Tíminn - 13.01.1959, Blaðsíða 2

Tíminn - 13.01.1959, Blaðsíða 2
2 Minningartafla um T orgeir Andersen- Rysst sett upp í Torgeirsstöðum Nokkrir menn frá Skógræktarfélagi íslands og í Nordmannslaget komu þar saman s.l. laugard. Laugardaginn 10 janúar korriu nokkrir stjórnarmeð- timir úr Skógræktarfélagi ís- lands og Nordmannslaget á- camt hinum nýskipaða sendi- iierra Norðmanna, hr. Bjarne Börde, starfsmönnum hans og Hálconi Bjarnasyni skóg- iræktarstjóra að Torgeirsstöð tum í Heiðmörk til þess að iheiðra minningu Torgeirí Anderssen-Ryssts sendiherra og þakka störf hans og konu íhans, frú Ruth Anderssen- Rysst. Athöfnin byrjaði með þvl að jtvar Orgland stjórnaði Torgeirs- staðasöngnum en síðan hélt Tom- as. Haarde erindi um Torgeir .Andersen-Ryss't og konu hans og Sýsti því með fáum en skýruir. ihefðu verið mikilsverð fyrir Norð- orðum hve störf þeirra hjóna .aefðu verið mikilsverð fyrir Norð Bnenn og íslendinga, og hve mikið Nordmannslaget ætti þeim að jþakka. Meðal annars væri ekki íbetta hús, sem athöfnin fór fram S, komið upp, ef Andersen-Ryssi iaefði ‘íekki beitt sér fyrir því Bað hánn Ifákon Bjarnason að afhjúpa minningartöfluna. Gerð Liann það með örstuttri ræðu, þar Gem hann minntist áhuga Anders sen-Ryssts fyrir því að styrkja LÍengslin' milli frændþjóðanna, ains níikla starfs hans í þágu skógræktarinnar og kærleikans liil lands og þjóðar. Minningar- óaflan væri ekki stór, en innan r.kamms munu margir óbrotgjarn- Sr minnisvarðar rísa upp víða á ííslandi, sígræn og lifandi tró, oem gróðursett hafa verið af norskum höndum í íslenzkri mold, og minna á störf Torgeirs Anders oen-Rysst í tugi og hundruð ára. Að þessu loknu var minningar- óaflan • afhjúpuð en sendilierra ÁVoregs ávarpaði gestina með riokkrum' orðum. Sagðist hann íilakka til að slarfa hór á landi og vona. að sér tækist að feta vel í fótspor fyrirrennara síns, TÍMINN, þriðjudaginn 13. janúar 19591 HoIIenzki sendiherrann í Peking lenti1 í andstöðu við kínverska starfsfólkið! og bjargaðist úr einangrun úr landi Útvarpsstöð í gerfitungli BJARNE BORDE sendiherra, staddur í bjáikakofanum í Heiðmörk, að baki hans sést minn- ingartaflan. því að allt bæri að sama brunni með það, að hann hefði leyst störf sín hér með ágætum. Að þessu loknu voru bornar fram veitingar, og yfir borðum voru fluttar stuttar ræður. Alhöfnin fór virðulega fram og hóldu menn lieimleiðis um kl. 4 e. h. lýting Loftleiða varð um 70% ' og hækkaði um 17,5% Farþegar voru alls 26700 á árinu Yfirleitt ríkir sá siður meö þjóðum, að sýna sendiherr- um annarra þjóða virðingu og veita þeim hvers konar vernd, sé allt samband rikja með eðlilegum hætti. Gilda um þetta bæði skráð og óskráð lög. Sendimönnum erlendra ríkja í Peking mun hins vegar finnast heldur fátt um veruna þar í borg, bæði vegna einangrunar og svo ýmissa óþæginda, sem slíkir sendimenn munu ekki verða fyrir ahnennt í gisting hjá öðrum þjóðum. Það var helzt fyrrverandi sendi- herra Hollands í Peking, sein hafði ástæðu til að kvarta fyrir aðbúnaðinum. Dag einn í október- mánuði síðastliðnum bað hann tvo kínverska vikapilta að kynda upp hús sendisveitarinnar hollenzku. Fékk sendilierrann, sem heitir Slingenberg, þau svör hjá piltun- um, að kyndinguna mundu þeir ikki annast, nemia annað tveggja • íá hærra kaup eða þriðja manni væri bætt við þeim til aðstoðar. Allir fóru Slingenberg sagði piltunum að kveikja upp í miðstöðinni eða fara að öðrum kosti. Er þeir rudd- ust skömmu síðar inn til hans í íkrifstofuna til að mótmæla með- an hann sat þar á tali við gest, skipaði hann þeim að fara út og ýtti við öðrum þeirra. Síðan gerð- ist ekkert í hálfan mánuð, en upp úr því fór kínverskt starfsfólk sendisveitarinnar að hverfa úr starfi, unz allt, rúmlega fjörutíu manns, var hlaupið brott. Frá Heródesi til Pílatusar 1 Sendiherranum þótti sýnt, að fólkið fór samikvæmt skipun. En þegar hann sneri sér til utanrík- isráðuneytisins varðandi þetta, var honum tjáð, að málið lieyrði undir ráðningarskrifstofu ríkisins. Því miður, sogðu þeir í ráðningar- skrifstofunni, þetta er á ábyrgð j utanríkisráðuneytis'ins. Kyntu sjálfir Þei nþnír karlmenn, sem voru í hollenzku sendisveitinni í Peking, kyntu nú sjálfir miðstöð sína og óku bifreiðum sínum. Konur þeirra þvoðu þvottana, elduðu matinn og fóru í verzlanir. Sendi- ráð Pakistan bauðst í fyrstu til að aka hollenzku börnunum í skól ann, en eftir eina slíka ferð tók sendiráðið boðið aftur, enda hefði það misst kínversku bifreiðastjór- ana að öðrum kosti. í öðru sendi ráði neitaði kínverskur matsveinn að baka kökur, þegar hann frótti, að von væri á einum hollenzka sendisveitarmanninum til kvöld- verðar. Bjargaðist í annað land Þar sem sendiráðin óttuðust hefndarráðstafanir, forðuðust þau eftir megni öll afskipti af hol- lenzku sendisveitinni, og var eng- in srendisveit eins einmana og þessi, þótt víða væri leitað. Hálfs mánaðarlega eða svo bárust ör- væntingarfull skeyti til I-Iag frá- væntingarfull skeyti til Haag frá hann mótmælti þessari meðferð allri. Ifollendingarnir, sem sáu engin ráð til að bjarga honum úr þessuin vandræðum, létu liann bjargast eins og bezt gekk, þar til hann var skipaður sendihérra í öðru landi í desember síðast liðn- um. Léfegur affi Eyja- báta Vestmannaeyjum í gærkveldi. —■ Afli bátanna var heldur tregur í dag og gær. Höfðu tveir bátanna 7 lestir en aðrir minna, niður í 3 lestir. Alls munu nú byrjaðir 10 12 bátar en fleiri munu byrja róðra þegar líður á þessa viku. Vertíðarfólk drifur nú að. Kom allmargt til dæmis með Esju að austan í gær. Enn er þó skortur á .mönnum, helzt beitumönnum. I SK. Þessi teikning á að sýna Atlas-eld- flaugina, sem Bandaríkjamenn skutu út í geiminn og nú hrlngsólar um jörðina. Hún er útbúin útvarpsstöð ogtekur á móti útvarpi frá jöröu og endurvarpar því. Er þetta talið hafa sannað' greinilega, að mikið gagn má hafa af gerfitunglum við útvarp og endurvarp í framtiðinni. Stœrri hluturinn á myndinni snýst enn um jörðina en hinn minni er nú laus frá eftir að hafa iokið hlutverki sínu og flutt gerfitunglið á braut sina. Euginn í fandhelgi í gærkveldi í gærkvöld voru engar ólögleg- ar veiðar í fiskveiðilandhelginni. Brezkir togarar eru að veiðum djúpt út af Austfjörðúm og rnunu þeir hafa sæmilegan afla þar. Brezku herskipin halda sig í námunda við verndarsvæðin, sem eru í grennd við Hornafjörð og Ingólfshöfða og eru nokkrir tog* arar þar að veiðum utan 12 sjó- mílna markanna. (Frá landhelgisgæzlunni.) Fréttir frá landsbyggðinni Heiztu niðurstöðutölur flug- jreksturs Loftleiða á liðnu ári eru nú kunnar, en sam- kvæmt þeim er auðsætt að íekizt hefir að efla hann veru J.ega og spá þær góðu um íramtíð félagsins. Árið 1958 ferðuðust 26.702 far- >egar með flúgvélum félagsins. Er iað tæplega 1.800 farþegum fleira ín árið 1957 og' nemur aukning arþegatölunnar um 7%. Vöru- lutningar jukust um svipaða áundraðstölu, en póstflutningar ninnkuðu lítillega. Alls voru 'lutt um 250 tonn af vörum. Flug vílómetrar urðu 3 millj. og 270 oúsund, farþegakílómetrar um 121 nilljón. Aukning flutninganna — þrátt i farþegafjölda og vörumagni, seg . r ekki nema lítið eitt um það, >em mestu máli skiptir í flug- rekstrinum, en það er hversu ekizt hefir að nýta flugkostinn, jví að sá þáttur er jafnan athyglis verðastur og örlagaríkastur í starf >emi fiugfólaganna. Við athugun i því kemur í ljós, að tala flog- :nna kilómetra lækkaði á árinu ,im 139 þúsundir, en til þess iiggja þau rök, að sumarið 1958 var farið einni ferð færra í viku :ram og aftur milli Bandaríkj- anna og Evrópu en árið áður, eða >ex í stað sjö, en hins vegar var engin breyting á fjölda vetrar- ferðanna. Aukning flutnignanna — þrátt fyrir þessa fækkun ferðanna leiddi vitanlega til þess að töl- urnar um sætanýtingu á árinu eru nú mjög glæsilegar, en meðaltal hennar hefir hækkað um 17,5%. Er það miklu betra en víðast hvar annars staðar þykir mjög sæmilegt í hliðstæðum rekstri. Gefur þetta örugga vísbendingu um, að afkoma félagsins hafi orð- ið mjög góð á hinu liðna ári. i Mikojan (Framhaid af 1. síðuj stigi, að liægt sé að segja að menn hfi fullt frelsi, en þó só •leitazt við að veita mönnum eins mikið ferðafrelsi og mögulegt er. Hann sagði jafnframt, að Sovét- ríkin hefðu síður en svo nokkuð á móti því, að Bandaríkjamenn ferðuðust um Rússland og að eftirlit með ferðalögum erlendra manna væri takmarkað eins og unnt væri. Aðspurður sagði Mikojan, að hann hefði ekki trú á því. að sam búðin við Júgósláva versnaði. Hann sagði, að Sovétríkin fyndu ekki að innanlandsmálum ríkja heldur afstöðu þeirra til annarra þjóða. - Þegar öllu er á botninn hvolft, nota Júgóslavar hundrað milljón dollara frá Bandaríkjun- um, sagði Mikojan, og haga sór þannig, að Bandaríkjam.enn eru ánægðir og láta meira fó af hendi. GóSur afli á Húsavík Húsavík í gær. — Hóðan róa 5 þilfarsbátar, og er Hagbárður þeirra stærstur. Afli hefir verið góður síðustu dagana, 7—8 lestir og fæst hann hér í flóanum. Fimm bátar eru farnir héðan suður á vertíð. Nokkur swjór er í héraðinu og færð erfið framan dalina og því erfitt um mjólkurflutninga. Flug- völlurinn er lokaður vegna snjóa. Hór hefir verið mikið frost síðuslu daga. Þ.F. Merk kona látin Húsavík í gær. — S.l. laugardag varð frá Aðalbjörg Johnson, kona Bjarna Gunnlaugssonar bónda á Hvoli í Aðaldal, bráðkvödd. Frú Aðalbjörg var merkiskona hin mesta, gáfuð og fjölmenntuð. ÞF Mislingar í Eiíaskóla Egilsstöðum í gær. — Mislingar hafa stungið sér niður á nokkrum bæjum á Héraði síðustu vikur, og nú munu þeir komnir í héraðsskól ann á Eiðum. Munu þeir hafa bor- izt þangað með nemendum, er þeir komu úr jólaleyfi. Allmargt nem- enda mun eiga eftir að taka þá og er hætt við að þetta trufli skóla starfið. SE Mikil ýsa berst á land ! Hornafirði í gær. — Aili bátanna er alltaf sæmilegur, var í gær 14—20 skippund, mest ýsa og keila. Mikil vinna er við vinnslu aflans, sem er frystur, nema keil- an, sem verkuð er til herzlu. AII- mikið frost hefir verið síðustu daga en nú er mildara. Lagði fjörðinn allmjög, og er aðeins auð renna inn á höfnina, AA Snjólaust í Öræfum Fagurhólsmýri í gær. — Hér er snjólaust að kalla í byggð. Veður hafa verið allgóð en frost nokkur. Hér undan landi blasir við floti togara og herskipa út af Ingólfs- höfða. Skipin eru þó ekki sérlega nærri landi. Oftast sjást þarna 5— 6 togarar og 1—2 herskip. SA HornafjarÖarfer^in gekk vel Fagurhólsmýri I gær. — Eins og sagt var frá í Tímanum fyrir nokkrum dögum, fóru Öræfingar í kaupstaðaferð til hafnar í Horna- firði á bíl í vikunni sem leið, en það er sjaldgæft, að það sé unnt. Var farið í vörubíl og ekið fyrir ós Jökulsár á Breiðamerkursandi á sjávarkambi, sem stundum mynd ast á veturna og ekki flæðir yfir nema á flóði, en áin fær fram- gang gegn um kambinn. Gekk ferð in vel. Óvíst er, hvort reynt verður að fara aðra ferð. SA Átta bátar frá GrundarfirSi Grundarfirði í gær. — Ilér hafa samningar sjómanna verið sam- þykktir og enx fimm þátar byrjað- ir róðra, en alls verða þeir á-tta í vetur. Vantar enn nokkra menn á báta. Afli hefir verið góður, um 7 lestir og ágætur fiskur, talsverð *ur þorskur. Gæftir hafa verið góð- ar en nokkuð langt er að sækja. PS Gestir í MiklagarÓi á Akureyri Akureyri í gær. — Leikfólag Akur eyrar mun bráðlega hefja sýningar á sjónleiknum „Gestur í Mikla- garði“. Leikstjóri er Jóhann Ög- mundsson. Einnig inun hinn árlegi menntaskólaleikur senn verða sett ur á svið. ED Svalt og bjart Akureyri í gær. — Hór er nú hi’einviðri en all kalt hefir verið síðustu dagana, 15—17 stig í gær og dag, en nú er lieldur að draga úr frostinu. Pollinn er þó lítið farið að leggja enn. Færi er nú orðið allgott um hóraðið. EÐ Snjólétt á Út-HéraSi Egilsstöðum í gær. — Hér hafa verið allmikil frost síðustu dag- ana, t.d. 15 stig í nótt. f dag er bjart. Snjór er ekki ýkjamikill, t.d. er sæmilega bílfært um út- Hérað en meiri snjór innar og heiðar ófærar. Flugvöllurinn er op inn og flugferðir liingað reglu-- legar. SE

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.