Tíminn - 30.10.1957, Blaðsíða 2

Tíminn - 30.10.1957, Blaðsíða 2
T í MIN N, miðvikudaginn 30. október 1951» Fjórir amerískir háskólakenearar kynna sér skólamál hér Eru bo^nir til alira Noríurlandanna á Vegum menntamálaráíuneytanna i Á fundi menntamálaráðherra Norðurlanda, sem haldinn var í Stokkhólmi dagana 13. og 14. júní í sumar, var ákveðið að h'jóða stoínuninni National Association of Foreign Student Advisers (NAFSA) í Bandaríkjunum að senda 4 fulltrúa til Norðurianda til þess að kynna sér þar skólamál í mánaðar- tíma á þessu ári. anna, skipar nefnd til þess að Þorfinnur í snjónum a' ,'/i ■ Framangreind stofnun þekkist skipuleggja dvöl þeirra og veita boð þetta. Fyrir valinu urðu 41 þeim sem gieggstar upplýsingar háskólaprófessorar, sem allmikil! um skipan skólamála og þá eink kynni höfðu haft af stúdentum frá Norðurlöndum, verið ráðgjaf ar þeirra og leiðbeinendur hver i sínum hásköla. Þessir prófessorar eru: Ungfrú Eunice Chapman frá Hastings College í Nebraska, Gene P. . Dean frá Pratt Institute í Broöklyn, New York, Frú Martena Fenney Sasnött frá Pasadena í Kaliforníu og Donald G. Tewks bury frá Teachers College í Col umbiaháskólanum í New York. Eftir nokkra athugún þótti bezt henta að velja októbermánuð til þessarar kynnisferðar. Dvalar- tími hér á landi var ákveðinn 29. — 31. október. VerSur séð fyrir upp- lýsingum um skólamál Menntamálaráðuneyti hvers lands um sig annast móttöku gest Alþingi er til undirhúnings háskóla- námi. Jafnframt munu gestirnir athuga sérstaklega stúdentamennt un á Norðurlöndtnn með tilliti til þess, hvaða samstöðu Norðurlanda stúdentar eigi með bandarískum háskólastúdentum. Ráðúneytið hefir falið þeim I Helga Elíassyni fræðslumálastj., | Pétri Sigurðssyni háskólaritara, ' Einari Magnússyni menntaskóla- : kennara, og Hauki Snorrasyni varaformanni Menntamálaráðs að annast undirbúning að heimsókn prófessoranna. | Prófessorarnir munu ræða við Gylfa Þ. Gíslason, menntamálaráð herra, en síðan heimsækja Háskól ann, Menntaskólann og Verzlunar skólann og ef til vill fleiri skóiá. Einnig munu þeir skoða aðrar menningarstofnanir og litast um í bænum og nágrenni eftir því, sem tími vinnst til. Andirnar á Þorfinnstjörn halda víkingnum selskap. Annars er hann hálf einmanalegur í snjónum. (Tíminn). John Foster Dulles: (Framhald af 1. siðú). skapur, sagði fjármálaráðherra, og munu margir taka undir þau orð og telja ekki að ósekju mælt eftir liina fáheyrðu framkoniu borgarstjórans í þessu mált. Reykjavíkurbær á engar skuldir hjá ríkissjóði Þá gerði fjármálaráðherra að umtalsefni fullyrðingar Gunnars borgarstjóra um það, að Reykja- víkurbær ætti vangoldið fé hjá ríkissjóði. Sagði fjármálaráðherra, að borgarstjóri vissi vel, að allt, sem hann hefði sagt um það efni, væri algerlega út í hött. Benti fjármála- ráðherra á, hversu fráleit þessi fullyrðing væri, þar sem nærri mætti geta, hvort borgarstjóri inn- heimti eklci allar slíkar vanskila- slculdir, ef til væru, eins og fjár- hag bæjarins er nú komið. Það væri líka laglegur vitnisburður um bæjarstjórn hans, ef hann héldi fjárhag bæjarins í vanefnum en innheimti ekki skuldir. Sannleikurinn er hins vegar sá, að hér er ekki um neina skuld að ræða og þess vegna innheimtir horgarstjóri þær ekki. Rikið á að greiða hluta af kostnaðarverði ákveðinna mannvirkja, samkvæmt fjárlögum. Upplýsti fjármálaráðherra enn fremur, að um þetta hefði aldrei verið neinn ágreiningur, ekki heldur af hendi flokksbræðra borgarstjórans í fyrrverandi rík- isstjórnum. Ríkið greiddi sína aðild að barnaskólum, höfnum og öðrum framkvæmdum jafn- óðum og samkvæmt fjárlögum. Borgarstjóri hefði líka sjálfur lýst því yfir, að ekki væri um neina löglega skuld að ræða, sem Reykjavíkurbær ætti vangoldna hjá ríkissjóði. Benti Eysteinn síðan á ósam- ræmið í málflutningi Sjálfstæðis- manna, sem rógbera fjármálaráð- herra í blöðum sínum viku eftir viku og mánuð eftir mánuð vegna þess að of miklu fé sé varið úr ríkisstjóði en þykjast svo eiga heimtingu á því að ríkissjóður greiði Reykjavíkurbæ fé umfram það, sem ákveðið er af Alþingi í fjárlögum. Fjármálaráðherra spurði að lokum, hvers vegna borgarstjóri væri með þessar refjar í sambandi við kaup á gufubornum. Hvers vegna bærinn afsalaði sér ekki hlubdeild að bornum, úr því að fjárhagsvandræði bæjarins væru 6vo mikil í stað þess að haláa mátinu í sjálfheldu. Rússar reyna að dylja fyrir umheim- inum atburSina heima fyrir Valdabaráttan er hinn raunverulegi bak- grunnur rússneskra stjórnmála í dag NTB-Washington, 29. okt. — John Foster Dulles, utanríkis- ráðherra, lét svo um mælt á vikulegum blaðamannafundi sínum í Washington í dag, að alvarleg stjórnmálaleg innan- lands vandamál væri hinn raunverulegi bakgrunnur rúss- neskra stjórnmála í dag. væri sú tillaga, sem fram hefði komið á þá leið að leggja niöur fimm ára áætlunina, seni væri nú frekar heilagt tákn heldur en áþreifanlegur raunveruleiki. Miðstjórnin myndi einnig vafa laust ræða um iðnvæðing'.i dreif býlisins, sambandið við liin komm únistaríkin, fjárhagsaðstoðin við Kína og kröfu Ráðstjórnarþjóð- anna um bætt lífskj ör. Filmía hefur vetrarstarfiS með sýningum á ungverskri kvikmynd Afhending skírteina byrjar í dag Um næstu helgi hefst fimmta starfsár kvikmyndafélagsins Filmíu. Félagsskírteini verða afhent í Tjarnarbíó í dag, morg- un og íöstudaginn milli klukkan 5 og 7 e. h. Jafnframt verða afhent skírteini til nýrra félagsmanna. Fyrstá myndin, sem Filmia sýnir á þessum vetri, er ungversk mynd, sem nefnist Valaliol Europaban (Einhvers staðar í Evrópu). Þau fjögur ár, sem Filmía hefir starfað, hefir félagið sýnt um sex tíu myndir frá öllum skeiðum kvikmyndalistarinnar, þögular myndir frá því um aldamót, jafnt Wem myndir síðustu ára. Filmíu hefir verið sýndur meiri áhugi en nokkurn óraði fyrir í fyrstu og hafa öll sæti verið skipuð á sýning um haust hvert og sýningarnar vel sóttar allt fram á sumar. Dulles sagði, að mikil hætta væri á því að rússneska- stjórnin gripi til örþrifaráða á sviði utan ríkismála til þess eins að reyna að dylja vandræðin heima fyrir. Hann tók mönnum samt vara við því að skilja orð sín svo, að hann teldi hættu á því að stríð væri á næstu grösum eftir fall Zúkoffs, landvarnaráðherra Sovétríkjanna, hinsvegar væri fyrrnefnd hætta fyrir hendi og sízt minni nú en fyrr. Mikilvægar ákvarðanir. Sýnt væri, að miðstjórn rússn eska kpmmúnistaflokksins, scm enn sæti á fundum, myndi taka injög mikilvægar ákvarðanir. Dulles taldi sennilegt, að með al þeirra mikilvægu mála er mið Stjórnin tæki uú til umræðu, Miklar óeirðir í Tyrklandi Istanbul—NTB 29. október. Her j lög eru nú í gildi í Tyrklandi eft ir að kom til mikilla óeirða í dag eftir að lokaúrslit þingkosning- anna á sunnudagnn urðu kunn. í bæ einum í S-Tyrklandi beið einn lögreglumaður bana í átökunum svo og einn ungur piltur. Það voru fylgismenn republikana, stjórnarandstöðuflokksins, sem efndu til óeirðanna, margir liróp uðu ókvæðisorð um Menderes, for sætisráðherra, en flokkur hans, demókrataflokkurinn tapaði miklu fylgi, en hélt meirihluta sír.um. AUGLÝSIO í TlMANUM Óvariu borg. Aðrar myndir, sem Filmía sýn ir nú í haust eru „Róm, óvarin borg, en sú mynd gerði Rossellini heimsfrægan, enda er hér um að ræða móðurmynd hins svonefnda nýraunsæis í kvikmyndum. Hún gerist í Rómaborg í lok síðustu heimsstyrjaldar, en aðalhlutverkið leikúr Anna Magnani. Þá mun Filmía sýna bandarísku myndina, Stjarna fæðist, (A Star is born), eldri útgáfuna, þá sem William Wollman gerði árið 1936. Aðal hiutverkin leika Frederic March og Janet Gaynor. Þar næst koma tvær franskar myndir, sem nefn ast Teningnum er kastað og Aftur gangan. Alls verða sýndar 12— 15 myndir í vetur eins og undan farin ár. Ungverska myndin. Myndin Valahol var tekin á ár inu 1946. Leikstjórinn heitir Goza Radvanyi. Myndjn fjallar um unga ungverska drengi, sem verða fyr að missa heimili og forsjá í styrj öldinni og flakka um sléttur Ung verjalands. Fréttir frá landsbyggðinni Áðalfundur Leikfélags Vestmannaeyja Vestmannaeyjum: Aðalfundur Leikfélags Vestmannaeyja var haldinn sunnudaginn 13. þ. m. Fráfarandi formaður Sigurgeir Scheving baðst undan enduvkosn ingu vegna fjarveru úr bænuin. Formaður var kosinn Loftur Magnússon, varaformaður Jóhann Björnsson. Endurkosin voru Ragn heiður Sigurðardóttir ritari og Einar Þorsteinsson gjaldkeri. Með stjórnendur voru kjörnar Niko- lína Jónsdóttir og Unnur Guðjón.s dóttir. Tjalda- og áhaldaverðir voru kosnir: Elías Baldvinsson og Karl Marteinsson. Endurskoðend ur: Kristján Georgsson og Jóhann Sigfússon. Jónas Tómasson œfíi kór í Eyjum Vestmannaeyjum: Blandaður kór undir stjórn Jónasar Tómassonar söngstj. frá ísafirði hefir síðan í októberbyrjun Uaft söngæfingar flesta daga vikunnar. Kórinn hélt konsert s. 1. föstudag 1 Samkomu húsinu. ÍJiróttanámskeið í Stykkishólmi Stykkishólmi. Axel Andrésson sendikennari ÍSÍ hefir lokiö nám skeiði í Stykkishólmi. Þátttakend ur voru úr UMF Snæfell, Barna skóla og Miðskóla Stykkishólms. Og yoru alls 185. Þan nl2 okt fór fram barnasýning á Axelskerfun um. Þann 13. okt komu drengir 11—12 ára frá Grafarnesi og þreyttu kappleik við jafnaldra sína í Stykkishólmi. Sigruðu þeir síðarnefndu með 191 stigi á móti 185. Námskeiðinu lauk með kapp leik í Axelskerfinu milli UHF Grundarfjarðar og UMF Snæfell. Jafntefli varð 206 stig hvor flokk ur. UMF Snæfell hélt boð inn á Hótel Stykkishólm fyrir Grund firðinga og kennarann. Ræður flultu Sig. Helgason íþróttakenn ari, Stykkishólmi, Elías Finnboga son Grafarnesi og Axel Andrésson. Fjölsóttur menntaskóla- Ieikur á Akureyri Akureyri: Menntaskólanemendur sýna þessa dagana gamanleikinn „The man who came to dinner“ eftir George Kaufmann og Moss Hart, og hafa skólasveinar sjálfir þýtt leikinn. Jónas Jónasson úr Reykjavík er leikstjóri. Gaman- leikur þessi fjallar um ameríska skáldið Alexander Woolcott og komu hans á amerískt heimili og er bráðskemmtilegur. Þykir Mennt skælingum hafa tekizt vel að sýna gamanleikinn og er hann fjölsótt 1 Símastaurar brotna í Þingeyjarsýslu Akureyri: í krapahríð á sunnu- dagsnóttina brotnuðu 20—30 síma staurar á leiðinni frá Laxamýri til Húsavíkur. Settist krap og ísing á línuna og braut staurana. Síma sambandslaust var við Húsavík í dag af þessum sökum. HeiSar nyríra færar á ný Akureyri: Búið er að moka snjó af þjóðveginum á ÖxnadalS'heiði og á Vaðlaheiði og aru báðar heið arnar akfærar á aý. Snjór hefir miKíí

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.