag. Það er því fyllilega kominn tími til að nýtt sjúkrahús rísi af grunni. Steypt undir þak. Það er hugmyndin að steypa nýja sjúkrahúsið undir þak í sum ar. Má búast við að það taki ein tvö ár eða þrjú ár að gera sjúkra- húsið fullbúið til notkunar. Bygg- ingarmeistari er Sveinn Ásmunds son, Siglufirði, en Sigvaldi Thord arsen teiknaði bygginguna. Sauð- árkróksbær og Skagafjarðarsýsla byggja sjúkrahúsið í sameiningu. Ný umfangsmikil málaferli hafin gegn enska lækninum illræmda, dr. Adams Eastburne, 22. maí. — Brezki læknirinn, John Bodkin Adams, sem var sýknaður í fyrra mánuði af ákæru fyrir að hafa drcpið einn eða fleiri af sjúklingum sínum, hefir nú verið dreginn fyrir dómstólana á nýjan leik. Að þessu sinni er hann ákærður fyrir misnotkun deyfilyfja. Mun hann innan skamms koma fyrir réttinn í Lewis í Sussex. í réttar- höldum, sem fram fóru í dag, kvað dómsforseti upp end- anlegan úrskurð um að málsóknin skyldi fara fram. Dr. Adams fær þó að ganga laus, þar til réttarhöld hefjast, en hann varð að setja 2 þúsund sterlingspunda tryggingu. Eins og kunnugt er vakti morð- mál dr. Adams gífurlega athygli á sínum tíma. Því var almennt trú að í upphafi, að ákæruvaldið hefði í höndum svo ótvíræð sönnunar- gögn, að dr. Adams yrði fundinn sekur. Þetta fór þó á annan veg. Hinn frábæri lögmaður Geoffrey Lawrence þvældi vitnin og sér- fræðingan'a svo að vitnisburður þeirra fór í mola og kviðdómur taldi að ekki yrði á þeim byggð- ur dómur um sekt. Gefast ekki upp. Scotland Yard hefir þó ekki viljað gefast upp með öllu og ný lota er hafin gegn lækninum. Er hann sakaður um misnotkun deyfi lyfja, fölsun skjala og brot á lög- gjöf um líkbrennslu og sitthvað fleira. Mál læknisins er stöðugt eitt helzta umræðuefni blaða í Bretlandi og víðar um heim. Telja sum þeirra að enn kunni svo að fara að læknirinn verði enn fund inn sýkn saka. Færeysku kosniugarnar (Framhald af 1. síðu). við úrslit þessara kosninga er það, að jafnaðarmannaflokkurinn hlaut aðeins 1986 atkvæði og missti fulltrúa sinn, Peter Mohr Dam, úr þinginu, en hann hefir átt þar sæti síðan 1948. — Aðils. NáttúrugripasafnlB: Kl. 13.30—15 á suanudögum, 14— 15 á þriðjudögum og fimmtudogum. Þ|óðmln|asafnl8 er opið á sunnudögum M. 1—4 og á þriðjudögum og fimmtudögum og laugardögum kl. 1—S. Llstasafn rlklslns I Þjóðminjasafnshúsinu er oplð á sama tíma og Þjóðmlnj&safnið. Bæjarbókasafnið. Lesstofan er opin alla virka daga frá kl. 10—12 og 13—22, nema laug- ardaga, frá kl. 10—12 og 13—16. Út- lánadeildin er opin alla virka daga fró kl. 14—22. nema laugardaga frá Landsbókasafnlð: Kl. 10—12, 1S—19 og SO—22 alla <drka daga nema laugardaga kL 10 —12 og 13—19. í« OGt 18 iCAKATA fltÍLni'nNABHIlINGAi!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.