Tíminn - 23.05.1957, Side 8

Tíminn - 23.05.1957, Side 8
8 TÍMINN, fimmtudaginn 23. maí 1957, Handritamálið (Framhald af 5. síðu). viðurkenningu þeirra á því, að erfitt sé að draga mörkin á milli þess, sem er al-íslenzkt annars vegar og alþjóðlegt hins vegar. ís- lendingar taka aldrei á sig þá ábyrgð að skera úr um það, enda er það torvelt. Þannig ber allt að sama brunni. Það hentar allavega bezt að geyma handritin á íslandi. Þar yrðu þau að mestum notum, þar býr þjóð, sem á sál sína fólgna í því, sem á þeim stendur, þar búa fræði- menn, sem bezt er íreystandi til þess að lesa þau og skýra og þar myndi bezt búið að þeim útlend- ingum, sem vildu kynna sér þau. Afstaða og röksemdir Dana Þegar rætt er um afstöðu Dana til handritamálsins, er meira en skylt að geta þess í upphafi og leggja á það áherzlu, að þeir Dan- ir, sem láta sig málið nokkru skipta, skiptast í a. m. k. tvo meg- in flokka. í öðrum flokknum eru þeir, sem vilja afdráttarlaust skila hverju því íslenzku ritverki, sem geymt er í dönskum söfnum. Þessi hópur er alls ekki lítill, og þar á meðal eru fjölmargir áhrifamenn, sem unnið hafa ómetanlegt starf fyrir hinn íslenzka málstað (Jörg- en Bukdahl, Peter Freuchen o. fl.). Það er t. a. m. alkunna, að lýðháskólamenn hafa tekið af- dráttarlausa afstöðu í málinu. Þeir telja íslendinga að vísu ekki eiga lagalegan rétt til handritanna, en siðferðislegur réttur þeirra sé tví- mælalaus. Hinn meginflokkinn fylla þeir, sem telja fá eða engin rök mæla með afhendingu handritanna. Og það eru þessir menn, sem fram til þessa hafa mestu ráðið um hina opinberu afstöðu Dana. Að vísu eru meðal þeirra ýmsir mála- miðlunarmenn, sem vilja afhenda sumt, en halda öðru eftir. Röksemdir þeirra eru fyrst og fremst þær, að alþjóðlegt vísinda gildi handritanna krefjist þess, að þau séu geymd í Kaupmannahöfn, enda sé þar bezt aðstaða til rann- sókna þeirra, bókasafnskostur sé óvíða betri og hægara sé um vik fyrir vísindamenn frá hinum ýmsu þjóðum heims að vinna að rann- sókn handritanna í Kaupmanna- höfn en t. d. í Reykjavík. Enn- fremur halda þeir því fram, að ákvæði erfðaskrár Arna Magnús- sonar séu svo ótvíræð, að ekki komi til mála að hrófla við safni hans, þar sem það hafi verið hans „síðasti vilji“, að Kaupmanna- hafnarháskóli geymdi safnið. Um fyrra atriðið hefir verið rætt áður og sýnt fram á, að hin- um alþjóðlegu vísindum væri sízt bagi að því, þótt Árnasafn og önn- ur íslenzk handritasöfn væru flutt frá Danmörku, þar sem sífellt fer minnkandi sá hópur danskra manna, sem sinnir handritarann- sóknum í Árnasafni. Eins má benda á það, svo sem Erik prófess- or Arup gerði, sá ágæti maður, að ef handritin yrðu flutt til íslands, myndi það verða alþjóðlegum vís- indum fyrst að gagni með því að engum væri betur trúandi íil þess en íslendingum sjálfum að vinna af nauðsynlegu kappi að alhliða vísindastörfum í sambandi við handritin og yrði sú starfsemi því beinn ávinningur íyrir hin alþjóð- legu vísindi. Þá má á það benda, að Kaupmannahöfn liggur nú á dögum alls ekki betur við sam- göngum en Reykjavík. Auk þess er það viðurkennt af öllum fræði- mönnum stórþjóðanna, að Háskóli íslands sé nú miðstöð íslenzkra bókmenntarannsókna, fornra og nýrra, og leita því hingað til lands, ef þeir vilja mennta sig í íslenzkri tungu og bókmenntum. Um þá röksemd Dana, að erfða- skrá Árna Magnússonar kveði skýrt á um það, hvar hann hafi ætlað safni sínu verustað, þá er hún ekki mjög mikilvæg, þegar öllu er á botninn hvolft. Þetta eru að vísu alls ekki ósanngjörn rök, fljótt á litið. En herraguð! Hver treystir sér til þess að halda því fram, að það^ væri í rauninni and- j stætt vilja Árna Magnússonar að j handritasafn hans yrði flutt til föðurlands hans, þess manns, sem var mestur föðurlandsvinur um sína daga? Það er aðgætandi, að á tímum Árna voru engin önnur úrræði tiltæk en að fela Kaupmannahafnarháskóla vörzl- una. En ef hann hefði mátt líta tvær aldir fram í tímann, hefði hann áreiðanlega sett það að skil- yrði, að íslandi yrði skilað öllu því, sem hann átti í fórum sínum, jafnskjótt og íslendingar væru þess megnugir að taka við því. Það væri því engin vanvirða gagnvart minningu Árna Magnús- sonar, þótt Hafnarháskóli afhenti safnið. Ingvar Gíslason. i Vi'Stal vií Þorstein Sveinsson (Framhald af 5. síðu). útgerðar frá þorpinu. Hvað kaup- félagið áhrærir þá hefir það kom- ið upp hraðfrystihúsi, fiskimjöls- og lifrarbræðslu, sláturhúsi, verzl- unarhúsi, lagfært eldri verzlunar- hús og keypt þrjá mótorbáta, sem gerðir eru út að heiman. Stærð þeirra er 104 tonn, 75 tonn og 26 tonn. 75 tonna báturinn var keypt- ur í Þýzkalandi í vetur og kom hingað heim 8. febrúar. Hann er byggður úr stáli. Báðir stærri bát- arnir stunda vetrarvertíð að heim- an, en verða gerðir út á síld í sum ar. Eins og ég sagði áðan, þá Stunda bátarnir vetrarvertíð að heiman ásamt nokkrum smærri bátum og þeir leggja afla sinn upp í frystihús kaupfélagsins, sem er raunar eini átvinnurekandinn fyr- ir þorpsbúa, sem stunda land- vinnu. í frystihúsinu vinna að jafn aði á vertíðinni um 40—50 manns. Á bátum kaupfélagsins starfa um 30 manns og samanlagt starfa því um 80—90 manns við fiskveiðar og verkun aflans hjá kaupfélaginu. í kaupfélaginu sjálfu starfa sjö manns og starfsfólk félagsins nálg- ast því að vera um eitt hundrað þegar mest er. Þorpsbúar eru um 300. — Nú, það vinnur með öðrum orðum hver vinnufær maður hjá kaupfélaginu. Við höfum rætt mest um bátana og frystihúsið, en eig- um við ekki að snúa okkur að sjálfri undirstöðunni, þ. e. sjálfu kaupfélaginu og verzluninni. Hver var veltan sl. ár? Vörusalan á erlendum vörum varð 4,4 millj. árlega. Innlendar vörur voru seldar fyrir 2,5 millj. og er þá ekki meðtalið frystihús- ið. — Varð tekjuafgangur af við- skiptum ársins og gátuð þið greitt félagsmönnum hann út og í sjóði? — Já, tekjuafgangur varð 32 þús. sem verður greiddur til fé- lagsmanna eftir ákvörðun aðal- fundar, sem haldinn verður á næst unni. — Hvernig fer aðalfundur fram, koma allir félagsmenn þangað? — Nei, félaginu er skipt í deild- ir eftir hreppum, sem eru Geit- hellna-, Búlands- og Berunes- hreppur. Á hverju vori er haldinn aðalfundur hverrar deildar og þar er fjallað um sérmál þeirra. Einnig eru kosnir fulltrúar á aðalfund kaupfélagsins á þeim fundum. Hann er vanalega haldinn í lok maí eða byrjun júní. Þar eru tekn ar allar meiriháttar ákvarðanir um rekstur félagsins og reikningar þess lagðir fram til umræðu og samþykktar. — Hvernig eru samgöngur við Djúpavog? — Þær eru á sjó og á landi og eitt af þeim málum, sem hreppur- inn hyggst ráðast í er bygging flug vallar fyrir minni flugvélar. Eykur það mikið öryggi manna, þegar sjúkraflugvélar geta orðið lent þar. — Er ekki læknir í þorpinu? — Jú, við höfum góðan lækni, Þórhall Ólafsson, sem er nýkominn til starfa heima. Nú einnig höfum við að sjálfsögðu prest, en um þessar stöður báðar má segja að betur hefir tekizt að fá menn til þessara starfa og til að ílendast, síðan atvinna jókst og um leið vel- megun í byggðarlaginu. Presturinn ökkar heitir Trausti Pétursson og hefir verið hjá okkur í næstum 7 ár. Hann er vinsæll maður og mjög ötull að uppbyggingu og fegrun þeirra kirkna, sem fyrir voru þeg- ar hann kom, en þær voru heldur í lélegu ástandi. Hann beitti sér fyr ir því, að fengnir voru listamenn úr Reykjavík til að mála og skreyta tvær kirkjur, aðra á Djúpa vogi og hina í Áiftafirði. — Þá förum við að slá botninn í þetta samtal okkar, en viltu ekki segja mér framtíðará- form þín og kaupfélagsmanna í þínu byggðarlagi? — Stækka þarf frystihúsið og bæta aðstöðu þar til kjötvinnslu á sama hátt og um nýtingu sjávarafl- ans í landi, bæta verzlunarhúsið og nauðsynlegt verður einnig að koma upp viðgerðarverkstæði fyrir land- búnaðarvélar, bifreiðir og ýmis önnur tæki. — Að endingu vil ég benda á þetta. Sí og æ er verið að klifa á jafnvægi í byggð landsins og úr- ræðum til þess að svo geti orðið. Eg er því algjörlega samþykkur að sem mest jafnvægi sé í þjóðarbú- skapnum og vil leyfa mér að benda á, að ekkert fremur en samvinnu- félögin stuðla eins að þessum mál- um. Sú aðstaða sem samvinnufélög in skapa á hverjum stað eru alltaf fyrir hendi og flyzt ekki þaðan. Kaupfélögin og önnur samvinnufé- lög eru því sannnefnd lífakkeri flestra byggðarlaga. Örlygur Á kvenpalli (Framhald af 4. síðu). miklu skemmtilegri pistill, sem ég rakst á eftir sænskan kvenlækni. Til hennar kom ríkmannlega bú- in kona, 46 ára gömul, og þveng- mjó. Hún kvartaði um ofboðslega þreytu og bar öll þreytumerki, var hrukkótt kring um augun og háls- inn eins og á reittri hænu. Þegar búið var að skoða hana, vega og mæla, sagði læknirinn henni, að hún væri 15 pundum of létt og þreytan kæmi af vaneldi. Konunni varð skelfilega við, því að hún hafði gert sér það að metnað- armáli, að halda áfram að vera mögur og mjó, eins og á tvítugs- aldri og hafði árum saman hálf svelt sig í þeim tilgangi. Læknirinn segir, að ef til vill beri stétt hennar nokkra sök, þeir hafi hrætt menn með skrifum um afleiðingar offitu og ekki sé öllum ljóst, að meðalhófið sé það æski- lega í þessu efni. Auk þess segir hún, fer engri konu vel að vera horuð, eftir að hún er farin að eldast og fari hún að megra sig á efri árum, verði húðin hrukótt og skorpin. Hinn granni vöxtur verði þá ekki æskulegur, heldur beri þá miklu meira á ellimörkunum. Gott skap, góðar taugar og góð hold fara oftast nær saman, segir í greinarlok. Frétta[iættir (Framhald af 6. síðu). Stjóra og endurskoðenda kom þrátt fyrir nokkra hækkun á skuld glögglega fram á fundinum, að um viðskiptamanna, hefur hagur félagsins í heild haldist vel í horfi á árinu. Fjárskipti bænda í Laxárdal og Hvammssveit á síðastliðnu ári hafa haft neikvæð og truflandi áhrif á fjárhag viðskiptamanna. Verður að telja þeim mun at- hyglisverðara, hversu framkvæmda stjóra og félagsstjórn hefir tekizt giftusamlega — þrátt fyrir at- vinnulega erfiðleika, á nokkrum hluta félagssvæðisins, að sjá far- borða þjónustu félagsins og fjár- hag. Nýtt verzlunarhús í Búðardal. í undirbúningi er nú bygging nýs verzlunarhúss K. Hv. í Búðar- dal. Geta má og þess, að frystihús kaupfélagsins tekur að líkindum til starfa á þessu sumri. Bygging liússins hófst fyrir tveim árum, en vélar eru nýfengnar og verður þeim komið fyrir í húsinu á næst- unni. Mjólkursala úr Dölum að hefjast. Þessa dagana eru að hefjast mjólkurflutningar úr Saurbæ, Hvammssveit og Suður-Dölum til Borgarness. Fyrst um sinn verður mjólkin flutt fimm daga í viku. Köld tíð. Sauðburður að hefjast. Hér vestra hefir vorið verið fremur kalt til þessa. Gróður er lítill og hafa flestir fé á gjöf enn. Sauðburður er í þann veginn að hefjast. r Olafsvíkingar eignast kappróðrarbáta i Nýlega er lokiS smíði tveggja kappróðrarbáta á Akureyri fyrir Siómanna félag Ólafsvíkur. Þeir eru smíðaðir í bátasmíðastöð Svavars Þorsteinsson- ar og eru hinir vönduðustu. Þeir eru 11 metra langir og sexrónir. Hér á myndinni að ofan sést annar báturinn og hjá honum standa Svavar Þor- steinsson, bátasmiður, og Jónatan Sveinsson frá Óiafsvík, en hann er nem- andi í Menntaskólanum á Akureyri og annaðist samninga um smíðina fyrir hönd Óiafsvíkinga. Norrænt æskulýosmót meoal img- mennafél. á NorSurl. hefst 7. júlí Norræn æskulýðsmót eru nú árlega haldin að tilhlutan ungmennafélaganna á Norðurlöndum. Mótin eru haldin til skiptis í löndunum. Mót þessi standa yfir í viku og hafa því hlotið nafnið, Norræn æskulýðsvika. Mót þessi hafa verið haldin ár- lega síðan síðari heimsstyrjöldinni lauk. Sumarið 1954 var norræna æskulýðsvikan haldin að Laugar- vatni. Síðan árið 1948 hafa alltaf nokkr ir íslendingar sótt þessi mót og verður efalaust einnig svo nú. Eiga að annast kvöldvöku. Á þessum mótum hefir það ver- ið siður að hvert þátttökuland sæi um eitt kvöld og kæmi þá fram með einhver þau skemmtiatriði, sem kynntu land og þjóð. Þetta skj'ldu þeir hafa í huga, sem hugsa sér að fara nú í sumar, en í ár verður norræna æskulýðsvikan haldin í Ringerike lýðháskóla í Hönefoss 7.—14. júlí n. k. Höne- foss er ca. 60 km. frá Osló. Mótið verður sett eftir hádegi 7. júlí og verður slitið laugardaginn 13. júlí, ætlazt er til að gestir geti farið frá staðnum þegar á sunnu- dag. Margir af forustumönnum ung- mennafélaganna á Norðurlöndum munu flytja þarna ávörp og ræður, ennfremur verður margt annað til skemmtunar og fróðleiks. Dagskrá in í heild verður væntanlega birt síðar. Uppihaldskostnaður á Hönefoss er áætlaður 175,00 norskar krónur. Fargjald með flugvél fram og til baka Reykjavík—Osló mun vera ísl krónur 2.646,00, þá verður að gera ráð fyrir einhverjum kostnaði í Osló. Ferðalag á eftir. Að éndaðri vikunni mun þeim, sem vilja, gefinn kostur á tveggja daga hringferð, þannig að farið verður frá Hönefoss 14. júlí kl. 9 að morgni, upp í gegnum Halling- dal til Gol, þaðan verður farið yfir fjallið til Valdres, gegnum Östre —Slidre, til hins þekkta vatns Bygdin. Þaðan verður farið á bát til Eidsbugarden, sem heyrir til Jötunheimum, þar sern fjöllin eru yfir 2000 m. há. Frá Eidsbugarden verður farið með bílum um Tyin til Grov í Vestre-Slidre og gist þar um nóttina. Morguninn eftir, mánu dag, heldur ferðin áfram gegnum Valdresdalföret, til baka að Höne- foss og komið þangað kl. 5 síðd., þá er nægur tími til að ná nætur- lestinni til Osló. Prestskosningar. Prestskosningar í Staðarfells-, Hvamms- og Hjarðarholtssóknum fara fram í dag. Umsækjendur eru þessir: Sr. Lárus Halldórsson, prestur á Breiðabólsstað á Skógar- strönd, sr. Ragnar Benediktsson, Rvík, og sr. Rögnvaldur Finnboga- son, prestur í Bjarnanesi. Fargjaldið fyrir þessa hringferð er ekki ákveðið enn, en verður upp lýst strax og hægt er. Væntanlegir þátttakendur í þess- ari norrænu æskulýðsviku, eru beðnir að setja sig í samband við skrifstofu Ungmennafélagis íslands Edduhúsinu við Lindargötu, Rvík, sem allra fyrst. Þar verða gefnar allar nauðsynlegar upplýsingar og UMFÍ mun væntanlega skipuleggja ferðina. Á norrænu æskulýðsvikuna eru allir velkomnir. auiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijj SmmiiiimuiiiuiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiimiM

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.