Tíminn - 05.11.1958, Blaðsíða 12

Tíminn - 05.11.1958, Blaðsíða 12
Su'ðvestan kaldi eða stinnings- kaidi, skúrir. Reykjavík 6 st., Akureyri G st., London 10 st., París 10 st., Miðvikudagur 5. nóveniber 1958. Hólar i Hjaltadal. Setning Bændaskólans á Hólum: Vélakennsluverkstæði við bænda skólana er orðin brýn nauðsy Unnt a^ stækka túmS á Hólum um nær helm- ing á næstu árum. — Skógrækt hafin af fullum krafti , Bændaskólinn á Hólum var settur 15. október síðast lið- inn. Skólinn er fullskipaður, og verða nemendur ;34 í vetur. I setningarræðu sinni skýrði Kristján Karlsson, skólastjóri, fi á ýmsum endurbótum á húsnæði og jarðarbótum, sem nú eru orðnar það umfangsmiklar, að á næstu árum mun tún staðarins stækka um helming. Nýr‘kennar,abústaður verður til- b: :nn lil íbúðar á þessu hausti. Endurbygging á ganvla bænum, sGiii Ireistur var árið 1854 stendur nú yfir, en 1 fyrrasumar var lokið við að endurbyggja stofu og bæjar dyr, Þá var gert við skálann, en hunn var byggður upp að mestu fyrir um þag bil fimmtán árum. í sumar voru búr, eldhús og bað- slofa byggð upp og komið fyrir girðingu umhverfis gamla bæinn. Eftir er að gera við hann að innan. í fyrrahaust og framan af í 'fyrravetur, voru grafnir nokkrir kílómetrar af skurðun# í Hóla- engið, og einnig skurður í túnið, um hálfur kílómetri á lengd. Gömiu túnskurðirnir, sem grafn ir voru fyrir tuttúgu til þrjátíu árnm, voru orðnir ófullnægjandi, uppgrónir og of grunnir. Nokk- uð af þeim má nú fylla upp. í vor var hafin ræktun á um tíu hektara landsspildu suður á eng' inu. Mun nú vera það mikið af fullþurrkuðu og hálf þurrkuðu landi, as únnt verður að stækka túnið á næstu árum um allt að því helmimg. Nú er túnið um níutíu hektarar að stærð. í vor var hafin samvinna um ( Eramhdld h 2. síðu > KRISTJAN KARLSSON, skólastjóri. Filmía að hefja vetrarstarfið, fjórar myndir sýndar fram að jólum Um næstu helgi hefst sjötta starfsár Fiimíu með því, að sýnd verður brezka kvikmynd in „Kona hverfur“ eftir Al- fred Hitchcock. Þau fimm ár, sem Filmía hefir starfað, hefir félagið sýnt 75 myndir frá öll um skeiðum kvikmyndalistar- innar — allt frá aldamótum Stórkostlegur eldsvoSi á flugvellinum í Briissel NTB—Briissel, 4. nóv. Seint í kvöld var spreng'ing í aðalbygg- ingunni á lvinuni risastóra al- þjóðlega ilugvelli í Briissel. Stóðu byggingar á vellinum í björtu báli og var allt slökkvi- lið borgarinnar kvatt á staðinn. í fyrstu var haldið, að aðeins væri uin flugturninn og flugvéla- skemmur að ræða, cn síðan til- kynnti lögreglan að eldur væri í farþegabyggingunni. En þessi fregn var send sáust 10 farþegar á þakinu, en eldtungur sáust hér og þar í byggingunni, sem er sjö hæða. Sjónarvottar segja að eldhafið teygi sig 50—G0 metm upp í loflið. Síðar var tilkynnt áð tekizt befði að bjarga far*- þegunum 10. Seint í kvöld var ómögulegt, að ná símasambandi við flug- vöílinn, þar eð allar símaleiðsl-j ur höfðu eyðilagzt í eldi. Lög- reglan segir, að eldurinn hafi komið upp eftir sprengingu í kjallara byggingarinnar. Þá strax komst eldur í stjórnturn- inn og eftir nokkra stund var veðurathugunarturninn brunn- inn til ösku. Mannvirkin á flug- vellinum, sem var tekin í notkun s.l. sumar, kostuðu um 300 milljónir ísl. króna. Getgátur ( eru uppi um að hér sé um skemmdarverk að ræða. I fram á síðustu tíma. Flestar myndirnar hafa verið ,um 10 ára gamlar Árlega hafa verið sýndar 13—15 myndir og verður svo og í ár. 4 myndir til jóla Ákveðið er að sýna 4 mynclir fyrir jól, og verður sú fyrstá „Kona hverfur“ eins og áður var getið. Sú mynd var gerð árið 1938 og markaði tímamót f sögu brezkrar kvikmyndagerðar. í desember verður sýnd mynd- in „Fréttaritarinn". Sú mynct var gtrð 1940 og fjallar um stríðs- njósnir. Þá ætlar Filmía að kynna eina af eldri myndum Henri-Georges Clouzot: „Hver myrti Brignon?“, sfcm gerð var 1947. Fjórða myndin, sem Filmía býð- ur geslum sínum til jóla, er brezka myndin „Bláa luktin“ eftir Basil Dearden, sem er öðrum þræði fræðslumynd um störf Scotland Yard. Hver mynd er sýnd tvisvar hverju sinni, á laugardögum kl, (Framhald á 2. slðui Úr: Hver myrti Brignon? eftir Clauzot. Jóhannes XXIII. var krýndur páfi í Péturskirkju að fornhelgum sið í gær „Auðlindir Islandsu - ágæt grein í brezkum blöðum eftir enskan mann Svo sem áður hefir verið til- •kynnt skrifaði íslenzka STEF úm landhelgismálið sambands íélögum sínum erlendis, er ná til um hundrað og íimmtíu þúsund rétthafa í öllum lönd- um heims ásamt. lögmönnum þeirra og réttindafræðingum. Svar frá þessum félögum hafa nú borizt hingað, og hafa þau jgengizt fyrir dreifingu tii blaða og sérfræðinga á bæk- ilingi ríkisstjórnar íslands um f i s k veiðilögsög una. ! Aðalritari brezka STEFs í Lond- on, R. F. Whale, hefir auk þess rilað grein, er nefnist „Auðlindir íslands" í stórblaðið „Daily Tele- graph" og „Morning Pos't“. Þar segir: „Ég þekki ekkert til sjóréttar né þeirra lagaréttinda. er snerta -deiluna við ísland um fiskveiði- mörk, en ég þekki nokkuð til ís- lands, með því að ég dvaldisl þar tvö ófriðaráranna. Þetta er eyði- legt land og ófýsilegt, og það er svo lítt frjósamt, að tré vaxa þar ekki, nema þau s'éu gróðursett.! Landið á sér alls engar auðlindir nema fisk í ám og sjó, enda er þafi sú auðlind, sem eitthvað 100.000 manna norræn myndar- þjóð treystir á til þess að geta lifað fátæklegu, áhættusömu iífi. ' ! Það kann að vera að lagalega hafi íslendingar á röngu að standa en i'rá mannlegu sjónarmiði hafa þeir fullan rétt til þess' að reyna að vernda sína einuslu lífsbjargar möguleika. Hvað sem lagaréttind- ! um líður, tel ég, að endalausl J þvarg ríkisstjórna, stærri og auð- ugri þjóða út af þessum fiskveiði- mörkum só í augum heimsins ó- kaflega lítt uppbyggilegt sjónar- spil. Salt er það, að rjkisstjórn vor I hefir tiltekinna þjóðarhags'mpna að gæta. En ekki hygg ég' að- þjóðin öll, sem ann fornum venj- . um um íagran leik, hafi npkkurn! J áhuga á þeim ófagra leik. að ! „banna öðrum að lifa.“ i Fyrsta sinn að páfavígslu er sjónvarpað NT-B—RÓMABORG, 4, nóv. — Jóhannes XXIII. var krýnd- ur páfi í dag í Péturskirkjunni í Róm. Var það í fyrsta sinn, að þessari íburðarmiklu viðhafnarathöfn, er sjónvarpað og fylgdust milljónir og tugmilljónir manna með athöfninni um gjörvalla Evrópu og víðar. Er hin þrefalda páfakóróna var selt á höfuð páfa í lok athafnarinn ar sem stóð fjórar klukkustundir, laust mannfjöldinn á Péturstorg- inu upp fagnaðarópi. Hvítar dúfur flugu yfir Samtímis var sleppt hópum af hvílum dúlum, sem flugu yfir mannfjöldann við kirkjuna og klukkum allra kirkna í Róm var hringt. Páfinn, sem sat í hásæti gjörðu af gulli og rauðum purpura á miðsvölum kirkjunnar, söng bænina: „Vér bíðjum hina heilögu postuia, Pétur og Pál, ó hvers mátt og vald vér treystum. að bera fram vig almáttugan guð fyrirbænir oss til handa“. Þcgar páfi reis upp úr hásæt- inu tónaði hann hina fornhelgu bæn fýrir borginni og alíri heims byggðinni (Urbi et orbi). Þá laust mannfjöldinn aftur upp fagnaðarópum og' kom páfi þá fram á svalirnar og veifaði til i'jöldans. Síðan sneri hann inn í Vaíikanhöllina og var þá krýn- ingunni lokið. Fjöldi manna safnaðist saman strax í dögiin til að vera viðstadd ir þeiinan sögulega atburð. En brátt tók að rigna ákaflega. — Flúðu þá margir inn í súlna- göngin við kirkjuna, eu flestir létu þó nægja að setja upp regn hlífarnar. Var torigið að lokum eitt haf af útþöndum regnhlíf- um. Snemma um morguninn hóldu kardinálarnir, sem nú eru 50, til Vatikanhallarinnar og færðu sig í hinn skrautlega kardinálaskrúða. Þangað streymdu einnig um 2500 kirkjuhöfðingjar hvaðanæfa að, erkibiskupar, biskupar og prclát ar, sem mynduðu krýningarpró- sessíuna. Þegar próse.ssían kom inn í kirkjuna reis páfi upp úr hásæti sínu og lagðisi á bæn við altarið. Samtímis hóf kirkjukórinn að syngja sálminn: Tu se Pelrus (Þú ert Pétur). Hélt sjálfur ræðu. Frá kapellunni var páíi borinn að altarinu í mið-kirkjunni; þar sem hann tók við hollustueiðum I kardínála, erkibiskupa og biskupa I sem komu í þessu tilefni til Róma borgar. Jóhannes páfi XXIII. braut út af venjunni við krýning- una og hélt stutta ræðu á iatínu. ! Ræddi hann það mikla hlutverk, sem sér væri ætlað sem páfa, og I lýsti yfir, að mannlegir hæfileikar, hversu miklir sem væru, gætu ekki komið í stað þeirrar helgi, sem páfadómi fylgdi. Haustmót Tafl- félagsins Fjórum umferðum er nú iokið á Hauslmóti Taflfclags Reykja- víkur og eru Slefán Briem og Reimar Sigur'ðsson efstir mcð þrjá vinninga og biðskák hvor. Fimmta umferð verður tefld í Breiðfirð- ingabuð í kvöld og hefst kl. 8, en biðskákir eru tefldar á föstudags- kvöldum í Grófinni 1.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.