Tíminn - 23.05.1957, Blaðsíða 4
T í MI N N, fimmtudaginu 23. maí 1951,
íslandsmótið í knattspyrnu:
Akurnesingar sigraðn Hafnfirðinga
naiunlega í þriðja leik mótsins
Þegar þriðja leik íslandsmóts
ins í 1. deikl lauk á þriðjudags
kvöldið voru víst flestir sam-
máia um það að leikurinn liefði
komið á óvart. í fyrsta lagi kom
geta Hafnfirðinga nokkuð flatt
upp á menn, — þó að þeir hefðu
sýnt hvers af þeim var að vænta
í leiknum á móti Akureyring-
um, — þar sem andstæðingarnir
voru ekki af verri endanum, sem
sagt hinir góðkunnu Akurnesing
ar. í öðru lagi spenningurinn og
óvissan um það hvort leiknum
ætlaði að likta með jafntefli eða
Hafnfirðingum í vil.
Leikurinn hófst með nokkrum
hidða af beggja hálfu og var auð
sé'ö að Akurnesingum kom nokk
uð á óvart flýtir og herkja Hafn
firðinga. Þó er það Þórður Þ.
sem skorar fyrsta markið fyrir
Akurnesinga. Hafnfirðingar láta
þetta ekkert á sig fá og sækja
fast á og skapa sér nokkur tæki
færi, sem þeim tekst ekki að nýta.
M. a. átti Albert Guðmundsson tvö
góð skot á mark Akurnesinga af
löngu færi, sem Helgi fær varið og
hitt aðeins framhjá.
Síðari hálfleikur hefst með mik
iili sókn Hafnfirðinga sem stóð yf
ir fyrstu 15 mínúturnar og skall
oít hurð nærri hælum að þeim tæk
ist að jafna. Akurnesingum tekst
svo a'ð hrinda þessari sóknarlotu
en vörn Hafnfirðinga er þétt fyrir
og hreinsar viðstöðulaust.
Nokkuð var þessi hálfleikur þóf
kenndur, og var sem framlína Akur
nesinga næði ekki saman og eins
notuðu þeir ekki kantana sem
skyldi. Lítið var um markmögu-
lcika hjá báðum liðunum, þó áttu
•H. fnfirðingar tvö góð tækifæri
á síðustu mínútum leiksins, þegar
Bergþór er kominn frír innfyrir
vörn Akurnesinga og spyrnir jarð
ailnetti í bláhornið, sem Helgi
fær naumlega varið í horn. Jón
Páísson skaut einnig föstum knetti
sem fór aðeins yfir þverslánna.
Urslit leiksins hefðu eins getað
orðið jafntefli og jafnvel 2:1 fyrir
Hafnfiröinga eftir gangi leiksins.
Þvi er ekki hægt að ganga fram
hj 'i að hlutur Hafnfirðinga var
fullt eins mikill og meiri á köflum.
HaíníirSingar komu mjög á óvart í
leikmim, og hefðu erns getað uáS jafn-
tefli, eða jafnvel unniS
Liðin.
Lið Hafnfirðinga sýndi það hér
að hin liðin I 1. deild mega fara
taka það alvarlega, því með þeirri
franiför sem er orðin hjá liðinu
síðan í fyrra, er ekki ólíklegt að
það eigi eftir að gera stóra liluti.
Vörnin er þétt fyrir og vakti
Einar Sigurðsson athygli fyrir góð
an leik. Ólafur í markinu stóð sig
líka með ágætum. Framlínan er
enn nokkuð sundurlaus, en þeir
útherjarnír Jón og Ásgeir unnu
mikið.
Ekki er liægt að segja frá liði
Hafnfirðinga án þess að geta um
höfuðstyrk þess, Albert Guð-
mundsson. Skipulagning og
stjórn hans á liðinu er með þeim
ágætum að undrun sætir. Það lief
ur koinið svo oft fram áður hve
mikið starf Albert Guðmundsson
hefur unnið að knattspyrnumál
um Hafnfirðinga, að það væri að
bera í bakkafullan lækinn að
tala meira um það.
En er nú ekki kominn timi til
fyrir forráðamenn knattspyrnu
málanna að fara að athuga mögu
leikana fyrir því hvort ekki sé
grundvöllur fyrir, að gera Albert
Guðmundssyni það tilboð, sem
honum er sæmandi í knattspyrnu
málum okkar, — ef það er þá
ekki orðið of seint, — scm sé
að verða þjálfari og veljandi
landsliðs okkar, með víðtæku
valdi. Við erum búiii að sjá
árangur hans í Hafnarfirði, —
þó það hefði náttúrlega verið
flestum ljóst áður, hvers hann
var megnugur á knattspyrnu-
sviðinu, áður en hann lióf þar
þjálfun.
Eins er þ'að til fyrirmyndar
hversu leikmenn Hafnarfjarðar
liðsins létu vel að stjórn haus
og ættu aðrir að taka sér það til
fyrirmyndar, því það fer ekki
framhjá ncinum að þar ríkir agi
innan liðsins og árangurinn er
líka auðsær.
Akurnésingar náðu ekki miklu
út úr leik sínum að þessu sinni.
Guðjón og Sveinn voru höfuð
styrkur liðsins ásamt Ríkarði.
Dómarann, Rafn Iijaltalín, Ak
ureyri skorti auðsjáanlega reynslu
til að uppfylla þau skilyrði sem
er krafizt af góðum dómara.
í kvöld fer fram leikur Landsliðs
og Pressuliðs og er ekki að. efa
að það verður skemmtilegur leik
ur. Nú verður nokurt hlé á Islands
mótinu að sinni, því íslendingar
eiga að leika tvo iandsleiki í næstu
viku við Frakkl. og Belgíu. Hj.Hj.
Knattspymufiokkur frá ísafirði fer
til Noregs og Danmerkur í sumar
Frá fréttaritara Tímans á ísafirði.
Fyrsta mni fór fram einmenningskeppni í svigi um Græna-
garðsbikarinn.
Keppt var á Seljalandsdal og var
þrautin skemmtileg og fjölbreytt.
1. Björn Helgason, Reyni Hnífsdal
2. Kristinn Benediktsson sama fél.
3. Jón Karl Sigurðsson Herði.
Flokkakeppni í hraSskák
Flokkakeppni í liraðskák var
Jialdin að Þórskaffi í fyrrakvöld.
Tíu fjögurra manna flokkar tóku
þátt í keppninni.
Urslit urðu þessi (aðeins flokka
fj.irliðar taldir):
I. Jón Þorsteinsson hlaut 41%
"2. Ingvar Asmundsson 41Y2 v.
3. Herman Pilnik 39 v.
4. Þórir Ólafsson 38V2 v.
5. Lárus Johnsen 38 v.
6. Friðrik Glafsson 37% v.
7. Ingi R. Jóhannsson 35V2 v.
8. Guðm. S. Guðmundss. 34y2 v.
9. Guðm. Ágústsson 29 v.
10. Sveinn Kristinsson 25 v.
Þar sem sveittr Jóns og Ingvars
blutu jafna vinninga urðu þær að
Jccppa til úrslita og vann sveit
Jó ís með 5% : 2%. Sveit Jóns var
sk.puð þessum mönnum, auk hans
sj 'ifs: Benóný Benediktsson, Birg-
ir Sigurðsson og Róbert Sigmunds
eon.
Keppni á fyrsta borði var mjög
spennandi og jöfn. Keppendur þar
voru allir þeztu skákmenn bæjar-
ins, auk Pilniks. Þeir tefldu tvær
skákir. Þeir Friðrik og Ingi fengu
13 vinninga í 18 skákum eða
72,22%; Pilnik var þriðji með 12V2
vinning, Ingvar fjórði með 11 v.,
Þórir 9y2 v., Guðm S. Guðmundss.
9 v., Lárus 8% v., Jón 5 v., Guðm.
Ág. 41/2 v. og Sveinn 4 v.
Á öðru borði hlaut Sigurgeir
Gíslason fiesta vinninga eða 13 í
18 skákum eða 72,22%. Eggert
Gilfer 12V2 vinning og Benóný
Benediktsson 12. Á þriðja borði
hlaut Ásgeir Þ. Ásgeirsson flesta
vinninga, 13V2 eða 75%, Ólafur
Magnússon hlaut 12% v. Á fjórða
borði hlaut Róbert Sigmundsson
flesta vinninga, 15 v. í 18 skákum
eða 83,33%.
Keppnin fór vel fram og var
spennandi frá upphafi. Áhorfend
ur voru margir
5. maí fór fram Fossavatns-skíða
gangan, sem er 18 km að lengd.
Fyrst var stofnað til hennar 1932
að forgöngu Ólafs Guðmundssonar
forsitjóra. Gangan hefir að vísu fall
ið niður á stundum á þessu tíma-
bili, >en þrjú síðustu árin liefir ver-
ið keppt í henni. Keppendur voru
nú 11.
1. Oddur Pétursson
2. Gunnar Pétursson
3. Bjarni Halldórsson
allir úr Ármanni, Skutulsfirði.
Oddur vann til eignar veglegan
bikar, sem Ólafur Guðmundsson
gaf 1955.
Fossavatnshlaupið, eins og það
er oftast nefnt fer að mestu fram
í 300 til 400 m hæð, og er hafið
Platan í þetta fallega sófaborð
er búin til úr tveimur glerplötum,
sem þurkuð blóm eru lögð á milli.
Neðri platan er úr möttu gleri, sú
efri úr venjulegu rúðugleri. Falleg
jurtablöð eru vandlega pressuð og
þurrkuð, þau eru lögð í mynstur á
neðri glerplötuna og fest þar gæti
lega með örlitlu lími. í þetta borð
er líka notuð fiðrildi, en hvort-
tveggja er, að hér er fátt um
skrautleg fiðrildi og einnig er það
erfiðara og ógeðfelldara að nota
þau, en jurtir.
Vinnur göfugt starf
!
Fyrir sex árum var mikið rætt
um Seretse Khama, ættarhöfðingja
Bamangwato-ættstofnsins í Bechu-
analandi, sem var bannað að
hverfa heim til lands síns vegna
þess, að hann giftist enslcri stúlku,
Ruth Williams. Töldu Bretar, að
það myndi valda sundurlyndi og
vandræðum, ef hann flyttist heim
með hvíta konu. Síðasta október
var Seretse gefið heimfararleyfi,
en bannað að taka við höfðingja-
tign þeirri, sem honum bar að erfð
um. Ruth fluttist til hans í nóvem-
ber sl. ásamt börnum þeirra tveim
ur.
í fyrstu var illu spáð fyrir þeim,
bæði meðal hvítra manna og
svartra, og hvítar konur meinuðu
Ruth aðgang að öllum samtökum
þeirra. Eftir heimkomuna hafa
þau hjón starfað af kappi að ýms-
um málum, sem stefna í framfara-
átt. Ruth kennir blökkukonunum
hreinlæti, hjúkrun og meðferð ung
barna og ræktun grænmetis. Enn
búa þau í skála úr asbestplötum
með bárujárnsþaki, en eru byrjuð
við Fossvatn, gengið fyrir botn
Engidals fyrir Nórihorn yfir Fells-
háls fyrir botna Dagverðardals og
Tungudals, og hæst yfir Miðfells-
hálls (500 m) niður Seljalandsdal
að Skíðheimum.
Hér er mjög fjölbreytt og
skemmtilegt landslag.
Knattspyrnan
hefir nú tekið við af skíðunum,
enda munu ísfirzkir knattspyrnu-
menn taka þátt í mörgum leikjum
í sumar. Fram, meistaraflokkur
koma um hvítasunnuna, svo er II.
deildar 'lerkirnir. Og um 8. ágúst
munu ísfirðingarnir fara til vina-
bæjar ísafjarðar, Tönsbergí Nor-
egi og Roskilde í Danmörkú, og
heyja þar nokkra leiki. Þjálfari
liðsins er Jens Sumarliðason.
Ruth Williams
að byggja sér íbúðarhús með ný-
tízku þægindum, svo sem rafmagni
rennandi vatni og baði.
Suður-Afríkönsk blaðakona heim
sótti þau fyrir skömmu og spurði
Ruth hvort henni leiddist ekki og
hvort hún saknaði ekki heimalands
síns. Hún sagðist að vísu sakna
þess að geta ekki hitt foreldra
sína, en annars hefði hún engan
tíma til að mæðast yfir einu eða
öðru. Óleyst verkefni biðu á allat
hendur. Hún hefir unnið hylli
blökkumannanna og virðingn
þeirra hvítu, svo að nú hafa hvítu
konurnar boðið henni sæti í félög-
um þeirra.
Vikulega berast Ruth bréf úr
ýmsum löndum heims þar sem fólk
vottar henni aðdáun sína og hvet-
ur hana til starfa. Þessi mynd er
tekin af henni fyrir skömmu.
Hið gullna
meSalhöí
Björn Helgason
Naumast er hægt að lesa svo eitt
einasta af þeim erlendu blöðum,
sem konum eru ætluð, að ekki
verði fyrir manni ótal greinar um
tvennt. Hvernig konur eigi a3
halda sér unglegum með alls kon-
ar fegurðarlyfjum og hvaða ráð
þær eigi að hafa til að megra sig.
Þetta hvort tveggja virðist taka
miklu meira rúm í blöðunum, en
skynsamlegt er. Auðvitað er það
ánægjulegt, að konur séu snyrti-
lega til fara, en hætt er við, að
litlu máli skipti hvort makað er
framan í sig þremur tegundum a£
kremi á sölarhring o. s. frv., móts
við það, að rækta með sér glað-
værð og góðvild.
Eg er líka orðin þreytt á öllumi
megrunarleiðbeiningunum og þóttj
(Framhald á 8. síðu.J