Tíminn - 15.11.1957, Blaðsíða 8

Tíminn - 15.11.1957, Blaðsíða 8
8 T í MIN N, föstudaginn 15. nóvember 1957. Greinarflokkur Páls Zóphóníassonar (Fiamhald af 5. síðu). ið er að fækka hrossunum, hætta að hafa þau bara fyrir augnayndi, eins og hlýtur að vera með margt af þeim nú. Akrahreppur er enn hrossaflesti hreppur sýslunnar, þar eru 22.5 hross á meðalbýlinu og hefir fjölgað síðan 1920, en það er í sárafáum hreppum í landinu, ■ sem slík öfugþróun hefir átt sér stað. Nokkrir bændur í hreppnum hafa nú keypt Árbæ, eyðijörð í Austurdal og fá þar gott upprekstr arland, sem þó er erfitt að nota. Hreppsbúar voru 497 árið 1920. Þá var heyjað 44 hestar pr. mann. Nú eru íbúar hreppsins 340 og nú er heyjað sem svarar 109 hestar á mann. Afkastaaukningin, sem orðið hefir vegna stækkaðra túna, sléttaðra túna, notkun heyvinnslu- véla o. fl., er því auðséð hér sem annars staðar. Fækki hrossum 1 Akrahreppi ekki næstu ár, verða þeir að nota ítölulögin og fá á- kveðið hve mörg hross og margt sauðfé megi reka á afrétt frá hverri jörð í hreppnum, eða létta á afréttinni með því að reka á Ár- bæjarland, sem nokkrir Akrhrepp- ingar eiga nú. Rípurhreppur. Þar hefir byggðum býlum fjölg- að um 4. Meðallúnið var 3,5 ha. en er nú 12.0 og hefir því 3.4 fald- ast. Meðalheyskapur var 163+327 =490 hestar. Á það var sett og fóðrað 6,1 nautgr., 121 kind og 22, 2 hross og hefir því hrossunum verið ætlað lítið fóður í meðal- vetri, og ekkert orðið til handa þeim í hörðum. Nú er meðalhey- skapur á meðaljörð í hreppnum 566+294=860 og hefir því aukist um 370 hesta eða líkt og meðal- heyskapur á meðaljörðum í ýms- um hreppum landsins, eins og sést af þvi, sem sagt hefir verið hér áð- ur. Nú er sett á þennan meðalhey- skap meðalbúið í Rýpurhreppnum en það er 9.0 nautgr., 133 kindur og 15,9 hross og hefir þá ásetning urinn stórbatnað, og þolir harðan vetur. Allar jarðir í hreppnum hafa yfir 5 ha. tún, og einungis 3 undir 10 ha. tún. Hreppurinn á af- rétt með Staðarhrepp og þarf því að reka fénað sinn yfir Héraðs- vötn. Varð allt að ferja áður en vötnin voru brúuð en síðan hefir viðhorfið breytzt mjög. Oft fórust kindur áður í Vötnunum á stroki heim, en nú rata þær á brúna, svo ekkert verður að. Engjajarðir eru nokkrar góðar í hreppnum, sumar þó blautar og allflestar liggja þær alllangt frá bæjum, og er erfitt sums staðar að koma við bílum við heimflutninginn. Viðvíkurhreppur. Byggðar jarðir hafa fjölgað um 2. Meðaltúnið var 4,8 ha. en er nú 12,8 eða 2,7 falt. Meðalheyskapur var 152 +256=408 hestar. Á hann var settur þessi fénaður, nautgr. 5,0, sauðfé 122 og 22.8 hross, og hefir þá hrossunum ekkert fóður verið ætlað. Nú er meðalheyskap- ur 514+97=611 hestar og á því heyi er nú 7.5 nautgr., 121 kind og 15 hross og er því miklum mun betur sett á en áður var. Níu jarð- ir í hreppnum hafa minna en 10 ha. tún en hinar allar stærra. Upp- rekstur er sameiginlegur með Hólahrepp og er afréttur þröngur dalbotn með þverdölum. Það mun fyrsti afrétturinn þar sem girt var þvert yfir dalinn milli byggðar og afréttar til að verja afréttarfénaði að renna til byggða og var það ör- uggt með tryppin, en féð komst eðliiega yfir fjöllin og fyrir girð- ingarendana í hlíðunum, svo það gat komið heim aftur eftir vild sinni. Stærst tún er í Viðvík, 22.7 ha. og 1200 hesta heyskapur í allt. Þar eru 16 nautgr., 208 fjár og 15 hross. Stærst fjárbú er að Ásgarði. Þar er túnið 21,8 ha., heyskapur 800 hestar taða og búið _8 nautgr., 280 fjár og 34 hross. Útgræðslu- möguleiki túnanna og þar með aukning heyskaparins er mikill og sem maður segir, óþrjótandi á öll- um jörðum hreppsins. Á nokkrum eru góðar engjar við og á hólmum 1 Héraðsvötnum, en langt er á þær og er hætt að slá verulega í þeim. Hins vegar er enn slegið nokkurt úthey 30—80 hestar á svo til öll- um jörðum, og er það gagnstætt því, sem algengast er, þegar ekki er að ræða um sléttur og grasgefn- ar flæðiengjar, heldur mýra- og móaslægjur, sem engúm manni dytti í hug að ljábera, t. d. í Ár- nessýslu eða Borgarfjarðarsýslu. Beitiland heima um sig er mikið en á sumum jarðanna nær tómar mýrar, sem þarf að þurrka, áður en góðir kúahagar 'fást. Bændur \erzluðu sumir á Sauðárkróki en aðrir í Hofsós, en verzla nú, síðan brýrnar komu á Héraðsvötnin og \egur í gegnum sveitina, aðallega á Sauðárkróki. senda mjóik sína þangað í mjólkurbú, sem Starfrækt er þar. Æðarvarp er á 5 jörðum sveitarinnar. Hólahreppur. Byggðar jarðir í hreppnum hef- ir fjölgað um 3 og eru nú 26. Með- altúnið var 5,1 ha. en er nú 11,8 og hefir því 2.3 faldast. Meðaihey- skapur á jörð var 158+228=386. Á meðal jörðinni voru 5,1 nautgr., 99 kindur og 15,5 hross og hefir þá verið ætlast til mikils heysparnað- ar með beit og ekkert hey ætlað hrossum. Nú er meðalheyskapur á jörð 585+62=647 hestar. Búféð, sem fóðra á, á þessum heyjum, er 8,1 nautgr., 145 kindur og 10,4 hross og ásetningur því miklu betri en hann var. Úr hreppnum er send mjólk til Sauðárkróks frá mörgum bæjum, en allir eru þeir ekki enn í akvegasambandi og má hið sama segja um suma bæi Viðvíkursveit- ar. Verzlað er mest á Sauðárkróki en þó líka á Hofsós. Langstærst bú er á Hólum. Túnið þar er 74,7 ha. og gefur af sér 4890 hesta. Þar eru 64 nautgr., 593 kindur og 76 hross. Þetta bú stækkar meðalbúið í hreppnum verulega. Fimm jarð- ir hafa enn minni tún en 5 ha. og | 9 stærri en 10 ha. Skilyrði til tún- ræktar eru líkt og gerist á öðrum stöðum, sums staðar ágæt, en á öðrum stöðum sæmileg og hvergi mjög slæm. Afréttarlönd eru ekki víðlend, en sæmileg þó og má þeirra vegna stækka fjárhúsin eft- ir því sem fóðuröflun vex, með stækkandi túnum, sérstaklega ef hrossunum fækkaði nokkuð. Hofshreppur. Byggðum jörðum hefir fækkað um 10. í öllum þeim hreppum Skagafjarðarsýslu, sem nefndir hafa verið, er yfirleitt snjólétt að vetrinum og venjulega hagar fyrir hross, sem að mestu eru látin ganga úti og passa sig sjálf. Með Hofshreppi breytist þetta, þar eru mikið meiri snjóalög og þó mun meiri í þeim hreppunum, sem eft- ir er að ræða um, sérsiaklega þó Haganes- og Holtshrepp, en þar má yfirleitt reikna með innistöðu allra skepna vetrarlangt, enda ætla hyggnir bændur þar kindinni 3 hesta yfir veturinn. Meðaljörðin í Holshreppi var með 3,8 ha. tún, en er nú með 9,2 og hefir því 2,4 faldast. Heyskapurinn á meðaljörð inni var 119+130=249 hestar. Á því voru 3,7 nautgr., 60 fjár og 7,5 hross. Nú er meðalheyskapurinn 398+103= 502 hestar og hefir því sem næst tvöfaldast. Meðalbúið er nú 6,4 nautgr., 89 kindur og 5 hross og hefir því heyskapurinn aukist hraðara en stækkun búanna og ásetningur á heyin batnað. Fimm jarðir hafa minna en 5 lia. tún en 14 stærra en 10 ha. Á einni byggðri jörð hefir túnið staðið í stað síðan 1920. Hreppurinn skipt- ist í 2 upprekstrarsvæði, sem hvort hefir sína afrétt. Eru það botnar Deildar- og Unadals. Víðlendir eru þeir ékki, en sæmilega grös- ugir og þar sem fjalllendi þessutan er töluvert í sveitinni, en nokkrir möguleikar til stækkunar fjárbú- anna með vaxandi heyöflun, en meira eru þeir takmarkaðir en í öllum hinum hreppum sýsl- unnar nema Akrahreppi. Mjólk er send úr hreppnum í mjólkurbúið á Sauðárkróki en ekki er það úr öllum hreppnum og valda bæði kúafæð og samgöngur. í Hofsós selja einstakir bæjir, að- allega þó einn, mjólk. Bændur verzla allir í Hofsós. Stærst bú er í Bæ, þótt fé sé fleira á nokkrum öðrum bæjum. Túnið þar er 23,5 ha.. og gefur af sér 1200 hesta. í Bæ eru 18 nautgr., 107 kindur og 6 hross. Góð engjalönd eru engin í hreppnum og engjaheyskapur óð- um að hverfa. Áður fyrr stunduðu ýmsir bændur sjósókn samhliða búskapnum, en nú er það alveg horfið. I Fellshreppur. Byggðar jarðir voru 21 en eru nú aðeins 15. Meðalheyskapur á jörð var 94+134=228 en er nú 1 324 + 36= 360 og hefir því aukist um 132 hesta þrátt fyrir það, þótt fólkinu, sem býr í hreppnum, hafi fækkað úr 170 í 87 eða nálægt helming. Afköst pr. mann hafa því stóraukist. Meðalbúið var 3,9 nautgr., 50 kindur og 5,5 hross og hefir þá heyið ekki mátt vera minna. Nú er meðalbúið orðið 5 nautgr., 96 kindur og 4,8 hross og ' er því tiltölulega meira hey nú en var áður, miðað við bústærðina. Tvær jarðir, sem taldar eru í byggð, hafa undir 5 ha. tún en 6 yfir 10 ha. Mjólkursala er engin. 1957 er mjólk seld úr hreppnum. |Verzlað er á Hofsós. Nokkurt út- ræði er enn á einstaka jörðum. Túnin á Glæsibæ og Tjörnum hafa þrefaldast en stærst tún var á Felli og enn er það stærst, 13,3 ha. (var 9,1) og þar er stærst bú 3 nautgr., 192 kindur og 8 hross, en töðufallið er 550 hestar. Tún- ' ræktarskilyrði eru ágæt og afrétt ; og fjalllendi fyrir sauðfé er gott ; og vaxtarmöguleikar fyrir stækk- 1 andi sauðfjárbú miklir ef og þegar | túnin stækka og heymagnið vex. ar Skeiðfoss var virkjaður og er erfitt á sumum jarðanna, sem þar eru nú byggðar, að stækka túnin. Landgæði eru mikil bæði fyrir fé og hross, en snjóþyngsli að vetr inum enn meiri en í Haganes- hreppi. Dæmi til þess að 60 hesta hey, sett saman að sumri, hefir ekki fundizt að vetri, þótt eigandi þess væri mjög þurfandi fj'rir það. Um vorið sást að grafið hafði ver- ið niður skammt frá því sem það var. Talið er, að yfir 20 tröppur hafi verið grafið niður til að kom- ast í bæjardyr í miklum snjóavetr- um. _ Bændur verzla á Siglufirði og Ólafsfirði. Fimm gamlar byggð- ar jarðir hafa minna en 5 ha. tún, en auk þess 3 nýbýli, sem eru í byggingu. Sex jarðir hafa yfir 10 ha. tún. Á tveim jörðum hefir tún ekki stækkað síðan 1932. Stærst tún var á Hraunum 17,1 ha. 1932, cg enn er það stærst, enda þótt tún á öðrum jörðum hafi stækkað hlut- fallslega meira. Þar eru nú 7 naut gripir, 367 kindur og 8 hross Á Hraunum er mikið æðarvarp, reki og silungsveiði. d. verið mest í Fljótum og diik- þungi lamba í Fljótum, sem felld- ir hafa verið á sumarmarkaði á Siglufirði, hafa oft verið hærri en t. d. dilka úr Akrahreppi í slátur- tíð að hausti, og þar er þó meiri- hlutinn einlembingar og fleira kemur til, sem gerir muninn á af- komunni ekki eins mikinn og töl- urnar gætu bent til um, en það skal nú ekki talið upp hér frek- ara. Sumarið 1956 stækkuðu meðal- tún hreppanna í Skagafirði sem hér segir: Haganeshreppur. Byggðum jörðum hefir fækkað um 9 úr 35 árið 1920 í 26 nú. Með- altúnið var 3,8 ha. á byggðu jörð- unum, er nú 7,1. Nýræktin hefir þó ekki verið sem mismunur tún- stærðanna bendir til, því það eru jarðirnar með minnstu túnin, sem komnar eru í eyði. Heyskapu.rinn var 77+99=146 hestar 1920, þá var meðalbúið 3,5 nautgr., 36 kmd ur og 4,1 hross, sem oft var kom- ' ið í göngu inn í Skagafjörð. Nú er heyskapurinn 207 töðuhestar, en úthey ekki slegið. Meðalbúið nú er 3,2 kýr, 82 kindur og 2,7 hross og er víst að fullsett var og er á heyin, séu þau ekki vantalin, 1 því tæplega er hægt að framfleyta fénaðinum á þeim. Tíu jarðir hafa minni en 5 ha. tún, en 4 stærri en 10 ha. Öll tún byggðu jarðnnna hafa stækkað nokkuð, en nýlega eru farnar í eyði jarðir, sem tún- ! in höfðu ekkert stækkað á síðan j 1920. Stærst tún er á Yzta-Mói, 14, : 5 ha., og fást af því 500 hestar. ; Þar er stærsta búið 3 nautgr., 207 . kindur og 6 hross. Snjóþungt er 1 mjög, en oft fer jörð algræn undir : snjó og kemur aftur algræn að vor- inu og séð hefi ég þar skafl að vori í algrænu sprettandi túni, al- veg að skaflinum, sem túnið var að koma undan marþýtt og hvann- grænt frá haustinu áður. Af góðum engjum er ekkert, enda hætt að slá þau. Atvinna hefir nokkur ver ið sótt til Siglufjarðar, með því fást tekjur til viðbótar litlum bús- afurðum, en ekki hefir sú atvinna hjálpað til við stækkun túnanna. Land er sérlega gott bæði fyrir nautpening og sauðfé og ræktunar skilyrði góð. Verzlað er á Haga- nesvík og Siglufirði. Mjólkurmark aður er enginn. Æðarvarp er á nokkrum jörðum og silungsveiði. Holtshreppur. Byggðu jarðirnar voru 39 og eru nú 34 en 5 hafa eyðst. Meðalhey- skapur var 108+180 =288 hestar. Á þeim var haft 4,1 nautgr., 47 kindur og 4,6 hross, sem þó oft var komið inn í Skagafjörð tilj gcngu. Nú er meðalheyskapurinn1 214+136=350 hestar. Meðaltúr.ið er 7,5 ha. og taðan 214 hestar. Bú- j féð, sem haft er í þessum 350 hestum er nú 3,1 nautgr., 78 kind-j ur og 2,8 hross. í Holtshrepp eru j víða góðar, sléttar engjar. Tún-1 ræktarskilyrði eru góð nema í Stíflu. Þar voru úrvalsengjar, sem lagðar voru undir vatn, þeg- Austur-Fljót. Holtshreppur er einn með allra grösugustu og sumarfallegustu sveitum, sem maður kemur í. Sér- staklega var Stíflan sérstæður hluti af Austur-Fljótum. Hún er fremsti hluti dals, lokaður af há- um hólum, nema þar sem á renn- ur gegnum þá í þröngu gili. í Stífl- unni var stöðuvatn, en umhverfis það sléttar, grösugar starengjar og ofan við þær, undir hlíðum grænna fjalla, stóðu svo bæirnir beggja vegna. Við Skeiðfossvirkj- un var yfirborð vatnsins hækkað, svo allar engjarnar og hluti tún- anna á sumum jörðunum fór í kaf og sumar jarðirnar urðu óbyggi- legar og allur svipur hjá sjón sarn- anborið við það, sem áður var. Af því sem sagt hefir verið um hreppana í Skagafirðinum, má fljótt sjá mikinn mun á hreppn- um. Heyskapurinn á meðaljörð- inni var alls og eftir rnann búsett- an í hreppnum, sem hér segir: (Fyrri talan táknar heyhesta- fjöldann á meðalbýli, en seinni talan táknar heyhesta pr. mann, búsettan í lireppnum): Rýpurhrepp 860 142 Lýtingsstaðahr. 509 139 Staðarhreppi 775 131 Akrahreppi 741 109 Seyluhreppur 654 108 Viðvíkurhr. 611 107 Hólahreppur 647 100 Skefilsstaðahr. 307 91 Hofshreppur 501 87 Skarðshr. 487 86 Fellshreppur 347 60 Holtshreppur 350 55 Haganeshreppur 207 31 Ég hefi áður bent á, að þessi samanburður er eða þarf ekki að vera réttur. Það er eftir því, hvort sama hlutfall sé milli íbúatölu hreppanna og gamalmenna og barna. Væri það alls staðar það sama, þá sýndi samanburðurinn misjöfn afköst eða eftirtekja eftir þá, sem að heyskapnum vinna. Auk þess sem hlutfallið milli vinn- andi fólksins og þess óvinnandi, getur verið misjafnt, en fólk í sum um hreppum sem vinnandi er, en kemur heyskapnum ekkert við, eins og t. d. Seyluhreppi. Saman- burðurinn er þá nánast gerður sem bending fyrir kunnuga menn að hugsa um og athuga, og ef til vill hjálpa til að gera eftirtekju mannanna er í hreppnum búa, jafnari. Til að menn haldi þennan mun ekki meiri en hann er, vil ég benda á að skepnur, t. d. sauðfé, er misvænt. Af tvílembum hefir t. Skefilstaðahreppur 0,8 ha. Skarðshreppur 1,3 — Staðarhr. 0,5 — Seyluhr. 0,5 — Lýtingsstaðahr. 0,5 — Akrahr. 0,7 — Rýpurhr. 0,5 — Viðvíkurlir. 0,4 — Hólahr. 0,3 — Hofshr. 0,7 — Fellshr. 0,3 — Haganeshr. 0,3 — Holtshr. 0,5 — Rætt við Einar Ölafss. (Framhald af 7. síðu). hver fjandinn að ásækja mann og það byrjaði fyrir mörgum árum, þegar ég var á skútu, Reaper hét hún og þegar þetta gerðist fisk- uðum við vestur undir Jökli. Skip- stjórinn hét Sigurður, en ég var stýrimaður. Vprum þarna í mikl- um fiskí rétt fyrir páskana þeg- ar liann brast á með ofsalegt norð- , anveður. | Sigurður skipstjóri hafði veikzt rétt áður og ég vakti og var uppi frá því veðrið skall á þar til ,á , laugardaginn fvrir páska að ég ! kom niður í káetu og lagði mig !á bekkinn. Sigurður skipstjóri fór I þá upp í kappann og sagði fyrir j um stefnuna þó veikur væri. Á páskadag slotaði veðrinu og við fylltum skipið af fiski á nokkr- um dögum. Ekki fann ég til veik- inda þá fyrst á eftir, en ári seinna þegar ég var kominn á togara fór mér að verða illt af næstum öllum mat. Fór til læknis á Dýra- firði þá um sumarið. Hann skoð- aði mig og sagði þennan lasleika stafa af of mikium vökum og vos- búð. Lét mig hafa eitthvað á flösku. Mér skánaði af því um tíma, en þessi fjandi hefir loðað við mig fram á síðustu ár. „Nú langar mig ekki lengur út á sió" Eftir að ég fór að vinna í landi, langaði mig alltaf annað slagið út á sjó. Fékk mér þá lítinn bát og vél. Réri hérna út á fjörðinn og stundaði grásleppuveiði um tima. í sumar hcfir mig ekkert langað til þess að fara út á fjörð, enda stóð báturinn á þurru í allt suniar. — Jú, sjómenn eru sumir af- komenda minna eins og þú segir. Sigurjón fór sína fyrstu sjóferð á Morgunstjörnunni og stundaði sjó síðan, lengst sem skipstjóri, unz hann tók við stjórn Dvalar- heimilisins Hrafnistu nú fyrir nokkru síðan. Synir hans tveir eru sjómenn. Vigfús stýrimaður á Ak- urey og Einar skipstjóri á Jörundi. Og Kristján dóttursonur minn, sem ólst upp hjá okkur hér í Gesthús um er nú skipstjóri á Akurey. Mér þykir gaman að því að þeir skildu leggja sjóinn fyrir sig og hvernig færum við að hér á landi, ef enginn íengist til að fara á sjó. En eftir að vera viðriðinn sjó- mennsku í sjötíu ár, langar mig ekkert út á sjó, nei, það getur þú verið viss um. Sv. S. lymiiiiimiiiiiiiimmiimiiiiiiiiiiiiimmmmmiiimiiiiiiiiiiiimiimiiimmmiimimuimitiimiimiiimuiiiine | BÆNDUR | | Ný Bukh dísil ljósavélasamstæða til sölu nú þegar. i 1 Vélin er sérlega hentug sem rafstöð fyrir bænda- 1 § býli. 3,75 kw rafall. | | Nánari upplýsingar gefur | | MAGNÚS Ó. ÓLAFSSON | | Hafnarhvoli, | Sími 10773. | miiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmmiiiiiiiiiiiiiiimiimmiimiimmiiiiimmmiimiimiiiiimmiiiimmmiiii

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.