Tíminn - 05.09.1957, Page 9
tÍMINN, fimmtudagiiin 5. september 1957.
9
MARTHA OSTENSO
C:1
RÍKiR SUMAR
f RAUÐÁRDAL
120
til að láta nota sig sem topp-
fígúru. Kannski getum við
fundið sterkari mann en
hann eftir fjögur ár. En á-
standið er ekki gott í 'Wash
ington, það getið þið reitt ykk
ur á. Ég held að stjórnmál
stefni nú í meira óefni en
nokkru sinni fyrr. Það efast
hnjánum. En þá virtist hon-
um andlit hennar framandi,
lítið og einbeitlegt, munnur-
inn samankipraður, sjáöldrin
þanin. Hún brosti næstum til
hans, en leit þá skyndilega
niður í opinn lófa sér. Karst-
en yppti öxlurn og glotti, en
en var þá engan veginn rótt.
Hvílík vitleysa. Rose ætti að
vita betur en taka lófalestur
einhvers konar samræðum.
Það var ekki hægt að standa
hreinlega upp og fara sína
leið. Og þó — hvers vegna
ekki? Hann fann að móðir
hans horfði á hann þaðan
sem hún sat hjá Roald og
Cole og Magdis.
Faðir hans og Arne sátu
saman úti við gluggann og
drukku þar kaffi sitt um leig
j Fyrir bókamenn og safnara |
...
= Jl
Helgi V. Ólafsson — 20 |
ára gamall, þróttmikið 1
íslenzkt ungmenni. Hann 'j§
hefir eignazt þennan §
stælta líkama með því að 1
æfa ATLAS-KERFIÐ. |
Kerfið þarfnast engra i
áhalda. Æfingatími: 10 |
—15 mínútur á dag. |
Sendum um allt land |
gegn póstkröfu. Utan- 1
áskrift okkar er: ATLAS- 1
ÚTGÁFAN. Pósthólf 1
1115, Reykjavík.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
:IlllllllllllllllllllllllHIII!IIIIIIIIIIIIIIIIilllllllllllilllllllIllllllllllllllllIIIII!IIIIIlllllII|llllllimilllllllllllllllll!IIIIIIUIIIH
ég ekki um. Bændur eiga á-
reiðanlega eftir að heyja bar-
áttu við alls kyns samtök og
stofnanir, allt frá bönkum til
hrífuframleiðenda. Hefur þú
áhuga á stjórnmálum, Karst-
en?
Karsten leitaði í ofboði í
huga sér eftir spaklegu svari
er Cole ávarpaði hann beint.
Hann sá útundan sér að
Roald frændi horfði á blend-
inn á svip.
. — Eg er ekki haldinn
neinni löngun til þess að
verða forseti, hr. Cole, sagði
hann, — en ég vona að það
hafi ekki verið rétt sem þú
varst að segja rétt í þessu.
Daniel Webster segir í
Remarks on Agriculture: ,,Er
ræktun hefst fylgja aðrar list
ir í kjölfar hennar. Þess vegna
leggja bændur undirstöðu
mannlegs þjóðfélags“. Eg
vona að þeir aðilar sem þú
talaðir um viti þetta og fari
því varlega.
Hann var ánægður með
sjálfan sig og hugsaði. Þetta
ætti að setja karlinn á sinn
stað.
Augu William Coles Ijóm-
uðu af ánægju. — Þetta er
gott sagði hann. Þetta er
alveg ágætt. Eg sé að þú hef-
ur lesið. Ungt fólk virðist ekki
hafa neinn tíma til að lesa
alvarlegar bókmenntir. Dótt
ir mín, Edna, opnar aldrei
bók, og komi það samt
fyrir . . .
— Hún er mjög lagleg, greip
Roald fram í.
— Svo er mér sagt, sagði
William Cole brosandi. — En
hver er þessi fallega unga
stúlka sem situr við hlið
henni.
— Dóttir nágrannans, sagði
Roald og ræskti sig.
— Rose Shaleen, bætti
Karsíen við þrjózkulega.
— Rose Shaleen, sagði Cole
hægt eins og hann nyti hverr
ar samstöðu nafnsins.
Nú bað Magdali þau öll að
fá sér kaffi. Hann fór að
borðinu og kom aftur með
þrjá bolla og staðnæmdist
fyrir framan stúlkurnar tvær
í sófanum. Edna Cole hélt
hönd Rose í báðum sínum, og
sneri lófinn upp.
— Þú ert mjög viðkvæm að
eðlisfari, sagði Edna. Þú átt
að vera vel á verði gegn óvin
um þínum eins og ég sagði
áðan. Og hér er líflínan . . .
Hún leit upp og sá þá Karst-
en sem horfði niður á hana.
— Ó, drottinn minn, sagði
hún.
— Hér er kaffi, sagði hann
stuttaralega. — Ef ykkur er
sama ætla ég að koma með
stól og sitja hjá ykkur.
Hann leit tæpast á Rose
þar til hann hafði setzt hjá
henni, með bolla og disk á
alvarlega.
Effie Strand var óðara kom
in á vettvang með kaffikönn-
una, og Olina kom í kjölfar
hennar með rjóma og sykur
á bakka. Hár Olínu var harð-
fléttað og blá bönd bundin
um fléttingana. Effie brunaði
áfram í átt til fólksins i hinu
horni herbergisins, en Olina1
slóraði eftir að Edna hafði
fengið sér sykur og rjóma og
Karsten og Rose rjóma.
Edna lyíti bolla sínum hæv-
ersklega með litla fingri út í
loftið og brosti til Olinu. |
— Hefur enginn sagt þér að
þú værir lagleg lítil stúlka?,
spurði hún.
— Ég er ekki lagleg, sagði
Olina. Ég er fögur eins og
Rose. Það segir David.
— Og hver er David? spurði
Edna.
— Hann er bró'ðir minn,
sagði Rose og horfði niður í
bollann sinn. Hann er bara
þréttán ára. Þú ættir ekki að
taka neitt mark á honum,
Olina.
Og síðan hélt Olina áfram
leiðar sinnar og raulaði fyrir
munni sér sama lagið og
Karstein hafði heyrt hana
raula um morguninn. En nú
hljómaði það öðru vísi en í
morgun, það heyrði Karsten
gjörla. Þá hafði Olina raulað
það dreymandi, nú hljómaði
það háðslega, næstum ósvífn-
islega.
| — Ó, ég vildi óska að ætti
systkini, andvarpaði Edna og
leit dreymandi á Karsten.
Það er hörmulegt að vera ein-
birni. Það er glæpur af for-
eldrum manns að hafa bara
eitt einmana barn á heimil-
íinu. Eigið þér ekki margar
systur og bræður, ungfrú
Shaleen, fyrir utan þennan
David sem Olina var að tala
I um? ^
I Rose leit upp, undrandi og
rugluð eitt andartak. Síðan
| hló hún afsakandi.
i — Ó, ég — David er í raun-
inni frændi minn. Þeir eru
allir frændur mínir. Faðir
þeirra er móðurbróðir minn,
og ég ber nafn þeirra af því
að ég hef alizt'upp í fjöl-
skyldunni.
j — Ó, sagði Edna hikandi.
Ég bið afsökunar. Ég vissi
ekki...
| — Rose heitir réttu nafni
Brazell, sagði Karsten. For-
eldrar hennar dóu þegar hún
var barn að aldri, og móður-
bróðir hennar tók hana að sér.
Saga hennar er mjög róman-
jtísk.
En hvað þetta hljómar
falskt, hugsaði hann með
jSjálfum sér. Eins og einhver
|nauðsyn bæri til að vera að
útskýra Rose og líf hennar
! fyrir brúðu eins og Ednu Cole.
En hann varð að halda uppi
og þeir ræddu eitthvað um
landbúnað — það var greini-
legt á hátíðlegum alvörusvipn
um á kringlóttu andliti Arnes.
Olina var farin út, og Sólveig
hafði enn ekki komið inn.
Karsten fann til mikillar ein-
manakenndar, rétt eins og
Rose væri alls ekki þarna.
— Þú verður að segja mér
þetta allt saman einhvern
tíma, hrópaði Edna upp yfir j
sig. Hún lagði mjúka hönd
sína á handlegg Rose. Wing.
Er það ekki æsandi nafn. Og
að hugsa sér að bærinn skuli
vera skírður eftir fjölskyldu
þinni, Karsten. Ó, — ég ætl-
aði ekki... Hún hló vandr-
æðalega, og það fór henni vel.
Þú mátt ekki halda að ég
jleggi í vana minn að ávarpa
fólk með skírnarnafni...
— Það er allt í lagi, sagði
Karsten stirðlega. Viltu ekkii
meira lcaffi, ungfrú — Edna.
Edna hló áfram. Þetta kalla
ég kurteisi, sagði hún. Er það j
ekki, ungfrú Shaleen? Hann j
kallaði mig Ednu af því að,
mér var það á að kalla hannl
Karsten. Nei, þakka þér fyrir.
Ég þori ekki að drekka annan
bolla. Mamma segir að það
spilli litarhættinum.
i — Þú vilt meira kaffi,
Karsten, sagði Rose. Hún tók
bolla hans, og áður en hann
gat mótmælt var hún farin
af stað yfir að kaffiborðinu.
Hún hreyfði sig með þokka
sem minnti á ungt dýr........
Blái kjóllinn náði henni ekki
alveg niður að öklum, og Kar
sten sá, eins og Edna Cole,
að undirkjóllinn stóð aðeins
niðurundan pilsfaldinum. Og
aftur fann hann til haturs í
garð sjálfs sín að finna ást-
inni sinni slíka smámuni til
foráttu.
— Það verður dásamlegt að
búa uppi í sveit, sagði Edna.
Maður getur klæðzt alveg eins
og manni sýnist, er ekki svo?
Karsten leit tortryggnis-
lega á hana. Hann var ekki
vanur að umgangast stúlkur,
; og hann gat ekki varist því
I að finnast athugasemd henn
ar dálítið nærgöngul.
— Þú munt búa i Wing,
sagði hann. Það er ekki bein-
línis uppi í sveit þótt það sé
bara lítill bær.
j Rose kom aftur með kaffið.
Hún hallaði sér yfir Ednu til
I að rétta Karsten bollann og
| dropi féll á hreinan kjól henn
ar.
— Ó, fyrirgefðu, ungfrú
Cole, stundi Rose upp. Ég skal
sækja ....
— Þetta er allt í lagi, sagði
Edna. Það þvæst úr. Seztu
bara niður og ljúktu við kök-
: una þína. Ég verð að spyrja
j móður þína, Karsten, hvernig
! hún lagi svona gott kaffi Það
getur mamma alls ekki, senni
| Af neSantöldum bókum getum við aðeins afgreitt örfá §
| eintök. Pantanir verða því afgreiddar í þeirri röð, sem 1
| þær berast. Bækurnar hafa ekki verið á bókamarkaði I
I í mörg ár |
| Bréf Jóns Sigurðssonar. Nýtt safn. 334 bls., ób. kr. 35.00. I
| Frá Danmörku, e. Matth. Jochumsson. Útg. 1906. 212 §
bls., ób. kr. 40.00.
I Örnefni í Vesfmannaeyjum, e. dr. Þorkel Jóhannesson. |
I 164 bls., ób. kr. 25.00.
1 íslenzk fuglaheitaorðabók, e. Pál Þorkelsson. Útg. 1916. 1
| Kápur óhreinar. 128 bls., ób. kr. 25.00.
| íslenzk garðyrkjubók. Útg. 1883 með mörgum teikning- |
um. 140 bls., ób. kr. 35.00. §
I Vesfmenn. Landnám íslendinga í Vesturheimi, e. Þorst. §
Þ. Þorsteinsson. 264 bls., ób. kr. 25.00.
| Skólaræður, e. Magnús Helgason, fyrrv. Kennaraskóla- |
| stjóra. 228 bls., ób. kr. 40.00.
| Hjarðir, kvæði e. Jón Magnússon. 168 bls., ób. kr. 20.00. 1
| Heimhugi, ljóð e. Þorst. Þ. Þorsteinsson. 96 bls., ób. I
| kr 10.00.
| Ljóðaþættir e. Þorst. Þ. Þorsteinss. 92. bls., ób. kr. 10.00. |
| Ljóðmæli e. Jóh. M. Bjarnason, höf. Brasilíufaranna. |
| Útg. 1898, 128 bls., ób. kr. 15.00.
I Bóndadótfir, ljóð e. Gutt. J. Guttormsson. 92 bls., ób. |
| kr. 10.00. |
j| Rímur af Perusi meisfara e. Bólu-Hjálmar. 48 bls., ób. j§
| kr. 10.00. |
§ Sól og menn, ljóð e. Vilhjálm frá Skáholti. 96 bls., ób. I
| ^ kr. 50.00. |
p Úlfablóð, ljóð e. Álf frá Klettstíu (Guðm. Frímann). 90 1
= bls., ób. kr. 15.00.
| Kvæðabók e. Jón Trausta. 192 bls., ób. kr. 30.00.
| Samtíningur, smásögur e. Jón Trausta. 232 bls., ób. |
| kr. 20.00. |
| Andvörp, smásögur e. Björn austræna (Ben. Björnsson, |
{§ skólastj.) 156 bls., ób. kr. 15.00.
| Gresjur guðdómsins, skáldsaga e. Jóhann Pétursson. |
| 240 bls., ób. kr. 36.00. {§
| Vötn á himni, leikrit e. Brimar Orms. Tölusett og áritað 1
1 af höf. 188 bls., ób. kr. 100.00.
I Gerið svo vel að merkja X við þær bækur, sem þér 1
| óskið að fá sendar gegn póstkröfu.
= ||||,iiiiiii>*i<iiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiil,iiiiiiiliiiiiiil,iiiii —
Undirrit.... óskar að fá þær bækur, sem merkt er við 3
í auglýsingu þessari sendar gegn póstkröfu.
l i
H Nafn...............................................................
Heimili ............................................................. 3
= s
E iiniiiiiiiiiiiiinniiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii g
| Ódýra bóksalan, Box 196, Reykjavík. |
imiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiuiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiuuiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiEii
- Auglýsingasími TÍMANS er 19523 -
Fylgist með tímanum. Kaupið Tímann
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiliiliiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiniilllilliii