Tíminn - 21.09.1958, Side 6
6
T í M I N N, sunnudaginn 21. september 4958.
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURIHM
' Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson.
Skrifstofur i Edduhúsinu við Lindargötn
Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304.
(ritstjórn og bíaðamenn)
Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 12323
Prentsmiðjan Edda hf.
-C**Þ*Þ* I
Hlaupið undan gærunni
LEIÐARAHÖFUNDI Morg
uuMaö^ms verður heldur en
ekki skissa á í gær í hrá-
sktónaleik Sjálfstæðismanna
í verkfallapólitík sinni.
Aldrei hefir það komið skýr-
ar í ljós en þar, hver er hinn
raimverulegi tilgangur fhalds
ins með þeirri skefjalausu
og undarlegu baráttu, sem
fiokkurinn hefir háð í kaup-
gjaLds- og verðbólgumálum
að undanförnu.
Þar hefir ekki komið til
umhyggja fyrir verkamönn-
um eða öðru launafólki, enda
væri þar um undarlega koll-
steypu að ræða hjá þeim
flokki. Nei, tílgangurinn hef
ir raunar legið flestum í aug
um uppi, þótt íhaldið hafi
reynt að fela sig undir sauð-
argæru. En í leiðaranum í
gær hleypur úlfurinn undan
sauðargærunni með slíkum
feimtri, að ekkert hylur
haiui.
Kaupkröfu- og verkfalls-
barátta Siálfstæðismanna er
sem sé til þess eins háð að
rífa niður, rífa niður allar
tilraunir til jafnvægis í efna
hagslífinu, rífa niður allt við
nám gegn verðbölgu, rífa nið
ur ráðstafanir til eflingar at
vinnulífinu, rífa niður alla
viðléitni til þess að þjóðin
geti komið efnahags- og at-
vinnulífi sínu á traustan
grundvöll. í von um að geta
komið stjórninni frá, hika
Sjálfstæðismenn ekki við að
ganga gegn öllum fyrri yfir-
lýsingum sínum um þessi
mái, stefnu sinni og flokks-
eðli; hika ekki við að stefna
atvinnuvegum þjóðarinnar í
beinan voða, víla ekki fyrir
sér að kynda verðbólgueld-
inn með öllum kolum, sem
tiltækileg eru. Valdasjúkum
mönnum eru engin meðul
ranheilög, öll ráð virðingu
þeiíra samboðin.
ÞEGAR það kemur í ljós,
að vijssar stéttir, þar á meöal
stærstu grundvallarstéttir
þjóðfélagsins eru ófúsar að
hlaupa eftir herlúðri íhalds-
ins og vilja styðja í orði og
á borði ráðstafanir stjórnar-
valda til viðreisnr og jafn-
vægis í efnahags- og at-
vinnulífi þjóðarinnar, missa
þessir íhaldslegátar stjórn á
sér. Það er glæpur í þeirra
augum. Oftast reyna þeir að
dylja þetta álit sitt, en stund
um verður þeim það ofraun.
Og komi það einhvers stað-
ar fram, að menn virði þessa
afstöðu launastétta, tryllast
þeir alveg, og úlfurinn hleyp
ur undan gærunni eins og
í forustugrein Morgunblaðs-
ins í gær, og þessar stéttir
og þeir menn, sem fara virð
ingarorðum um afstöðu
þeirra, eru ausnir skömmum.
Það sem forustugrein Morg
unblaðsins í gær sagði og
sýndi um afstöðu Sjálfstæðis
flokksins í þessum málum, er
i stuttu máli þetta:
Við verðum að ýta undir
verkföll og kaupkröfur, þótt
það sé andstætt stefnu okk-
ar, af því að það er helzta
von okkar til að koma stjórn
inni frá og ná sjálfir völd-
um. Við verðum að gera
þetta, þótt þaö kalli yfir þjóð
ina verðbólgu, setji atvinnu-
vegina á heljarþröm og bjóði
hruni heim. Hvað eru hags-
munir þjóðarinnar á móti
pólitískum hagsmunum okk-
ar og valdamöguleikum? Auð
vitað verða þeir að vikja fyr
ir slíkri nauðsyn.
Ef einhverjar stéttir sýna
þjóðhollustu og ábyrgðar-
kennd og vilja styðja ráð-
stafanir og viðleitni sjórnar-
valda til viðreisnar, er það
öllu öðru hættulegra, og gegn
því verður að berjast
eins og unnt er. Og auðvitað
er stórhættulegt, að það
komi fram, aö þessi afstaða
launastétta sé virt og mikils
metin. Það er svo vofveifleg
hætta, að úlfurinn gáir alis
ekki að sér og hleypur undan
gærunni með írafári og ýlfri
eins og í forustugrein Morg-
unblaðsins í gær.
Góðar eftirprentanir málverka
STUNDUM heyrir maður
útlecidinga láta í ljós undr-
uti sína yfir því, hve ísland,
svo fámennt sem það er, er
eiuðugt af ágætum listamönn
um. Nokkuð er til í þessu. Við
höfum t.d. átt og eigum all-
morga málara, sem myndu
þegár hafa hlotið heims-
frægð, ef þeir hefðu alið ald-
ur sinn með stærri þjóðum.
Hlutskipti þeirra hefir hins-
vegar orðið að starfa að
mestu hér heima, til ómetan-
legs gagns fyrir íslenzka
menningu.
En það sem á hefir skort,
til þessa, er að almenningur
í landinu eigi nægileg tök á
að kynnast verkum meistar-
anna. Málverkasýningar eru
að vísu aJltíðar og er það vel.
En þær eru nær eingöngu
haldnar hér í Reykjavík. Er
þess heldur ekki von, að lista
mennirnir leggi í að fara
mikið með sýningar út um
land, svo kostnaðarsamt sem
það er. En þótt Reykvíkingar
eigi þannig blessunarlega oft
kost á að sækja málverkasýn
ingar, þá er ekki allt fengið
með því. Fólk almennt þarf
að geta átt eitthvað af beztu
verkum listamanna sinna,
fegrað með þeim híbýli sín,
haft þau daglega fyrir aug-
um, lifað í stöðugu sambandi
við þau.
BEZTU verk íslenzkra
málara seljast nú á þúsundir
og tugþúsundir króna. Óger-
legt er því öðrum en efna-
mönnum að eignast þau.
Ragnar í Smára hefir nú far
ið inn á þá braut að láta gera
eftirprentanir málverka með
svo góðum árángri, að undra
vert má kalla. Fyrir þetta á
Ragnar skilið ómælda þökk
allra listvina 1 landinu. Þess-
Walter Lippmann ritar um alþjóðamál:
Kenning Dullesar um lausn Formósu-
málsins og afstaða Chiang-Kai-Sheks
Á blaðamannafundi í fyrri
viku kom Duiles með uppá-
stungu. Hann drap á aðferð,
sem leyst gaeti vanda Ðanda-
ríkjanna á Quemoy. En þar
sem hann er í miklum vanda
staddur og málið honum
skylt, sagði hann ekki ber-
um orðum, að það, sem hann
vildi gera láta, væri að nota
innlimun eyjanna næst
ströndinni sem tryggingu
fyrir því, að kommúnistar
beittu ekki valdi tii að inn-
lima Formósu. Þessar aðgerð
ir gætu tryggt betur aðstöðu
okkar gagnvart Formósu
auk þess, sem það leysti okk
ur frá heimskulegri og ó-
vinsælli skuldbindingu við
eyjarnar næst landi.
Ekki er hægt að gera sér góðar
vonir um, að fallizt verði á þessa
uppástungu Dullesar. Auk and-
stöðu komúnista gegn henni er
fullvist, að^ Ohiang 6amþykkir
hana ekki. Ósenuilegt er, að Dull-
es fái leyfi eða fulltingi Chinags
til að semja um s'líkt, og naumast
vald til að stínga upp á þessu.
Sé gert ráð fyrir, að afstaða
Kína verði vinsamleg, og gæti það
þó verið ofætlun, hefði tillaga
Dullesar að minnsta kosti það í
för með sér, að Chiang yrði að
sýna undanlátssemi, undanláts-
semi, sem af tveim ástæðum yrði
honum erfið. Fyrir það fyrsta
neyddist hann til að kalla burtu
her sinn og láta af hendi eyjarnar,
sem eru lákn baráttu hans og á-
kvörðunar, að virina aftur megin-
landið. Hin onsökin er sú, að til-
slökunin yrði opinber afneitun á
valdbeilingu til þess að ná Kína
úr höndum Kommúnista og viður-
kenning á því, að Kína er annað
og meira en Formósa og með
þessu játaði hann þaö ímyndun,
að Formósustjórnin komist til
valda í Rauða-Kína.
- Væri í alvöru, með formlegum
samningi við Rauða-Kina, stungið
upp á framkváemd þessarar tillögu
Dullesar, hefði það í för með sér
fall ríkissljórnar þjóðernissinna,
því að með slíkri framkvæmd
myndi stjórnin tapa tilverurétti
sínum, og Kínverjar frá megin-
landinu, sem dveljast á Formósu,
teldu sig í útlegð og fanga eyjar-
innar. Engin ástæða væri þá fyrir
hendi, sem gæti hindrað þá í að
semja frið við Pekingstjórnina og
taka einhverujm hinna freistandi
til'boða, sem þeim berast bæði
Ijóst og leynt.
Af þessum ástæðum einum sam-
an er ekki möguleiki að semja um
tillögu Dullesar. Þetta er aðeins
umhugsunarefni, til þess gert að
ræða um í þeirri góðu von, að
kínverska borgarastyrjöldin verði
til loka leidd án stórfelldra hern-
aðarátaka. Fyrir því eigum við að
berjast, en það er ekki hægt, þar
sem við erum það skuldbundnir
og okkar heiður er Chiangs heiður.
Ef við værum ekki bundnir
þessum sanvningi, gætum við tek-
ið afstöðu til Formósumálsins,
sem unnið gæti fylgi heima og
heiman, þrátt fyrir andstöðu Pek-
ingsljórnarinnar. Afstaða okkar
yrði í aðalatriðum sú, að eyjan
Formósa yrði ekki bundin jap-
anska friðarsáttmálanum sem
’hlu'ti af Kína, þar sem Formósu
ar eftirprentamr eru nú að
koma á markaðinn og- seldar
svo vægu verði, að öllum ætti
að vera unnt að eignast þær.
Þannig mun íslenzkri alþýðu
smátt og smátt gefast kostur
á því, aö eignast verk sinna
ágætustu málara, sér til
menningarauka og sálubóta.
01! líkindi he.nda til aS Bandaríkjamönnum
reynist erfitt aí ráÖa þessum málum til iykta
LIPPMANN
: hefur ekki verið stjórnað frá meg-
1 inlandinu í langan tíma.
' Áhugi Bandaríkjanna á Form-
ósu er ekki af þeim rótum runn-
inn, að evjan skuli vera dulbúið
Kina, heldur er orsökin sú,
að fólk á Formósu á heimtingu á
sjálfstjórn og eyjan skal í
bernaðarlegu tilliti vera hlantslus.
Hefðum við nú frjálsar hendur,
færum við innan tíðar til S. Þ. og
legðum til að Formósa yrði gerð
að sjálfsstjórnar landsvæði, hlut-
lausu, og yrði hún afvopnuð undir
alþjóðaeftirliti. Meginhluti Kín-
verjanna frá meginlandinu, sem
eru á Formósu, yrðu aftur þegn-
ar á meginlandinu, og Chiang og
herforingjum hans yrði veitt hæli
á öruggum stað.
. Þrátt fvrir að þessi stefna myndi
vel sæma okkur og þeim áhuga,
1 sem við höfum á þessu landsvæöi,
og auk þess vinna hvlli alls þorra
manna, er engin von að hægl sé
að framfylgja henni. Báðir þeir
Chiang og Mao setja sig upp á
. móti henni, og við getum ekk. bor-
ið það fram, sem Chiang setur sig
upp á móti.
j Framvegis verður sú spurning
' borin fram, hvort við séum nauð-
i beygðir til að gera það, seni Chi-
ang krefst. í rauninni er Quemoy
umsetin og einangruð og það er
aðeins timaspursmál, hvenær hún
gefst upp og verður kommúnist-
iskt land. Því umsátri þessarar
eyjar verður ekki hrundið nema
með árás á meginland Kína, sem
myndi hafa í för með sér a. m. k.
staðbundin hernaðarátök.
Þeir kostir, sem um er að velja
fyrir forsetann, er, að stöðva þetta
og nota mátt 7. flotans til að frelsa
hersveitir Chiangs. Þetta yrði á-
berandi vörn og áberandi undan-
hald. En sé það borið saman við
það, að Quemoy verði svelt.er fyrri
kosturinn betri, því að við megum
ekki blekkja okkur sjálf. Það er
engin undankomuleið út úr þeim
ógöngum, sem forsetinn og Dulles
haía leitt okkur í.
I þessu sambandi er gott ið Iesa
og hugleiðai siðustu niðurstöðu
Winstons Churehills í kaflannm,
sem hann kallar „Múnchen-sorgár-
leikurinn" og er í bók hans „The
Gathering Storm“
Aðalatriðið i sorgarleiknum er
sú staðreynd, að Frakkland og
Stóra-BretlaTid íórnuðu Tékkósló-
vakíu, þegar „sómatilfinwingin
varð yfirsterkari skyldunni, og
réttlátur dómur mála krefst arin-
arra aðgerða".
En: „Þeir, sem eru uppstökk-
ir að eðlisfari og vilja leita áhrifa-
ríkra og einstrengingslegra ráða
við erfið og lítt þekkt vandainál,
sem eru reiðnbúnir að berjast,
hvenær sem kalí kemur frá utan-
aðkomandi afli, hafa ekki alltaf
rétt fyrir sér. Aftur á imati 'þeir,
sem hafa t.il&neigingu að láta urid-
an, í leit að sanngjarmi mála-
miðlun, hafa ekki alltaf á röngu
að standa.Þvert á móti; í flestum
tilfellum geta þeir haft á réttu að
standa, ekki aðeins siðferðilega,
heldur í reynd. Hve mörgum stríð-
um hefur ekki verið afstýrit með
umburðarlyndi og þolinmæði. Trú-
in og staðfestan báðar géfa fyrir-
heit um mildí ög mannúð, ekki að-
ens milli manna, heldur elnnig
þjóða. Margur er sá misskilnmgur,
sem leitt hefur til styrjalda, en
mátt hefði leiða til lykta með
stilli. Hve oft hafa þjóðir barizt
grimmilega og siðan eftir fárra ára
frið orðið varar við það, að þær
ekkki aðeins væru vinsamlegar
hvor annarri, heldur ban.damenn.
Afstaða iðnaðarins
Forseti Norska iðnsambamdsins
hefir mótmælt. harðlega nýfram-
kominni yfirlýsingu norska for-
sætisráðherrans um, að engin sam-
eiginleg andsíaða frá verzlun og
iðnaði Noreg-s eigi sér s-tað gegn
norrænu tolliabandalagi. Forsetinn
heldur því fram, að hvað eftir
annað hafi nefnd iðnsambandsins
komizt að sömu niðurstöðu og ár-
ið 1949, þegar mál þetta var þar
fyrst rætt, og. sú niðurstaða sé,
að á norrænu tollabandalagi muni
Noregur tapa margfalt meira en
hagnaðý af þvi að ganga í það
næmi. Út aí yfirlýsingu forsætis-
ráðherrans hefir forsetinn lálið í
ljós ótta við, a$ ríkisstjómin: sé
þegar búin að skuldbinda Noreg
í málinu, þvert ofan í áður gei'na
fullyrðingu til iðnsambandsins um
að svo verði ekki gert. Allt öðru
máli sé að gegna að ganga í vænt
anlegt fríverzlunarbandalag Vest-
uv-Evrópu. Komizt slíkt bandalag
á fyrir öll ríki V-estur-ÍEvrópu,
mundi varí. heppilegt fyrir Nor-
eg, að standa utan við það, og
það eins þó að svo reyndist, að
fríverzlunarregiur þess yrðu ófull
nægjandi hvað Noreg og norska
hagsmuni snerli.
(Aftenposten, 14. 8. ’58)
Á SKOTSPÓNUM
Lndirbúningur mun nú standa yfir að útgáfu þús-
und króna seðla, en ekki víst, hvenær þeir komast
í umferð.... Alveg á næstunni er von á nýrri teg-
und kaffis á markaðinn hér á landi, tilreitt með nýju
sniði f þessari viku mun hefjast ný útvarpssaga
Útnesjamenn eftir séra Jón Thorarensen og flytur
höfundur sjálfur . .. Líklegt er einnig, að önnur ís-
lenzk saga verði flutt í vetur, Skáíhoit sftir Guð-
mund Kamban . . . Dómur mun nú væntanlegur í
Svartagilsmálinu innan skamms . . . . í undirbúningi er
að geía út á þessu hausti listamannabók með nýju
sniði, verða það ritsmíðar, Ijóð ag prósa, eftir ís-
lenzka myndlistarmenn. Magnþs V. Árnason er að
safna efni í bókina og annast útgáfu hennar.