Tíminn - 21.12.1957, Page 6
6
T f M IN N, laugardaginn 21. des 1957,
Útgefandt: Framsóknarffokkurlwa
aitítjórar: Haukur Snorrason, Þórarinn Þórui&sss^ íáJlK
Skrifstofur f Edduhúsinu við LindargSti
Símar: 18300, 18301, 18302, 18303, 183«M
fritstjórn og blaðamenn)
Auglýsingssími 19523. Afgreiðslusíml ItSSS
Prentsmiðjan Edda hf.
Fjárhagsáætlun Guunars
Thoroddsens talar
FORKOLFAR Sjálfstæð-
isflokksins hafa mjög reynt
að deila á fjármálastjórn
ríkisins að undanförnu. Af
þeim ádeilum mætti ætla,
að fjármálastjórn hljóti að
vera í góðu lagi, þar sem
þeir fá einir að ráða. Að
öðrum kosti myndu þeir
ekki leyfa sér að tala jafn
borginmannlega um hófleg
útgjöld, sparnað í rekstri og
lága skatta. Óliklegt væri, aö
menn, er töluðu með slíku
yfirlæti um þessi mál, byggju
sjálfir í glerhúsi.
Það gerðist svo í fyrradag
að Gunnar Thoroddsen borg
arstjóri og aðalleiðtogi Sjálf
stæöismanna í Reykjavlk,
lagði fram í bæjarstj órninni
fjárhagsáætlun bæjarins
fyrir næsta ár. Sjááfstæðis-
menn hafa stjórnað Reykja
vík áratugum saman og hafa
því haft hið ákjósanlegasta
tækifæri til að sýna fjár-
stjórnarhæfileika sina þ jr í
verki. Fjárhagsáætlun Rvik-
ur hlýtur því að skoðast ali-
merkileg heimild um það,
hvað alvarlega ber að taka
skraf Sjálfstæðismanna um
trausta og hyggilega fjár-
málastjórn.
Hvað segir svo fjárhags-
áætlun Reykjavíkurbæjar
um þetta?
í FYRSTA lagi er það
svar fjárhagsáætlunarinnar
að allir útgjaldaliðir hækka
meira og minna frá þvi, sem
var áætlað á þessu ári. í
heild hækkar fjárhagsáætl-
unin um 20 millj. kr. eða rúm
lega 10%. Þessi hækkun út-
gjaldanna verður ekki að
neinu leyti rökstudd með
hækkuðu kaupgjaldi, því að
vísitala kaupgjalds hefur
ekki hækkað nema um 5 stig
á þessu ári.
í öðru lagi segir fjárhag'S-
áætlunin, að útsvörin hækki
um 18 milljónir króna á
næsta ári, miðað við áætlun
þessa árs, eða úr 181 millj.
kr. í 199 milljón króna. Þessi
hækkun nemur rúml. 10%.
Sú fullyrðing borgarstjóra
er vitanlega hreinn sleggju-
dómur, að þessi hækkun út-
svaranna þurfi ekki að hafa
hækkun útsvarsstigans í för
með sér. Um það geta menn
ekkert fullyrt nú. Þess má
svo geta, að í þessari tölu
felst ekki 10% aukaálagið.
í þriðja lagi er svo þess að
gæta, að hér er aðeins um
bráðabirgðaáætlun að ræða,
þar sem ekki verður endan-
lega gengið frá fjárhagsá-
ætluninni fyrr en eftir bæj-
arstj.kosningar í næsta mán.
Aö sjálfsögðu hefur borgar-
stjórinn því reynt að búa á-
ætlunina eins haganlega úr
garði og flokki hans hent-
aði bezt fyrir kosningar. —
Ýmsu, sem getur verið flokkn
um óþægilegt, hefur því vafa
laust verið stungíð undan
Jólatré og jólagreinar
fram yfir kosningar. Það
mun ekki verða látið koma
í dagsljóstð fyrr en eftir
kosningarnar, ef íhalds-
meirihlutinn heldur velli. Má
í því sambandi benda á, að
bæ j arst j órnarmeirihl-utinn
hefur stundum gripið til
aukaútsvara á miðju ári og
í ár reyndi hann að gera
þetta með ólöglegum hætti,
svo sem alkunnugt er.
^ í SAMBANDI við fjár-
hagsáætlunina er ekki ófróð
legt að rifja það upp hver
heiidarsvipur fjármálastjórn
ar bæjarins er á því kjörtíma
bili, sem nú er að verða lok-
ið. Sá svipur markast mjög
greinilega af eftirfarandi
tölum:
Árið 1954 voru heildarút-
gjöldin áætluð 105,2 millj. kr.
en á næsta. ári eru þau áætl
uð 224.2 millj. kr. Þau hafa
þvl hækkað um hvorki meira
né minna en 113% á þess-
um tíma.
Árið 1954 voru útsvörin
áætluð 8ð.4 millj. kr., en á
næsta ári eru þau áætluð
199,5 millj. kr. Þau hafa því
drjúgum meira en tvöfald-
ast á kjörtimabilinu eða
hækkað um 131%.
Þess má svo geta, að þeg-
ar miðað er við íbúatölu eru
útsvörin hærri hér á ein-
stakling en í öllum öðrum
kaupstöðum landsins, nema
ef til vill einum. Hér ættu þó
útsvörin að geta verið lang-
lægst, miðað við íbúatölu,
því að vinnuafL á jafnan að
geta nýzt því betur, því
stærri sem stofnunin er.
ÞAÐ sem hér hefur verið
sagt, skal látið nægja að
sinni. Það nægir líka alveg
til að sýna, hvaða máli fjár
hagááælilun bæjarins cg
fjárstjórn hans að undan-
förnu talar um hæfni fór-
kóifa Sjálfstæðisfl. til opin
berra fjárstjórnar. Þær stað
reyndir, sem hér hafa verið
dregnar fram, eru vissulega
í litlu samræmi við stóru
orðin, þegar forkólfar Sjálf-
stæðisfl. í bæjarstjórn fundu
sparnað í opinberum rekstri,
trausta fjármálastjóm og
lága skatta. Fulltrúar Sjálf-
stæðisfl. í bæjarstjórn fundu
líka vel, að málstaður þeirra
var meira en slæmur, þegar
fjárhagsáætlunin var til um
ræðu í bæjarstjórninni. Til
að friða samvizkuna, héldu
þeir sig sem mest utan dyra
meðan fulltrúar andstöðu-
flokkanna töluðu. Kjósendur
í Reykjavík eiga að draga af
þessu táknræna ályktun og
fækka þeim Sjálfstæðis-
mönnum, er eiga sæti innan
dyra, eftir næstu bæjar-
stj órnarkosningar. Það er sú
eina rétta ályktun, sem þeir
geta dregið af fjárhagsáætl-
uninni og fjárstjórn Reykja
víkur síðustu árin.
9ENN LÍÐUR að jólum. Tals-j
v-ert af jólatrjám er komið tilj
landsins. Jóiatrén þurfa að geym-j
ast ósk-emmd. Far bezt um !þau íj
skjóli úti I kuldanuim. Ef mikilj
þurrv-iðri gar.ga þarf að halda -þeim
röknm. Þegar þau eru flutt ir.n í
heitar stofurnar hættir barritru við
að falla af þeim. Er mj-iig til bóta
að láta stofnehda jólastrjáa standa
í vatni, eða í ilá-ti með blautum
sand'i. Endast þau þá mikl.u bet-
ur en ella. Jótatrén, sem hingað
flytjast að þessu sinni eru rauð-
greni. Það eru fögur tré og 411-
töluiíega ódýr, en þola illa_ stofu-
hifa og þurt'k til lengdar. í skóg-
arlöndum er hægt að flytja þau
svo að -segja nýhög-gvin úr skóg-
unum in-n á heiimiiin. Þá er allt í
lagi. En hingað- eru þau flutt um
langan veg -frá útiön-dum og gerir
það gæfumuninn. Veitir þeim ekki
af sórstakri .umönnun hér, eins og
áður er lýst. Sumir nota heima-
smíðuðu júlatré og var einkum svo
í gaml-a dalga.
Á NORÐMANNSGRENI (o. fl.
þinui a eða fagurgrenitegundum),
endast þarrnálarnar miklu lengur
en á rauðgreni. Gallinn -er sá hve
dýrt Norðmansgrenið er. Eittihvað
flys-t þá venjulega íinn af sMfcuim
endingargáðum og dýrum jóla-
trjá'm, með flötum barrnálum. Þó
verða það likLega aðeins greinar
að þessu sinni.
Ennfremur v-erða á boðs'tólum
sýprisviðargreinar. Sýprisviðirnir
eru sígrænir. Blöðin eru smá, flöt
og hálf hreistiurkennd og liggja
þétt að greinunum. Sérkennileg-ur
ilmur. Sýprisgreinar endast afa-r
lengi grænar. Ei-n tegundin. lífvið-
ur, hefir verið -gróðursett á Islandi
en lítið vaxið. Furugreinar eru
líka -endingargóðar mjög o-g sér-
kennilegar með hinar löngu barr-
nálar, svo að þær virðast mikl-u
„Ioðnari“ en -grenið og lífviðurinn.
HIN SÍÐARI ár er farið að reisa
stór jóla-tré á -torgum kaupstaða til
mikill-ar jólaprýði. Áveðr-a hættir
þeim þá tii að varða fljótlega veð-
urbarin og jafnvel brotna í vetr-
ars'tormun-um. Þess vegna er víða
erlendis farið að -nota samsett torg
jóiatré og styirkja þau með stóli!,
þ. e. trén eru fest upp við t. d.
háa ljósastaura. Svo er gert á ráð-
húst-orginu í Höfn hin síðari ár.
Eru e. t. v. 3—4 grenitré ten-gd
saman hvert -upp af öðru og rairtm
lega f-es-t við stöngina, sem þau
hylja aigerlega með hinum þéttu
grei-num. Gef-ur þa-rna á að lí'ta
bæði stórt og fagurt jólatré, og
mun ste.rkar-a heídur en ef það
væri eitt s-tórt ekógartré.
Mjög stór, fögur jólatré eru Kk-a
vandfundin í skógunum. Hin venju
legu jólatré sem 'hingað flytja-st
koma flest frá Jótlandsheiðum.
Rækta Jótar heila skóga jólatrjáa
til söllu. Kanniske verður farið að
rækta jóia-tré -ti-l sölu hér á iandi
áður en á löngu líður. Það ætti
vel að mega ta'kast. — Skammt er
síða-n fairið var að nota jólatré að
m-un hér á landi. Helzt sást ein-
staka jólatré í s-tofum v-erzlunar-
man-na, sem sambönd höfðu við út
lönd. Tii Danmerkur barst jóla-
trjiáasiðuri-nn frá. Þýzkalandi fyrir
um 150 árum —og fyrs-t ti'l borg-
anna. En ekki urðu jólatré venu-
lega -aigeng á Norðurlöndum fyrr
en á okka-r öld. Erlendis f-ást smá
jólatré, einfcum Norðmannsgreni, í
jurtapot'- um, til híbýlaprýði.
í BANDARÍKJUNUM voru jóia
tré ekki notuð fyrr en laust fyrir
1850. Talið er að þar hafi verið
kveikt á fy-rsta kirkju-jól-atrénu ár
ið 1851 í Zionskirkjunni í Cleve-
land 1 Ohio. Vakti það hrifningu
fyrst en síðan gremju og þótti hálf
gerð helgi-spjöll. Brátt sigraði þó
jólatréð þar sem annars staðar.
Fy-rstu trén komu ves-tur frá Þýzka
la-ndi, þ. e. þýzkur prestar komu
siðnum á vestra.
í riti, sem prentað var í Strass-
borg árið 1646, er greinilega lýst
skrýddu en þó kertalausu jólatré,
og um 1700 er farið að nota jóla-
tré víða í þýzk-u furstadæ-munum,
en öld síðar í Finnlandi. — Tii er
þjóðsaga frá Sikiley um „hið
fyrs-ta jóla-tré“. „Þegar Kristur
fæddi-st streymdu fulltrúar allra
lifandi vera þangað til að veita
honum lotningu. Trén fcomu einn-
ig. Um lengstan veg kom hið
minns-ta þeirr-a allra, lítið grenitré.
Það var að þrotum komið og hin
skrautlegu eg ilma-ndi, stóru la-uf-
tré skyggðu á það. En stjörnurn-
ar kenndu í brjóst um iit-ia greni-
tréð og sjá: Stjörnuregn féU af
himni og hi-n skæra jólastjarná
se-ttist á topp þess og að.rar stjöra
ur á greinar þess.
Og Jesúbarnið blessaði grenitréð
með brosi sínu.“
ÞANNIG HAFA menn s-nemmar
haft helgi á ‘hin-u sígræna greni«
tré -og talið stjörn-um prýtt greni«
tré -heilagt tákn. — Greinar erii
mikið -notaðar til jóiaskreytinga. í
sumum ik-aupstöðum -landsins era
gerðir stórir sv-eigar úr greni-greia
um, sortúlyngi o. fl. yf-ir göturnar^
og raflýs-t eins og torg-jólatré. I
Engiandi og víðar er -hinn sígræní
Kristsþyrnir (jóla'þymir eða hiná
heila-gi þyrnir) með ra-uðu beirjuni-
um algen-gt jólaskraut. Hér blómg
ast jólaka'ktusin-n víða í stofura
um jólaleytið. í blómabúð-um fáist
blómgaðir túlíp-anar, jólastjarna' o.
ifl. jólablóm. Ennfremur liitaðar
greinar, stundum blóðróttar, iiituð
blóm, liðað melgras. Segja sumi-r
að það seljist mi’klu betur undir
latneska nafninu Elymus! Úti í
görðum -sást einstaka stjúpa i
blóma til 6. desember og garðar
grænkuðu af arfa. Fyrir nokknu'ta
árum var hægt að sækja blóm út
í garðinn og setja á jólaborðið hjá
Þormari í Neskaupstað. En sjald-
a-n ber slíkt við á landi voru.
Ingólfur Davíðsson.
Fyrir jólin baka margar húsmæð-
ur piparkökur. Til eru allmargar
uppskriftir af piparkökum og fara
hér á eftir tvær, önnur frá Frakk-
landi, hin frá Band'aríkjunum.
Franskar piparkökur.
200 gr. strásykur,
200 gr. Ijóst sýróp,
1 matskeið engifer,
1 matskeið kaneU,
IV2 tesk. negull,
2 t-esk. kardimommur,
1 tesk. pottaska, sem hrærist út
í örlitlu af brennivíni eða
koníaki,
600 gr. hveiti,
100 gr. möndlur.
Smjörið hrært ljóst og létt,
sykri, sýrópi, kryddi og pottösku
hrært út í og síðan mestöllu hveit-
inu. Deiginu hellt á borð, afhýdd-
um, gróftsöxuðum möndlunum og
því sem eftir er af hveitinu, hnoð-
að í, þar til það er mjúkt og gljá-
andi. Búnar til nokkuð gildar rúll-
ur, sem eru lagaðar til á borðinu,
svo að þær verði næstum ferkant-
aðar. Geymdar á köldum stað til
næsta dags. Sfcornar í þunnar
srieiðar með hvössum hníf, lagt á
vel smurðar plötur og bakaðar við
fremur góðan hita. >
Það m'á geyma deiglengjurnar
jafnvel vikum saman og baka kök-
urnar smátt og smá-tt.
Bandarískar piparkökur.
150 gr. strásykur,
150 gr. púðursykur,
260 gr. (1% dl.) ljóst sýróp,
1 dl. vatn eða sterkt baunakaffi,
300 gr. smjör,
2 matsk. engifer,
2 tesk. kaneK,
1 rifið pomeran-s'kal,
1 matsk. natrón,
770 gr. hveiti.
Sýróp, vatn eða kaffi og kryddið
soðið saman og hellt yfir smjörið.
Hrært þar til orðið kalt. Hveitið,
sem natróninu hefir vérið blandað
í, hrært út í. Hnoðað o-g geymt til
næsta dags. Þá er deigið hnoðað
aftur, strá- og púðursykrinum
hnoðað upp í það. Rúllað í kúlur,
látið á smurða plötu og hálfri
möndlu þrýst ofan á kökurnar.
Bakað við vægan hita.
Laufabrauð.
Eitthvað vantar af jólasvipnum,
ef ekki er laufabrauð á borðinu.
Ekki ber ölluin saman um, hvernig
laufabrauðið sé bezt, sumir vilja
hafa það eingöngu úr hveiti, aðrir
úr rúgmjöli og enn aðrir blanda
þessum tveimur mjöltegundum
saman. Mín aðferð er þessi:
500 gr. rúgmjöl
500 gr. hveiti,
1 Ktri soðin mjólk (tæpl.),
1 mátskeið kúmen.
Kúmenið er soðið í mjólkinni og
annað hvort síað frá eða haft með
í brauðið. Mjölinu sáldrað á bakik
og heitri mjólkinni hrært út í.
Hnoðað þangað tU deigið er
sprungulaust. Flatt út í þunnar
kökur og skreytt með útskurði.
Steikt í jurtafeiti eða tólg.
Og gleymið svo ekki að hafa
góðan mysuost með laufabrauðinu.
Það er svo sjálfsagt að hafa
hangi'kjöt, steiktar rjúpur, rúsínu-
graut og ávaxtagraut á jólaborð-
inu, að mér dettur ekki í hug a3
fara að koma með neinar matar-
uppskriftir fyrir jólin, læt aðeinu
fljóta með uppskriftir á fáeirmjn
sm'áréttum, ef eitthvað skyldi
vanta til eyðufyilingar.
Síld með gulri sósu.
f þennan rétt má nota gaffalbita
en kryddsíld er betri.
1 Sé síldin of bragðsterk, er gott
j að leggja hana í mjólk. Síðan er
hún þerruð og skorin í hæfiiega
stóra bita. Séu til tómatar, eru
þykkar tóma-tsneiðar lagðar ofan á
síldina, en einnig má leggja síldar-
bita á 'smurt rúgbrauð, ef vill. Yfir
er hellt gulri sósu, sem búin er
til úr:
2 harðsoðnum eggjarauðum,
1 hrárri eggjarauðu,
1 dl. þeyttum rjóma,
ediki, sykri og frönsku sinnepl
eftir smekk.
Soðnu eggjarauðurnar eru marð-
ar og þeirri hráu hrært saman við,
rjómanum og kryddinu bætt í eftir
smekk. Skreytt með öfúrlitlu af
hökkuðum agúrkum eða rifnum
' osti.
! Aifgangi af rúsínugraut má
brevta í hollenzkan hrísbúðing,
með því að leysa upp matarlím og
, hræra í þeyttan rjóma og blanda
I saman við grautinn. Skola mót með
vatni, strá í það sykri, láta búð-
inginn í og láta hann stirðna. Með
þessu má bera saftsósu, sultutau,
soðna, þurrkaða ávexti, jafnvéi
ávaxtahlaup.
Gleymið ekki að eiga eitthvað
af hinum góðu ostum til jólanna.
jBerið ost og ávexti óspart sem
eftirrétiti, í stað þess að eyða tíma
'og erfiði í að búa til margbrotna
búðinga.