Tíminn - 30.07.1958, Qupperneq 8

Tíminn - 30.07.1958, Qupperneq 8
B TÍMINN, miðvlkudaginn 30. júni 1958. Jón Dúason, sjötugur (FramJiald af 7. síðu). sóknum sínum á sögu og réttar- stöðu Grænlands, má marka af því að árið 1928, er deila Norðmanna og Dana út af Grænlandi stóð sem einna hæzt, þá lagði hann fram við háskólann í Ósló ritgerð sína um réttarstöðu Grænlands á miðöld- um: Grönlands statsrettlige Stilling i ;Middelalderen“,' því að danskir menn komu í veg fyrir að hann gæti lagt hana frain við háskólann í Kaupmannahöfn eins og hann hafði ætlað sér. Þótt ritgerðin kæini algerlega í bága við rök Norðmanna fyrir kröfu þeirra um Grænland, tók Óslóarháskóli hana samt gilda og veitti Jóni fyrir hana nafnibót doktors í lögum. Eftir þetta einbeitir doktor juris Jón Dúason sér að því að undir- búa útgáfu heildarverka sinna um sögu Grænlands. Var það bæði tíma- og fjárfrekt fyrirtæki, sem mikið áræði þurfti fyrir fjármagns lausan einstaikling að ráðast í. Ár- ið 1941 byrjaði svo hið mikla verk hans: „Landkönnun og landnám ís- lendinga í Vesturheimi“ að koma í heftum sem áskriftarrit til fastra áskrifenda. Byggði hann þá tilhög- un.á hjargfastri trú á skilvísi landa sinxia, því þetta var honum eina faera leiðin til þess að koma rit- unum út, því að fjárstyrkur sá sem Alþingi veitti honum þá þegar til útgáfunnar nægði ekki nema rétt til þess að hefja verkið. Það sýndi sig þrátt að ritum Jóns var vel tekið um land allt í fyrstu og margir gerðust áskrif- endur. En hræddur er ég um, að traust doktorsins ’.á. skilsemistil- hneigð landa sinna hafi beðið nokk ura hn'ekki þegar fram í sótti, enda komu þá áhrif styrjaldarinnar fljótt £ Ijós á þann hátt að gömul viðhorf til skuldbindinga og pen- inga virtust bresta hjá mörgum. M«m virðast, margir hverjir, ekki hafa gert sér grein fyrir því hve | geysilega umfangsmikil og tíma-' frok útgáfa svona rannsóknarrita er, né heldur að því að eins var hægt að ljúka útgáfunni og halda henni á ódýru verði að allir stæðu við skuldbindingar sínar. Þar við bættist að erfiði Jóns við rannsókn ir sdnar og útgáfuna höfðu um síð- i ir gengið svo á heilsu hans við lest ur rykfaláinna bóka og handrita og skriftir í óhentugum húsakynnuin, að hann varð oft að liggja lang- dvöltun í sjúkrahúsum. En sá hefir verið kraftur þessa mikla fræðimanns að ekkert hefir bitið á andlega orku hans eða á- huga á því mikla verkefai, sem hann hefír heigað allt sitt lif og starfskrafta. Er þess skemmst að minnast, að er hann vai-ð fyrir hian gýfurlega tjóni síðastliðinn vetur, er eldurinn eyðilagði næst- um allt hans ævislarf og aðeins varð bjargað allra dýrmætustu handritum hans, þá lét hann slíkt ekki á sig fá, heldur sneri sér að því að skrifa um Grænland og mál- efni Grænlendinga og minna ís- lendinga á þjóðfélagslegar skyldur þeirra við þá. Slík eru viðbrögð þeirra manna einna er óbrotgjarn- ir eru í hugsun og hjarta. Eigið tjón veldur þeim ekki áhyggjum, heldur er þeim framgangur þess sem þeir vita sannast og réttast hið eina nauðsynlega. Það fór ekki hjá því að niður- stöður þær sem doktor Jón Dúason fékk af rannsóknum sínum á sögu Grænlands þættu fara nokkuð í bága við ríkjandi hugmyndir, sem ýmsir danskir og norskir söguskrif finnar og eftir þeim margir ís- lenzkir skólamenn höfðu haldið á lofti um meira en mannsaldurs- skeið. Sú hugmynd, sem helzt var veitt sem uppfræðsla um þetta úti í heimi og jafnvel hafði sín áhrif hér á landi, mótuð af dönskum og norskum staðhæfingum, var í aðal- atriðum þessi: . . . Grænland var fundið af víkingum, norskum landnámsmönn um -á íslandi. Þeir settu þar sjálf- stætt ríki á stofn. Það gekk undir Noreg og leið undir lok vegna sigl ingaleysis. Þá komu Skrælingjar (reyndar oftast sagt Eskimótar) og útrýmdu „norrænu íbúunum“. Síðan. fundu Danir landið aftur me& Hans Egede og settu þar ný- lendur á stofn og krl.tnuðu Græn- Iendinga. Síðan er landið danskt . . . . (Norðmenn setja Ibara norskt salt í hrærigrautinn). En þeir, sem kynnt hafa sér rit doktors Jón Dúasonar, fá allt aðra yfirsýn um þessi mál: ísland var numið af mönnum sem flestir komu úr Norðurvegi og nokkrum sem komu úr Vestur- vegi þ. e. Skotlandi og eyjunum þar norður af. Af ýmsu má ráða ?.ð fyrirliðar þessa fólks ha-fi verið af ættum, sem ekki hafi verið bún- ar að dvaljast lengi á Norðurlönd- um, (heldur hafi. þær verið aðflatt- ar sunnan yfir Eystrasalt. Þá var Noregur ekki enn orðinn eitt þjóð félag, heldur voru þar þá fyrir ein 25 eða 26 fullvalda þjóðfé- lög. Landnámsmenn íslands voru margir höfðingjar úr þessum norsku þjóðfélögum, sem hrökluð- ust undan ofríki því, er þeir urðu fyrir þegar Haraldur liárfagri braut undir sig norsku þjóðfélög- in og skapaði milili þeirra persónu samband um ríki hans. Landnemar íslands voru því flestir friðlausir og þióðfélagslausir menn, sem stofnsettu hér sitt eigið þjóðfélag árið 930, rúrnri öld áður en fyrstu lögin um sameiginlegt norskt þjóð- félag urðu til. ísland varð því aldr- ei norsk nýlenda í neinum skiln- ingi. — íslendingar vissu um til- veru Grænlands á ofanverðri land námsöld. Tindar Grænlands sjást í góðri sjávarsýn af sjónarfjöllum Vesturlands. Þangað fór Snæbjörn galti, íslenzkur maður könnunar- ferð fyrstur, svo greint sé frá, ef undan er skilinn hrakningur Gunn bjarnar Kráku — Úlfssonar, sem sá í raun og veru ekki nema tinda Hvítserks úr hafi er hafa síðan lengi á villandi hátt verið kallaðir Gunnbjarnarsker. — Breiðfirzkir höfðingjar styrktu Eirík rauða til könnunarferðar þangað. Eiríkur var íslenzkur þegn, fæddur á ís- landi. Rúmlega hálfri öld efti-r að ísland hafði staðið sem óháð lög- um bundið þjóðfélag hefja íslend ingar skipulegt landnám. Græn- lands undir forustu Eii-íks rauða. Floti 25 skipa íslenzkra hefur land námsförina. Af sögunum má sjá að þetta hefir verið skipulagt innra landnám íslenzkt, gagnstætt landnámi íslands, sem var óskipu- legt landnám sundunlausra manna af morgum þjóðernum. Grágás og Jónsbók sanna að Grænland hefir tiiheyrt íslenzka lögskipulaginu og verið ibundið þvi þjóðfélagslega eftir venjum germanskra réttar- samfélaga á þeim tíma. Samkvæmt þeim venjum þurfti það ekki að sækja löggjafarþing réttarsamfé- lagsins íslenzk-grænlenzka, Aiþingi við Öxará. En Grænlendingar höfðu hjá sér þing að Görðum er eingöngu var dómþing, en hafði ekkert löggjafarvald. Það hafði sömu réttarstöðu gagnvart AJþingi við Öxará sem vorþing á ísiandi samkvæmt Grágás. Kristni kom á Grænland með lögtöku hennar á Alþingi árið 1000. ísleifur fyrsti biskupinn yfir íslandi var vígður til „þjóðar íslendinga og Grænlend inga“. Grænlendingar gengu með íslendingum undir Noregskonung vegna Gamla sáttmála. Skattheit þeirra við konung árið 1261 voru ekki annars eðlis né meira bind- andi en skattheit Skagfirðinga ár- ið 1256. Með Gamla sáttmála lof- aði konungur að senda 2 skip ár- lega til Grænlands samkvæmt bréfi Friðriks konungs II. til Græn lendinga árið 1568. Vald sitt yfir verzluninni notaði konungur til þess að einoka hana um miðja 14. öld. Þar af kom að sambandið við Grænland rofnaði alveg í byrjun 15. aldar. Fyrir margendurteknar áeggjanir og eftirgangsmuni ís- lenzkra manna tók svo konungur aftur upp stöðugar siglingar til Grænlands í byrjun 18. aldar með trúboði Egedes og verzlunarstöðv- um, sem þó var hvorugt rækt eins og íslendingar höfðu lagt til. — Grænland tilheyrir fslandi þjóð- réttarlega enn í dag. ísland hefir aldrei afsalað sér rétti sínum til þess. Því toer heilög skylda vegna eftirkomendanna að krefjast þess að Danmörk afhendi það undir xs- lenzk yfirráð. íslendingum ber einnig foróðurleg skylda til þess að losa Grænlendinga undan því fargi sem dönsk einokun og undirokandi stjórnartoættir toafa verið þeim seinustu 240 árin. Sögufölsun Dana og Norðmanna urn útdauða íslend- inga á Grænlandi hefir ekki við nein rétt rök að styðjast, því að það fólk, sem nú foyggir Græn- land í dag er beinir afkomendur íslendinganna sem námu það til forna, aðeins lítið eitt folandaðir Skrælingjunum sem fyrir voru á eyjunum norður af Ameríku, og hafa týnt xslenzkri tungu vegna sambandsleysis við þjóðfélags- bræður sína á íslandi vegna van- efnda og svika konungsvaldsins. Hinir svokölluðu Eskimóar eru að- eins iblendingsfólk Skrælingja, sem ekki eru lengur til, og hinna ís- lenzku Grænlendinga, sem á veiði ferðum sínum á umliðnum öldum fóru um allt íshafssvæði Ameríku vestur til Síberíu og suður til Vín- lands. íslendingum er brýnt lífs- spursmál að geta lifað sem frjáls- ir menn á Grænlandi í dag og þeir bera einnig sína ábyrgð á stjórn- arframkvæmd Dana þar. Þessi niðurstöðu útdráttur minn af kenningum dr. Jóns Dúasonar um Græmland gefur þó ekki nema ófullkomna svipsjón af því, sem hann hefir fram að færa um þessi mál. En allt sitt mál styður hann svo föstum rökum sóttum í, að ég held, þúsundir heimilda svo ég ætla að ófært sé með öllu að hrekja þau um það sem máli skipt ir, ef leita skal þess eins sem rétt er. Til þess að gefa nokkra innsýn í hver ritstörf liggja eftir dr. Jón Dúason um Grænland ætla ég að birta hér lista yfir það, sem ég veit um að komið hefir út eftir hann sérprentað, og er það þá fyr ir -utan þánn aragrúa sem hann hefir skrifað í alis konar blöð og tímarit og aðrar bækur, en mikið safn slíkfa greina sem hann átti fórst allt í eldinum í vetur. Þau rit, sem ég veit um að kom- in eru út eftir dr. Jón Dúason um „Grænlandsmálið“ eru þessi og í þessari i’öð. 1. Nordbokoloniens Gem-ejsing i Grönland. (Sérpr. úr Atlanten) Köbenhavn 1916. 2. Grönlands statsrettlige Stilling i Middelalderen. Doktorsritgerð við háskólann í Ósló. 1928, 216 blaðsíður. 3. Landkönnun og landnám ís- lendinga í Vesturheimi. Þriggja binda verk. Eingöngu áskriftarrit. Byrjaði að koma út 1941. Út er komið 1—II foindi og 1—4 hefti af III. bindi, alls 1408 bls. Eftir mun vera af þessu verki seinasti hlut- inn, oða tveir og hálfur kafli (Sjá boðsbréf 1940). 4. Réttarstaða Grænlauds, ný- lendu íslands. Sömuleiðis áskrift- arrit. Þriggja binda_ verk. Byrjaði að koma út 1947. Út eru komnar 1536 fols. Af þessu mun vera eftir svipað og af því fyrra. (Eg get ekki stillt mig um að minnast hér á faið hlægilega litla gjald sem skilvísir áskrifendur hafa þurft að greiða fyrir það sem út er kornið af þessum tveimur á- skriftarritum, en það er kr. 105,50, fyrir „Landk. og landn.“ og kr. 218,00, eða ekki nema kr. 323,50 fyrir 2944 blaðsíður í Eimreiðar- broti fullar með fræði og vísdóm). 5. Grænland á krossgötunx. Bæk- lingur um Grænlandsmálið gefinn út af Jóni Dúasyni og fleirum ár- ið 1947. 84 bls. m. m. m. 6. íslendingar eiga Grænland. Rítgerð eftir J. D. Samandregin helztu rökin fyrir rétti íslands til Grænlands. 32 bls. Gefið út 1948. 7. Á ísland ekkert tilkall til Grænlands. Svör Jóns Dúasonar við nefndaráliti Gizurar Bergsteins sonar. Gefið út í 250 tölusettum eintökum 1953, 188 bls. 8. Die koloniale Stellung Grön- Iands. Von Jon Duason. Bæklingur á þýzku, 60 bls. um þjóðréttar- stöðu Grænlands með formála oftir dr. jur. Georg Erler réttarsögu- prófessor og forstöðumann fyrir „Institut fur Völkerecht an der Universtat Gottingen“. Útgefandi sú stofnun. 9. Materialen zur jungsten Ge- staltung der Grönlandsfrage. Von Jon Duason. Fjórblöðungur, sér- pr. úr „Europe Archiv" 20. 7. 1956. 10. Tveir kapítular úr Vígastlóð. Sérpr. úr „Tímar. iögfr. 16 bls. 1955. 11. Ilvað sagði Danmörk S. þ. um réttarslöðu Grænlands? Sérprent Minningarorð: Sigurjón Þ. Jónsson, fyrrv. bankastjóri Sigurjón Þorgrímur Jónss'on var Skagfirðingur að ætt og uppruna. Fæddur var hann að Efra-Lýtings- staðakoti, sonur Jóns Jónssonar, bónda þar og á Stóru-Seylu, og konu hans, Bjargar Pctursdóttur. bónda á Reykjum í Tungusveit. Sigurjón varð stúdent 1901, cand. phil. við Hafnarháskóia, las þar verkfræði um hríð, en hætti svo námi. Kenndi á Akureyri og við Flensborgarsk'óla, árið 1905—1906. Flytur þá til ísafjarðar, og gerð- ist þar kennari og síðar skóla- stjóri við barna- og unglinga skólann. Síðar varð hann banka- stjóri útibús Landsibanbans á ísa firði í 11 ár. Hann var bæjarfull- trúi í miörg ár og alþingismaður 1923—1927. Auk þessa gegndi Sigurjón fjölda annarra trúnaðarstarfa, sem hér verða eigi talin. Hann krant- ist 30. júlí 1910, Kristinu Þorvalds dóttur, Jónssonar prófasts á ísa- firði. Lifir hún rnann sinn, ásamt tyeimur kjördætrum þeirra hjóna, Ólöfu, giftri Hauki Vigfússyni, bahkafuTltrúa, og Þórdtei, féhirði í Laudsbanka íslands. Fyrir réttum 20 árum flutti Sig- urjón Jönsson frá ísafirði, og tók sér þá bólf'estu að H'elgafelli á Seltjarnarnesi, og átti þar heima til ævilok-a. Sarna ár og hann f-lutt ist á nesið, var hann kjörinn í -hreppsnefndina, og jafnframt hreppsnefndarodd-viti. Því starfi hélt hann í tvö kjörtím-abil, eða 8 ár, og var enn kosinn í hrepps- nefnd hið 3. sinn, en hafnaði þá á víðavangl (Framhaid af 7. síðu). hér. En Bjarni Benediktsson Iét hann skyndilega hverfa af skránni í valdatíg sinni sem ut- anríkisráðherra. Þar með viður- kenndi hann óföríníega valda- ránið í Eistlandi og spurði víst engan um. Þanuig vottaði Bjax-ni Eistlendiagum samúð sína og lagffi þeim lið sitt í sjálf stæðisbaráttunni. Va-ri ekki tíma bært fyrir ISIorgunblaðið að spyrja eistneska fióttamanninn, hvort sú framkoma xnyndi frem- ur vera siðferffisfega styrkjandi eða lamandi fyx;ir alþýðufólk Eistrasaltsríkjanná? Morgunblað- ið ætti að boða manninn aftur á shux fund og eiga við hann nýtt samtal um þStta atriffi.“ un úr „Tímariti lö'gfræðinga“ 1956. 32. blaðsíður. Þegar litið er yi'i-r þetta mikla rannsó-knarstarf dr. Jóns Dúason- ar í þágu íslenzkn þjóðarinnar, þá fer ekki hjá þv-í a.ð sú hugsun- geri vart við sig hvort íslendinga ætli nú að henda sama slysnin Qg þegar Jón Sigurðsson var að telja kjark í þá til sjálfstæðis að bíða næstúm heila öld eftir a.ð hann va-r al-lur til þess að hefja brautryðjendastarf. hans til vegs? Ef nokkur óík mætti verða dokt or Jóni Dúasyni að skapi á þess- um merka afjnælisdegi han's, þá veit ég að það væri sú ein að Al- þingi veitti nú þegar á þessu hausti nægilegt fé til þess að gefa rit Jóns: „Landkönnun og landnám íslendinga í Vesturheimi" út á ensku sem til er í handriti í vand aðri þýðingu. Með því væri skap- aður grundvöllur fyrir því að þjóð ir heimsins gætu kynnt sér það að nokkurs ættu íslendingar enn að vænta um uppfyllingu sjálfstæðis síns. Að endingu vil ég svö láti í Ijós persónulegt þakklæti mitt tií af- mælisbarnsins fyrir allt hans þjóð nytjastarf og einnig þá von núna að gæía íslands megi vei-ða sú að þjóð hans fari nú að taka undir með honum i festu og af fullri al- vöru í þrotlausri baráttu hans fyrir réttindum íslands. 30. júlí 1958. Ragnar V. Stxirluson. setu í þeirri nefnd. M-eðan Sigur- jön var oddviti, stjórnaði hann málefnum sveitarféia-gsins af stakri ráðdeild og re®l-usemi. Hann v-ar eftifgang-ssam-ur um gjöidin í sveitarsjóð, -end'a stóð ekki á greiðslum hjá honum úr hrepps-sjóði á öllunx ilögtoeðxium gjöldum. Hann var fráfoær skr.í- stofumaður. Mátti svo heita í hans odd.vitatíð, að erindum, seim beint var lil hrepps'neíndarnnar, léti h-ann e-kki degi lengur ósvaraS. Slí-kur afgreiðsiuhraði mun nú fá- gætur. O-g þannig mun Sigurjón hafa rcynzt í ölium hinu-m fjol- m'örgu trúnaðarstöðum, sem ho'n- um voru faldar um ævina: sér- stakfega samvizkus-amur í smáu s-em stóru. Hefði hann vel mátt gera aðr sínum einkunnarorðum svar Kolskeggs:1 „Hvorki: mun ég á þessu níðasl, né neinu þ#ív sem mér er til trúað.“ Til marks um reglus-emi Sigur- jóns og fastheldni við fornar dygðir eða venjur, skal ég geta þess, að hann mætti ætíð á mann- talsþingum hreppsins, cg innti þar lö-gskil af höndum, bæði fyrir sig og sitt heimafólk. Slíkt er nú fátít't orðið í þéttbýli, og má teljast til undantekningá, og fyrir því get ég þessa hér.. Eftir að Sigurjón flutitis't suður, var h-ann um árabil endurstooð-andi ýixiissa fyrirtæfcja í Reyfkjavík. Innanhrepps endurskoðandi var hann lengst af eftir að hann lét af oddvitastörfum, og Ieiðbein- andi eftirmanna sinna í þvú starfi. Kosinn var hann í stjórn Sam- bands ísl. sveitarfélaga, þagar bað var stofnað. Formaður sjúkrasam- lags hreppsins var hann skipaffur, þegar það var stofnað. AlTar þess- ar trúpaðarstöður skipaði hann með söm-a. Hcr he.fi ég einkum rætt um störf Sigurjóns Jónssonar, eftir komu hans' hingað á nesið, og kynnum mínum af honum síðan. Hins vegar get ég l’átt eitt sagt um störf lians á í-sa-firði, þar serx hann vann sitt aðalævistarf, nema af afspurn. Það hefir merkur Ts- fu'ðingur sag-t- mér, að Sigurjóh hafi v-erið mjög. dáður af nenxend- um sínunx, þegar hann var kenn- ari og skólastjóri, enda afixi-agðs bennari og s'jornsamur. Þá hefir og verið við brugðið samvizkusemi hans í bankaistjóra- stöðunni, þar sem öft er úr vöndu að ráða: annars vegar hagur láns- stofnunarinanr, liins vegar þörf lánbei'ðenda, Hefi ég . heyrt því fiieygt, að þá hafi Sigurjón bankn- sfjóri stundum lánað fé úr eigin vasa. fremur en að tefla ha-g bank- ans. í ívísýnu, ef um slíkt gat verið að ræða. Þannig fór saman hj-áipfýsi og heiðarieákur. Sigurjóii Jóusson var. fyrirmann- legur í öllu fæsi, hár o-g grannur j á vöxt, teinréttur og léttur í spori, enda orðlaigður gön^ugarpur -á skóiaárum síniun. Hann var h-lý- legur og ljúfur í viðmóti, og þó í einu virðultegur alv-örumaður. Hann var lxeilráður og hoiHráður vinum og vandamönnum, frj.áls- lyndur og víðsýnn framfaramað- ur, s-em „gieymdi þó e-kki því, sem að baki er“. Og þegar hann nú er al'lur, vil ég þakka löng kynni og ágæta samvinnu að heill okkar sveitarfélags. Hér á ncsinu mun Sigurjóns á. Helgafelli lengi minnzt. Scltjarnarliesi, 27. júlí 1958. S.J.f.St.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.