Tíminn - 15.09.1957, Blaðsíða 7

Tíminn - 15.09.1957, Blaðsíða 7
1’ í M IN N, sunnudagiim 15. september 1957. - SKRIKAÐ OG SKRAFAÐ ASalfundnr Stéttarsambands bænda. - Ný viðfeorf í framleiðslamákm landbúnaSarins. - Út- svörin í Reykjavík kafa meira en tvöfaldast síSan 1954. - Hin ólöglega útsvarshækkiin. - Úr- skurðnr félagsmálaráðherra. - LátiS undan vegna ótta viS dómstólana. - SiSfræði borgar- stjórans. - Orsök útsvarshækkanana er sukkiS í bæjarrekstrinum. - Ótímabær fögnuður. Aðalfundur Stcttarsambands bænda var haldinn að Hlégarði í Mosfellssveit í vikunni sem leið. í upphafi fundarins gerði hinn far- saeli formaður Stéttarsambandsins, Sverrir Gíslason, grein fyrir helztu viðfangsefnum þess undanfarið og aðalmálum landbúnaðarins og var skýrsla hans fróðleg og glögg að vanda. Eftir það hófust umræð- ur og nefndarstörf og settu verð- lags- og framleiðslumálin megin- svip á fundarstörfin. Fyrir fundinum lá nýtt samkomu lag um verðlag landbúnaðarvara, er fulltrúar framleiðenda og neyt- enda höfðu orðið sannnála um. Það er vissulega mikilsvert, að þessir aðilar komi sér saman um verðlag- ið og hindrf þannig deilur, er bæði geta aulcið úlfúð milli stétta og spillt fyrir sölu afurðanna. Vitan- lega eru menn ekki á einu máli um verðlagsgx-undvöllinn og gildir það að sjálfsögðu jafnt bæði fi-amleið- endur og neytendur. Á landsfundi Stéttasambandsins kom fram gagn- rýni á ýmsum atriðum verðlags- grundvallarins og þótti þar hallað á bændur. Það sjónarmið kom jafnframt skýrt fram, að ekki væri einhlítt að fá verðlagið hækk- að, því að það kæmi bændum sjálf- um í koll, ef verðið yi*ði svo hátt, að það drægi úr sölu afurðanna. Myndi það ekki sízt reynast til- finnanlegt nú, þar sem ei-fiðlega gengur að selja afurðir úr landi, einkum þó mjólkurafurðir. Það gildir ]nú um þetta eins og mai'gt fleira, að hér þarf að taka tillit til rnargrá sjöriarmiða og leita eftir hinni farsælustu lausn. Heildar- svipur umræðanna á fundi Stóttar- sambandsins bar þess glöggt merki, að bændur gera sér þetta vel ljóst. Framleiðslumál land- búnaftarins Að sjálfsögðu var allmikið rætt um framleiðslumálin, en landbún- aðai’framleiðslan hefir aukizt mjög seinustu árin. Þar kemur fram árangurinn af miklu framtaki og dugnaði bænda við ræktunina og drjúgur stuðningur hins opin- bera við hana. Hinni auknu framleiðslu fylgir hins vegar sá vandi, að fá sæmilega markaði fyx*ir hana eítir að innan- landsmarkaðinum hefir verið full- nægt. Einkum gildir það um mjólk- urafurðir. Þetta viðhorf má þó ekki verða til þess að menn ieggi um of árar í bát og fyllist vantrú á eflingu landbúnaðarins. Rétta svarið er að sjálfsögðu það að hefj- ast handa um að gera iframleiðslu- hættina enn haganlegri en þegar er orðið og auka fjölþættni fi*am- leiðslunnar. í því sambandi er það áreiðanlega orðið aðkallandi mál að hafizt verði handa um ræktun holdanauta. Meðan þannig háttar um fram- leiðsluna og nú á sér stað, er það vitanlega ekki eðlilegt, að fram- leiðslan sé aukin með innflutningi meiri fóðurhætis en réttmætt get- ur talizt. Þetta mál bar m. a. á góma á fundi' Stéttarsambandsins og kom fram sú hugmynd, að sér- stakur skattur yrði lagður á að- fluttan fóðurbæti til þess að draga úr innflutningnum á þann hátt. f tileíni af því samþykkti fundurinn. að tekjur a£ slíkum slcatti yrðu látnar renna til landbúnaðarins, ef ákveðið yrði að leggja hann á. Áreiðanlega munu ekki margar stéttir taka eins raunhæft á vanda- málum sínum og bændur hafa gcrt í umræddu tilfelli. Siík framkoma styrkir vissulega þá trú, að bændur muni komast yfir þá örðugleika, sem nú er við að glíma, án þess að draga nokkuð úr nauðsynlegum vexti og viðgangi landbúnaðarins. Frá landsfundi Stéttarsambands bœnda, sem haldinn vor í siðastlidinni viku ao HSegarSi í Mosfellssveit. — Hækkun útsvaranna í Reykjavík síðan 1954 í vikunni sem leið hafa gerzt at- burðir, sem varpa skýru ijósi yfir það, hve mikið er að treysta á yfir- lýsingar Sjálfstæðismanna, þegar þeir eru að tala um hófsemi og að- gætni í skattaálögum. Það hefir enn einu sinni verið glögglega af- hjúpað, að þeir ganga ekki aðeins öðrum lengra í skattaálögum, heldur hika þeir ekki við að ieggja á ólöglegar álögur, ef þeim býður svo við að horía. Þeir atburðir, sem hér er átt við, er úrskurður íélagsmálaráðuneytis- ins um álagningu útsvara í Reykja vík og viðbrögð bæjarstjórnarmeiri hlutans við honum. Áður en beir eru þó nánar ræddir, þykir rétt að rifja upp þróun útsvarsmálanna í Reykjavík á kjörtímabili því, sem nú er senn að ljuka. Þegar gengið var til bæjarstjórn- arkosninga 1954, var nýlega búið að áætla útsvörin, sem leggjast skyldu á Reykvíkinga á árinu 1954. Þau voru áætluð 90,4 millj. kr. eða 4 millj. kr. meira en árið áður (1953) og 7 milli. lcr. meira en ár- ið þar áður (1952). Þetta fannst ýmsum benda til, að borgarstjór- inn reyndi að halda í horfinu og hækkaði ekki útsvörin meira en svaraði hækkunum á öðrum svið- um. 1 Eftir kosningarnar urðu hins veg ar fljótt umskipti á þessu. Þegar fjárhagsáætlun fvrir árið 1955 var til meðferðar, voru útsvörin ekki hækkuð um 4 millj. kr., eins og næsta ár á undan, heldur um 30 millj. kr. eða í 110 millj. kr. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 1956 þótti þetta þó ekki nógu stórt stökk, því að þá voru þau hækkuð um 40 millj. kr. eða í 149 milli. kr. Þegar fjárhagsáætl- unin fyrir 1957 var svo afgreidd í vetur, var enn tekið nýtt stökk um 32 millj. kr. og heildarupphæð- in ákveðin 181,3 milij. kr. Það var meira en tvöföid upphæð útsvar- anna, sem ákveðið var að leggja á 1954. Útsvörin höfðu m. ö. o. verið meira ea tvöfölduð á þessum þrémur árum. viðbótar 181,3 millj. kr., sem bæj- arstjórnin ákvað að láta jafna nið- ur, ákvað borgarstjórinn að nota til fulls heimild útsvarslaganna um 5—10% aukaálag fyrir vanhöld- um, en hún var ekki notuð til fulls 1954. Þannig voru útsvörin komin upp í 199,4 millj. kr. og hefði borg- arstjóranum þá mátt þykja, að nú væri nóg komið. Svo var þó ekki. Ilann lét öllu þessu til viðbótar bæta ofan á um 7 millj. kr., þótt fyrir því væri hvergi að finna neinn lagastaf. Þannig varð heild- arupphæð útsvaranna, er var jafn- að niður í Reykjavík i ár, 206,4 millj. kr. eða talsvert meira en tvöföld sú upphæð, sem lögð var á 1954. Orskurður félagsmála- , ráwherra i Hin ólöglega aukaálagning borg- arstjórans og niðurjöfnunarnefnd- ar kom í ljós, þegar útsvarsskráin var birt. Fulltrúar andstöðuflokka meirihlutans vildu að sjálfgögðu ekki sætta sig við hana, og reyndu því að fá hana niðurfellda breði í bæjarráði og bæjarstjórn. Þegar það fékkst. ekki, var málinu skótið til félagsmálaráðherra. Úrskurður hans féll í- síðast-1. viku og var að sjálfsögðu á þá leið, að þessi auka- álagning væri ógild. Ráðherrar.n fyrirskipaði því nýja niðurjöfnun, þar sem það upplýstist líka við j málsmeðfcrðina, að niðurjöfnunar i nefnd taldi slg ekki hafa lagt á 'fullkomlega éftir efnum og ástæð- i um, eins og lög mæla fyrir um. I Þegar hér var komið, treystist ; bæjarstjórnarmeirihlutinn ekki til ’ annars en að láta undan síga. Auka . bæjarstjórnarfundur var kallaður ; sanian í skyndi og þar samþykkt að láta leggja fram nýja leiðrétta út- ! svarsskrá og auglýsa nýian kæru- [frest. Múlflutning borgarstjóra og i-ösftianna hans var svo helzt þann : ig að skiiia, að þeir ætluðu að láta hina leiðréttu skrá fullnægja úr- i skurði ráðherrans, þótt þeir segðu stundum annað og teldu úrskurð- inn ofsókii, árás og oíbeldi. en vafalaust hefði mátt f.í þar út- kljáð á fáum dögum vegna þess, hve sérstæðs eðlis það var. Þessa leið vildu borgarstjórinn og fylgis- menn hans eklci fara, því að þeir vissu, að þeir höfðu hér seilzt ólög- lega ofan í vasa borgaranna og vildu ekki fá það staðfest með úr- skurði dómstólanna. í stað þess að taka þessu mannlega og viður- kenna betita, er ráðherrann sak- felldur fyrir ofbeldi og árás, sam- tímis því og þó er farið eftir lir- skurði hans! Einnig er honum kenr.t um; ef tafir hljótist af þess- um málarekstri við innheimtu út- svaranna! Mun það áreiðanlega einstætt, að sökudólgur reyni þann ig að kenna dómaranum um af- leiðingu afbrota sinna. Ilelzta réttlæting borgarstjórans fyrir hinni ólöglegu útsvarsálagn- ingu er annars helzt sú, að hún hafi viðgengizt undanfarin þrjú ár, að vísu í miklu smærra mæli. Það sé því ofsókn og ofbeldi að fara að amast við henni nú. Siðfræðin, sem borgarstjórinn kennir hér, er með öðrum orðum sú, að hafi t. d. ein- hver skattþegn komizt upp með það að telja einu sinni rangt fram til skatts, sé honum lieimilt að gera það í enn ríkara mæli eftirleiðis, eða hafi einhver stoíið, án þess að fá refsingu fyrir, megi hann gera það óátalið í enn stærri stíl í framtíðinni. Þarf af eðlilegum ástæðum ekki að svara bessum rök- um og siðfræði borgarstjórans. Hin óíöglega aukaáíagning Öííinn viS dómstólana Það getur hver og einn sagt sér það sjáifur, að hefði borgarstjóri Það hefði mátt ætla, að borgar-1 og flolckur hans talið úrskurð ráð- stjórinn í Reykjavík og ílokkur herrans rangan og ólöglegan, hefðu hans teldu þessa hækkun nægilega,; þessir aðilar ekki hikað við að en því var þó ekki að heilsa. Til láta málið ganga til dómstólanna, Lögleysa stöíJviíð Við þann málarekstur, sem hér hefir gerzt, hefir margt áunnizt. Með úrskurði íelagsmálaráðuneyt- isins hefir verið girt fyrir það, að sú hefð skapist, að lögð séu á útsvör án lagalegrar heimildar, en bæjarstjórnarmeirihlulinn í Reykjavík var á góðri leið að inn- leiða þann sið. Hann myndi hafa gert hámarksákvæði útsvarslag- anna að dauðum liókstaf og skapað möguleika fyrir takmarkaiausa álágningu. Hér hefir því vissulega þýðingarmikill árangur náðst. Þá I hefir og þessi málarekstur gert bað ! að verkum að miklu meiri og fleiri ; leiðréttingar liafa verið gerðar á j útsvörum í Rejjkjavík' én nokkru ; smni fyrr og mun liinn nýi kæru- frestur þó vafalaust leiða til enn meiri ’eiðréttinga. Síðast en ekki sízt liefir það svo verið afhjúpað öllu betur en áður, hve langt Sjálfstæðisflokkurinn gengur í skattaæði, þegar hann hef ir einn völdin. Þá eru ekki aðeins álögurnar tvöfaldaðar á þremur ár- um, eins og átt hefir sér stað mcð útsvörin í Reykjavík, heldur lil viðbótar seilzt ólöglega ofan í vasa skattþegnanna. Þeir einir, sem vilja sætta sig við slíkan yfirgang, geta unað yfirráðum Sjálfstæðis- flokksins. Orsök útsvars- hækkananna Hvað veldur því annars, munu ýmsir spyrja, að borgarstiórinn og fylgismenn hans hafa gengið jafn langt i löglegum og ólöglegum skattaálögum og raun ber hér merki um? Þaö er að sjálfsögðu rétt, að bæði kaupgjald og verð- lag hefir hækkað talsvert síðan 1954 en þó er vissulega langur vegur frá, að þctta tvennt hafi tvö- faldazt á þeim tíma. Hvað er það bá sem veldur svona gífurlegri út- þenslu útsvaranna? Því er fljót- svarað. Aðhaldsskortur og eftirlits- leysi hefir stóraukizt á öllum svið- um bæjarrekstrarins á þessum tíma, því að borgarstjórinn virðist alveg hafa misst það litla tatim- hald, er hann hafði áður, enda ann- ríki hans mjög aukizt við móttök- ur og ýmis hátíðleg störf. í stað þess að reyna að halda nokkuð í horfinu við útgjöld bæjarins, hefir allt verið látið vaða þar á súðúm, en reynt að afstýra tekjuhalla með því að seilast lengra ofan í vasa skattgreiðenda. Með þessum hætti hefir það gerzt, að útsvör hafa vcr- ið hækkuð meira í Reykjavík á yfirstandi kjörtímabili en dæmi munu vera um annars staðar. Gunn ar Thoroddsen hefir með þessu framferði gerzt methafi í skatta- álögum á íslandi. Otímabær fögmiður íhaldsblöðin halda áfram að nöldra um gjaldeyriserfiðleikana og kenna ríkisstjórninni um þá. Slíkt mun þó að litlu gagni koma. Mönnum er áreiðanlega ijóst, að þessir erfiðleikar myndu vera miklu meiri, ef núv. ríkisstjórn hefði ekki tekizt að örfa útflutn- ingsframleiðsluna verulega frá því, sem átti sér stað meðan Ólafur Thors var sjávarútvegsmálaráð- herra. Mönnum eru og líka áreið- anlega ljós megin orsök gjald- eyriserfiðleikanna, þar sem er rýrnun á nettógjaldeyrisöflun út- gerðarinnar, sumpart vegna afla- brests og sumpart vegna aukins tilkostnaðar hennar. í málgögnum Sjálfstæðismanna er nú jafnhliða þessu nöldri fagn- að yfir því, að núverandi ríkis- stjórn muni ganga illa að fást við þann vanda, sem framundan er. Slíkur fagnaður er þó alls ekki tímabær. Ríkissljórnin er studd af fulltrúum þcirra stótta, sem eiga mest undir því, að þessi mál verði vel og farsællega leyst. Slík lausn tryggja þær bezt með því að standa sjálfar að henni. Það gera þær sér lika ljóst. Mbl. og Vísir ættu því að átta sig á því, að liiakk þeirra er langt frá því að vera tímabært. Yfiríitssýning á verk- iim Júlííönu Sveinsd. í gæf kl. 2 opnaði menntamála- ráðherra, Gylí'i !>.. Gíslason yfir- litssýningu á verkum Júlíömi 9véinsdóttur*í J^istaspfni ríkisins. Listakonan r: slöJd hér í boði menntamáiaráðs. Margir gestir voru viSstaddir opnunina, m. a. forsetahjónin. Kl. 4 var sýningin opnuð almenningi. Sýn-ingin verð ur opin daglega frá kl. 1 til 10.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.