Tíminn - 13.01.1959, Page 12
Ræða tillögur
Rússa
WASHINGTON, 12. jan. — Til-
lögur Sovétríkjanna um friðarsátt
mála fyrir Þýzkaland hafa nú verið
teknir til athugunar í Bandaríkjun
um. Þegar. niðurstaða er fengin
þar vestra, munu Bandaríkin hafa
samráð við önnur vestræn ríki um
svar við þessum tillögum Rússa.
I frcttatilkynningu að vestan
segir, að á þessu stigi málsins sé
ekkert hægt að segja um niður-
stööuna, en þessar tillögur virðast
vera mjög áþekkar þeim tillögum.
sem Rússar hafa undanfarið borið
fram um þessi mál.
Einnig segir í frcttinni, aö aðrar
þær þjóðir, sem fengu tillögurnar
hafi þær til athugunar og vestur-
veldin munu bera saman ráð sín
eftir „diplómatiskum“ leiðum, þeg
ar niðurstaða sé fengin.
Héraðsbókasafni
Rangæinga
berst góð gjöf
Frá fréttaritara Tímans
á Ilvolsvelli.
HéráÖsbókasafni Rangæinga
liefir nýlega borizt vegleg
gjöf frá Guðjóni Ó. Guðjóns-
sýrii "bókaútgefanda í Reykja-
vík. Eru það allar þær bækur,
sem komið hafa út hjá for-
lagi hans frá upphafi, Allar
bækurnar eru innbundnar í
gott band og er þetta hin
verðmætasta gjöf.
Margar ágætar bækur eru á
meðal þessa og má til nefna rit-
sáfn Jóns Traustá. Guöjón hefir
áður sýnt héraðinu sóma með þvi
að gefa tii Stórólfshvolskirkju
vandað orgel, sem mikill fengur
var í.
Héraðsbókasafn Rangæinga er
til húsa í barnaskólanum á Hvols'-
velli og er það allgott safn og
mikið notað.
Er þetta hægt?
Þessa dagana er heimsfrægt sjónhverfingapar
að skemmta í Framsóknarhúsinu við Tjörnina.
Þau nefna sig Los Tronedos. Þau byrjuðu að sýna hér á sunnudagskvöldið
við mikla hrifningu áhorfenda. Um leið og litið er á þessa mynd, dettur
manni í hug: „Er þetta hægt?, Er þetta ekki „blöff" hjá Ijósmyndaran-
um?" Eina ráðið *il að sanna þennan sannleika er, að bregöa sér i Fram-
sóknarhúsið og sjá Los Tnoredos.
jFyrsti fundur NATO fjallar um til-
lögur Rússa í Þýzkalandsmálunum
Líklegt talií a8 vesturveldin hafi
hafnaí tillögunni
Eldur laus í frystihúsi
á Kirkjusandi sl. helgi
Slökkviliíi(5 var aÖ verki í sex tíma. miklar
skemmdir af eldi,
Á laugardagskvöld kom upp
eldur í frystihúsi Júpiters og
Marz h.f. við Kirkjusand í
Reykjavík, Varð e'dur mikill
og slökkvistarfið mjög tor-
sótt svo að því varð ekki lok-
ið fyrr en liðiö var á nótt.
Ekki er vitað til fulfs hversu
mikið tjón hefir orðið af brun
anum, en búast má við að
það hafi verið mjög mikið.
Fjórir skipsfarmar aí' fiski,
flökuðum karfa, voru geymd-
ir í húsinu. Ókunnugt er um
eldsupptök.
Laust fyrir klukkan hálf tíu á
laugardagskvöldið barst slökkvilið
inu tilkynning um að eldur væri
laus í frystihúsinu. Þegar slökkvi-
liðið kom á vettvang kom í ljós,
að eldur var talsverður í geymslu
húsi frystihússins. Það er aðskilið
frá aðalbyggingunni og ættað til
Jsframleiðslu, en hefur undanfarið
verið notað sem fiskgeymsla vegna
húsnæðisörðugleika. Meginhluti
hússins var fullur af fiski, en í
öðrum hluta þess var verið að
ganga frá einangrun veggja.
Erfið aðstaða
Hinn auði 'hluti hússins var al-
elda, en þó tókst fljótlega að ráða
niðurlögum þess elds, en þá kom
í ljós að eldurinn hafði brotizt
inn i sjálfa fiskgeymsluna sem af-
þiljuð var með tréskilrúmi og
reyk og vatni
komizt þar í korkeinangrun á
veggjum. Húsið var fullt af reyk
og torveldaði það mjög slökkvi-
starfið, en auk þess var mjög crf-
itt að komast að fiskgeymslunni
þar sem engar dyr voru á henni
en fiskinum komið inn um litlar
túgur. Voru nú fleiri slökkviliðs-
■bílar kallaðir á vettvang, eri bar-
áttan við eldinn var hin örðugasta
þar sem ekki varð komist að fiskin
um nema á tveimur stöðurh, og
mæddust menn mjög af hinum
megna reyk er fyllti húsið. Fyrst
um tvöleytið um nóttina tókst
slökkviliðsmönnum að komast að
skilrúminu við fiskgeymstuna og
rjúfa það, og varð þá num greið-
ara um vik,- Röskum kíukkutima
síðar vár slökkvistarfinu lokið og
hafði þá staðið þvínær 6 tíma.
övisst um skemmdir
Eins og fyrr segir voru geymdir
fjórir skipsfarmar af fiski i hús-
inu eða um 12000 kassar af flökuð
um karfa. Ekki er enn vitað
hversu mikið þessi fiskur hefur
skemmzt, en hætt er við að eldur
reykur og vatn hafi unnið honum
altmikinn skaða. Rannsókn stend-
ur nú yfir og mun hún væntanlega
leiða í ljós hvort fiskurinn er ger-
ónýtur eða hvort eitthvað af hon-
um er enn nýtileg vara.
Upptök eldsins eru með öllu
ókunn, en málið er í rannsókn.
Frosthörkur og allmikill snjór
á HólsfjöIIum - þó ekki haglaust
Fjórir Mývetningar í eftirleit
á austurfjöllum þessa dagana
28 stiga frost mældist í sveitinni s.l. nótt,
en var fa)Ii<5 niftur í 15 stig í gær
Erá fréttaritara Tímans
í Mývatnssveit í gær:
Fjórir menn héðan úr sveitinni
fóru til eftirleitar á Austurfjöllum
i gær og verða að líkindum í henni
nokkra daga.
Nokkrir bændur í Mývatnssveit
lét'u fc sitt ganga á Austuríjöllum
að venju, fram eftir vetri. Var
smalað og féð rekið heim 12. des.
vel á sig komið, enda hafði tíð ver-
ið góð. Að venju vantaði þó eitt-
hvað, núna um 20 kindur, og var
ætlunin að fara í eftirlcit skömmu
síðar eins og ííökað er.
Skömmu eftir að féð kom heim, j
brá til verra veðurs og gaf aldreij
í lcitina fyrr en nú. Allmikill snjór
er kominn á fjöllunum, og var
Sjómannaverkfal!
í Hafnarfirði?
I gærkveldi var boðaöur fund-
ur í stjórn og fulltrúaráði Sjó-
mannafélags Hafnarfjarðar til
þesy paðvpeeða um það, hvort hoða
skytdi verkfall. Eins og kunnugt
er vorii samningarnir felldir þar
á c fö áúhum, en engin ákvörðun
þá tekin um vcrkfailsboðun. Ffind
urinn í gærkveldi stóð enn er
blaðið frétti síðast og búizt við
að hann stæði alllengi fram eftir.1
Var þvi ekki vitað hvort sam-j
þykkt hefir verið að' boða til
verkfalls:
ekki hægt að fara á jeppa, eins og
stundum hefir vcrið gert áður.
Fóru eftirleitarmenn því á skíð-
um.
Mikið frost.
Síðustu daga hefir verið hér
mjög frost'harL í nótt nældist
mest frost 28 st. í morgun var það
27.. Síðdegis í dag hafði það þó
lækkað í 15 stig.
Lítið imj veiðiskap.
Á þessum árstíma er hverjum
bónda leyfilegt að hafa ívö net til
veiða í vatninu, en þcim veiðiskap
hefir lílt verið sinnt, enda illa
gefið til'þess. Netin eru höfð und-
ir ís. Þykkur ís er nú kominn á
vatnið og orðinn bílheldur, svo að
nú eru irienn farnir að skjótast á
j jeppuhi milli bæja þvert yfir
j vatnið.
! Erfið færð.
! Snjór er allmikill í sveitinni og
j svo érfitt' ofan yfir heiði og niður
dalina, að ekki h,efir þótt fært að
brjótast í mjólkiirflutningum síð-
ustu daga. Síðasta mjólkurferð
féll riiður óg einnig i dag.
Mikið uin mink.
í haust varð vart við allmikið
al' mink hér i sveitinni og veiddust
allmargir. Lítjð sem ekkcrt hefir
orðið vart við dýrbít og ekki lield
ui' i l'énu, sem gekk á Austur-
fjöllurn.' PJ.
NTB—PARIS. 12. jan. — Fyrsli
fundur Attantshafsbandalagsins á
árinu hófsi í dag hcr i París og
fjallaði um tillögur Sovétríkjanna
í Þýzkalandsmálinú. Umræðurnar
fara fram fyrir lokuðum dyrum,
en talið er víst aö reynt verði að
komasl að einhverju samkomulagi
sem hægt sé að bera fram til mála-
miðlunar.
Ekki þykja hinar rússnesku til-
lögur hafa leitt neitt nýtt í ljós
og þó að verið sé að ræða þessar
Frá fréltaritara Tímans j
á Grímsstöðum i gær. 1
Hér var mikiö frost í nótt,
mældist 25 stig í morgun og
hefir vafalaust verið meira í
nótt. Snjór er æðimikill en þó
er nokkur hagi fvrir sauðfé.!
Síðustu vikurnar hefir alltaf
snjóað nokkuð, og er tekið fyrir
atlt bílfæri héðan úr sveitinni.
nýju tillögur á þessum vettvangi.
er talið líklegt að vesturveldin
hafni þeim, en þeUn sé gert vegna
formsins. Vesturveldin hafa látið
þá skoðun í ljós eins og kunnugt
er, að ekki verði málefni Þýzka-
lands leyst nema að afslöðnum
frjálsum kosningum í landinu öllu,
sem háðar verði undir alþjóðlegu
eftirliti.
bæði niður í Öxarfjörð og vestur
í Mývatnssveit. Þó hélzt bílfæri
að mestu fram um hátíðarnar.
Fé gekk hér íriest gjaflaust
úti fram í miðjan desember en
var þá tekið. Hey eru sæmilcg
að vöxtum því að september
reyndist drjúgur til heyskapar og
hirðingar. Allinikill fóðurbætir
hefir og verið keyptur.
KS
JÓHANNES NORDAL
Vogun vinnur -
Utvarpsþáttur Sveins Ásgcirsson
ar, „Vogun vinnur — vogun tapar“
var ekki fluttur s.l. sunnudag, þótt
hálfur mánuður sé liðinn, frá því
er síðasti þáttur fpr fram, heldur
flytzt hann fram á næsta sunnudag
á sama tíma og verið hefur. Það
skal tekið fram, að hér er ekki
um l>að að ræða. að neinn háttur
falli niður, heldur verða þeir jafn-
margir í vetrardagskránni og ráð
hafði verið fyrir gert.
Nokkur breyting á þættinum á
sér stað samkvæmt áætlun um
áramótin, en frá herini verður að
sjálfsögðu ekki skýrt fyrr en á
sunnudaginn kemui'.
Upptaka næsía þáttar fer. fram
í Sjálfslæðishúsinu 18. jan. og
'héfsl kl. 3 e.h. Aðgöhgumiða geta
rnenn tryggt sór þegar daginn áð-
ur, laugardag, á sama stað milli
kt. hálf tvö og þrjú.
Jóhannes Nordal settur bankastióri
í fjarveru Emils Jónssonar
Dr. Jóhannes Nordal, hag-
fræðingur Landsbankans, hef
ir verið ráðinn bankastjóri í
stað Emils Jónssor.ar meðan
hann gegnir embætti forsæt-
isráðherra. Hafði forsætisráð-
herra sjálfur óskað þess að
Jóhannes tæki að sér starfið.
Jóhannes Nordal er 34 ára að
aldri. Hann lauk stúdentsprófi í
Iteykjavík 1943 og stundaði síðan
hagfræði og félagsfræði við Lond-
on School ol Economics og lauk
þaðan doktorsprófi 1953. Hann
varð hagfræðingur Landshanka ís-
lands 1954, og er hann þegar orð-
inn einn af mest metnu hagfræð-
ingum landsins. Hafa honum verið
falin ýmis ábyrgðarstörf bæði af
hálfu bankans og eins af rikis-
stjórnum. Hefur hann sóít ýmsa
alþjóðafundi af íslands háli'u. t.d.
á síðustu mánuðum í sambandi við
friverzlunarmálið. í ráðherratíð
Gylfa Þ. Gíslasonar undanfarin ár
hefur Jóhannes Nordal kennt rekst
ui'shagfræði í viðskiptadeild Há-
skóla íslands. Þá má geta þess að
Jóhannes Nordat hefur tekið mik-
inn iþátt í félagsmálum banka-
manna, og hefur hann átt sæti í
stjórn starfsmannafélags Lands-
bankans og Bandalags islenzkra
hankamanna.