Tíminn - 06.09.1957, Qupperneq 6

Tíminn - 06.09.1957, Qupperneq 6
6 T í M I N N, föstudaginn 6. september 1957. Útgefandi: Framsóknarflokkurlnn. Rifcstjórar: Haukur Snorrason, Þórarínn Þórarinsson (áb) Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Súnar: 18300, 18301, 18308, 18308, 18304, (ritstjóm og biaSamenn). Auglýsingasími 19523, afgreiSslusími 12323. PrentsmiSjan EDDA hf. Staðreyndimar um skattana RITSTJÓRAR Mbl. hafa öðru hvoru verið að birta -hvatningargreinar, þar sem þeir hafa verið að áminna starfsbræður sína við önnur blöð um heiðarleika og virð ingn fyrir staðreyndum. Um þessi skrif þeirra væri vissu iega ekki nema gott að segja, ef þau væru rituð af fullum heilindum og höfundarnir sjálfir fáeru eitthvað eftir þeim. Það gildir hinsvegar um þessar siðferðisprédikan- ir eins og aðrar, að þær verða aðeins til að ómerkja sjálfa prédikarana, ef þeir breyta sjálfir öfugt því, sem þeir eru að boða öðrum. Því miður gildir þetta all- of tnikið um ritstjóra Morg- unblaðsins. LEIÐINLEGT dæmi um þetta er að finna í forustu- grein Mbl. í gær. Þar segir fyrst frá kunnum aflakóngi, er blaöið hefur átt viðtal við og hefur það m.a. eftir hon- um, að skipstjórum þyki jafnvel betra að fara í land á miðju ári en aö halda á- fram að fiska, vegna hinna þungu skattaálaga. í fram- halda af þessu, ræðir Mbl. svo um skattana og segir á þessa leið: „Hér hefir skattheimtan veríð svo hóflaus, að hún nálgast algert rán eða eigna upptöku. Frumkvöðull þess- arar heimskulegu og stór- hættulegu skattránsstefnu er Eysteinn Jónsson, sem verið hefur fjámálaráðherra ís- lands lengur en nokkur ann- ar maður. Enda þótt ýmsir sanngjarnir menn innan Framsóknarflokksins hafi veriö skattránsstefnu hans algerlega andvígir, hefur hann þó haldið fast við hana. Og nú stendur veldi þessarar eyðileggingarstefnu með hvað mestum blóma.“ Framhald greinarinnar er svo allt í þessum dúr. HVAÐ segja svo stað- reyudirnar um þessar full- yrðingar Morgunblaðsins? Fer Mbl. hér rétt og drengi- legft með staðreyndir? Það rétta er, að tæplega mu» hægt að komast lengra frá þvi að fara með rétt mál en Mbl. gerir hér. Staðreynd irnar eru í stuttu máli þess- ar: Á árunum 1939—50, þcg ar Siálfstœöismenn fóru ó- slitiö meö fjármálastjórn- ina, voru svo aö segja allir skattar hœkkaöir frá því, sem var á árunum 1934— ’39, þegar Eysteinn Jóns- son var fjármálaráölierra í hið fyrra sinn. Nýjum, stór um sköttum var ennfrem- ur bœtt við, eins og t.d. striðsgróðaskattinum. Siöan Eysteinn Jónsson tók við fjármálastjórninni aftur 1950, hefur tekju- skatturinn veriö lœkkaöur um 20—29% frá þvi, sem hann var í fjárstjórnartíð Sjálfstæðismanna, og striös gróöaskatturinn hefur einn ig verið lœkkaður á hœrri tekjum. Þá hafa sjó- mönnum verið veittar veru legar skattaundanþágur. — Tekjuskatturinn á lágtekj- ur hefur nýlega veríð lækk aður enn meira en að fram an greinir. í athugun er nú að auka skattafrádrátt hjóna og lœkkun skatta á fyrirtœkjum. Staðreyndirnar eru þann- ig þær, að þegar Eysteinn Jónsson var fjármálaráð- herra 1 hið fyrra sinn, voru skattar mun lægri en þeir urðu í fjárstjórnartið Sjálf stæðisflokksins 1939—’50, og að siðan Eysteinn Jónsson varö fjármálaráðherra í hið síðara sinn, hafa skattar verið verulega lækkaðir frá því, sem þeir voru i fjár- stjómartíð Sjálfst.manna. Samt fullyrða ritstjórar Mbl. nú alveg kalt og rölega, að Eysteinn Jónsson sé höf- uhdur skattránsstefnunnar — maðurinn, sem hefur haft forustu um að lækka skatt- ana verulega frá þvl, sem þeir voru I fjárstjórnartið Sj álf stæðisflokksins. Lengra verður vissulega ekki komizt i ódrengilegri meðferð á staðreyndum. Það þarf vissulega glórulaust of stæki manna, sem sakna valdastólanna, til þess að halda uppi öðrum eins mál flutningi og ritsjörar Mbl. gera sig hér seka um. Fiskar horgarstjórans SKRIF Morgunblafsins um skattamálin. hljöta að sjátfsögðu að minna á þá staðreynd, að það er ekki ríkið, sem leggur á þyngstu bei»m sfcattana, heldur bæj- ar- og sveitarfélögin. Að vissu marki eru þau neydd til þess, vegna fyrirmæla um ýmis útgjöld, sem þingið hefur ákveðið og Sjálfstæðis menu hafa ekki staðið síöur fyrir en aðrir. Að hinu leyt- inu gera þau það vegna eigin framkvæmda og starfrækslu. Þetta gildir ekki sízt um stærsta bæjarfélagið, Reykja vik. Þaanig upplýstlst á síðast- liðnu vori, að ungur flugmað ur, sem taldi sig verða aö yfirgefa landið vegna of þungrar skattabyrði, hafði borgað miklu meiri skatta tii Reykjavíkurbæjar en rikis ins. Meðan hann borgaði ríkinu einn fisk, svo að not- uö sé samlíking Morgunblaös ins, þurfti hann að borga á þriðja fisk til Reykjavíkur bæjar. Reykjavikurbær er það bæjarfélag, sem Sjálfstæðis- flokkurínn hefur jafnan stjórnað einsamall. Þar hef- ur hann fengið að sýna, hver skattastefna hans er i verki. Niðurstaðan er sú, að Reykja Sjötta Edinborgarhátíðin Sýningar konunglega sænska balletts ins - Frábær upplesari, Sir J. Gielgud Edinborg, 28. ágúst. Vakti aðdáun Konunglegi sænski ballett- inn hefir að undanförnu átf annríkt. Hann hefir haldið hér átta sýningar á sex dög- um og sýnt marga balletta. Flestir þessara balletta voru hárómantískir, væmnir og gamaldags, t. d. Gísella og Gaité Parisienne. Einn ballettanna var þó nýr, en saminn eftir gamalli sögu, sögunni um Lisyfus. Þetta var mjög sér- kennilegur og áhrifamikili ballett. Tónlistin, sem var eftir sænska -tónskáldið Karl Birgir Blomdahl, var snilldarleg og frumleg (Að vísu gætti á einstökum stað áhrifa frá Strawinsky), og kóreagarfian ekki síður. Dansararnir voru ágæt- ir, sórlega Björn Holmgren og Marianne Orlando. Clara Haskil, hinn aldurhnigni píanóleikari hefir vakið ósvikr.a aðdáun með píanóleik sínum. Hún hefir leikið sónötu eftir Mozart, Beethoven og Schubert, og auk þess iók hún tvo af píanókonsert- um Mozarts. Clara Haskil er eng- inn virtúós, en þó hefir hún stað- góða tekník. Leikur hennar ein- kerínist af margra ára reynslu sem píanóleikari, vandvirkni og innileik. Túlkun hennar á verkum Mozarts cr scrlega góð og Píanó- konsert hans í F-dúr K.459, sem hún lék með bavarísku útvarps- hljómsveitinni, var beinlínis snilldarlega leikin. Spænsk söngkona Söngkonan Victoria de los Ange- les hélt tónleika með undirleik Geralds Moore. Hún söng fyrst sönglög eftir Schubert, Schumann 'og Brahms og var túlkun hennar á þeim léleg. Það er crfitt fyrir spænska söngkonu að syngja þýzk Mariane Orlando speares. Strax um morguninn safn aðist saman mikill fjöldi fóiks og þegar upplesturinn hófst, var sál- urinn troðfullur. Fólk stóð með- fram veggjum, á göngum, eða sat á gólfinu. Sir John Gielgud hefir mjög fallegan málróm og talar I óvenjugóða ensku. Hann las i tvo tíma, hló og grét, söng og dans- aði. Og að lestri hans lokríum ætl- I aði allt um koll að keyra af hrifn- | ingu. Gielgud er m. a. þekktur fyr- ir leik sinn í hlutverki Hamlets, Carsíusar í Júlíusi Cæsar og Lears konungs í samnefndu leikriti. Einn ig er hann ágætur leikktjóri og hefir getið sér góðan orðstír fyrir leik sinn í verkum nútíma höf- unda. 'J-' ■ ■ Bezta hljómsveit Þýzkálands Bavaríska útvarpshljómsveitin hefir haldið nokkra tónleika nndir stjórn Otto Klemperers og Eugens Jochums. Hljómsveitin er ung, stofnuð árið 1949 af Eugen Joch- um, en er þó nú viðurkerínd sem ein bezta hljómsveit Þýzkalands. Otto Klemperer stjórnaði.fyrstu Frá sýningu sænska ballettsflokksins. Á myndinni eru talið frá vinstri: tónleikum hennar og voru ein- Caj Selling, Verna Klausen, Else Marianne von Rosen, Kenneth Petersen göngu leikin verk eftir Beéthoven, Egmont forleikurinn, fjórðá sin- i ! i Ánægjulegir tónleikar Blásarakvintett Dennis Brain héit tvenna ánægjulega tónleika. í kvintettinum eru góðir einstakl- ingar, en þeir vinna vel saman og spila af sýnilegri ánægju. Á fyrri tónleikunum léku þeir yndis- leg blásaraverk eftir Mozart og Kleine Kammermusik eftir Hinde- mith. Verk þetta samdi Hindemith árið 1922, aðeins 27 ára að aldri. Það er mjög fallegt og meistara- lega samið. Binnig fluttu þeir Sextett fyrir píanó og blásara eft- ir Poulenc — vægast sagt þunnt verk og fremur leiðinlegt. Á seinni tónleikunum léku þeir félagar m. a. tvö alveg ný verk, samin 1956. Annað var eftir ítalska tónskáldið Malipiero, stórskemmti- legt verk, en hitt var blásara- kvintett eftír Racine Fricker, frernur óaðgengilegt, en nokkuð gott vei*k. sönglög, því að Þjóðverjar sjálfir eiga svo ágætar söngkonur og óhjákvæmilega hlýtur að koma til samanburðar. En eftir hléið söng hún franska og spænska söngva og það gerði hún vel. Undirleik- arinn, Gerald Moore, átti einnig sinn þátt í þessum tónleikum. ‘Hann gerði meira en að aðstoða söngkonuna, hann beinlínis inspír- eraði liana. Hann er sem kunnugt er bezti undirleikari í heimi, enda mjög eftirsóttur sem slíkur. Upplesfur Sir John Gielgud Eitt af þvi, sem mesta hrifningu hefir vakið hér er upplestur hins heimskunna, enska leikara, Sir Johns Gielgud úr verkum Shake- fónían og Eróíca sinfónían. Klemp erer er stórhrotinn hljómsveitar- stjóri og sterkur persónuleiki. Hann hefir að undanförnu ált við mikla vanheilsu að stríða, en það virðist ekki hafa haft nein áhrif á hann sem hljómsveitaráQóra. Eugen Jochum var allur minni fyrir sér og smærri í sniðum en Klemperer. Engu að síður hafði hann mikla reynslu til að bera og var ósköp þægilegur og þokkaleg- ur hljómsveitarstjóri. Einkum var túlkun hans á 7. sinfóníu Bruchners góð, enda er hann mest þekktur fyrir stjórn sína á verk- um hans. A. H. S. vílcurbær heimtar meira en helmingi fleiri fiska af skattþegnunum en ríkið. Reynslan sýnir þannig, bæði hjá ríki og bæjarfélög- um, að Sjálfstæðismenn hafa haft forustu um hinar þyngstu skattaálögur. Vissu lega er rétt að vinna að því að reyna að fækka tiltölu- lega þeim fiskum, sem eru greiddir fjármálaráðherra, en þó er enn meiri nauðsyn að fækka fiskunum, sem borgarstjórinn tekur, þar sem þeir eru nú margfallt fleiri. Tii þess fá menn tæki færið í bæjarstjórnarkosn- ingunum í vétur. Björn Holmgren og Else Marlanne von Rnsen og Gunnel Randln.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.