Tíminn - 11.09.1957, Blaðsíða 6

Tíminn - 11.09.1957, Blaðsíða 6
6 T í M I N N, miðvikudaghin 11. scptemb®? 1957, Útgefandi: Framsóknarflokkurlnn. Rltstjórar: Haukur Snorrason, Þórarinn Þórarlnssoa (áb) Skrifstofur í Edduhúsinu viO Lindargötu Símar: 18300, 18301, 18302, 18303, 18304, (ritstjórn og blaðamenn). Auglýsingasími 19523, afgreiðslusíml 12323. PrentsmiSjan EDDA hf. Sogsvirkjunin og borgarstjórinn EINS og kunnugt er standa ríkissjóður og Reykja víkurbær sameiginlega að hinni nýju virkjun, sem ný- lega er byrjað að reisa við Sogið. Hún mun verða að hálfu eign rikisins og að hálfu eign bæjarins, eins og hinar eldri virkjanir. Þegar Mbl. skýrir frá fram kvæmdum við hina nýju Segsvirkjun, mætti helzt halda, að það sé borgar- stjórinn í Reykjavík, er hafi veg og vanda af henni. Mbl. birti myndir, þegar samning ar við verktaka voru und- irritaðir, og var þeim þannig háttað, að borgarstjórinn var fyrirferðarmesta persón an á þeim. Aftur birti Mbl. myndír, þegar verkið var hafið, og þar var það á ný borgarstjórinn, sem mest lét á sér bera. Samkvæmt þess- ari myndagerð Morgunblaðs ins hvílír hin nýja Sogsvirkj un fyrst og fremst á hinum breiöu herðum borgarstjór- ans. ÞEGAR staðreyndirnar eru hinsvegar athugaðar, kemur það í ljós, að ritstjór um Mbl. hefur mistekist í þetta skipti, eins og raun- ar oftar, að fylgja því heil- ræðij sem þeir gefa óspart öðrum, að fara rétt og heiðar- lega með þær. Staðreyndirn ar segja nefnilega allt aðra sögu en myndir Morgunblaðs ins. Að sjálfsögðu væri það eðiilegt, þar sem hér er um helmingafyirirtæki að ræða, að Reykjavíkurbær útvegaði a. m. k. jáfnmikið fé til virkj unarinnar og ríkissjóður. Það ætti ekki heldur aö reynast Reykjavíkurbæ neitt erfitt, ef fjárhagur hans er jafn- góður og Mbl. vill vera láta. Samt er þetta svo, að sjóðir Reykjavíkurbæjar og láns- möguleikar reynast alveg tæmdir, þegar Sogsvirkjunin er annarsvegar. Reykjavík- urbær hefur enn ekki lagt fram einn einasti eyri til þessarar framkvæmdar og ekki heldur útvegað einn ein asta eyri að láni. Allt þaö fé, sem hefur verið útveg- að til virkjunarinnar, hef- ur verið útvegaö af ríkissjóði eða réttara sagt fjármála- ráðherra fyrir hönd hans. Borgarstjórinn hefur þar hvergi komið nærri. ÞAÐ verður hinsvegar ekki sagt, að flokkur borg- arstjórans hafi ekki komið nálægt þessu máli. Á þriðja ár kepptust fulltrúar hans í ríkisstjórn við það að fá lán til virkjunarinnar, en án alls árangurs. Ef svo hefði haldið áfram, væri lán til virkjunarinnar ófengið enn og verkið þá eðlilega ekki hafið. Sem betur fór, tókst núv. ríkisstjórn að útvega hagkvæmt lán til virkjunar- innar fyrir atbeina fjármála ráðherra og fleirri góðra manna. En hvernig studdi flokkur borgarstjórans þá lánsútvegun eftir að fulltrú ar hans voru farnir úr ríkis stjórninni? Beztu heimildir um það er að finna í ameríska íhaldsblaðinu „The Wall Street Journal." Seint í aprilmánuði siðastl. eða rétt áður en ganga átti frá samn ingunum um Iánið í Wash- ington, birti þetta blað grein frá fréttamanni sinum á ís- landi, þar sem sagt var, að það myndi mælast illa fyrir meðal vina Bandaríkjanna á íslandi, ef íslendingar fengju lán í Bandaríkjunum. Þessu til frekari staðfestingar hafði fréttamaðurinn þau ummæli eftir einum af leið- togum Sjálfstæðisflokksins, að lán til íslands væri sama og að borga aðgöngumiða kommúnista að ráðherrastól unum. í stað þess að mót- mæla þessu, birti aðalblað Sjálfstæðisfl., Morgunblaðið, frásögn hins ameríska blaðs með bersýnilegri velþóknun og án nokkurra athugasemd ar. Með því vildi Morgunbl. bersýnilega árétta, að um- mælin væru rétt höfð eftir. Þannig var lögð áherzla á að kunngera þessa afstöðu Sjálfstæðisflokksins bæði í Bandaríkjunum og á íslandi, rétt áður en gengiö var frá samningunum um Sogslánið í Washington. Greinilegar gat það ekki komið í ljós, að forkólfar Sjálfstæðisfl. gerðu það, sem þeir gátu til þess að koma í veg fyrir, að lán fengist til Sogsvirkjunarinnar. Síðan átti að kenna stiórninni um, að virkjunin kæmist ekki upp, því að hún hefði hvergi lánstraust. ÞANNIG hljóða þá stað reyndimar um boraarstjór- ann, flokk hans og Sogsvirkj unina nýju. í svona litlu sam ræði eru þær við myndirnar, sem Mbl. hefur verið að birta og áður var nokkuð vikið að. Staðreyndirnar sýna, að borgarstjóranum hefur ekki tekizt að útvega einn ein- asta eyrir til Soesvirkjunar- innar, þótt að réttu lagi eigi bærinn að útvega það að hálfu. Staðrevndirnar sýna ennfremur, að flokkur borg arstjórans hefur gert sitt ítrasta til þess að hindra það að rikið gæti útvegað þetta fé. Lokabátturinn i söeu borg arstjórans og Sogsvirkjunar innar nýiu er enn eftir: — Fyrir næstu bæiarstiórnar- kosninear mun kiósendum í Reykiavik berast mikil mynd ski-eytt bók. Þar munu m.a. verða mvnriir af borearstiór anum. er svna hann sem aðal foreönemnann hinnar nviu virkiunar. Oe kiósenrinr munu verða áminntir ræki- leg um bað. að st.qnda fast um hinn ötnla borearstióra. er m.a. hafi sannað dugnað sinn með hví a,ð kom hinni nýju Sogsvirkjun áleiðis! ERLENT YFIRLIT: Aðstoð Rússa við Sýrlendinga Hún neyíir vesturveldin til aí endurskoða viíhorf sitt til Arabaríkjanna " SEINUSTU vikur hefir athygli manna mjög beinst að Sýrlandi og er ástæðan sú, að ríkisstjórnin þar hefir samið við stjórn Sovétríkj- anna um stóraukna efnahags- lega aðstoð.'Nokkur misseri undan farin hefir Sýriand fengið talsvert af hergögnum frá kommúnistaríkj- unum, en ekki verulega efnahags- lega aðstoð fyrr en nú. Meðal ým- issa stjórnmálamanna vestan tjalds einkum þó í Bandaríkjunum, hefir þetta vakið þann ugg, að Sýrland kunni þráðlega að komast undir rússnesk yfirráð. Stjórn Banda- ríkjanna hefir því brugðið hart við og lofað þeim Arabalöndum bæði vopnum og efnahagslegri hjálp, er ekki þiggi slíkt af Rússum. Mun þetta fyrst og fremst gert til þess að koma í veg fyrir, að fleiri ríki fylgi dæmi Sýrlands. ÞEGAR nánar er aðgætf. verður því ekki neitað, að vesturveldin eiga sinn þátt í því, hvernig farið hefir í Sýrlandi og að þau hafa skapað Rússum tækifæri til að koma þar inn litla fingrinum. Þar kemur ekki aðeins afstaðan til ísrael til greina, en vesturveldin hafa á ýmsan hátt hjálpað ísrael til að byggja upp her sin, en neit að Arabaríkjunum um öll vopn. Nú þegar Rússar hafa brotið þetta bann niður keppast Bandaríkin við að senda vopn til þeirra Arsba- ríkja, sem þau telja sér hliðholl. Þessu til viðbótar kemur svo það, að Bandaríkin hafa verið ó- fús til að veita efnalega aðstoð þeiim Arabarikjum, er fylgt hafa hlutleysisstefnu, nema þau hyrfu frá henni og gerðust beinir eða óbeinir aðilar Bagdad-bandalags- ins. Jafnvel Eisenhoweraðstoðin, sem var auglýst á síðastliðnum vetri, var mjög reist á þessum grundvelli. Þessa aðstöðu hafa Rússar notað sér og boðið Sýrlend ingum aðstoð, ón allra pólitískra skilyrða. Að sjálfsögðu ætla Rúss ar að vinna sér fylgi þeirra í stað inn, en eru hins vegar nógu hyggn ir til þess að gera það ekki að neinu beinu skilyrði. Von þeirra er sú, að þetta komi eins og af sjálfu sér. •Á ÞESSU stigi er hias vegar ekki hægt að fullyrða neilt um það hvort þessar fyrirætlanir Rússa muni heppnast. Eins og er, getur Sýrland ekia talist rú-sneskt ieppríki og þeir, sem nú ráða mestu í Sýrlandi, ætla iandinu ekki það hlutskipti. Vegna þeirra lána, sem Sýrland fær frá Rúss- um, er eins rangt að kalla Sýrland rússneskt loppríki, og það er rangt að kalla eitthvert ríki bandarískt leppríki af þeirri ástæðu einni, að það fær lán frá Bandaríkjunum. Hitt er svo annað mál, hvort auk- in efnahagsleg samvinna Sýrlands og Sovétríkjanna, verður til þess að styrkja svo hin kommúnistísku öfl í landinu, að þau nái siðar meir yfirráðum. Það er óttinn við þetta, er veldur nú ýmsum stjórn- málamönnum vestan tjalds nokkr- um áhyggjum. ÞAÐ ER bandalag vinstri sinn- aðra þjóðernisflokka, sem nú fer með stjórnina í Sýrlandi. Forseti landsins er ihinn 77 ára gamli Shu kry Kuwatly, sem var einn helzti 1 eið togi stjálfstæðishr eyf ing ar i n n- ar meðan Frakkar réðu yfir Sýr- landi, og' síðan fyrsti forseti lands ins. Hann tflúði land 1950, er herinn gerði byltingu, en var aftur kosinn forseti 1955, en ár'ð áður hafði einræðisstjórn Shishakh, ver ið steypt úr stóli og þingkosning- ar látnar fara fram. Eftir þær kosningar urðu vinstri flokkarnir og hægri flokkarnir nokkurn veg- inn jafnsterkir og valt á ýmsu um stjórnina fyrst á eftir. f júní í fyrra náðist að lokum sa’mvinna um þá ríkisstjórn, er nú fer með völd. Þrír flokkar standa að þeirri stjórn: Þjóðernisflokkurinn, sem sem er flolckur Kuwatlys forseta og Babri Assalis forsætisráðherra, HOURINI — er hann hinn „sterki" maður Sýrlands? Baat-flokkurinn, sem telur sig sósíaldemókratískan flokk og er undir forustu Hourani upplýsinga- ráðherra og Salar Bitar utanríkis- ráðherra, og lýðveldisflokkurinn, sem er undir forustu Khalid al Azm hermálaráðherra. Kommúnist ar taka ekki þátt í stjórninni, enda eiga þeir ekki nema einn mann á þingi. ÞÓTT ALLIR stjórnarflokkarn- ir telji sig vinstri sinnaða, hafa þeir ekki sameiginlega stefnuskrá, nema helzt Baathflokkurinn. Stefna hinna er miklu fremur hægri sinnuð í innanlands- málum. Það bindur þessa flokka hins vegar saman, að þeir eru aJl- ir mjög þjóðernissinnaðir og mikl ir andstæðingar ísraels. Þjóðernis stefnan, sem fyrir þeim vakir, bein ist að því að sameina Sýrland, Li- banon, Jórdaniu og helzt írak í eii sýrlenzkt ríki, sem sé í mjög nánu stjórnarfarslegu bandalagi við Egyptaland. Þeir telja vestur- veldin mjög andvig þessari stefnu og eru því tortryggnir í garð þeirra. Rússar látast hins vegar vera þessari hugmynd hlynntir og hefir það gert þá vinsælli í Sýr- landi. Margt veldur því, að þessi aral)- iska þjóðernisstefna á mikiö fylgi í Sýrlandi. Þótt Sýrland sé allstórt að flatarmáli 72 þús fermílur, er það fremur fátækt land, þar sem mikill hluti þess er óbyggilegur og það ræður ekki ytfir neinurn teljandi auðlindum. Sameining við írak og Lihanon myndi styrkja Sýr land efnalega. Bf umrædd fjögur ríki yrðu sameinuð, myndu þau líka verða sterkari í átökunum við ísrael en á meðan þau eru sundr- uð. Hið sameinaða ríki myndi haf a 12 milljón ibúa, en Sýi'land hefir nú 4 milljónir. FYRST framan af var núverandi stjórn Sýrlands talin völt í sessi. Á síðastliðnu vori var jafnvel tal- ið líklegt, að henni yrði steypt úr stóli. ,,Hreinsun“ sem nýlega hefir verið gerð innan hersins, hefír hins vegar styrkt hana í sessi a. m. k. að sinni. Það er talið hafa hjálpað henni veruiega, að hægri flokkarnir eru mjög sundraðir og hafa enga atkvæðamikla foringja. Mikið er nú rætt um, hver sé liinn „sterki“ maður Sýrlands. Um nokkurt skeið, hefir Sarraj, yfir- maður leyniþjónustu hersins, ver- ið talinn það. Hann er aðeins 32 ára gamall, en er talin slyngur maður og óvæginn. Nú er það hins vegar dregið í efa, að hann sé jafn valdamikill og álitið var, heldur sé það Hourani, ,-foringi Baalli- flokksins sem ráði mestu að tjalda baki. Hann byrja’ði pólitískan feril sinn langt til hægri, en hefir færst til vinstri með aldrinum og er sagður hafa haft nána samvinnu við kommúnista að undanförnu. Hann er taiinn hafa ráðið mestu um það, að eítir hina nýloknu „hreinsun" innan hersins, var Afif Bizri gerður að formanni heríor- ingjaráðsins, en Bizri er talinn kommúnisti. Þrátt fyrir samstarf sitt við kommúnista, er Hourani ekki talinn kommúnisti, heldur ætli hann sér að nota kommúnista í valdatafli sinu á sama hátt og þeir ætli sér að haía gagn a£ iion- um. Spurningin sé sú, hverir reyn- ist sleipari i valdataflinu. ANNARS virðist óttinn við það, sem er að gerast í Sýrlandi, ekki stafa nema öðrum þræði af því, að það leiði til kommúnistiskra yfir- ráða þar. Stjórnmálamenn vestur- veldanna óttast ekki síður áhrifin í öðrum löndum Araba, þar sem hin arabiska þjóðernisstefna, sem nú er einkum borin uppi af stjórn Sýrlands, á sterkt fylgi. Þetta gild- (Framhald á 8. síðu.) Islendingsnaf nbótin. K. P. ritar þessa hugleiðingu: „Þá höfum við heyrt, hver er „íslendingurinn 1957“ og séð myndir af tilstandinu. En má ég spyrja: Með hvaða rétti tekur slysavarnadeildin Ingólfur í Reykjavík sér vald til að ákveða, hver skuli sæmdur slíku heiti? Ætli mörgum fleiri en mér þyki ekki heldur langt seilst, og leik- araskapur þessi nokkuð úr hófi fram? Mér er líka nær að halda, að meirihluti félagsmanna í Ing- ólfi sé síður en svo stoltur af þessu uppátæki. Fjársöfnun er að vísu nauðsynleg, en það er hægt að ganga of langt í afkára sliap til að næla í nokkrar krón- ur, jafnvel fyrir gott málefni. Um nafnbótina sjálfa vil ég segja það að mér finnst hún neðan við all ar hellur. íslendingur módel 1957 er helzt sá, er liggur nýfæddur í vöggu, og kann engin skil á skrípalátum samtíðarinnar. — Hvernig fór mælingin svo fram? Er „íslendingurinn 1957“ fundinn með því að skrá brjóst- og lenda mál? Er andlegt atgervi nokkurt atriði hjá þessum samnefnara þjóðarinnar? Frásagnir blaðanna af sýningunni í Tívoli virðast því miður staðfesta, að allt hafi ver- ið auðvirðilegur skrípaleikur, og til vansæmdar, hvar sem til frétt ist.“ — Lýkur þar með bréfi K. P. og er ekki hægt annað en vera honum sammála í öllum megin- atriðum. Umgengrtirt á vegum úti. FERÐALANGUR sendir eftir- farandi spistil: „Eg átti nýlega leið um Kambabrún og staldvaði við útsýnissfcffuna, sem Ferðafé- lagið lét setja upp á Kambabrún til leiðsögu fyrir gesti. Hún bar nokkur merki sumra gestanna. Visirinn var brotinn. Látum það vera. Það má komast af án hans, Lakara er að sjá, að gestir hafa lagt á sig erfiði við að krota nöfn sin og upphafsstafi í kopar- ínn. Sikifan er öll útspörkuð með þessum hætti. Þar getur Iika að líta allmörg bílnúmer úr Reykja vik. Ferðafólki þessu hefir fund izt það tiJhlýðilegt og smekklegt að auglýsa komu sina á þennan stað með þessum þokkilega hætti. Það er ósköp hætt við, að þeir, sem þannig haga sér, séu sama manntegundin og Iiefir hættumerkin á þjóðvegunum að skotspæni, og krota klám og ill- mæli á veggi salerna á almenn- ingsstöðum. En varla eru þessir karlar ætíð einir á ferð á stöð- um eins og Kambabrún. Gæti ekki heilbrigt fólk í samfylgd- inni kennt þeim almennustu mannasiði?“ —Lýkur þar bað-. stofuspjalli i dag. —Finnur,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.