Tíminn - 08.03.1959, Blaðsíða 7

Tíminn - 08.03.1959, Blaðsíða 7
riMINN, sunnudaginn 8. marz 1959. SKRIFAÐ OG SKRAFAÐ 7 Fimm merkir vitnisburðir. - Afnám kjördæmanna er f jörráð við dreifbýlið. - Takmarkið er að draga ór framförum út um landið. - Stórauknir fólksflutningar til Suðurnesja. - Er nauðsyn- legt að fjölga flokkunum? - Er hollt að efla flokksstjórnarvaldið? - Hlutfallskosningar tryggja ekki jafnrétti. - Fordæmið frá 1908. - Látum |>á enn falla á eigin bragði. f 1 átökum þeim, sem nú standa yi'ir um kjördæmaskipunina, er engin ágreiningur um það, að eðli legt sé að fjölga þingmönnum, þar sem kjósendafjölgunin hefur orðið mcst að undanförnu. >að er því fullkomlega rétt, er Játvarður Jök ull .segir um þetta atriði í grein sem birtist í Tímanum 28. f.m.: ..Enginn stjórnmálaflokkur mun tneita því að réttmætt og sjálfsagt sé að breyta ákvæðum um skipan alþingis í þá átt að fullfcrúum hins tnýja þéttbýlis fjölgi nokkuð. Þessu til sönnunar er stefnuyfirlýsing fyrrv. ríkisstjórnar við myndun hennar 1958. Breytir þar engu um þótl svo ógæfusa-mlega tækist til, •að það stjórnarsamstarf rofnaði af öðrum ástæðum áður en þetta stefnumál og fleiri komust í frarn- kvæmd. Samkvæmt eðli málsins hlnut afgreiðsla þessa máls einmitt að bíða til loka kjörtímabilsins. Má slá því föstu, að stjórnarskrár breyting til fjölgunar þingmönnum fyrir þéttbýlið, gæti hlotið Ijúft samþykki meginhluta þjóðarinnar, væri .um það eitt út af fyrir sig áð ræða.“ Hér «r hins vegar ekki um þetta atriði fyxst og fremst að ræða. Það, sem deilan snýst um, er kosninga- fyrirkomulagið utan Reykjavíkur. Stjómarflokkarnir vilja leggja öli núv. kjördæmi niður og taka upp fá stór kjördæmi í staðinn. Það er i:m þetta, sem baráttan stendur, fyrst og fremst.’ Fjörráð vift dreifbýlití t grein Játvarðar Jökuls er það nokkuð rakið, hvaða áhrif umrædd breyting myndi hafa fyrir dreifbýl- ið. Játvarður segir: „Það er óhagganleg stað- reynd, að velflestar sveitir og aUar afskekktari byggðir þessa lands standa höllum fæti í baráttu fyrir tilveru sinni. Sam- keppnin um vinnuaflið, fjármagn- iö, framkvæmdirnar og lífsaðstöð- una alla, er nú einu sinni svo hörð sem raun ber vitni. Það er ríkis- valdið í landinu, sem þar hefir lagt og leggur þau lóð á vogarskálarnar er lirslitum valda. Svo umfangs- mikil og gagnger eru afskipti þess og ráðstafanir allar orðnar. Hinar dreifðu byggðir hafa borið skarðan hlut frá borði, þrátt fyrir það, að þær hafa átt sérstaka fulltrúa. Ef kjördæmin verða iögð niður, þá dreifist ábyrgð þingmannanna. Þá glatast að miklu leyti hið gagn- kvæma ábyrgðarsamband á milli kjósenda og þingmanna. Afnám kjördæmanna or fjörráð við sveit- irnar. Afnám kjördæmanna er á- fall, sem sveitirnar mega -undir engum kringamstæðum við. Nú þegar er aðstaðan siík, að ekkert má út af bera.“ I>að, sem hér er sagt um sveit- irnar, gildir ekki síður um sjávar- þorpin, kauptúnin og hina minni kaupstaði út um land. Kjarni málsins í hinni ágætu grein Steingríms Baldvinsisonar í Nesi, er birtist hér i blaðinu 24.;f. m. er rætt nánara um þetta atriði. Steingrimur segir: Þar er komið að kjarna málsins. Allir sjá, að þjóðin getur ekki hald- ið áfram öllu Iengur að eyða meiru en hún aflar, fjárfesting hlýtur að minnka a, m. k. á tímabili, meira verður að spara. En hvað á helzt að spara? Hvert á helzt að beina því fjármagní, sem festa má í fram- kvæmdum? Um þetta hafa átök staðið milli sljórnimálaflokkanna, og þau átök Halldór Kristjánsson harðna því meir, sem minna verð- ur til ráðstöfunar. Framsóknarflokkurmn mun eins og áður halda fram rétti lands- byggðarinnar til sanngjarns hluta af fjármagninu. Sjálfstæðis- og Alþýðuflokkur- inn telja hann standa i vegi þess sparnaðar, sem þeir vilja 'koma á. Þá fer að verða ijóst, hvað hclzt á að spara. Það er fjárfestingin úti um landið. Framlög til hafnarbóta, fiskiðju- vera, skólahúsa, vega, brúa, íbúða- bygginga, ræktunar, sandgræðslu o. fl. framkvæmda úti á Iandi á að stöðva eða takmarka svo sem unnt er. Forustumenn Alþýðuflokksins og kommúnistar, hafa ekki farið dult með þá skoðun sína, að ofmikið fé væri fest í framkvæmdum úti um land, sérstakiega í sveitunum. Sjálfstæðismcnn hafa ekkí þorað að vera jafnberorðir af ótta við at- kvæðatap. Þeir vilja losna við þenua hemil með breytingu á kjördæmaskipun. Og takist það, samkvæmt áætlun í þessari atrennu, mun skammt að bíða þess, að þeir geri ia-ndið allt að einu kjördæmi, ef þeir fá bol-l magn til.“ Aukinn fólksflótti til SucJurnesja Steingrímur segir í grein sinni, að slík breyting á kjördæmaskip- uninni feli raunar í sér byitingu varðandi jafnvægi í byggð lands- ins. Hann segir: ,,Er ekki fjarstæða að tala um þvílíka byltingu? Athugum málið nánar. Fólkið sættir sig ekki við kyrrstöðu, sé annað mögulegt; það leitar þangað, sem fjármagn gerir framkvæmdir mögulegar. Hlut- fallslega minnkandi fjárveitingar til framkvæmda í strjálbýlinu þýða því fólksflutninga þaðan, þangað sem þægindin og framfarirnar eru meiri. Sú hefur þróunin verið og sú mun hún verða. Þar, sem fólki fækkar, verður örðugra fyrir hina, er eftir sitja, og þannig vex straumþunginn án afláts. Flóttinn utan af landi til Reykja nesskagans minnkaði stóx-lega í tíð fyrrverandi stjórnar, vegna þess að fjárveitingar til dreifbýlisins voru auknar — unnið var markvisst að jafnvægi í byggð landsins. Ein- mitt þess vegna var unnið svo ötullega að því að fella hana. Og þau öfl, sem að því unnu — og tókst það — hafa nú kjördæma- bi-eytinguna sem tengilið og æðstu hugsjón. Er þá vandi að sjá hvert stef-n- ir?“ Steingrímur spyr í sambandi við þetta: „Auðvitað kæmust allir íslend- Játvarður Jökull Júlíusson Ketill Indriðason ingar fyrir við suðausturhornið á Faxaflóa, en — væri það heppilegt þjóðhags- og menningarlega?" Þaríum við fleiri flokka? í því, sem rakið er hér á undan, er Iýst nokkuð áhrifum hinnar fyr- irhuguðu kjördæmabreytingar á jafnvægið í byggð landsins. Enn fleiri annmarkar fylgja henni. Um þetta segir m. a. á þessa leið í giæin Halldórs Kristjánssonar í Tímanum 8. þ. xn.: „Eitt af því fyrsta, sem rnenn verða að ráða við sig áður en þeir taka afstöðu íil einstakra tillagna í kjöi'dæmamálinu er það, hvort þeir óska eftir mörgum stjórn- málaflokkum eða fáum. Það er nefnilega staðreynd að hlutfalls- kosningar stuðla að fjölgun flokka en einmenningskjördæmi hamla þar á rnóti. Þess vegna eru Frakk- ar að reyna að b.iarga þingræðinu hjá sér.með því að leggja niður hkitfallskosningar en taka upp ein menningskjördæmi. Ýmsir búast við að írar muni líka fara að dæmi þeii'ra, Mönnum hættir mjög við að miða all-t við flokkinn sinn og það sem virðist koma honum bezt á líðandi stundu. Slíkt er þó oftast lítilsvirði fyrir þjóðarheill og al- mannahag. Alþýðuflokksmenn segja nú, að kjördæmaskipunin sé svo fráleit að vera megi að 15% þjóðarinnar fái engan fulltrúa á Alþingi. Hinar nýju tillögur eru þó engin allsherjarlækning við því. Flokkur, sem í dag telur 15% þjóðarinnar getur hæglega klofnað svo að 7k> % verði í hvcru brot- inu. Og hver ábyrgist þá að þessi 15% fái fulltrúa á þingi? | Það er ekki mest um vert að „ley.sa kjósendur upp“, í sem allra flest brot og gera þingflokkana sem flesta. Þegar til kemur þarf förmið að vera stjórnhæft. Smá- um flokkum og mörgum fylgir það, | að eftir kosningar verður samið um stjórnarsamstarf. Bein áhrif Jón Sigurðsson Steingrímur Baldvinsson kjósenda verða því minni, sem flokkarnir eru fleiri. Hitt er meira vert að sameina kjósendur um: höfuðstefnur stjórn- málanna svo að línur verði hreinni og menn viti betur um hvað er veríð að berjast.“ Játvarður Jökull segir um þetta sama atriði í áminnstri grein s'inni: „Þyki þeim mönnum, sem bera hita og þunga dagsins i stjórn- málafo: ustunni þungt fyrir fæti og erfltt að starfa saman að lausn vandamála þjóðlífsins við núver- andi stjórnarfarsskilyrði. hvað verð ur þá eftir svo sem tvö kjörtíma- bil hér frá? Ætli þeim gengi bet- ur eftir að hiutfallskosningar væru komnar í kring og flokkarnir orðn- ir 6—7 talsins? Ætli þcinx þætti ekki sem þeir hefðu farið úr ösk- unni í eldinn?“ „Deildu og drottna<Su“ Jón Sigurðsson víkur einnig að þessu atriði í grein sinni í Tím- anura 3. þ. m. Hann segir: „Deildu cg drottnaðu“, sögðu Rómvex-jar, og reyndu að vekja innbyrðis deilur meðal þjóða, sem þeir voru að yfirvinna. „Deiidu og drottnaðu“, hugsaði Hákon gamli er hann atti saman íslenzkum höfðingjum, til þess að auðveldara væri að leggja landið undir sig. „Deildu og drottnaðu", hugsar íhaldið, er það berst fyrir hiutfallskosningum. Öllum ihalds- mönnurn, eins og öðrum, er ljóst, að hlutfailskosningar lyfta undir smáflokka. En þeir treysta á eigin samheldni, eigið skipulag og áróð- urstækni, um það að þeirra flokk- ur muni ekki klofna. Hins vegar muni vinstri flokkarnir verða fleiri og veikari með hlutfallskjöri og léftara að ná völdum og halda þeim, ef ekki þarf, ef til vill, að kaupa -nerna ein smáflokk með því t. d. að bjóða öllum aðalráðamönn- um flokksins embætti eða vegtyll- ur, t. d. ráðherrastól nokkra mán- uði. Efalaust reikna áróðursmeistar- ar íhaidsflokksins þarna rctt, —- Hlutfallskosningarnar . geta. eflb þeii-ra flokkshagsmuni um stundar-. sakir, jafnvel um árabil. Bn hitt ! ætti að vera Ijóst, að þær getá skap ; að háskalegan þjóðáfglúhdroð ', . glundroða, svo sem mörg erlend dæmi sanna.“ Ofurvald flokkssíjórna Þá mun hin fyrirhugaða skipan mjög auka vald flokkssjórnanna.. Um þetta fara Halldóri Kristjáns-- slyni svo orð: „Þá er vert að gefa gaum að því, að sú kjördæmaskipun, sem Sjálf- stæðismenn beila sér nú fyrir hlýl- ur að stuðla að því að auka flokks-; valdið. Miðstjórnir flokkanna myndu ráða rneiru eftir en áðux um framboð. Þetta er mikilsvert atriði í málinu, því að miklu skipi. ir að stjórnmálaflokkafnir séu í raun og veru félög kjósenda,, sem; aðhyllast sömu lífsskoðun stjórn- fræðilega og þjóðmálalega. Hverj- ar líkur eru til þess að’ syo geti orðið ef það tekur menn 2—3 daga: að skiæppa á flokksfund innárí'kjör dæmisins? Óhætt mun líka að ségj'a,’ að þeir rnenn, scm kosnir erti T éin menningskjördæmum séu .yfirleitt sjálfstæðari og óháðari flokksvaldi en þeir, sern kosnir eru hlutfalls- kosningu af röðuðum Iista.“ Játvarður Jökull segir um þettá atriði: „I stórum hlutfallssamsteypum myndu þessi kostir núverandi stjórnarfars réna mjög fljótlega (þ. e. að kjósendur geti ráðið valí þingmanna), og hætt er við að þeir hyrfu með öllu fyrr en pokk urn varir, en við tæki alræðisvald flokksstjórnanna með tilheyrandi ofi'íki og ofstopa og myndi þá mörgum kotkarli þykja þröngt fyr- ir dyrum. Það er slíkt ofi'íki ófyrirleitinnp flokksstjórna, sern nú þegar ætlai að kanna mátt sinn. Þess má eng inn ganga dulinn. Þar má exVginn láta koma að sér óvörum." Jón Sigurðsson segir svo um þetta atriði í grein sinni: „Einmenningskjöi’dæmin knýja rnenn til þess að finna sér franx- bjóðendur og síðan þingmenn, seir, þeir þekkja persónulega og treysta. Stóru kjördæmin með hlu.ifalls- kosningum þverhöggva þetta manii lega sjónarnxið. Þar er heimtað, pð kosið sé aðeins um flokkaj Val frambjóðendanna verður ekki á valdi kjósenda. Flokksstjörmr ■ í Reykjavík skapa listana. EnTlokk.- stjórnir eru aðeins hópar Reykvík- inga, sem deila um völdin; Kjós andinn fær aðeins að ráða, Kvern þessai’a fjarlægu óþekktu ínann- hópa hann vill styðja“. , .; Tryggja hlutfallskosn- ingar jafmétti? Það er sagt, að hlutfallskosning ar tryggi réttlæti milli flokka'um. það atriði segir Halldór Kris'fjáns- son m. a.: „Enginn þarf að halda að hlut fallskosningar trvggi tölulegt'jafn- vægi milli flokka, svo að jafnmarg ir kjósendur verði bak við hven. þingmann. 1. dæmi: í kjördæmi, sem á að kjósa 5 þingmenn cru fjórir listar í kjöri. A-listi fær 42,5% atkvæða: og 3 menn kjörna. (Framhald á 8. síöu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.