Tíminn - 29.03.1958, Blaðsíða 7

Tíminn - 29.03.1958, Blaðsíða 7
T í MI N N, laugardaginn 29. marz 1958. 7 Staldrað við í „himnaríki á jörðu” - og spjaUað viS gæfumanninn Andrés Johnson í jaðri Hafnarf jarðarbæjar við enda Strandgötunnar, þar sem vegur beygir tii Suður- nesja, stendur bær í túni, lágreistur með blágrátt þak og útskurð á burstum. Sunn- anundir bænum standa nokkrar hríslur og yfir úti- dyrahurðinni, sem er máluð þrennum liturn, bláum, hvít- um og rauðum, er útskorin fjöl með áletrun: „Eg á heima utan við ólánskjörin hörðu. Ásbúð heitir heimilið, himnaríki á jörðu". — Þú hefir þá heldur viljað vera á íslandi? — Striðið, stríðið’, stríðið. Komst ekki undan því, hefði orðið að fara í það, — vildi ekki fara.í það til að drepa mann. Þetta geturðu skrif- að. — Hvenær fórstu að gefa þig að rakarastarfinu? — Lærði það í Ameríku. Var níu ár í Winnipeg og lærði þar mitt handverk. Sex ár að koma und ir mig löppunum og vann í'yrir sjálfan mig eftir það og hef gert það síðan. Ég átti Iíka hringekju og rólubát, eins og er í Tívolí og hafði gott upp úr mér. Átti líka- billjard. Já, ég hafðr mörg járn i eldi. Bæ frá bæ — Hvenær settistu að í Hafnar- firði? engin- skuld á lionum. Ég hef aldrei lánað og aldrei skrifað á víxil, en ég hef gefið. Ég hef gefið Þjóðminjasafninu Ásbúðarsafnið og arfleitt það að öllum mínum eigum. Andrés stekkur á fætur, fcr í dragkistu sina og kemur aftur með arfleiðslúskrán a. — Þarna hefurð’ana. Já, sjáðu . í arfleiðsluskránni má lesa, að Andrési hefir verið tryggður ár- lcgiu' Lífeyrir, 5000 krónur, gegn Heítnilisfaðirinn í Ásbiið er Andrés Johnson, rakari vestan hafs og á íslandi, fomminjasafnari, tón- smiður og Ijóðaskáld, undramað- ur að eigin sögn og annarra. Hann hefir þrjá um sj ötugt. Inni í baðstofu Andrésar er gnægð aðskiljanlegra hluta. Út- skornar fjalir, uppskriftir og skilirí á veggjunum, gulnaðar ljós- myndir þekja hluta af dumblitri suðinni og framundir gaflinum, vinstra megih við gluggann, er lok rekkja húsbóndans, tjölduð sparr- lökum, og bókaskápur til fóta. Unglegasfur þarna inni er húsbónd inn sjálfur, Andi'és; hann cr kvik- ur í hreyfingum, léttur í rnáli, lilær við kankvíslega og stekkur öðru hvoru úr sæti sinu og stikar hring á gólfinu og raular lagstúf fyrir munni sér. Við vorum að tala um Ameríku. Athafnamaður vestanhafs — Já, ég var athafnamaður í Ameríku, segir Andrés og tyllir sér í sófann aftan við lokrekkjuna. Flutti þangað einn míns liðs 1903 og var þar til 1916. Þar var gott að vera að sumu leyti, en þar verður maður bara a'ð bjarga sér sjálfur, — gott fyrir þá, sem nenna — 1916, þegar ég kom að vestan. Þá setti ég mig niður með rakara- stoíu; byrjaði á Grund og svo var ég í pósthúsinu í þrjú ár, sjáðu, og um suraartímann á Siglufirði. Þá ivar dýrt að lifa og lítið að gera; 1 kolatonnið á 300 krónur og annað eftir því. Og þeir hérna höfðix ýmigust á þessum manni, sem var að koma úr Ameríku og plokka þá. Þá fór ég að ferðast um og safna ýmsum gömlum munum; fór héma í kring og upp í sveit og safuaði — bæ frá bæ — og keypti á upp- boðum og úr dánarbiium. Það kom sér vel að hafa eitthvað handa á milli, en ég var lílva sæmilega efn- aður, þegar ég kom að vestan. — Hvenær kom þér hún í httg, þessi söfnun? — Þetta vaknaði í huga mínum, þegar ég var drengur og sá þetta fyrst hjá Ilavsteeni gamía etazráð á Akureyri. Og þess vegna clreif ég mig til Ameríku, að ég hafði enga peninga og gat ekki eignazt ' neina hluti. Fór svo að hafa sæmi- legt upp úr mér hér heima eftir að ég byrjaði á Siglufirði og itpp úr því fór ég að fara í söfnunar- ferðir viða um landið. Þá voru þeir góðir ■ | Útidyrahurðin — „himnaríki á iörðu.*' því að hann afhendir íslenzka rík- inu safn sitt. | — Ég sendi erindi urn þetta efni ■ til Alþingis 1942. Það varð að lög- um 1944. Og þá voru þeir allir góð- ir. Fjárveitinganefndm kom að skoða safnið og þar var Jónas og hann varð hrifinn', og þar var Páll Zóphóníasson, sjáðu, og Finnur Tónsson, hann var formaður. — Hvenær var saínið flutt til Teykjavíkur? . — Safnið var þá flutt strax inn sftir. Var fyrst geymt upp á lofti í Landsbókasafnmu og svo var það Tutt í Þjóðleikhúskjallarann. Þar ’ór djöfullega um það, kuldi og nyrkur — og þar var það þangað il það var flutt vestureftir. — Þú hefir nú sett upp sérstaka teild við safnið — Já, til1 sýnis í déildinni minni vru um 2200 hlutir og í öðrum leiídum 2—300. En meira er í ;eymslu. Það eru um 30.000 munir, em eru komnir inneftir. — Og þú ert enn að safna? — Siðast liðið ár safnaði óg 500 ilutum og árið þar á undan 700. ’ig er ekki liættur, þrátt fyrir mína ■esöld. Safna alltaf. Andrés dregur upp tvær forláta keiðar, sem hann er nýbúinn að kaupa. — Þetta fékk ég í dag. Ég kaupi lýtt og gamalt, innleut og útlent. Ig er ekkert að setja það á blað, ivað ég eyði miklu í þetta; ég væri iominn á Klepp þá, orðinn vitlaus, j'áðii! Ég flaug norður í suniaf og umarið þar áður til að tína sam- m hluti. Það kostar lika noklcuð. — Áhuginn er svona mikill; ég slæ íkki slöku við, þó að ég fái blóð- eitrun og lungnabólgu — undra- maður, sjáðu. Síðast safnaði ég síldarmerkjum fyrir norðan. Það eru orðin 170 að vinna. En þegar öliu er á botn- ínn hvolft, þá er ekki betra að vera þar en hérná. — Þar kvænt- ist ég Sigurlaugu Magnúsdóttur. Hún var fædd í Ameríku og vildi ekki koma iheim. Ég fór vestur aft- ur og skíídi við hana. — Þú hefir komið upp stóru safni hér i Ásbúð. Hvenær settistu að hérna? — Ég keypti bæinn á uppboði 1931 og byggði hann strax upp. Keypti bæinn bai'a greni; hann kostaði 580 krónur, en það var aSlfl ' ' ' ■ ■ ■ Á'Cv.-'.: if'M : ■: • - * - , Andrés Johnson á stéttinni í Ásbúö — undramaður. stykki. Já, já, það er góður hópur. Etzta merkið í safninu er frá 1906. Aitfaf þetta sama moll — Þú hefir mikið fyrir stafni, en hvað um tónsmíðarnar? — Ég þekki enga nótu, en ég get búið til lög við íífalt erindi eins og fjórhenta vísu. Andrés bendir á innrammað nótnahandrit, sem hangir á vegg í fremri stofu. Hann raular lagið fyrir munni sér, það er barnagæla. Á eftir fer hann með lag, sem hann hefir samið við „Guð vors lands“. — Lagið, sem ég bý til, suða ég við sjálfan mig, þangað til ég kanni það. Það er búið að skrifa upp fyrir mig 16 lög, og það hefir verið gert af þeim mönnum cimrni, sem und- irgengust það að láta mig hafa þau, þegar þeir voru búnir að skrifa þau upp. Næst syngur Andrés lag við vísu eftir sjálfan sig, hægt og þýtt. — Enginn djöflagangur í því út og upp, sjáðu. Alltaf þetta sama moll. Nótt og dag — Ég yrki nótt og dag, segir Andrés, yrki _ alVeg tröllaukinn. Undramaður. Ég hef búið til brag- fræði. Og þetta er meðfætt allt saman; aidrei komið inn fyrir skóla dyr — menntunarlaus maður með öllu. En nú skaltu heyra vísu: Samstæðu kvað kvæða, kaus næði til fræða lofræðu hljómhæða háflæði Hfsgæða. Fjær mæðu kostklæða kunn svæði bjargræða lífsfæðu lilaut hræða hér æði djúpvæða. — Þarna sérðu, hvernig hún er steytt, en nú ætla ég að gefa þér gamanskap niinn, en þó er alvara meðfylgjandi. Nú sprellið: Það fæddist kvígukálfur, kálfurinn fékk að lifa og fór á fætur sjálfur. Þessi andans álfur óx til vizku og þrifa bæði heill og hálfur. Um hann orðagjálfur asnar iöru að skrifa, en þá dó kvígukálfur. — Ég er alltaf að yrkja, hring- hendur og sléttubönd, daga og næt- ur. Þarna sérðu tvær postillur á borðinu, þéttskrifaðar, fuffla tösku af handritum á skattholinu og fimmtíu skriflur til viðbótar. Undramaður — og gæfumaður að haía hana Sigurlín Davíðsdóttur, ráðskonuna mína, til að sjá um mig í ellinni — liklega bezta hjú, sem uppi hefir verið. Gæfumaður. Lítfu þarna á vegginn ofan við baðstofu dyrnar, líttu á livað skrifað stend- ur, grafið þarna á fjölina: Ég gat höndlað hér og þar hálf-góð tækifæri. Saman reyttu reyturnar rakhnífur og skæri.“ B. Ó. Frá borginni við sundið (Framh. af 5. síðu.) reglustjórinn æskir strangari refs- ingar, — fangelsisdóms, upptöku svartámarkaðsbrennirins og glöt- unar réttinda til að kaupa áfengi — eru þau lög í Færeyjum að liverj- um manni er heimilt að flytja inn ákveðið anagn af brennivíni. Þessi réttindi veita manni leyfi til að kaupa ál'engi sem svarar 80 lieil- flöskum á ári. Þar að auki er verzl- að á svartamarkaði. Lögreglustjór- inn segir, að verzlunin fari að miklu leyti fram í leigubílum, sem biða við hafnarbakkann, þegar fiskiskip koma að landi. Erfitt er að hafa heniil á þessari ólöglegu sölu, þar sem þeir, sem lent hafa í kiónum á vínsölunum, kæra sjaldnast til lögerglunnar og eru oftast ofurölvi og ósjáifbjarga, þeg ar þeir finnast á götunni og vita ekki sitt rjúkandi ráð. Geir Aðils. Á víðavangi Gallar núverandi uppbótarkerfis í Alþýðublaðinu í gær er nol.k uð rætt uin efnahagsmálin og umræður þær, sem urðu um þau á flokksstjórnarfundi Alþýðu- flokksins í veluiv Blaðið segir, að vegna samþykkta seinasta Al- þýðusambandsþings hafi fundur- inn ekki talið fært að mæla með gengislækkun. Blaðið segir síð- au: _ „Á hinn bóginn taldi flokks- stjórn Alþýðuflokksins núverandi uppbó'tarkerfi Iiafa gengiö sér til húðar og því ógerlegt að leysa cfuahagsmálin án þess a. m. k. að gera á kerfinu verulegar breyt ingar. í þessu sanxbandi er rétt að minna á þessa höfuðstaðreynd: Ef taka ætti þó ekki væri meira en 100 milljónir með auknum gjöldum á hátollavörur þvrfti að stórauka innflutning lúxus- og ó- þai-favarnings til landsins. Nu er gjaldeyrisástandið þannig, að engar horfur eru á að hægt verði á þessu ári að áuka þennan inn- flutuing eins og þurfa mundi, án þess að skerða verulega annau innflutning, cn þar kæmi varla til greina annað en bygginga- og fjárfestingavörur og hráefni til iðnaðar mundi minnka og þannig leiða til stór fellds atvinnuleysis. Afleiðingin af óbreyttri stefmi í efnaliagsmálunum mundi því vera stóraukinn innflutningur lúxusvöru, en mikið atvinnuleysi. Þannig mundi millifærsluleiðiu verða að atvinnuleysisleið. Þar að auki verður að benda á að uppbótaleiðin, sem getur við vissar aðstæður verið bezta og rcttlátasta leiðin til lausnar efnahagserfiðleikum ,er nú kom- in í margvíslegar öfgar. Það munu í raun réttri gilda 10—20 mismunaiidi gengi á krónunni varðandi innflutiiing til landsins, niörg til viðbótar fyrir útfhitn- inginn og enn fleiri um önnur gjaldeyrisviðskipti. — f þessu völundarhúsi er því margvíslegt misræmi og misrétti, er ebki er hægt 'að þola til lengdar Þar að auk kostar allt þétta enda- lausa ski'iffinnsku sem er bæði kostnaðarsöm og hvimleið.“ „Brotna kannan" í forustugrein í AlþýðublaðinU í gær er rælt um skrif Mbl. varð- andi efnahagsmálin. Greininni lýkur þannig: „Það er skiljanleg viðleitni, að Mbl. reyni að gera fyrirliuguð lirræði ríkisstjórnarinnar í efua- hagsmálunum tortryggileg. Slíkfc er í samræmi við ábyrgðarlausan ái-óður Sjálfstæðisflokksins. En þjóðin tekur varla mark á þeim viðbrögðum, þegar Mbl. játar samtímis að það liafi ekki hug- mynd um fyrirætlanir ríkisstjórn arinnar og spyr eins og álfur ut úr hól, hvað til standi. Mbl. kall ar fyrirhugaðar ráðstafanir páska brugg og segir að það muni ekki verða gott á bragðið. En hvaða drykk liefir Sjálfstæðisflokkur- in upp á að bjóða? Engan, alls engan. Hanu slendur með brotna könnu í liöndunum, en þykist samt geta svalað þjóðinni, ef hún veiti sér völd og áhrif. Brotna kaunau á að vera framtíðarúræð ið eftir bráðabirgðaráðstafanirn- ar og neyðarúrræðin, sem Sjalf- stæðisflokkurinn hefir liaft til málanna a® Ieggja undanfarin ár með þeim afleiðingum, að Ólafur Thors sigldi þjóðarskútuimi í straud. Ætli sé ekki sama hvort hún er rétt fram fyriv eða cftir páska? Sjálfstæðisflokkurinn dæmir sjálfan sig með að veifa brotnu íláti, þó að það sé ge. t af mannalátum.“ Þióðviljinn og Mbl. og 28. marz Forsíður Mbl. og Þjóðvilja. s í gair eru hclgaðar frásögnum af því, að tvö ár voru liðin síð- an A!(þingi gerði ályktun sína um endurskoðim varnarsamnings ins. Þjóðviljanum þykir það að sjálfsögðu slæmt, að enn skuli (Framh. á 8. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.