Tíminn - 15.11.1958, Blaðsíða 8

Tíminn - 15.11.1958, Blaðsíða 8
8 T f M I N N, Iaugardagiitn 15. nóvember 1958. tOÖRBÚÐ »r.HrfWff i at barnamat. iawörur, * !naaaratu‘' irval vort ALLT A SAMA STAD Vér erum umboSsmenn fyrir hina heimsþekktu GABRÍEL höggdeyfa vatnslása miöstöSvar @g loftnetsstengur Það er yður og bifreiðinni í hag að verzla hjá Agli. EGILL VILHJÁLMSSON H.F. Laugavegi 118 — sími 2-22-40 í víðavangi Húseigendur — Athugið | Nú er rétti tíminn til þess að tryggja sér málara H fyrir jólin. | g Málarameistarafélag Reykjavíkur. l(ItmiiUUiiIUUIII!IIIIIIIIIII!IIIIIIIiIIIIIIIilIIIIIIIIIII!l||IIlII]IIIIII!Il!IIIIIIIII!i]|IIIIIIIIIl!IIiIIIII!IllllillliIIIIlIl!IÍIlllli (Framhald af 7. síðu). málflutningur utanríkisráðherra sé traustsyfirlýsing við kommún ista eða ekki. Ólafur Thors er svo reyndur stjórnmálamaður, að liann veit auðvitað, að fullyrðing liaus er gamansamur strákskap ur eða stráksleg gamansemi. En vel á minnzt: Undirnefndin uin deUda kom til sögunnar 1951. Hún var enn ekki til, þegar Ól- afur Thors sat í ríkisstjórn við hliðina á Brynjólfi Bjarnasyni. Komst hann þá lijá því að sýna kommúnistnm það viðinót, sem liann kallar traust af Iiálfu nú- verandi ríkisstjórnar?" Viiínuheimili í fyrrad. var til umræðu á fundi Sameinaðs þings till. til þál. um vinnuheimili fyrir aldrað fólk; flm. Halldór E. Sigurðsson og fl. Framsóknarmenn. Fyrsti flutningsmaður mælti fyr ir málinu og verður ræða hans birt hér í -blaðinu. Auk hans kvaddi sér hljóðs Alfreð Gíslason. Taldi hann þessa tillögu hina merkustu. Það væri hin mesta félagslega nauðsyn að skipa svo málum, að aldrað fólk, sem nú færi fjölgandi með áiú hverju, fengi notið starfskrafta sinna. Æskilegast væri auðvitaö ag það gæti dvalið á heimiium sínum. Að því þyrfti ag vinna. En með flestum þjóðum væri þetta vandamál enn óleyst. Athugandi væri að stofna sameiginleg dvalar og vinnuheimili fyrir aldrað fólk og unga vanyrkja. Mál þetta væri mjög víðtækt og þyrfti gaumgæfi- legrar athugunar við. Minningarorð: Einar Sveinsson Lækjarbrekku VÖruvðl á AUSTURSTRÆTI Elnar í LæRJarbrckku andaðist 4. nóv. s.l. í sjúkrahúsi í Reykja- vík. Var fluttur þangað fársjúkur skömmu áður. Síðast liðið sumar var hann óvinnufær og varð að •halda að sér höndum, en heill •til skógar hafði hann ckki göngið í meira en eitt ár áður en yfir íþyrmdi. Útför bans verður geyð' frá Stóru-Núpskirkju í dag. Einar Sveinsson var fæddur í Syðra-Langholti í Hrunamanna- hreppi á sumardaginn fyrsta, 24. apríK1884. Hann var sonur hjón- anna Guðbjargar Jónsdóttur og Sveins Einarssonar. Eru ættir þeirra beggja alkunnar og verða því ekki raktar hér. Einar ólst upp hjá foreldrum sínum í Syðra-Langholti, sótti sjó á vertjðum. allt frá fermingaraldri, bæði frá Grindavík og Þorláks- ihöfn, en vann heima þess á milli. Ekki var um mikinn skólalær- dóm almennings að ræða á upp- vaxtarárum Einars, en mörgum manni hefur orðið drjúg sú fræðsla, sem umhyggjusamir for- eldrar veittu börnum sínum, og drjúgt veganesti á lífsleiðinni á- hrifin af þeirri menningu, sem þró aðist á fyrirmyndarheimilum. Svo var um heimili þeirra Syðra-Lang- hoRshjóna, Guðbjargar og Sveins. Árið 1907 fluttust foreldrar Ein ars með fjölskyldu sína að Ásum í Gnjúpverja'hreppi og áttu þar síðan heima til dauðadags. Þangað fluttist og Einar með þeim. Árið 1919 kvæntist Einar Sess- elju Loftsdóttur frá Steinsholti, mikilli myndar- og atorkukonu. — Hófu þau búskap það ár á Skúfs- læk í Villingaholtshreppi og bjuggu þar í þrjú ár .Næstu fimm árin -bjuggu þau í Efri-Gróf í sömu sveit, en árin 1927 og 1928 voru þau heima í Gnjúpverjahreppi. Vorið 1929 fluttust þau Einar og Sesselja að Brúnavallakoti á Skeiðum og höfðu þar með hönd- um bústjórn til vors 1934, er þau hófu þar sjálf búrekstur, Árið eft- ir fluttust þau að prestssetrinu Skarði í Gnjúpverjahreppi og bjuggu þar á hluta af jörðinni í 14 ár. Var það hugsjón þeirra að i-eisa þar nýbýli, en þeir þröskuld ar voru þar í vegi, sem ekki urðu yfirstignir. Tók nú aldur að færast yfir þau hjón, en dugnaður og kjarkur óbilaður, enda voru þau nú studd af uppkomnum og dug- miklum börnúm sinum, þeim som enn voru héima. Árið 1949 tóku þau að reisa nýbýli á landi úr jörðinni Steins- holti. Nefndu þau það Lækjar- brekku. Þar bjó Einar síðan til dauðadags. Það er þá fyrst, þegar E.inar Sveinsson er hálf sjötugur að aldri að hann festir þar rætur í móðúr- moldinni, sem hann hafði lengi þráð, og sem urðu honuin upp- spretta sannrar lífsnautnar síðustu ár ævinnar. Eftir margþætta hrakninga og oft mikla erfiðleika býr hann nú loks á eigin jörð. Ekki ’hygg ég það ofmælt, og á engan hallað, að nýbýli Einars, Lækjarbrekka, hafi tckið skjólari framförum en dæmi eru til um | hliðstæð býli hér nærlendis. Þegar j komið er heim að Lækjarbrekku, blasa við margt því til sönnunar: Reisulegar byggingar yfir fólk og fénað, víð ræktunarlönd og undix-- búningur að enn meiru. Og hvar- vetna vekur athygli manna snyrti- mennska í vinnubrögðum öllum og umgengni. Það er ekki algengt, þegar -komið er íieim á fárra ára gömtil nýbýli, að „velmegun" sé eitt af því fyrsta, sem mönnum kemur í hug, þegar yfir staðinn er litið. En svo cr það á Lækjar- brekku. Skildingarnir voru ekki geymdir í handi-aðanum þar. Þar voru áiiegar framkvæmdir svo miklai’, að -furðu vakti, enda var arður af góðu búi allur til þeirra lagður og öllu stjórnað af hygg- ingum hins lífsreynda hagleiks- manns. Sem heimilisfaðir var Einar Sveinsson frábær. Hann átti til þá eiginleika, sem eru í senn hvctj- andi í verklegum ofnum og göfg- andi á liugarí'ar þeirra, sem með honum stöi’fuðu. Eg átti allnáið samstaxf við Einar í nokkur ár, þegar þau hjónin stýrðu búi á jörð sem faðir minn átti, Brúnavalla- koti. Kynntisí ég þá v-el hinuin mikla starfs- og mannkostamanni. Ekki veit ég hvort almenningur, sem taldi sig þekkja Einar Sveins- son. .þekkti til hlítar lunderni hans og skapstyrk. Hann kom mér þannig fyrir sjónir að hann hefði náð að temja skap sitt svo, að til fyrirmyridar var. Hin hversdags lega hógværð var mikil og hvérj- um xnanni atigljós, en fyrir kom, að mikið skap, en tamið þó, kom í Ijós undir skarlatsskykkju prúð- mennskunnar, sem hann var svo vel þekkiur. að. Einar Svejnsson hefur lokið starfi sínu hér. Endurminningin um þcnnan mæta mann mun lifa meðal allra þeirra, sem kynntust honiun. Það var ógæfa samtíðar hans og eftii'komenda hversu tseint hann festi rætnr í eigin mold, því að meiri og varanlegri hefðu orðið verk hans, ef það hefði fyrr orðið. En ekki skyldi urii það sak ast. Hitt rná vera, að ýmsir ei’fið leikar á lífsleið Einax’s hafi þrosk að anda han-s engu síður —■ og raunar miklu frenxur — en leik- andi lífslán, þó að eftirsóknarvert virðist — og sé. En þegar að leið ai’lokum kemur munu flestix vpra sammála því, að andlegur styrkur sé þó rneira virði en veraldleg afrek, þó að þau beri hagleik og mikilli atorku fagurt vitnl. Þau Einar og Sesselja eignuð ust fjögur hörn, Sigriði, Guð- tojöi’gu, Guðrúnu og Svéin. Guð- tojöi’g er gift Ólafi Þorsteinssyni ■frá Háholti, Bjarnasonar. Guðrún er gift norskuiri manni, Kurt Aal- gerstad, en Sigrdður ög Sveinxi’ eru Ógift heima. Ifafa þau stutt’for eldra sína af .miklum, dugnaði og myndarskap vi.ð hið mikla 'átak að reisa nýbýlið að Lækjarbrekku. Eg votta Sesselju iLoftsdÓttur og börnuni þeirra. Einars .inni lega samúð riiíaa við frafall Ihans. Þau eru harmi lostin nú, <þó að engum, sem til þekktu,. -kæmi hin skyndilega burtför hans xxieð öllu á óvart. En viðskilnaðurinn er æv ínlega sársankablandinri, eihnig þeim, sem ekki efast um hvað við tekur, þegar góðxir dreiigiir hveifur bak við fortjaldið. 'Einar Sveinsson var fæddux' á siunardaginn fyrsta. Hamx var for eldrxun sínum góð sumargjöf, Forsjónin gefi sem flestum- for eldnun jafn vandaðá sumargjöf. Forsjónin gefi þjóð vorri isem fiesta menn og konur,. sem hafa í sér fóigna þá eiginieika, 'sem. mest prýddn Einar SveinssorC en það var trfnnennska, trygglyridi og drcngskaþur, sem ekki brásl. Sigíuðitr Ágústsson. f Sérstæð kvöldvaka á vegum Kvenfélagiö Hringurinn hélt á föstudaginn var kvöldriöku til á- 'góða fyrir barnaspítalasjóðinn, og þótti hún tákast mjög vél, enda voru skemmtiatriðin mjög sérstæð. Þar söng t.d. Guðmundur Thoi’odd sen prófessor gamanvisur með und irleik Gunnars Möllers lögfræðings þá var fjölbreytt tízkusýning, sem tók yfir tímabilið frá aldamótum til vorra daga, en. nm leið og hún fór fram, voru sungnar sérstakar gani- anvísur um hverf tímabil, en um sön-ginn sáu Sigríður Hannesdóttir og Hulda Emilsdóttir. Siðaix sýndu Snjólaug Eiriksdóttir og ’Þorgrímur Einarssan gamla og nýjn dansa, en þá stjórnaði Haraldur Á. Sigurðs- son nýjum gamanþætti. — Loks hermdi Karl Guðmundsson eftir, en að öllu þessu loknu var dans- að fram eftir nóttu. Komust færri en vildu á þessa ágætu skeminlun, ■ og er því í ráði að endurtaka hana á sunnudaginxr kemur í Sjálfslæðis. húsinu. Er öhætt að benda mönn- um á að sækja skemmtunina, og stýrkja um leið gott málefni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.