Tíminn - 28.11.1958, Síða 6
T ÍM I N N, föstudaginn 28. nóvembtfr 3.958
ERLENT YFIRLIT.
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson.
Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu
Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304.
(skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn)
Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12323
Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13948
Kýpurmálið á vetíva
Eina lausnin er aS viðurkenna sjálfsákvörounarrétt og sjálístæíi Kvpurbúa
Örlagarimma
MATTHÍAS Jockumsson
kallar þaó örlagarimmu, þeg
ar Grettir glímdi við draug-
inn Glám og felldi hann. —
Lýsing skáldsins af viður-
eig'ninni er stóPbrotin. Þar
áttust við miklir kraftar,
meðal annars: „Þrjózkan og
þjóðin“ — og:
„í jörðinni stundi, hrikti og
hló.
Hörð var sú öríágarimma.
Buidi við draugsröddin
dimma“.
NÚ stendur yfir Alþýðu-
sambandsþing. Það hefir
mikhu hlutverki að gegna.
Verkalýðssamtökin hafa eins
og lögum háttar í landinu,
mikið vald í éfnahagsmálum
þjóöarinnar. Reynslan hefir
sýnt að þau geta með verk-
fölium stöðvað atvinnulífið í
landinu. Sömuleiðis geta þau
á hinn bóginn eflt það og
lyft þjóöfélaginu til velmeg-
unar, ef þau standa að efna-
hagsmálunum með ábyrgðar
hug og umhyggjusemi ráðs-
mannsins, sem vill áð búið
beri sig til þess að hver geti
fengið sitt.
RÍKISSTJÓRN sú, sem
nú situr, grundvallar stefnu
sína á því að hafa samvinnu
við verkalýðssamtökin og
vinnustéttirnar í landinu.
Hún er fyrsta ríkisstjórn á
íslandi, sem það hefir gert.*
Við tilkomu þessarar stjórn-
ar gafst vinnustéttunum í
fyrsta sinn aðstaða til að
vera með ríkisvaldinu í ráð-
um um ákvarðanir efnahags
mála. Þetta er gjörbreyting á
aðstöðu þeirra.
í staö þess að beita hneía
rétti verkfalla, geta verka-
lýðssamtökin nú flutt mál
sitt með till. og tekið þátt í
að meta efnahagsaðgerðir
áður en þær koma til fram-
kvæmda. Um leið verða þau
að taka á sig ábyrgð á því, að
efnahagsaögerðirnar séu
þjóðhollar eftir því sem
mannleg skynsemi getur
ábyrg verið.
Með þessu hafa viðfangs-
efni verkalýðssamtakanna
stækkað og hafist í hærra
veldi. Það eru þessi viðfangs
efni, sem Alþýðusambands-
þingið, er nú situr á rökstól-
um, hefir í fangi sér.
EN Alþýðusambandsþing
ið er í erfiöum kringumstæð
um. Þar eru reimieikar. —
Draugur sundrungarinnar
gerist þar umsvifamikill.
Glámur þessi er magnaður
fítonsanda eins og nafni
hans, sem segir frá í Grettis
Ijóðum. í honum hafa menn
stundum þótzt sjá austræn-
ar glyrnur, en einnig — og
máske einkum þessa stund-
ina — er hann með ásjónu
Sjálfstæðisflokksins og erind
reki stjórnarandstöðunnar.
Honum mun hafa tekizt að
villa um fyrir einhverjum
hluta Alþýðuflokksmanna,
sem halda að þeir geti bætt
kröftum hans við sína krafta
sem vitanlega þurfa eins og
oft áður viðbótar.
Hver það er, sem magnar
drauginn mest, og telur sig
eiga mest undir viðgangi
hans, kom greinilega fram í
Morgunblaðinu í fyrradag.
Þar „buldi við draugsröddin
dimma“: „Kovimúnistar
sviku samkomulag um kjör.
þingforseta“.
VEL má segja að í glímu
þjóðhollra manna á Alþýðu
sambandsþinginu við Glám
sundrungarinnar eigist við
„þrjózkan og þjóðin“, svo
sem Matthías kvað, —
þrjózka þeirra, sem vilja
deila og drottna, og þjóðholl
usta hinna, sem vilja að
verkalýðssamtökin hafi sam
vinnu við ríkisstjórn þá, sem
býður þeim ábyrga sam-
vinnu við sig.
Það hefir áreiöanlega mikla
örlagaþýðingu fyrir verka-
Iýössamtökin, hvernig átök-
in við drauginn fara á þessu
verkalýðsþingi, — og sömu-
leiðis fyrir þjóðfélagið.
Samvinna ríkisvalds og
vinnustétta er nýjung, sem
núverandi ríkisstjórn hefir
boðið upp á. Gegn henni er
draugurinn magnaður. Um
hana er að tefla.
Þetta er því örlagarimma.
Ekki er undarlegt, þó „draugs
röddin dimma“ heyrist úr
horni Moggans, þegar hallar
á draugsa.
Vísitala og verð landbúnaðaraíurða
EINS og alkunnugt er,
fer um verðlagningu á land-
búnaðarvörum á innanlands
markaði eftir ákvæðum laga
um framleiðsluráð landbún-
aðarins. í þeim lögum segir
svo um verðlagninguna:
„Söluverð landbúnaðar-
vara á innlendum markaði.
skal rniðast við það, að.
heildartekjur þeirra, er.
Idndbúnað stúnda, verði í
sem ndnustu samrœmi við.
tekjur annara .vinnandi.
stétta“.
Þessi lagaákvæöi hafa ver-
ið í gildi síðan 1947, og eftir
þeim farið við ákvörðun
verðs á framieiðsluvörum
bænda. Við útreikning fram-
leiöslukostnaðar og ver'ð-
lagninguna er byggt á verð-
grundvelli, sem fenginn er-
samkvæmt lögunum með
samkomulagi milli þriggja
fulltrúa frá Stéttarsambandi
bænda og þriggja fulltrúa
frá félagssamtökum neyt-
enda.
Þegar kaup bænda var á-
kveðið með verðákvörðun
landbúnaðarvara í byrjun
september s.l., var mlðað við
kaupgreiðsluvísitöluna 185.
Grunnkaup í verölags-
grundvellinum var reiknað
með hækkun þeirri, sem þá
hafði orðið hjá ýmsum
verkalýðsfélögum og var 6%.
Grunnkaup hækkaði
New York 17. nóv.'
BLÖÐIN í New York skýra frá
því í morgun, að í gær hafi komið
þangað Makarios erkibiskup á Kýp
ur, ásamt nokkrum ráðunautum
sínum. Einnig hafi komið í gær til
New York tveir háttsettir emlbætt
ismenn ur tyrknesku utanríkis-
þjónustunni. Loks segja blöðin
frá því» að gríski utanríkisráðherr
ann sé væntanlegur til New York
nú í vikunni. Erindi allra þessara
manna er eitt og hið sama. Þeir
ætla ýmist áð taka þátt í eða fylgj
ast með umræðum þeim, sem
munu hefjast í stjórnmálanefnd-
allsherjarþings S. Þ. fyrir eða eftir
næstu helgi.
Eins og kunnugt er, hafa oft
áður farið fram umræður á þingi
S. Þ. um Kýpurmálið að beiðni
stjórnar Grikklands. Niðurstaðan
hefur oftast orðið sú, að Bretum
hefur tekizt að eyða málinu ann-
að hvort með því að fá samþykkta
loðna og einskisverða ályktun eða
þá með því að hindra samþykkt
jákvæðrar ályktun.ar, þar sem hún
þarf tvo þriðju hluta greiddra at-
kvæða. í fyrra tókst Bretum t. d.
að koma í veg fyrir, að samþykkt
væri tillaga, er fól í sér viðurkenn
ingu á sjálfsákvörðunarrétti Kýp-
urbúa. 31 ríki greiddu tillögunni
atkvæði, 23 greiddu atkvæði á
móti, en 24 sátu hjá.
ÞÓTT enn sé frekar búizt við
því, að Bretum takist enn einu
sinni að koma í veg fyrir jákvæða
ályktun allsherjarþingsins um Kýp
urmálið, bendir margt til þess, ao
umræðurnar um málið á allsherj
arþinginu, muni vekja sérstaka
athygli að þessu sinni. Ástæðan
er sú, að Makarios, sem mestu ræð
ur um stefnu Kýpurbúa í málinu,
hefur nú markað þvi nýjan far-
skömmu síðar hjá Dagsbrún
í Reykjavík um 9M>%.
í UMRÆÐUM og ákvörð
unum um efnahagsmálin
kemur m.a. til athugunar hjá
verkalýðssamtökunum, að
falla frá kauphækkun, vegna
vísitöluhækkana að ein-
hverju leyti. í því sambandi
má vekja athygli á því, að
ef launamenn sleppa vísitölu
uppbótum á kaup að ein-
hverju leyti, kemur það af
sjálfu sér, að bændur fá þá
heldur ekki þá vísitöluhækk
un, þar sem kaup þeirra er
ákveðið eftir á, eftir tekjum
annarra vinnandi stétta.
Þannig hafa ákvarðanir
um greiöslu vísitöluuppbót-
ar á kaup áhrif á verðið á
landbúnaðarvörunum. Verði
visitöluuppbótin á kaup
manna í stéttarfélöguuum
takmörkuð, hefur það i för
með sér lægra verð á land-
búnaðarvörum við ákvörðun
þess a* næsta ári, en veröa
myndi að öðrum kosti.
HVAÐA ákvarðánir sem
teknar verða um kaupgjald
og verð á landbúnaðarvörum
á innlendum markaði, þarf
vel að gæta þess, að ekki
verði raskað þeim grund-
velli, sem lagður var meö
lögunum um framleiðsluráö
landbúnáðarins, og byggt
hefur verið á undanfarin 11
ár, að verðið á landbúnaðar
vörunum verði við það miðað
að tekjur bænda verði í sem
nánustu samræmi við tekj-
ur annarra vinnandi stétta.
Þetta fyrirkomulag hefnr
vel gefizt, og því samræmi,
sem þar hefur náðzt, má ekki
raska. Það mun öllum fyrir
beztu.
veg, sem virðist vænlegri til
árangurs en sá fyrri.
Stefna Makariosar hefur hingað
til fólgizt í orðinu Enosis, sem er
orðið allfrægt í sambandi við Kýp
urmálið, en í því fellst, að tak-
markið sé að sameina Kýpur
Grikklandi, en yfirgnæfandi meiri
hluti Kýpurbúa er grískur. Þetta
hefur g'efið Bretum gullið tæki-
færi til að framfylgja hinni
gömlu, víðfrægu nýiendureglu
sinni: Deildu og drottnaðu..
Um fimmti hluti Kýpurbúa er
tyrkneskur að uppruna og talar
lyrkneska tungu. Milli Grikkja og
Tyrkja hefur löngum verið grunnt
á því góða, «n þó hefur oftast
ríkt góð sambúð milli þjóðarbrot-
anna á Kýpur. Eftir að Makarios
hóf merki Enossis-stefnunnar,
tóku Bretar að lýsa þvi fyrir tyrk-
neska minnihlutanum, að hann
myndi eiga illa ævi framundan.
ef Kýpur sameinaðist Grikklandi.
Þessi áróður fann fljótt góðan
jarðveg og brátt blandaðist lika
tyrkneska sjórnin í leikinn og
taldi sig þurfa að gæta hagsmuna
landa sinna á Kýpur. Þannig hafa
Bretar komið því fyrir, að Kýpur
málið er orðið að illdeilumáli nnlli
Grikkja og Tyrkja, en Bretar nota
þá deilu siðan til að réttlæta
áframhaldandi nýlendustjórn sína
á Kýpur, þar sem þcir segjast nú
þurfá að vera þar til að gæta
friðar milli Tyrkja og Grikkja!
MAKAJRIOS og fylgismenn hans
{hafa nú horfið frá þvi að berjast
fyrir sameiningu Kýpurs við
Grikkland, heldur hafa byrjað bar
áttu fyrir því, að Kýpur verði sjáif
stætt ríki, og trygglng verði jafn-
vel setl fyrir því, að innlimun
Kýpur í Grikklandi komi ekki til
greina. Þetta er gert til að draga
úr þeim ótta hinna tyrknesku Kýp
urbúa, að sjálfstæði Kýpurs verði
notað til að innlima hana síðar
í Grikkland. Þá lofa Makarios og
fylgismenn hans að virða til hlítar
sérstöðu tyrkneska minnlhlutans
og fallast á ráðstafanir, er tryggi
rétt hans í framtíðinni.
Vafalaust er hér bent á hyggi-
legustu lausn Kýpursmálsins. Án
Makarios á flugvellinum viö komuna
vil New York.
efa hefði verið heppilegast, að
Makar.os hefði beitt sér fyrir
henn: frá upphafi, því að þá hefðu
Bretar ekki getað notið Enossis
sem grýlu til að æsa upp tyrk-
neska minnrhluíann.
VEGNA ástands þess, sem rík
ir á Kýpur, hef’r brezka stjórnin
látið svo að undanförnu, að hún
vildi vinna að lausn málsins. Til
lögur þær, se.n hún bar fram á
síðastl. sumri. benda þó til allt
annars, því að þar er markvisst
stefnt að þvi að við'halda sundrl
I ungu Grrkkja og Tyrkja. Tiilögurn'
ar.fela í sér sjáifstjórn til lianda
Kýpuibúum á þeim grundvelli, að
þjóðarbrotin hafi hvort um sig
eig ð þing og sérstjórn. Vitað. var
fyrirfram, að þatta myndi full-
nægja Tyrkjum, en ekki Grikkj
um, enda hafa þeir elndregið hafn
að þessum tiliögum. Eftir að
Grikkir höfnuðu tillögunum, hafal
Bretar reynt að draga málið á
langinn með þvi að fá Atlantslhafs
bandalagið til að reyna að gangast!
fyrir sérstakri ráðstefnu Grikkja,
Tyrkja og Breta um málið. Þctta,
hefur misheppnazt vegna þess,‘
að Grikkir vilja ekki fallasl á ráð
stefnu, nema fyrirfram sé einhver
von um árangur, og er sú afstaða
skiljanleg. Bretar eru þó eki<i af
baki dottnir, því að Noble, aðal-
fulltrúi þeirra á þingi S. Þ., hefur
nú lýst yfir því, að Bretar vilji
fá þlngið til að beita sér fyrir
slíkri ráðstefnu.
EINS og má'Iio horfir nú, vYð-
ist því fyrirsjáanlegt, að tvær meg
instefnur muni koma fram í Kýpur
málinu á þingi-S. Þ. að þessu sinni.
Önnur er stefna Makariosar, semi
er fólgin í því að S. Þ. viðurkenrti
sjálfsákvörðunarrétt Kýpurbúa og
stuðli að sjálístæði veirr.a: Ilin
er stefna Breta, sem er fólgin í
því að finna nýjar og nýjar leiðir
lil að draga lau.sn málsins á lang
inn, — að þessu sinni sennilega
(Framh. á 8. síðu.)