Tíminn - 10.07.1957, Qupperneq 6

Tíminn - 10.07.1957, Qupperneq 6
6 TÍMINN, miðvikudagiim 10. júlí 1951. Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Ritstjórar: Haukur Snorrason, Þórarinn Þórarinsson (áb) Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18300, 18301, 18302, 18303, 18304, (ritstjórn og blaðamenn). Auglýsingasímn 19523, afgreiðslusími 12323 Prentsmiðjan EDDA hf. Langtir listí - og ljótur HÉR VAR í gær birtur stutt- ur þáttur úr niðurrifssögu Sj álfstæðisflokksf oringj anna í kaupgjalds- og verðlags- málum. Það var minnt á bar áttu foringjanna gegn verð- stöðvuninni í fyrra, og á hinn falska tvísöng „Vísis“ og Ingólfs á Hellu. Það var minnt á hina furðulegu til- burði nokkurra atvinnurek- enda, sem buðu fram kaup- hækkun að fyrra bragöi, og hvernig Mbi. hældist þá um og stillti sig ekk: að láta í ljósi þá innstu ósk, að þarna væri skriðu hleypt af stað. Það var minnt á ræðuhöld handlangara þeirra og út- sendara í verkalýösfélögun- um, sem hafa hvarvetna krafizt uppsagna samninga og kauphækkana. Það var minnt á vígorð Morgunbiaðs- ins í vetur: „.Járnsmiðir, kjósið gegn vísitö!ubindingu“ Loks var minnt á þau um- mæli varaformanns Sjálf- stæðisflokksins i jan. s.l., en hann kvað svo að orði, að ekki mundi hafa komið til uppsagna á samningum far- manna nú á þessu ári, ef stjórnarliðar hefðu haft meirihluta í stéttarfélögum þeim, sem nú eiga í verkfalli. Með þessu var þessi foringi að minna á hina nýmóðins „verkalýðsbaráttu" auðkóng- anna, sem hafa í heilt ár reynt að vega aftan að ríkis- stjórninni með því að blása að glóðum skæruhernaðar í kaupgjaldsmálum, þótt þeir þar með þverbrjóti fyrri yfir lýsingar og geri íhaldsflokk- inn nú að hreinu viðundri. ÞETTA ER langur listi — og Ijótur — en samt er þetta ekki nema fyrrihlutinn. Síð- an aðalritstjóri Morgun- blaðsins hældist um uppsögn farmannasamninganna hef- ir margt gerzt, og varla líð- ur svo dagur að annað hvort íhaldsmálgagnið, Mbl. eða Vísir, prjóni ekki einhverju við. Bæði láta sér vel lynda verkfall yfirmanna á kaup- >kipunum og bæði hafa gert ítrekaðar tilraunir til að koma af stað almennri óá- nægju út af bakaraverkíalli því, sem hér hefir nú staöið nm sinn. Dylst ekki, að báð- um þessum blöðum finnst al- menningur helzt til nægju- samur að sætta sig við orð- inn hlut. En að baki þessara skrifa er sú ósk, að ríkis- stjórnin verði knúin til aö taka í taumana með þeim hætti að látið verði undan jafnvel ósanngjörnustu kröf- um og um leið rofinn varn- argarðurinn gegn enn auk- inni dýr-tíð og verðfalli pen- inga. ÁÐUR EN þessi síðasti kafli í verðbólgusögu íhaldsins hófst höfðu gerzt ýmis tíð- indi, sem rétt er að rifja upp, því að þau upplýsa líka svið- ið og valdabaráttu Sjálfstæð isforingjanna nú í seinr.i tíð. Þegar stóðu yfir kosningar í trésmiðafélaginu hér í borg inni, tók Mbl. að prédika það fyrir meðlimum þess að „kjaramálin“ hefðu gleymst í því félagi þá að undan- íörnu vegna þess, sem blaðið nefndi „póiitíska misnotkun“ á ýmsum verkalýðsfélögum, m. a. þessu féiagi. Benti blað ið á lækninguna, sem sé að styðja til valda trúnaðar- menn Sjálfstæðisflokksins. Eftir það mundu menn ekki þurfa að óttast að kjaramál- in „gleymdust“. Þeim mundi þá verða fyigt eftir með upp sögnum samninga. Þegar Mbl. fagnaði þeirri ákvörðun iðnrekenda, að bjóða fram kauphækkun, kom í ljós, til hvers refirnir voru skornir. Aðalritstjórinn lagði sig í framkróka við að útskýra, að eftir þá kaup- hækkun væri Iðjufélagar orðnir kauphærri en Dags- brúnarmenn. Útlegging text- ans var síðan þessi: Ekki mundu Dagsbrúnarmenn þurfa að þola slíkt, ef Sjálf- stæðismenn réðu lofum og lögum i félagi þeirra eins og í iðnrekendafélaginu. Þá þótti það heldur en ekki sigurfrétt í Mbb er prentarar ákváðu að segja upp samn- ingurn. Var bá birt mikil fyr- irsögn um að beir hefðu „virt að vettugi viija Alþýðusam- bandsins". En hver var vilji Alþýðusambandsins? Hann var, að menn skyldu ekki stofna til almennra kaup- hækkana heldur reyna stöðv unarleiðina. UNDANPARNA mánuði hafa verið gerðar nokkrar breyt- ingar og lagfæringar á kaup- gjaldssamningum nokkurra féJaga. Þær eiga yfirieitt sam merkt í bví, að hafa verið til samræmingar og lagfæring- ar. En hóflega hefir verið haldið á málum, og menn hafa verið sæmilega sam- mála um að fyrirbyggja, að ný dýrtíðarskriða félli yfir landið, með óútreiknanlegum afleiðingum fyrir atvinnuveg ina. Einn aðili hefir þó skor- ið sig úr: Málgögn Sjálfstæð- isfiokksins. Þau hafa bein- línis reynt að túlka þessar lagfæringar sem fyllstu á- stæðu til þess að hleypa skrið unni af stað. í þessum tilgangi hafa blöð þessi rangtúlkað og afflutt breytingar á fiskveröi til hlutamanna og lagfæi'ingav á kjörum starfsmannahópa, setn þó gáfu í eðli sínu ekkert tilefni til slíkra ályktana. En alit er látið þjóna undir til- ganginn, og valdastreitu for- ingjanna. MEÐ ÞESSA forsögu á bakinu er Mbl. svo á tyllidögum að reyna að skríða undan á- byrgðinni og telja fólki trú um, að íhaldið hafi hvergi nærri komið. Sú viðleitni er enn eitt dæmi um óskamm- feilni og blygðunarieysi hinn ar „hörðu stjórnarandstööu" í skiptum við almenning. Khruschev undirhýr sókn til æðstu valda í slóð Sfalíns Ásakanir hans á hendur Malenkov í Leningrad á laugardaginn var minna sterklega á starfs- aðferðir hins gengna grimmdarseggs Eins og rakið var hér í blaðinu í gær, gerðust þau tíð- indi í Leningrad á laugardag í s.l. viku, að Nikita Khru- schev bar fram þungar sakir á hendur Georgi M. Malenkov, i fyrrv. forsætisráðherra umfram þær sakir, sem bornari voru á þremenningana Malenkov, Kaganovitj og Molotov í Moskvu fyrr í vikunni og frægt er orðið. Ræðan í Leningrad bendir til þess, að hreinsuninni sé ekki iokið og eftirmál nokkur séu í uppsiglingu. Kemur þetta álit fram í grein- um ýmissra fréttamanna báðum megin Atlantshafs á sunnu- daginn ' '• ir nánir samstarfsmenn hans í Eru þar að verki margir kunnir hærri stöðum og heyrðist ekki síð- menn og sumir þaulkunnugir a- an um afdrif þeirra fyrr en á 20. standinu í Rússlandi. Meðal þeirra fiokksþinginu. Þeirra helztir voru er Harrison E. Salisbury, sem y0znesensky, sem var aðalslcipu-, lengi var útsendur fréttamaður iagsstjóri ríkisins og meðlimur I New York Times í Moskvu, og er stjórnarnefndar Æðstaráðsins. j r.ú helzti Rússlandssérfræðingur Hann hvarf í marz 1949, annar! blaðsins. Salisbury ritar um málið merkismaður, sem þá var líka af-! í blað sitt s. 1. sunnudag, og vei'ð- máð'ur var Rodionov, forsætisráð- ur hér á eftir stiklað á helztu at- riðum í grein hans: Malenkov er helzta skotmarkið herra rússneska sambandsríkisins, fleiri nafnkunnir menn voru bá látnir hverfa. Allt þetta gerðist seint á árinu 1948 og snemma á árinu 1949, eða nokkru eftir dauða Orð Khruschevs í Leningrad Zhdafovs; senl var talin,‘ . hcízti benda sterklega til þess, að hann verndari þeirra. Enn er ekki ljost, hvort þeir voru drepnir eitthvað seinna. þá eða sé að undirbúa réttarhöld á hend ur fyrrv. kollega sínum, Georgi M. Malenkov, segir Salisbury. Hins vegar liggur enn ekkert fyrir um Upplýsmgar a 20. fiokks- það, hvort svipuð sókn sé nú und- þinginu irbúin á hendur Molotov og Kaga- Helztu upplýsingar um mál þelta novitj. En margt í ræðu Khru- allt, sem nú eru fyrir hendi, komu schevs, eins og í skrifum rúss- fram þegar sakir voru bornar fram neskra blaða um þessar mundir, á hendur Bería því að hann var sem vel getur boðað meiri tíðindi sagður bendlaður við örlög þess- af hreinsuninni. ara manna. Þar næst var Abu- í ræðu sinni í Leningrad sak- kumov dreginn fyrir dómstól út af aði Khruschev Malenkov um að hlutdeild sinni, og með honum 5 vera einn helzti upphafsmaður að samverkamenn. Abukumov var cinni hinni stórfelldustu hreinsun, skotinn á aðfangadag jóla 1954. sem Stalín lét framkvæma, hinni Khruschev ræddi þessi mál svonefndu Leningrad-hreinsun. En nokkuð frekar á 20. flokksþinginu, hún var sérlega illræmd. Þegar er en ekki gaf hann þá til kynna að búið að drepa 4 menn fyrir hlut- Malenkov væri bendlaður við Lcn- deild í henni, meðal þcirra Viktor ingradmálin. Nefndi aðeins Stalín, S. Abukumov, fyrrum öryggis- Beria og Abakumov og samverka- málaráðherra ríkisins. Nú riefndi menn hans. Khruschev Giorgi Malenkov einn Hins vegar hefir það lengi verið „helzta skipuleggjara" þessa sam- Ijóst, að Malenkov gat vel hafa átt særis, og þá virðist við fyrstu sýn sinn þátt í Leningradmálunum. ekki líklegt að Malenkov sleppi Hann var helzti keppinautur Zhda betur frá sínum hlut en Abakum- novs og hafði því ástæðu til að ov frá sínum. vilja losna við hann sjálfan og ! Iielztu samstarfsmenn hans. Ýmsir 1 liafa ætlað, að Beria og Malenkov hafi unnið saman við að búa út Gamalkunnugt svipmót Með þessum undirbúningi er . . T . , ,. það uppgjör, sem nú stendur yfir l>essl Lenmgradmal, í Rússlandi, að fá meiri svip þeirra atburða, sem voru undan- fari þess að Stalín náði öilum völdum í sínar hendur á sinni tið. Stalín var þá í þeirri lykilaðstöðu að vera framkvæmdastjóri •— eða aðalritari — flokksins, en nú er Khruschev einmitt í þeim sporum. Þar næst hóf hann að ryðja Úr Sparir á tilfinningarnar, MALENKOV fyrrverandi forsætisráðherra, sem Khruchev sak'aði um þátttöku í fyrir- hugaðri Leninggraduppreisn Ef svipuð réttvísi gildir um Mal- enkov undir ákæru af þessu tagi og gilti gagnvart Abakumov 1954, gæti svo farið að hann yrði ekki langlífur úr þessu. Hins vegar má líka ætla, að Malenkov hafi iíka átt sinn þátt í handtöku og af- lífun Bería og megi nú e. t. v. njóta þess, er Khruschev skipar mönnum sínum á taflborði stjórn- málanna í Moskvu. Aðstaða Molofovs og Kaganovif j Eins og fyrr segir voru engin merki þess í ræðunni, að ráðizt yrði fram með svipuðum hætti gegn þeim Molotov og Kaganovitj. Molotov á nú langa starfssögu að baki, og Kaganovitj er þegar kom- inn af venjulegum starfsaldri. En Khruschev hefir töglin og hagld- irnar í þessum leik. Allir hinir á- kærðu menn eru gamlir samverka- menn Stalíns, og hver um sig mætti eiga von á ákæru um hlut- deild í glæpum hans, ef syrti meira í álinn í skiptum þeirra við Khruschev. Vel má vera, að Khruschev ælii sér ekki að aðhafast meira í bráð en hafa aðeins í frammi hótanir eins og þær, er hann lét frá sér fara í Leningrad. Þessir menn fengju þá að halda lífi, en væru allir gerðir áhrifalausir um leið og þeir vissu, að fyrstu merki um uppsteit mundu hrinda af stað á- kærum á hendur þeim fyrir hlul- deild í glæpum Stalíns. Svipa rétt t‘'ramhalir " iftn) vegi gömlum samherjum og bylt- ingarforingjum, mönnunum, sem höfðu staðið næst Lenin. Nú er Khruschev að hefja sama leikinn með því að ryðja á brott gömlu Stalínislunum, eftir að hann heíir náð traustum tökum á embættis- kerfinu. Sakargiftir Khruschevs á hendur Malcnkov benda og til þess að hann sé þess albúinn að lyfta enn á ný lokinu á glæpakistu Stalíns og gefa veröldinni fyllri sýn en þá, er veitt var á 20. flokksþing- inu í febrúar 1956. En í stað þess að skella allri skuldinni á Stalín og Bería, eins og hann gerði þá, sé ætlunin að draga fleiri nöfn fram á sjónarsviðið. Fyrri átök í Kreml Fullyrðing Khruschevs leiðir hugann að átökum í Kreml fyvir nokkrum árum, og eru höfuðper- sónurnar Bería, Malenkov og Zhdanov, en hann var einn helzti keppinautur Malenkovs um hylli j Stalíns, en andaðist 1. sept. 1948. I Leningradhreinsunin var merkur ; þáttur kappteflis þessara manna. í j henni voru reknir nokkrir helz.tu j menn flokksins í Leningrad, en þeir voru nánir samstarfsmenn i Zhdanovs, auk þess hurfu þá aðr- HÉR Á DÖGUNUM var um það rætt hér í baðstofunni, hversu okkur er það ótamt, íslending- um, að láta í ljósi tilfinningar okkar þegar við erum margir sam an. Jafnvel á þjóðhátíðardegi íá- umst við ekki til að taka undir, þá þjóðsöngurinn er leikinn. Sum- ir telia að vísu að þetta sé af því að við séum svo sparir á röddina, viljum ekki beita henni úti af ótta við að spilla okkar fögru hljóð- um. En ekki er ég þeim sammála. Þetta er einhver feimni við ná- ungann. Ég tók eftir því á Arnar- hólstúninu 17. júní, að ef ein- hver gerðist svo djarfur að verða við áskoruninni um að taka und- ir, og fór að syngja með sínu nefi, þá litu margir merni við í senn, og horfðu á söngvarann, með meðaumkvunar- jafnvel gremjusvip. Hver var hann, að gera sig breiðan og fara að syngja? Áheyrendur — ekki þátttakendur — í kirkju. SVONA ER ÞETTA lfka í kirkjun- um. Þar syngja sárafáir í söfn- uðinum. Menn hlýða í þess stað með mikiiii andakt á kórsöng einhvers staðar uppi á lofti Eílt af því, sem hrindir mér frá kirkju sókn, er, hversu lít.il tækifæri þar eru tU að taka þátt í guðsþjón- ustunni. Menn hlusta á ræðu og hlusta á söng og sitja lengi á hörð . um bekk, en leggja ekkert af mörkum sjálfir eða í samfélogi við náungann. Þetta er galli á kirkjusiðum, og kannske fælir þetta fleiri frá kirkjunum en mig. Um það skal ég þó ekkert fullyrða, og vafalaust verða menn ekki sammála um þetta, frekar cn annað hér á okkar ágæta landi. Engin húrrahróp að nauðsynjalausu. EN ÉG SÁ það nú á dögunum, að fleiri hafa orð á hinni drunga- legu þögn, sem ríkir á samkom- um okkar en ég hér í baðstofunni. í einu sænsku blaðanna, sera sagði frá konungsferðinni hér á dögunum, segir m. a. svo, er lýst er því, er kóngur og íslenzkur al- menningur hittust: „Men jrian hurrade inte i onödan“: Þetta mun sænski biaðamaðurinn 'scgja dagsatt. Kóngur var samt góður gestur hér, aufúsugestur hjá iiil- um atmenningi. Mönnum geðjað- ist vel að honum enda er hann að- laðandi maður og auk þess eru Svíar vinsælir á íslandi og lands- menn munu yfirleitt fúsir að sýna þeim mikla vinsemd. „Men man hurrade int« i onödan“. Nú er það smekksatriði, hvort eigi að hrópa húrra eða ekki. Þó ér þetta siður með okkur. Og vel liefði mátt heyrast húrrahróp fyrir kóngi. Það hefði ekkert gert (Framhald á 8. síöu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.